Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. HIMINNINN var að mestu hulinn dimmgráum skýjum og hafgolan blés hressilega svo bárurnar tóku heljarstökk þegar ljósmyndari átti leið um Reykjanesið. Fannhvítt og úfið brimið lamdi svarta sandana og fjörugrjótið fékk engin grið. Er- lendir ferðalangarnir fundu hald- reipi hvor í öðrum í verstu vind- hviðunum, horfðu til sjávar og hugleiddu líkast til flest annað en sjóböð. Morgunblaðið/RAX Úfið haf LÖGREGLAN hefur á síðustu tveimur mánuðum haft afskipti af þremur nektardansmeyjum á nektarstöðum borgarinnar en engin þeirra hafði atvinnu- og dvalarleyfi. Þær sögðust reyndar alls ekki vera nektar- dansmeyjar heldur ferðamenn. Stúlkurnar voru þó aðeins íklæddar efnislitlum nærfatn- aði og voru staddar á nektar- stöðunum þegar lögreglan ræddi við þær og þótti frásögn þeirra ekki mjög trúverðug. Gögn um mál þeirra voru send Útlendingaeftirlitinu til með- ferðar. Flestir eru með sín mál á hreinu Síðan í október hefur lög- reglan í Reykjavík kannað at- vinnu- og dvalarleyfi hjá tæp- lega 300 ríkisborgurum landa utan Schengen-svæðisins, sem eru við vinnu í höfuðborginni. Í langflestum tilfellum hefur fólkið tilskilin leyfi. Friðrik Gunnarsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn og yfir- maður útlendingaeftirlitsdeild- ar lögreglunnar í Reykjavík, segir að í örfáum tilfellum hafi leyfin verið útrunnin en um- sókn um endurnýjun legið fyr- ir. Í tveimur tilfellum hafi ekki legið fyrir umsókn um endur- nýjun og hafi þeim aðilum verið gert að yfirgefa landið. Friðrik tekur fram að flest fyrirtæki hafi sín mál á hreinu. Það sé helst þar sem grunur leiki á um „svarta“ atvinnu- starfsemi sem hætta sé á að at- vinnurekendur notist við ólög- legt vinnuafl. Ábendingum fjölgar Friðrik segir að ábendingum um ólöglega verkamenn hafi fjölgað í kjölfar þrengri stöðu á vinnumarkaði og frétta um fyr- irtæki, sem hafa flutt inn ólög- legt vinnuafl. Lögreglan sinnir öllum slíkum ábendingum og kannar hvort þær eigi við rök að styðjast. Fáklædd- ir „ferða- menn“ á nekt- arstað FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hf. í Mos- fellsbæ hefur gert samning til sex mánaða við ríkisflugfélagið í Nígeríu, Nigeria Airways, um áætlunarflug til og frá Nígeríu og innanlands. Nærri 100 manns fá vinnu vegna þessa verk- efnis, þar af eru Íslendingar um helm- ingur þeirra. Að sögn Davíðs Másson- ar, framkvæmdastjóra markaðssviðs Atlanta, er ákvæði í samningnum um framhald hans til annarra sex mán- aða, gangi verkefnið vel, en það hefst formlega í dag. Um er að ræða áætl- unarflug milli nokkurra borga í Níg- eríu og frá höfuðborg landsins, Lag- os, til London, Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jedda í Sádi-Arabíu. „Utanlandsflug félagsins í Nígeríu hefur legið niðri og við erum að hjálpa þeim að koma fluginu á laggirnar á ný. Við flugum milli Lagos og London fyrir flugfélagið Virgin Atlantic síð- astliðið sumar en höfum ekki áður starfað fyrir Nigeria Airways.“ Atlanta mun nota Boeing 747-300- vélar. Að sögn Davíðs er mikill upp- gangur í hagkerfi Nígeríu um þessar mundir og vill nígeríska félagið fá hluta af þeirri köku sem stór flugfélög á borð við British Airways og Virgin Atlantic hafa skipt sín á milli. „Nigeria Airways var í samstarfi við British Airways um flug milli Lag- os og London en það flosnaði upp úr því. Félagið leitaði síðan eftir sam- starfi við okkur og það var útvíkkað með flugi til Miðausturlanda. Þetta er mjög góður samningur og kemur á erfiðum tímum í flugheiminum. Verk- efnið mun að nokkru leyti vega upp á móti þeirri fækkun á fjölda áhafna sem við vorum búin að tilkynna en breytir ekki ráðningastöðunni heima fyrir. Nigeria Airways hefur mögu- leika á framlengingu samningsins, einhliða, þannig að við reiknum með að þetta verði alla vega ársverkefni.“ Atlanta hefur áætlunarflug til og frá Nígeríu í dag Verkefni fyrir um 50 Íslendinga LAUNANEFND sveitarfélaganna lagði fyrir helgi fram nýjar hug- myndir að lausn kjaradeilu tónlistar- skólakennara og sveitarfélaganna. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, for- maður Félags tónlistarskólakenn- ara, hafnar ekki að ræða þessar hug- myndir frekar, en segir að ef þær ættu að geta orðið grundvöllur að lausn yrðu sveitarfélögin að leggja meira fjármagn inn í samninginn. Verkfall tónlistarskólakennara hef- ur nú staðið í fjórar vikur. Launanefndin lagði fram tvær hugmyndir að lausn. Annars vegar að gera skammtímasamning, en nefnd fag- og samningsaðila yrði skipuð til að fjalla um kerfisbreyt- ingar þar sem sveitarfélögin gætu valið um hversu mikla þjónustu þau keyptu af kennurum. Hins vegar lögðu þau fram hugmynd að lang- tímasamningi sem fæli í sér ákvæði samin af fagaðilum um valkvæðar leiðir fyrir einstök sveitarfélög. Sigrún hafnar að ræða um skammtímasamning en útilokar ekki að ræða um langtímasamning á þess- um grunni. Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður samninganefndar launa- nefndar sveitarfélaganna, sagði að tónlistarskólakennarar hefðu mikið vísað til samnings grunnskólakenn- ara í kjaradeilunni. Þar hefðu sveit- arfélögin hins vegar samið um mikl- ar breytingar á skipulagi skólastarfs og einnig hefðu þeir verið að kaupa aukna vinnu af kennurum. „Staðreyndin er sú að hvorki tón- listarskólarnir né sveitarfélögin hafa lagt sérstaklega mikla vinnu í að ákveða hvernig tónlistarskólinn eigi að líta út í framtíðinni. Mikil vinna var á sínum tíma lögð í að móta fram- tíðarsýn grunnskólans og kjara- samningurinn sem gerður var um síðustu áramót byggðist að nokkru leyti á þeirri sýn,“ sagði Birgir Björn. Verkfall tónlistarskólakennara hefur staðið í fjórar vikur Nýjar hugmyndir að lausn deilunnar kynntar  Lausn/31 ♦ ♦ ♦ GENGISVÍSITALA íslensku krón- unnar varð hæst 148 stig í gær og er það sögulegt hámark, þ.e. gengi krónunnar varð um tíma veikara en nokkru sinni. Lokagildi gengisvísi- tölunnar varð 147,45 stig. Var veik- ing krónunnar yfir daginn 0,23% en velta á millibankamarkaði nam 3,2 milljörðum króna. Gengi krónu gagnvart Bandaríkjadal er nú 107,7. Einar Sigmundsson, hjá markaðs- viðskiptum Íslandsbanka, segir að veiking krónunnar í gær sé framhald á því sem gerst hefur á undanförnum dögum, vikum og mánuðum. „Það er ójafnvægi í gjaldeyrisstraumum vegna mikils viðskiptahalla og er- lendar lántökur hafa dregist veru- lega saman,“ segir Einar um þróun gengisvísitölunnar í gær. Verðbólga langmest á Íslandi Í hálffimm-fréttum Búnaðar- banka Íslands í gær er greint frá því að samræmd vísitala neysluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu lækkaði um 0,1% í október og stóð í 109,6 stigum en á sama tíma hækkaði sam- ræmda vísitalan fyrir Ísland um 0,6%. Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% í aðildarríkjum ESB og 8,3% á Íslandi. Gengið í gær veikara en nokkru sinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.