Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 2
2 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
staklingar verði að axla frelsi sitt af
ábyrgð. Hið góða geti sigrað, hug-
rekki, sjálfstæði og þekking geti
komið öllum langt. Þær raddir hafa
líka heyrst að bækurnar séu ekkert
annað en illa dulbúinn svartagaldur,
sem afvegaleiði ungu kynslóðina.
Líklega verður hver lesandi að
svara þessu fyrir sig, en allir aðdá-
endur Potters eru sammála um að
bækurnar um hann eru stórskemmti-
leg ævintýri og erfitt að leggja þær
frá sér í miðju kafi. Börn víla ekki
fyrir sér að leggjast í mörg hundruð
blaðsíðna bækurnar og
hafa margir fagnað því
að Harry Potter skuli
hafa tekist að draga þau
frá sjónvörpum og tölvu-
leikjum að bóklestri.
HARRY Potter er kominn ljóslifandi
í kvikmyndahúsin, ásamt vinum sín-
um Ron, Hermione og Hagrid skóg-
arverði og svo auðvitað frændfólki
sínu, Muggunum, óvininum Draco
Malfoy og hinum allra versta, Volde-
mort. Kvikmyndin er gerð eftir
fyrstu bókinni um galdrastrákinn,
Harry Potter og viskusteinninn, eftir
J. K. Rowling. Hún fylgir bókinni ná-
kvæmlega og Harry Potter-aðdáend-
ur, sem eru á öllum aldri um allan
heim, eru flestir á því að mjög vel hafi
til tekist. Aðsóknarmet myndarinnar
um allan heim sýna að aðdáendur
Harrys og félaga láta sér ekki nægja
að gleypa í sig bækurnar um hann.
Nú eru þegar komnar út fjórar bæk-
ur, en höfundurinn segir að þær verði
sjö, ein fyrir hvert ár Harrys í Hogw-
arts, skóla galdra og seiða. Og kvik-
myndirnar verða líklega jafn margar,
a.m.k. hefur þegar verið ákveðið að
mynda fyrstu fjórar bækurnar og
takan á annarri myndinni, Harry
Potter og leyniklefinn, er þegar haf-
in. Kvikmyndagerðarmennirnir eru í
kapphlaupi við tímann, því leikararn-
ir sem leika Potter og vini hans verða
að vera á sama aldri og söguhetjurn-
ar í bókunum. Það gengur ekki að
bíða með næstu mynd þar til aðalleik-
arinn er orðinn 19 ára, en Harry
sjálfur bara 12 ára.
Margt hefur verið ritað og rætt um
ástæður gífurlegra vinsælda bók-
anna um Harry Potter. Hvað er
svona merkilegt við ævintýri um 11
ára strák, sem uppgötvar að hann er
af galdramönnum kominn þegar hon-
um er boðin skólavist í Hogwarts?
Sumir segja að bækurnar hafi náð
slíkum vinsældum
því þær fjalli um
baráttu góðs og
ills, boðskapur
þeirra sé vinátta
og að ein-
Elst upp hjá Muggum
Fyrir þá sem enn hafa ekki lesið
Harry Potter bók eða séð bíómynd-
ina er rétt að kynna aðalpersónur til
leiks. Fyrstan skal telja Harry sjálf-
an Potter. Foreldrar hans voru
galdramenn, sem hinn illi Voldemort
myrti. Harry lifði naumlega af, en
ber merki um árásina á enninu; ör
sem líkist eldingu. Í fyrstu bókinni
segir af því þegar honum er komið í
fóstur hjá móðursystur sinni, Pet-
uniu Dursley, Vernon manni hennar
og Dudley syni þeirra. Þau eru ekki
galdramenn, heldur Muggar, en svo
nefnast allir þeir sem ekki hafa yfir
galdramætti að ráða. Dursley-fjöl-
skyldan er reyndar einstaklega leið-
inleg Mugga-fjölskylda og kemur illa
fram við Harry. Hann er látinn sofa í
skáp undir stiganum og aldrei hvarfl-
ar að Dursley-hjónunum að halda
upp á afmælið hans, þótt þau hrúgi
gjöfum á son sinn. Hér má svo skjóta
inn í að Harry Potter á afmæli 31.
júlí, sama dag og höfundur bókanna,
sem segist hafa valið þennan afmæl-
isdag fyrir hetjuna því henni leiddist
að enginn þekktur ætti sama afmæl-
isdag og hún. Þar að auki fannst
henni kjörið að afmælisdagur Harrys
væri að sumri, þegar hann er í fríi frá
Hogwarts, til að undirstrika leiðindi
Dursley-fjölskyldunnar. Reyndar vill
svo skemmtilega til að Daniel Rad-
cliffe, sem leikur Harry, á einnig af-
mæli þennan sama dag.
Brautarpallur 9¾
En áfram með söguna. Dag einn
berst Harry boð um skólavist í
Hogwarts og kemst þá að því hver
hann er. Hann er frægur í heimi
galdramanna, enda hefur enginn
annar lifað af árás Voldemorts.
Til að komast í skólann þarf Harry
að taka lest á brautarpalli númer 9¾
á King’s Cross-lestarstöðinni í Lond-
on. Um borð í lestinni kynnist hann
hinum rauðhærða Ron Weasley og
bókaorminum Hermione Granger.
Í skólanum hefjast ævintýrin fyrir
alvöru, þegar Harry og vinir hans
kljást m.a. við tröll og þríhöfða hund,
Hagrid skógarvörður eignast norsk-
an rákdreka, Harry eignast huliðs-
Fyrsta árs nemar í Hogwarts, skóla galdra og seiða, sigla að skólanum sem gnæfir uppi á kletti.
Fyrsta skólaárið í
Hogwarts, skóla
galdra og seiða
„ÉG er búin að lesa allar
fjórar bækurnar um Harry
Potter og ætla að sjá bíó-
myndina um leið og ég get.
Ég er búin að sjá sýnishorn
úr henni og ljósmyndir og
mér sýnist allt vera eins og
ég ímyndaði mér það,
nema Neville Longbottom
[skólafélagi Harrys], mér
fannst hann eiga að vera
ljóshærður,“ segir Gunn-
hildur Ævarsdóttir, 11 ára
Kópavogsbúi og Harry
Potter-aðdáandi.
Gunnhildur kynntist
Harry Potter þegar
mamma hennar keypti
fyrstu bókina og hvatti
hana til að lesa. „Ég hélt að
þetta væri leiðinleg bók, en
svo er þetta mjög skemmti-
legt ævintýri.“
Gunnhildur segir að bækurnar um Harry séu alveg jafnt fyrir stelp-
ur og stráka, þrátt fyrir að þær gagnrýniraddir hafi heyrst að allar
helstu hetjurnar séu karlkyns og aðeins ein stelpa, Hermione Grang-
er, sem eitthvað kveður að. „Í fyrstu bókinni líkaði hinum krökkunum
í Hogwarts ekki við Hermione, af því að hún var alltaf svo góð í öllu.
Mér fannst hún samt skemmtileg.“
Eins og sönnum aðdáanda sæmir á Gunnhildur ýmsa muni sem
tengjast hetjunni. „Ég á Harry Potter-bol, með kápumyndinni af bók-
inni Harry Potter og fanginn frá Azkaban. Svo á ég gleraugu eins og
hann gengur með og bókamerki. Ég er líka nýbúin að fá Harry Pott-
er-tölvuleik sem er mjög skemmtilegur.“
Gunnhildur er sannfærð um að hún muni halda áfram að lesa Harry
Potter næstu árin. Hún tekur undir að vissulega sé ýmislegt óhugn-
anlegt að finna í bókunum en segist aldrei hafa verið hrædd við lest-
urinn, bara spennt. „Ég hef heyrt að í Bandaríkjunum sé bókabúð
sem vill ekki selja Harry Potter-bækurnar af því að krakkar geti
farið að fikta við að galdra eftir lesturinn,“ segir hún og finnst þessi
kenning greinilega undarleg. Aðspurð segist hún ekkert ætla að
spreyta sig á göldrum. „Ég efast um að ég geti galdrað eitthvað.
Ætli það yrði ekki bara kjötsúpa úr galdraseyðinu mínu?“
Gunnhildur Ævarsdóttir, 11 ára Potter-aðdáandi
Morgunblaðið/Þorkell
„Mjög skemmtilegt
ævintýri“