Morgunblaðið - 25.11.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 25.11.2001, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 B 9 „Í mörg ár höfum við sem þekkjum Björgvin verið að hóta honum því að gefa út lítið sagnakver með fleygum sögum af honum,“ segir Gísli Rúnar Jónsson sem er höfundur bók- arinnar Bo & Co - með íslenskum texta, sem er að koma út um þessar mundir. „Björgvin var lengi vel ekki mjög hrifinn af þessari hugmynd. Í hitt eð fyrra gerðist það svo að ég hitti Jakob Magnússon á förnum vegi og við skiptumst á Bo-sögum. Þá sagði Kobbi: „Kappinn verður fimmtugur eftir tvö ár, þá skulum við gefa út sagnakver. Hann var meira að segja með tillögu að nafni, Bo bedre, og það var raunar vinnuheiti bók- arinnar lengi vel. Þegar ég viðraði þessa hugmynd við Björgvin sagði hann að við Jak- ob skyldum bara hafa þessar sögur útaf fyrir okkur. Ég sagði að það væri nú ekki hægt, sögurnar væru flestar fleygar. Þetta tal barst Jóni Karlssyni hjá Iðunni til eyrna og hann greip hugmyndina á lofti. Björgvin taldi að ég væri maðurinn til að skrifa þessa bók, en við höfum nú þekkst í þrjátíu ár.“ En hvernig skyldu þeir félagar Björgvin og Gísli Rúnar hafa kynnst? „Fyrsti fundur okkar var þannig að ég var staddur í Laugarásbíói og vissi þá ekki hver Björgvin Hall- dórsson var – ég fylgdist illa með poppinu þegar ég var 14 ára, var þá mest að hlusta á djass. Ég beið þarna í röð eftir miðum og sá þá út- undan mér skarpholda dökkhærða stúlku með afskaplega langt og íbjúgt nef. Ég vék mér að kunningja mínum og sagði í lágum hljóðum: „Býsn er þarna ófríður kvenmaður.“ Hann svaraði: „Nei, þetta er söngvarinn í Bendix.“ Bíttu í gleraugun á þér Ég var í gagnfræðaskólanum við Lindargötu og sessunautur minn var Sveinn Larsson sem var trommuleikari í Bendix og seinna í Ævintýri. Hann var þar með Björg- vini Halldórssyni en seinna var svo Björgvini boðið í Flowers, svo sem frægt var. Sú hljómsveit spilaði gjarnan í Silfurtunglinu og þangað fórum við Svenni oft að skemmta okkur. Eitt sinn eftir ball þá kynnti Sveinn mig fyrir þessum söngvara og hvatskeytislega Hafnfirðingi. „Þetta er Gísli Rúnar sessunautur minn.“ Björgvin leit á mig og var ekki mjög spenntur: „Bíttu í gler- augun á þér.“ – Ég gekk þá með gleraugu. Okkur Björgvini var að svo mæltu boðið í samkvæmi heim til Sveins en heldur lítið varð um samræður okkar í milli eftir þetta. Síðar kynntumst við í gegnum konurnar okkar – þær eru systra- dætur og samgangur hefur verið milli fjölskyldna okkar síðan. Börn- in okkar léku sér saman, Svala dótt- ir Björgvins og Björgvin sonur minn eru jafnaldrar.“ Og hvernig hefur svo samstarfið við gerð bókarinnar gengið – skyldi Björgvin hafa sagt margar sögur af sér? „Hann er iðulega mjög þögull um eigin hag, ekki síst af því að honum lætur betur að segja frá í stuttu máli, helst í einlínu. Ég leitaði því á önnur mið. Björgvin á stóran frændgarð og þar er fólk sem er náttúrað til safaríkra frásagna, t.d. móðir hans, bróðir hans eldri og æskufélagar hans tveir, svo og fjöl- margir samferðamenn aðrir. Það var mér líka til mikillar hjálpar að Björgvin er safnari af guðs náð, hann á mikið safn upplýs- inga af ýmsu tagi sem ég fékk að moða úr. Þetta var svo mikið að vöxtum að ég hefði getað gefið út Bo bedre - samlede værker. Ég þurfti því að velja og hafna í ríkum mæli. Það tók mig langan tíma að fóta mig í þessum efnivið. Ég hef aldrei skrifað bók áður en ég hef hins veg- ar sinnt ritstörfum mikið, þótt ekki hafi það farið hátt. Ég hef skrifað afar mikið af efni í skemmtiþætti ýmiskonar fyrir sjálfan mig og aðra. Ég hef einnig þýtt margvíslegt efni. Ég naut þess líka að hafa lesið mjög mikið af ævisögum, ekki síst um listamenn. Helsti galli þeirra bók- mennta er að fólki eru mislagðar hendur við skriftirnar og það gerir of mikið af að gera upp sakir við ýmsa úr fortíðinni. Þessi maður hlýtur að vera 150 ára Bókin um Bo er á heldur gam- ansömum nótum en hún er al- vörugefin líka. Í mínum augum er þetta ekki ævisaga – ég kalla þetta úrklippubók, en hún rekur eigi að síður æviferil Björgvins í „krónólóg- ískri“ röð frá fæðingu til dagsins í dag. Bókin er hátt á fjórða hundrað síður enda segir hún frá við- burðaríku lífi, ég taldi 34 starfsheiti Björgvins á jafnmörgum árum. Björgvin hefur unnið sem messa- gutti, afgreiðslumaður í búð, for- stjóri plötupressu, leikari, þulur, söngvari, textahöfundur, hafn- arverkamaður o.s.frv. Hann hefur sannarlega víðtæka reynslu. Júlíus Brjánsson sagði þegar honum var sýndur listinn yfir starfsferil Björg- vins: „Þessi maður hlýtur að vera 150 ára gamall.“ Bo bedre Morgunblaðið/Þorkell Björgvin Halldórsson og Gísli Rúnar Jónsson. Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á:  þök  þaksvalir  steyptar  rennur  ný og gömul hús Góð þjónusta og fagleg ábyrgð undanfarin 20 ár - unnið við öll veðurskilyrði - sjá heimasíðu www.fagtun.is FAGTÚN Brautarholti 8 • sími 562 1370 Yfir 21 milljón afgreiðslustaða um allan heim Engir lausir endar!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.