Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 B 19 bílar GOODYEAR Ultra Grip er besta vetrardekkið með nöglum og Nok- ian Hakkapeliitta Q það besta án nagla, samkvæmt stærstu norrænu dekkjaprófuninni sem fram fer hvert ár. Að könnuninni standa Motor og Aftonbladet í Noregi, Auto Motor & Sport í Svíþjóð, Tekniikan Mailma i Finnlandi og Auto Review í Rússlandi. Í próf- uninni fá nagladekkin hærri með- aleinkunn en naglalaus dekk. *+,-*./       0123 4567  8 2 5 9+  !"#  $   % & " '( ) ! ' '  #$%  *' +:;/  !"#  $ " '( ) ! ' '  </ ! ' **' & >(=<  !"#+*( ) - . && ()%/ +01 02 +>,+?     @A<<     $& B3    !C  3  3 3  3  3 3 C  3 3 3 3 !C  3 C 3 3 3 !!C D2  " @     % @22 E           & F 22           % > 2        %% > G?         2         % ( E 2 ;@AB,//A<<         %$ D2        $ > G?       $# 2    $$           %% ,2 2      % Stór norræn prófun á vetrardekkjum Goodyear og Nokian bestu dekkin  „ÞETTA er í fyrsta sinn sem Volvo endurnýjar alla línu vörubíla sinna sem eru yfir 16 tonn því árið 1993 var að- eins FH-línan endurnýjuð og árið 1998 FM-línan. Nú getum við boðið nýjungar í vörubílum fyrir hin ólíkustu verkefni þeirra,“ segir Ríkarður Úlfarsson, framkvæmdastjóri sölusviðs atvinnu- tækja hjá Brimborg, sem hefur umboð fyrir Volvo-bíla. Volvo kynnir nýju lín- una um þessar mundir og kveðst Rík- arður gera ráð fyrir að fyrstu bílarnir gætu komið til Íslands í mars-apríl en fjöldaframleiðsla hefst í febrúar. Ríkarður segir að Volvo hafi lengi stefnt að því að samræma ýmsa hluti í framleiðslu FM- og FH-bílanna og nú sé það orðin staðreynd. Meginmunur á bílunum sé sá að FM, sem er með held- ur lægra húsi og lægra að stíga uppí, henti helst í ýmsa vörudreifingu, bygg- ingarvinnu, gámaþjónustu og fleiri verkefni sem krefjast þess að bílstjóri sé mikið á ferð inn og út úr bílnum. FH bílarnir eru með háu húsi og svefn- plássi eða vinnuaðstöðu, eins konar skrifstofu fyrir bílstjórann. Þeir henti fremur til flutninga á löngum leiðum og er til dæmis hinn dæmigerði bíll fyr- ir vöruflutninga um Evrópu þvera og endilanga þar sem tveir bílstjórar geta skipst á um akstur og önnur störf sem tilheyra flutningunum. Að öðru leyti segir Ríkarður menn kaupa bílana nokkuð burtséð frá því í hvað þeir henta nákvæmlega, sumum finnist til dæmis FH-gerðin með stóra húsinu glæsilegri bíll á velli og vilja eiga kost á aðstöðunni sem húsið býður uppá. Fjöldaframleiðsla á nýju FH- og FM- bílunum hefst í febrúar á næsta ári og gætu fyrstu bílarnir verið komnir til Ís- lands nokkrum vikum síðar – ef kaup- endur eru tilbúnir. Ríkarður kveðst hæfilega bjartsýnn, segir að vísu hafa verið samdrátt í vörubílasölu á árinu, sérstaklega meðal verktaka. Hins veg- ar sé sífellt að fjölga notkunarsvið- unum og t.d. sé aukning í allri þjónustu kringum sorphirðu og gámaflutninga sem henni tengist. Vinna við þróun nýju vörubílanna hófst hjá Volvo árið 1997 og alls nemur fjárfestingin rúmum 5,5 milljörðum króna. Um 1.200 manns komu við sögu og lagðar voru um tvær milljónir vinnu- stunda í tækni- og verkfræðivinnu. Frumgerðirnar fóru í prófun í maí 1999 og því má skjóta hér inn að enginn bíll var sendur til Íslands til reynslu eins og í endurnýjun FM-línunnar árið 1998. Þá var bíll um tíma reyndur í verkefni í Hvalfjarðargöngunum. Meðan á þróun bílanna stóð voru 50 bílar og hús tekin í árekstraprófanir að meðtöldum nokkrum fólksbílum. Morgunblaðið/jt Hér sést vel munurinn á húsunum á FH- og FM-gerðunum, hversu FH-húsið (t.h.) er hærra og stærra. Volvo endur- nýjar FH- og FM-vörubílana Vel fer um Ríkarð Úlfarsson undir stýri á nýju línunni. ...ferskir vindar í umhirðu húðar Byltingarkennd nýjung frá Karin Herzog VítamínH krem sem inniheldur einnig B1, B2, B6, B12 vítamín ásamt betakarotin Stórkostlegur árangur fyrir allar húðtegundir. Kynningar í vikunni: Mánudag: Apótekið Iðufelli, Hagkaup Kringlunni. Þriðjudag: Lyf og heilsa Mosfellsbæ. Miðvikudag: Hagkaup Kringlunni. Fimmtudag: Debenhams, Hagkaup Spönginni, Hagkaup Smáralind, Hagkaup Kringlunni. Föstudag: Lyf og heilsa Suðurströnd, Debenhams, Hagkaup Skeifunni, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind. Laugardag: Debenhams, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind. Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland Kalk Citrate FRÁ Fyrir bein, tennur. maga og ristil. MeðGMP gæðaöryggi. H á g æ ð a fra m le ið sla Apótekin FRÍHÖFNIN O D D IH F H 63 81 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík Sími 520 3000 www.sminor.is Ljós í miklu úrvali fyrir heimilið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.