Morgunblaðið - 25.11.2001, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 B 25
bíó
Í hundruð ára hafa
Íslendingar ræktað
sauðfé á hreinu,
óspilltu landi
Þú getur treyst gæðum
íslenska lambakjötsins
Landssamtök sauðfjárbænda
Nám sem nýtist þér!
er tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og
samskiptagreinar. Brautin er starfstengd og fara nemendur í
starfsþjálfun í ein bestu fyrirtækin í Kópavogi.
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Kennsla hefst 8. janúar.
Framhaldsnám á skrifstofubraut
Kennt á kvöldin
Nú stendur einnig yfir innritun í tveggja anna framhaldsnám á
skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á
tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar.
Kennt er frá kl. 17:20 til 21:45,
mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Inntökuskilyrði: Nemendur hafi lokið a.m.k. fjórum önnum í
framhaldsskóla eða hafi reynslu af skrifstofustörfum. Þeir nemendur sem
lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi ganga fyrir
um skólavist. Hægt er að stunda annað hvort fullt nám eða velja
úr fjölbreyttu námsvali brautarinnar. Kennsla hefst 14. janúar.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
v/Digranesveg, 200 Kópavogi,
sími 594 4000, fax 594 4001.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Skrifstofubraut I
Dagskrá
Inngangsor› um mikilvægi n‡sköpunar
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Entrepreneurship and Beyond
Dr. Timothy S. Hatten prófessor og höfundur bókarinnar
„Small Business Entrepreneurship and Beyond“.
A› halda flugi – um stjórnun og fjármögnun vaxandi rekstrar
Tómas Ottó Hansson hagfræðingur og rekstrarráðgjafi.
Af eldhúsbor›inu til flriggja milljar›a veltu
Ingi Guðjónsson forstjóri Lyfju hf.
Fundarstjóri verður Hanna Katrín Friðriksson
verkefnastjóri við Stjórnendaskóla HR.
Fundurinn ver›ur haldinn flri›judaginn
27. nóvember á 3ju hæ› Háskólans í Reykjavík
vi› Ofanleiti og er öllum opinn.
Fundurinn stendur frá kl. 8:15 til 10:30.
Morgunfundur, flri›judaginn 27. nóvember, um a›stæ›ur
- og stundum erfi›leika - fyrirtækja me›an flau flróast
af frumkvö›lastigi til fyrirtækis í fullum rekstri.
MEL Smith er fæddur í London 3.desember árið 1952 og verð-ur því 49 ára gamall á morg-
un. Til hamingju með það.
Eins og margir af frægustu grín-
istum Breta stundaði Smith nám í
einni helstu og virtustu menntastofn-
un Englands, sjálfum háskólanum í
Oxford. Það er eins og fínustu, jafn-
vel snobbuðustu háskólarnir sem
standa fyrir fornar, enskar hefðir og
dyggðir, hafi kveikt óslökkvandi þörf
hjá sumum nemendum sínum fyrir
að hafa einmitt þessar hefðir og
dyggðir að háði og spotti. Þar nægir
að nefna Peter Cook og Dudley Moore,
Monty Python-gengið, Rowan Atkinson,
Stephen Fry og Hugh Laurie, og svo Mel
Smith og helsta samstarfsmann hans
gegnum tíðina, Griff Rhys-Jones. Allir
hafa þessir grínistar unun af því að
gefa virðuleikanum og bælingunni
langt nef, hver með sínum hætti.
Mel Smith fetaði sig fyrst inn á leik-
listarbrautina sem foringi leikhóps
en ekki leið á löngu uns grínið varð
hans ær og kýr enda hefur hann ekki
aðeins kómískt andlit og vaxtarlag
heldur líka þessa sérbresku tilfinn-
ingu fyrir góðri tímasetningu í leik.
Þeir Griff Rhys-Jones eru einn líf-
seigasti gríndúett Breta. Stóra gegn-
umbrotið kom þegar þeir félagar
hófu ásamt fleirum gerð sjónvarps-
revíunnar Not the Nine O’Clock
News árið 1979, sem var á köflum
stórskemmtileg skopstæling á sjón-
varpsfréttatíma. Í framhaldi af vel-
gengni hennar fengu Smith og Rhys-
Jones að halda úti eigin sjónvarps-
þáttum, sem lifðu í alls 11 ár undir
nöfnunum Smith & Jones, Alas
Smith & Jones og The World Accor-
ding to Smith & Jones.
Smith fór jafnframt að fá leik-
hlutverk í bíómyndum og sjónvarps-
myndum, eins og Bullshot (1983),
National Lampoon’s European
Vacation (1985) og Morons From
Outer Space (1985), sem hann skrif-
aði einnig handritið að, rétt eins og
Wilt (1989) og tókst ekki vel upp.
Fyrsta leikstjórnarverkefnið kom
fjórum árum síðar, árið 1989. Það var
The Tall Guy með Jeff Goldblum, gerð
eftir handriti Richards Curtis, gamals
samstarfsmanns Smiths úr Not the
Nine O’Clock News, sem síðar tókst
mun betur upp með Four Weddings
And a Funeral, Notting Hill, Bean og
Bridget Jones’ Diary. Smith sýndi
heldur engin sérstök tilþrif við leik-
stjórnina. Næst leikstýrði Smith fars-
anum Radioland Murders (1994) og
virtist ekki hafa farið mikið fram, því
myndin var mestanpart hamagang-
ur. En með Bean (1997) slógu þeir fé-
lagar Smith, sem leikstjóri, Curtis, sem
handritshöfundur og Rowan Atkinson
sem aðalleikari, rækilega í gegn, eins
og menn muna.
High Heels and Low Lives er
fyrsta mynd Smiths, sem leikstjóra
eftir Bean. Þar eru félagar hans Curt-
is og Atkinson víðsfjarri, en handritið
skrifar Kim Fuller sem því miður ber
ábyrgð á handritinu að Spice Girls-
myndinni. Myndin er, sem fyrr segir,
grínspennumynd, og segir frá ungri
hjúkrunarkonu (Minnie Driver) og am-
erískri vinkonu hennar (Mary McCorm-
ack), sem komast á snoðir um banka-
rán og ákveða að kúga fé út úr
ræningjunum í þágu góðs málstaðar.
Sjálfur segir Smith um verkefnið að
það hafi heillað hann vegna þess að
það bjóði upp á eltingarleiki og
spennu og grín. „Mér fannst gaman
að glíma við að halda öllum þessum
boltum á lofti,“ segir hann. Og svo er
að sjá hvort hann hafi gripið þá alla í
réttri röð.
Húmoristi með
hasarþörf
Unnendur bresks gríns, ekki síst sjón-
varpsgríns, kannast vel við kinnamikið
andlit, sem er í laginu eins og kartafla
með skúffukjaft. Það tilheyrir Mel nokkr-
um Smith, sem í seinni tíð hefur jafn-
framt haslað sér völl sem leikstjóri,
þ.á m. vinsældasmellsins mikla Bean með
Rowan Atkinson og nú grínspennumynd-
arinnar High Heels and Low Lifes, sem
við gætum kallað Háir hælar og glæpa-
stælar og er frumsýnd hérlendis um
helgina.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
Mel Smithog grín-
félagi hans Griff Rhys-Jones
hafa farið í fjölmargar leikferðir
með uppistand sitt víða um
heim. Þeir hafa jafnframt skrifað
saman nokkrar bækur og Mel
Smith gerðist poppari þegar
hann söng með Kim Wilde jóla-
smellinn Rocking Around the
Christmas Tree.