Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 13

Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 13 SAMKVÆMT frumvarpi heilbrigðis- ráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu og almanna- tryggingar, sem er til meðferðar hjá heilbrigðisnefnd Alþingis, er heil- brigðisstarfsmönnum skylt að veita Tryggingastofnun ríkisins, TR, upp- lýsingar úr sjúkraskrám „vegna ákvörðunar um greiðslu bóta endur- greiðslu reikninga og vegna eftirlits- hlutverks stofnunarinnar“, eins og segir í frumvarpinu. Í umsögn sinni um frumvarpið gera samtök lækna athugasemdir og telja þessa grein frumvarpsins stangast á við lög um réttindi sjúklinga og persónuvernd. Persónuvernd gerir sömuleiðis at- hugasemdir en forstjóri stofnunar- innar átti fund með heilbrigðisnefnd Alþingis á mánudag. Í frumvarpinu segir ennfremur að upplýsingar úr sjúkraskrám skuli að- eins veittar læknum Tryggingastofn- unar eða tannlæknum þegar það eigi við. Þá sé læknum TR, eða tannlækn- um, heimilt að skoða sjúkraskrár sem reikningsgerð á hendur stofnuninni byggist á. Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur, Sérfræðingafélag ís- lenskra lækna og Félag íslenskra heimilislækna skiluðu inn sameigin- legri umsögn um frumvarp heilbrigð- isráðherra. Vegna 8. greinar frum- varpsins, þar sem kveðið er á um aðgang Tryggingastofnunar að sjúkraskrám, benda læknasamtökin á lög um réttindi sjúklinga þar sem segi m.a. að þess skuli gætt við að- gang að sjúkraskrám að þær hafi að geyma viðkvæmar persónuupplýs- ingar sem séu trúnaðarmál. Persónu- vernd sé heimilt samkvæmt lögum að veita aðgang að sjúkraskrám vegna vísindarannsókna. Læknar segja að samkvæmt þessu sé aðgangur að sjúkraskrám óheimill nema þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem þurfi að nota skrárnar starfa sinna vegna og þeim sem hafi fengið leyfi Per- sónuverndar til vísindarannsókna. Umrædd samtök lækna benda einnig á lög um persónuvernd og vekja at- hygli á að í athugasemdum við þessa grein frumvarpsins sé enga umfjöllun að finna um að litið hafi verið til per- sónuverndarsjónarmiða við gerð þess. Læknar telja eðlilegt að laga- ákvæðinu sé sniðinn þrengri stakkur en eftir sem áður sé hægt að taka tillit til eftirlitshagsmuna Tryggingastofn- unar. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, sagðist vona að heilbrigðisnefnd tæki athugasemdir lækna til greina, sem settar hefðu verið fram með málefnalegum rökum. Læknafélagið væri meira en tilbúið til viðræðna og skoðanaskipta um málið. „Lögfræðingar okkar benda á að tillaga að þessari lagabreytingu sé gerð án þess að álitamálin séu reifuð. Við viðurkennum möguleika á eftir- liti, og höfum átt samstarf við Trygg- ingastofnun í þeim efnum, en í ljósi nýrra laga um réttindi sjúklinga og persónuvernd kann þetta að vera í ólagi,“ sagði Sigurbjörn sem gagn- rýndi jafnframt málsmeðferðina á Al- þingi. Þar væri skammur frestur gef- inn til athugasemda á sum þingmál sem komin væru langt á veg. Ekki gert ráð fyrir samráði við hina skráðu Forstjóri Persónuverndar, Sigrún Jóhannesdóttir, átti sem fyrr segir fund á mánudag með heilbrigðis- nefnd Alþingis um frumvarpið en stofnunin fékk það í hendur til um- sagnar í síðustu viku eftir að það hafði farið í gegnum fyrstu umræðu á Al- þingi. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Sigrún setja ýmis spurninga- merki við 8. grein frumvarpsins þar sem kveðið er á um aðgang Trygg- ingastofnunar að upplýsingum úr sjúkraskrám sjúklinga. „Aðgangurinn sem þessi stofnun á að fá virðist vera mjög víðtækur. Ekki verður ráðið af athugasemdum með frumvarpsgreininni hvaða brýnu almannahagsmunir kalli á svo víð- tækan aðgang að jafn viðkvæmum upplýsingum og er að finna í sjúkra- skrám. Tryggingastofnun hefur til þessa getað leitað til Ríkisendurskoð- unar, átt kost á að fá upplýst sam- þykki bótaþega eða eftir atvikum læknisvottorð. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir neinu samráði við hina skráðu,“ sagði Sigrún. Hún sagðist ekki gera mál úr því að umsagnar Persónuverndar hafi ekki verið leitað fyrr en í síðustu viku, eftir að frumvarpið var farið í gegnum fyrstu umræðu á Alþingi. Kjarni málsins væri sá að í sjúkraskrám gætu verið mjög viðkvæmar upplýs- ingar og Tryggingastofnun væri ekki aðili sem veitti heilbrigðisþjónustu heldur heilbrigðisstofnun og greiðslu- aðili sem gæti leitað annarra úrræða, svo sem liðsinnis Ríkisendurskoðun- ar, ef eitthvað óeðlilegt virtist vera á ferðinni. „Menn verða að fara sér mjög hægt og sýna fram á ríka þörf sem ekki verði fullnægt með öðrum hætti til þess að veittur verði svo víðtækur að- gangur að viðkvæmustu einkalífsupp- lýsingum fólks,“ sagði Sigrún. TR fær aðgang að sjúkraskrám samkvæmt frumvarpi Læknasamtökin gera athugasemd BARBARA J. Griffiths, sendi- herra Bandaríkjanna á Íslandi, sagði á fundi Alþjóðamálastofn- unar Háskóla Íslands í gær að það væri undir Afgönum sjálfum komið hvort varanlegur friður og pólitískur stöðugleiki kæmist á í landinu. Afganar mættu hins veg- ar vita að þeir gætu átt von á stuðningi erlendra ríkja tækist þeim vel upp í þeim efnum. Griffiths var frummælandi á málþingi Alþjóðamálastofnunar um baráttuna gegn hryðjuverka- mönnum og stríðið í Afganistan. Þakkaði hún þann árangur sem þegar hefði náðst þeirri breiðu samstöðu sem náðst hefði meðal þjóða heims, þ.m.t. Íslendinga. Hún sagði að nokkuð hefði borið á gagnrýnisröddum í garð Banda- ríkjamanna fyrir að vera ekki vandir að vinum sínum í barátt- unni gegn hryðjuverkum. Menn gætu hins vegar treyst því að Bandaríkin myndu ekki loka aug- unum fyrir mannréttindabrotum, sem framin væru í sumum ríkj- um, jafnvel þó að þau ríki hefðu upp á síðkastið veitt Bandaríkja- mönnum aðstoð. Bandaríkjamenn myndu áfram halda uppi merkjum mannrétt- inda og lýðræðis í heiminum. Aðrir sem tóku til máls á mál- þinginu voru John Culver, sendi- herra Bretlands, Louis Bardollet, sendiherra Frakklands, Hendrik Dane, sendiherra Þýskalands, og Timo Koponen, sendiherra Finn- lands og talsmaður Evrópusam- bandsins á Íslandi. Á eftir fram- sögum stýrði Gunnar G. Schram prófessor almennum umræðum. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Framhaldið undir Afgönum sjálfum komið GUNNAR Karl Guðmundsson, að- stoðarforstjóri Skeljungs, segir að verðlækkanir á dísilolíu á síðustu 12 mánuðum séu mjög sambærilegar á Íslandi við lækkanir í öðrum lönd- um. Hann vísar fullyrðingum Sam- taka iðnaðarins á bug en þau full- yrtu í Morgunblaðinu í gær að álagning á dísilolíu hefði farið stig- hækkandi síðasta árið. Gunnar Karl sagði að í saman- burði Samtaka iðnaðarins væri ver- ið að bera saman fob-verð á gasolíu í Bandaríkjunum við dæluverð á Ís- landi sem væri allt annar hlutur. Hann sagði að eðlilegt hefði verið að Samtök iðnaðarins leituðu upplýs- inga og skýringa hjá okkur á töl- unum í stað þess að beina þeim til Samkeppnisstofnunar. Gunnnar Karl benti á að reglu- lega væri gerður samanburður á gasolíuverði af óháðum aðila, Int- ernational Energy Agency. Þar kæmi fram að dísilolía hefði lækkað á einu ári um 24,2% í Bandaríkj- unum. Í Kanada væri lækkunin 15,6% og Þýskalandi 19,3%. Lækk- unin í öðrum Evrópulöndum væri nokkru minni. Lækkunin á Íslandi á þessu sama tímabili væri 19,1%. Lækkun dísilolíu hér á landi væri því síst minni en í nágrannalöndum okkar. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins, sagðist ekki vilja munn- höggvast við Samtök iðnaðarins um olíuverð á opinberum vettvangi. Hann sagði að búið væri að kæra ol- íufélögin til Samkeppnisstofnunar- innar og hún myndi væntanlega kalla eftir rökstuðningi þeirra fyrir verðlagningu olíuvara. Olíufélagið myndi senda stofnuninni greinar- gerð um málið eins og það hefði raunar gert áður. Samkeppnisstofn- un hefði áður skoðað verðlagningu olíuvara án þess að hún hefði séð ástæðu til að bregðast við ásökun- um um óeðlilega viðskiptahætti enda hefðu þær ásakanir ekki átt við rök að styðjast. Sambærilegar lækkanir á dísilolíu hér og erlendis GUÐFRÆÐISTOFNUN Há- skóla Íslands gengst fyrir mál- þingi föstudaginn 30. nóvember sem tileinkað er dr. Sigurbirni Einarssyni biskupi í tilefni af níræðisafmæli hans 30. júní sl. Málþingið verður haldið í Há- tíðarsal Háskóla Íslands kl. 14– 17. Yfirskrift málþingsins er: Trúarbragðafræði við dögun 21. aldar. Erindi halda: Pétur Péturs- son, Þorsteinn Gylfason, Krist- ín Loftsdóttir, Jón Ma. Ás- geirsson, Haraldur Ólafsson og Sigurbjörn Einarsson, Fundarstjóri verður Gunn- laugur A. Jónsson. Allir vel- komnir. Málþing um trúar- bragða- fræði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.