Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 46
ALLT sem tengist bresku Bítl- unum vekur ávallt áhuga almenn- ings og uppboð á munum sem tengjast þeim eru vinsæl. Á morg- un verður uppboð á bítlamunum á veitingahúsinu Sticky Fingers í Lundúnum en svo skemmtilega vill til að eigandi þess er Bill Wyman, fyrrum bassaleikari erkifjendanna Rolling Stones, og er það uppfullt af gömlum Stones-munum. Á myndinni sést Siobhan O’Conner, starfsmaður uppboðsfyrirtækisins Fleetwood Owen, með herðatré með myndum úr teiknimyndinni Yellow Submarine. Búist er við að herðatrén seljist á jafnvirði 100 þúsund króna. AP Bítladót boðið upp MARGIR muna eftir bresku sjón- varpsþáttunum Spitting Image þar sem gert var miskunnarlaust grín að ýmsum frammámönnum heimsins með því að búa til leik- brúður í þeirra mynd. Þessir þættir lögðu upp laupana árið 1996 og á undanförnum mán- uðum hafa brúðurnar verið seld- ar á uppboðum og á Netinu. Nú stendur til að selja síðustu 260 brúðurnar á uppboði hjá Sothe- by’s og ef menn vilja eignast Margréti Thatcher, Madonnu, eða Mike Tyson ættu þeir að mæta á fimmtudaginn. Osama bin Laden verður einnig boðinn upp og á myndinni horfist Roger Law, einn af forvígismönnum þáttanna, í augu við bin Laden. Ágóði af sölu þess síðarnefnda verður látinn renna í sjóð til styrktar fórnarlömbum hryðju- verkaárásanna í Bandaríkjunum. Bin Laden boðinn upp í góðgerðarskyni Skopbrúða Osamas bin Ladens horfist í augu við skapara sinn, Roger Law. Reuters Brúða Járnfrúarinnar er trúlega sú allra frægasta í stóru safni Spitting Image-hópsins. Reuters FÓLK Í FRÉTTUM 46 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir Miðasala opnar kl. 15 Eltingarleikurinn við hættulegasta glæpamann alheimsins er hafinn. Endalaust fyndin mynd frá framleiðendum Big Daddy og Wedding Singer og snillingurinn David Spade (Just Shoot Me) er súper-lúðinn!  E.P.Ó. Kvikmyndir.com  Empire SV Mbl  Rás 2 MOULIN ROUGE! Hausverkur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni. Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í frábærri hasarmynd sem inniheldur stórkostlegar tæknibrellur og mögnuðustu bardagaatriði sem sést hafa. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4. Með íslensku tali.  1/2 Ungfrú Skandinavía Íris Björk Ljóskur landsins sameinist! Reese Witherspoon fer á kostum sem ljóska sem sannar hvað í ljóskum býr Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. STAR Wars og The Empire Strikes Back hafa verið valdar bestu myndir allra tíma í könnun sem breska sjónvarpsstöðin Channel 4 stóð fyrir á dög- unum. Aðspurðir, sem skiptu þúsundum, gátu valið sína uppáhalds- kvikmynd af 100 mögu- legum sem teknar höfðu verið saman af kvikmynda- gerðar- mönnum og gagnrýnendum. Í annað sæti listans skipuðu sér fyrsta og önnur myndin um Guðföðurinn og í því þriðja lenti kvikmynd Franks Darabons, The Shawshank Redemp- tion. Áberandi er á listanum hversu ungar myndirnar eru og vaknar spurning hvort mönnum finnist kvik- myndagerðinni almennt hafa farið svo virkilega fram. Er þó líklegasta skýringin á þessu sú að þátttakend- ur í könnuninni hafi verið í yngri kantinum og í þokkabót hlýt- ur minni hinna eldri að vera orðið eitt- hvað gloppótt. A.m.k. komust ein- ungis tvær „gamlar“ myndir á meðal hinna tíu vinsælustu, Some Like It Hot og It’s A Wonderful Life. Til að kóróna slaka útkomu eldri mynda náði sú mynd sem hingað til hefur talist sú besta í sög- unni í viðlíka könnunum, Citi- zen Kane Orsons Welles, ekki hærra en í nítjanda sæti. Tíu bestu kvikmyndir allra tíma að mati bresku þjóðarinnar: 1 Star Wars/The Empire Strikes Back 2 The Godfather/The Godfather II 3 The Shawshank Redemption 4 Pulp Fiction 5 Some Like it Hot 6 Gladiator 7 It’s a Wonderful Life 8 Blade Runner 9 Schindler’s List 10 GoodFellas Uppáhaldsbíómyndir bresku þjóðarinnar Stjörnustríðið stendur upp úr Svarthöfði er með betur heppnuðum illmennum kvikmyndanna – um það deila fáir. MARIAH Carey fær útrás fyrir ar- mæðu sína yfir erfiðleikum í ásta- lífinu með því að kýla karlmann. Nánar tiltekið þá lætur söngkonan sorgmædda höggin dynja í gríð og erg á sandpoka sem er eins og karl- maður í laginu. Fórnarlambið hefur hún nefnt Bob og geymir í kjallara villu sinnar. „Ég fæ mikla útrás þegar ég ímynda mér að pokinn sé karl- maður og læt höggin dynja á hon- um,“ segir Carey hin kjarnyrta. „Hins vegar þykir mér þó ennþá betra að láta þá heyra það.“ Reuters Kjarnakvendið Carey. Mariah kýl- ir karlmann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.