Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 19 Lagersala á Fiskislóð 73 (úti á Granda), 101 Reykjavík. Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00 Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00 Föstudaga kl. 14:00 til 18:00 Laugardaga kl. 12:00 til 16:00 Outlet Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!! Opnunartími: ● FJÁRMÁLAMENN í City í London efast um að Baugur geti fjármagnað yfirtöku á Arcadia, að því er fram kemur á fréttavef The Times. Þar kemur einnig fram að ólíklegt er að formlegt tilboð í Arcadia berist frá Baugi fyrr en eftir áramót. Vitnað er í heimildarmenn sem telja ólíklegt að formlegt tilboð verði sett fram í þessari viku eða næstu og af því er dregin sú ályktun að til- boð komi ekki fram fyrr en í janúar. Heimildarmennirnir segja einnig að fjármögnun Baugs gangi sam- kvæmt áætlun. The Times telur að hugsanlegir fjárhagslegir bakhjarlar tilboðsins muni krefjast upplýsinga um viðskipti félaganna í jólamán- uðinum í smáatriðum áður en þeir samþykkja fjármögnun. Formlegt tilboð eftir áramót ● ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda kynningarfundi með þeim kjölfestu- fjárfestum sem lýstu áhuga á kaup- um á umtalsverðum hlut í Lands- bankanum og verður þeim gefinn kostur á að kynnast rekstri bankans. Frestur sem HSBC ráðgjafi við einkavæðingu Landsbankans veitti kjölfestufjárfestum til að tilkynna um áhuga sinn á kaupum á hlut í bank- anum er nú liðinn. Þátttakendur ósk- uðu eftir nafnleynd og hefur einka- væðingarnefnd fallist á það að höfðu samráði við HSBC. Rekstur Lands- bankans kynnt- ur fjárfestum hlutabréfa 56 milljónir króna og óinnleyst gengistap 1.984 milljónir króna. Á tímabilinu voru keypt hlutabréf fyrir 545 milljónir króna og seld fyrir 339 milljónir króna. Gengistap félagsins vegna er- lendra lána nam 245 milljónum króna. Í lok tímabilsins nema eign- ir Þróunarfélagsins 4.951 milljón króna. Eigið fé félagsins nemur 1.697 milljónum króna, eða um 34,2% af heildareignum. Langtíma- skuldir félagsins nema 2.204 millj- ónum króna. Hlutafé félagsins er 1.100 millj- ónir króna en hluthafar félagsins eru 457 talsins. Meðal stærstu hluthafa eru Lífeyrissjóður versl- unarmanna, Sameinaði lífeyris- sjóðurinn, Lífeyrissjóðurinn Fram- sýn, Burðarás hf., Nýsköpunar- sjóður atvinnulífsins og Lífeyris- sjóðurinn Lífiðn. ÞRÓUNARFÉLAG Íslands hf. skilaði 1.585 milljóna króna tapi á fyrstu níu mánuðum ársins 2001, samkvæmt uppgjöri félagsins. Tap samkvæmt sex mánaða uppgjöri var 1.409 milljónir króna. Í til- kynningu frá félaginu kemur fram að tekið var tillit til tekjufærslu tekjuskatts að fjárhæð 809 millj- ónir króna vegna lækkunar á tekjuskattsskuldbindingu félagsins sem myndaðist af miklum hagnaði síðustu ára. Af þeirri fjárhæð stafa 92 milljónir af boðaðri lækkun tekjuskattshlutfalls úr 30% í 18%. Verðlækkun hlutabréfa í eigu fé- lagsins var 35,7% á tímabilinu og verðlækkun hlutabréfa Þróunar- félagsins sem skráð eru á Aðallista Verðbréfaþingsins var 43,4%. Gengistap hlutabréfa nam alls 1.928 milljónum króna, þar af er innleystur hagnaður vegna sölu Tap Þróunarfélags- ins 1,6 milljarðar VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ aftur- kallaði í gær starfsleyfi verðbréfa- fyrirtækisins Burnham Internation- al á Íslandi hf. að tillögu Fjár- málaeftirlitsins og hefur skrifstofum fyrirtækisins verið lokað. Forsvars- menn fyrirtækisins lýstu sig sam- mála ákvörðuninni, og að sögn Guð- mundar Franklín Jónssonar, stjórn- arformanns Burnham International á Íslandi, var afturköllun starfsleyf- isins óumflýjanleg. Ástæða afturköllunar starfsleyfis er að eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var undir lágmarkskröfum laga um verðbréfaviðskipti, en þar er þess krafist að eigið fé fyrirtækis í verð- bréfaþjónustu skuli á hverjum tíma ekki nema lægri fjárhæð en sem svarar til 8% af áhættugrunni. „Að undanförnu hafa komið í ljós erfiðleikar í rekstri Burnham Int- ernational á Íslandi hf., m.a. vegna verðfalls á verðbréfaeign félagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá við- skiptaráðuneytinu. Ennfremur seg- ir: „Stjórn félagsins hefur á und- anförnum vikum leitað leiða til að koma eigin fé félagsins í lögmælt horf og hefur Fjármálaeftirlitið veitt félaginu svigrúm í því sambandi [...] Tilraunir félagsins hafa ekki borið árangur.“ Í framhaldi af afturkölluninni mun viðskiptaráðuneytið leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykja- víkur um slit á félaginu í samræmi við 62. gr. laga um verðbréfavið- skipti nr. 13/1996. Skrifstofum Burnham Internat- ional á Íslandi hf. hefur verið lokað. Mun skipaður skiptastjóri, Sigur- mar Albertsson hrl., taka við rekstri félagsins og standa vörð um hags- muni þeirra sem réttindi eiga á hendur félaginu, þ. m. t. séreign fjárvörsluþega, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningunni frá við- skiptaráðuneytinu. Sigurmar Albertsson hrl. segir í samtali við Morgunblaðið að ákvörð- un um hvert viðskiptavinir Burn- ham geta snúið sér til að nálgast verðbréf sín muni liggja fyrir á næstu dögum. Hann segir viðskipta- vini Burnham ekki verr setta eftir afturköllun starfsleyfisins þar sem eignir séu aðgreindar í bókhaldi Burnham. Langvarandi tap af rekstrinum Guðmundur Franklín Jónsson er stjórnarformaður Burnham Inter- national á Íslandi. Hann leggur áherslu á að afturköllun starfsleyfis Burnham sé leiðinleg staðreynd, sérstaklega vegna þess að átta starfsmenn Burnham International á Íslandi missa vinnuna. Hann segir fyrirtækið hafa átt gott samstarf við Fjármálaeftirlitið allt þetta ár en afturköllun starfsleyfisins sé óumflýjanleg. Allt frá því mikið tap af rekstri Burnham International á Íslandi á síðasta ári kom í ljós, hefur verið reynt að bæta stöðuna en ekki tekist, að sögn Guðmundar. Hann segir fyrirtækið hafa gengið ágætlega í byrjun síðasta árs en markaðsþróunin hafi síðan farið á móti fyrirtækinu. Þegar ársuppgjör- ið lá fyrir var ljóst að eiginfjárstað- an væri á niðurleið. Við sex mánaða uppgjör í sumar lá fyrir að Burnham var á mörkunum með að ná lág- markseiginfjárhlutfallinu og við níu mánaða uppgjör var fyrirtækið komið undir viðmiðunarmörkin. „Tap af rekstrinum hefur verið langvarandi og eiginfjárhlutfall fór undir viðmiðunarmörk og þá mátt- um við ekki starfa áfram sem þing- aðili. Við höfðum reynt að bæta ástandið allt þetta ár en eins og markaðurinn hefur verið, og sér- staklega eftir 11. september, var það mjög erfitt. Við reyndum allt sem við gátum en urðum að skila leyfinu inn til að fara eftir lögum og reglum. Það virðist ekki vera að rofa til á markaðnum.“ Guðmundur starfar sem einn af framkvæmdastjórum Burnham Sec- urities í New York, en það fyrirtæki á 36% í Burnham International. Guðmundur Franklín á 40% í Burn- ham International á Íslandi og um 61 smærri hluthafi á það sem eftir stendur. Þar á meðal eru fyrrver- andi eigendur Handsals en Burn- ham International á Íslandi var stofnað upp úr því. Tapa ekki verðbréfasafni sínu Aðspurður segir Guðmundur að hann sjálfur og Burnham Securities sem stærstu hluthafar tapi öllu sem þeir hafi lagt í fyrirtækið. Afturköll- un starfsleyfis Burnham Inter- national á Íslandi hefur ekki áhrif á rekstur Burnham Securities í New York. Starfsmenn Burnham Secur- ities eru um 80 talsins. Guðmundur segir að viðskiptavin- ir Burnham á Íslandi muni ekki skaðast af slitum á félaginu. Við- skiptavinirnir muni ekki tapa verð- bréfasafni sínu sem er í fjárvörslu Burnham International á Íslandi. Þó svo að verðbréf hafi verið keypt í nafni félagsins, eru þau merkt við- skiptavinunum og tapast því ekki. Starfsleyfi Burnham International á Íslandi hf. hefur verið afturkallað Viðskiptavinir skaðast ekki af slitum félagsins Morgunblaðið/Golli ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.