Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 23

Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 23 Starfsnám fyrir leiðsögumenn Nýir kennsluhættir – ný námsskrá Námið hefst í janúar 2002 Innritun í Leiðsöguskóla Íslands stendur yfir. Um er að ræða tveggja anna nám byggt á traustum grunni eldra náms. Kennt er eftir nýrri námsskrá menntamálaráðuneytisins fyrir leiðsögunám. • Umsækjendur skulu vera orðnir 21 árs og hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun. Þeir skulu, auk íslensku, hafa gott vald á a.m.k. einu erlendu tungumáli. • Umsækjendur skili umsóknum eigi síðar en 7. des. nk. og skrái sig í viðtal og inntökupróf fyrir sama tíma. Inntökuprófið er munnlegt og fer fram á því erlenda tungumáli sem umsækjandi velur. • Heimilt er að takmarka fjölda nemenda ef umsóknir verða fleiri en skólinn annar. • Bókleg kennsla fer fram mán. – mið. frá kl. 17:30 en vettvangsferðir verða á laugardögum. • Námið er lánshæft hjá LÍN, auk þess veita mörg stéttarfélög námsstyrki. Umsóknarfrestur er til 7. desember Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans eða á vefsíðunni mk.ismennt.is Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður skólans í síma 594 4025 Leiðsöguskóli Íslands, Menntaskólanum í Kópavogi, Digranesvegi 51, sími 594 4025. HUNDRUÐ bandarískra land- gönguliða bjuggu sig í gær undir stríðsaðgerðir sem miða að því að hrekja talibana og liðsmenn al- Qaeda, samtaka Osama bin Ladens, út úr fylgsnum sínum í grennd við Kandahar, síðustu borgina sem er enn á valdi talibana. Bandarískar herflugvélar héldu áfram hörðum sprengjuárásum á skotmörk á svæð- inu. Norðurbandalaginu tókst að kveða niður uppreisn 600 erlendra málaliða og félaga í al-Qaeda, sem höfðu verið teknir til fanga, í virki í norðurhluta Afganistans. Norður- bandalagið sagði að enginn fang- anna hefði komist lífs af. Um 500 bandarískir landgöngulið- ar voru fluttir með þyrlum á eyði- merkurflugvöll í grennd við Kand- ahar í fyrradag og hermt var að rúmlega 500 landgönguliðar til við- bótar hefðu verið sendir þangað í gær. Skömmu eftir komu landgöngulið- anna tóku þyrlur þeirra þátt í loft- árás á fimmtán brynvagna talibana í grennd við Kandahar. Nokkrir þeirra voru eyðilagðir. Talibanar sögðust ætla að berjast til síðasta blóðdropa í Kandahar. Talsmaður þeirra sagði að múllann Mohammed Omar, leiðtogi talibana, væri enn í borginni. Háttsettir embættismenn Norð- urbandalagsins í Kabúl sögðu að bin Laden væri einnig í Kandahar en bandarískir embættismenn stað- festu það ekki. Pastúnar nálgast Kandahar Richard Myers, forseti banda- ríska herráðsins, varaði við of mikilli bjartsýni og kvaðst ekki búast við skjótum sigri á talibönum. „Við telj- um að þeir veiti mótspyrnu og berj- ist ef til vill þar til yfir lýkur,“ sagði hann. Hersveitir Pastúna, sem hafa lagst gegn talibönum, nálguðust Kandahar og náðu að minnsta kosti einum bæ við þjóðveg milli borg- arinnar og landamæranna að Pak- istan. Veginum var lokað til að koma í veg fyrir að talibanar og liðsmenn al-Qaeda gætu flúið til Pakistans. Fregnir hermdu að talibanar í Kandahar og nágrenni hefðu einnig misst fjarskiptasamband við önnur héruð í suðurhluta Afganistans vegna sprengjuárása bandarískra flugvéla. Hermt var að Pastúnar hefðu einnig náð Spin Boldak, mikilvæg- um bæ við landamærin að Pakistan, en talibanar neituðu því. Talið er að talibanar og liðsmenn al-Qaeda hafi safnast saman í Kand- ahar og nágrenni eftir flótta þeirra frá norðurhluta Afganistans á síð- ustu tveimur vikum. Síðasta vígi þeirra í norðurhlutanum, Kunduz, féll í fyrradag eftir að um 5.750 tal- ibanahermenn gáfust þar upp um helgina. Hermenn Norðurbanda- lagsins lögðu Kunduz undir sig eftir hörð átök við talibana sem neituðu að gefast upp. Um 100 talibanar og tíu hermenn Norðurbandalagsins lágu í valnum. Fréttamenn sáu hermenn Norð- urbandalagsins hefja skothríð á særðan talibana og draga talibana út úr húsum í Kunduz til að berja þá. Hermennirnir fóru einnig ráns- hendi um borgina og tóku aðallega bíla sem þeir sögðu hafa verið í eigu talibana. Hundruð fanga liggja í valnum Um það bil 600 erlendir liðsmenn talibana og al-Qaeda, sem voru teknir til fanga í Kunduz, gerðu uppreisn í fangelsisvirki í norður- hluta Afganistans á sunnudag og Norðurbandalagið sagði í gær að hún hefði verið bæld niður. „Átök- unum er lokið,“ sagði einn herfor- ingja bandalagsins. „Við ætlum þó að bíða með að fara inn í virkið þar til á morgun þar sem við óttumst að nokkur líkanna séu með sprengi- gildrur.“ Bandarískar herflugvélar höfðu gert sprengjuárásir á virkið. Norð- urbandalagið sagði að allir fangarnir 600 og allt að 50 hermenn Norður- bandalagsins hefðu fallið í átökun- um. Fimm bandarískir hermenn særð- ust alvarlega þegar sprengja frá bandarískri herflug lenti of nálægt þeim í loftárás á virkið. Þeir voru fluttir á herflugvöll í Úsbekistan og þaðan á hersjúkrahús í Þýskalandi. Talið er að enginn þeirra sé í lífs- hættu, að sögn talsmanns banda- ríska varnarmálaráðuneytisins. Hermt er að einn af njósnurum CIA hafi beðið bana í átökunum við fangana en bandarískir embættis- menn sögðu að ekki væri vitað um afdrif hans. Geoffrey Hoon, varnarmálaráð- herra Bretlands, sagði í fyrradag að fjórir breskir hermenn hefðu særst í hernaðaraðgerð með bandarískri hersveit í Afganistan. Hann vildi ekki skýra frá því hvers konar að- gerð þetta var eða hvort hermenn- irnir hefðu særst alvarlega. Þeir hafa verið fluttir á sjúkrahús í Bret- landi.                 ! " # $%##    & $   $ %  #&'& # $  (  #  )                                         !"# $  %& "'   # &   ''   (    )   *  + ,   -.    -.. !  *+ * /   !"# 01  Uppreisn stríðsfanga lyktar með blóðbaði Reynt að hrekja liðsmenn al- Qaeda úr fylgsn- um sínum í Suð- ur-Afganistan AP Hermaður Norðurbandalagsins við virki nálægt borginni Mazar-e-Sharif í norðurhluta Afganistans þar sem er- lendir liðsmenn talibana og al-Qaeda hófu uppreisn á sunnudag eftir að hafa verið teknir til fanga. Kabúl. AFP, AP, The Washington Post. FJÓRAR afganskar sendinefndir, sem taka þátt í sögulegum viðræðum í Bonn í Þýskalandi, samþykktu í gær að stefna að samkomulagi um myndun bráðabirgðastjórnar í Afg- anistan innan þriggja til fimm daga. Ahmed Fawzi, talsmaður Samein- uðu þjóðanna, sagði að sendinefnd- irnar hefðu einnig samþykkt þrjú meginatriðin í áætlun Sameinuðu þjóðanna um pólitíska framtíð Afg- anistans. Samkvæmt henni verður myndað svokallað „æðstaráð“, eða bráðabirgðastjórn sem verður skipuð allt að 20 fulltrúum afganskra fylk- inga og á að vera við völd í þrjá til sex mánuði. Síðan er gert ráð fyrir stofn- un breiðari og fjölmennari sam- steypustjórnar, sem Fawzi líkti við þjóðþing, og að lokum verður stofnað svokallað „Loya Jirga“, eða öldung- aráð með aðild hinna ýmsu þjóð- flokka Afganistans. Öldungaráðið á að koma saman í mars eða apríl á næsta ári til að semja nýja stjórn- arskrá. Bjartsýni á fyrsta fundinum Alls taka 28 fulltrúar í fjórum sendinefndum þátt í viðræðunum í Bonn og margir þeirra sögðust vera vongóðir um að samkomulag næðist um myndun bráðabirgðastjórnar. Yunus Qanooni, innanríkisráð- herra Norðurbandalagsins, laus- tengds bandalags Tadsjika, Úsbeka og Hazara, sagði það ekki vilja sitja eitt við stjórnartaumana þrátt fyrir sigra þess á talibönum á síðustu vik- um. Stjórnarerindrekar, sem fylgjast með ráðstefnunni, sögðu fréttamönn- um AFP að almenn sátt ríkti um Zahir Shah, 87 ára fyrrverandi kon- ung Afganistans, sem leiðtoga bráða- birgðastjórnar. Erindrekarnir segja að helsta ágreiningsefnið sé hver eigi að vera forsætisráðherra, og hverjir gegni embættum varnarmála, innan- ríkis- og fjármálaráðherra. Afganskar sendinefndir hefja viðræður um nýja stjórn Stefnt að samkomu- lagi á næstu dögum Bonn. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.