Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Á FYRSTU níu mánuðumársins fjölgaði innlögnumá Reykjalund um 22% ogjafnframt því hafa 663 einstaklingar komið í endurhæfingu á göngudeild á sama tíma, en slík deild er nýlunda í starfsemi Reykja- lundar. Þessi aukning hefur náðst með mikilli hagræðingu í kjölfar þjónustusamnings sem Reykjalund- ur gerði við heilbrigðisráðuneytið í ársbyrjun og segir Björn Ástmunds- son, forstjóri Reykjalundar, að líkja megi aukningunni við sprengingu í starfsemi og þjónustu staðarins. Uppgangurinn hefur orðið án um- talsverðrar aukningar í fjölda starfs- fólks eða stækkunar á húsnæði. Nú er hins vegar verið að leggja lokahönd á nýtt og glæsilegt 2.700 fermetra þjálfunarhús sem tekið verður í notkun í byrjun næsta árs. Þá mun rýmka verulega um starf- semina og möguleikar aukast á því að taka fleiri einstaklinga í endur- hæfingu, enda ekki vanþörf á þar sem um eitt þúsund manns eru á bið- lista eftir meðferð á Reykjalundi. Á 50 ára afmæli Reykjalundar 1. febrúar árið 1995 var ákveðið að ráð- ast í byggingu þjálfunarhússins. Hinn 21. október 1999 tók forseti Íslands fyrstu skóflustunguna að ný- byggingunni, Suðurverk hf. hóf framkvæmdir við jarðvinnu 17. apríl árið 2000 og Kraftvaki hf. hóf bygginga- framkvæmdir í ágúst sama ár. Áætl- uð verklok eru nú í byrjun desember og verður húsið vígt 4. janúar á næsta ári. Framkvæmdir hafa geng- ið hratt fyrir sig og segir Björn með ólíkindum hversu vel hafi miðað við byggingu hússins. Til að rýma fyrir húsinu á lóð Reykjalundar, þannig að hægt yrði að tengja það sem best við bygging- ar sem fyrir eru, þurfti að fjarlægja um 9.000 rúmmetra af grjóti og jarð- vegi úr brekku á bak við húsin á lóð- inni. Þannig fellur reyndar þjálfun- arhúsið vel inn í umhverfið og ber lítið á því þegar komið er að Reykja- lundi. Heildarfjöldi fermetra er 2.700 og í húsinu er 25 metra sundlaug auk 9 metra sundlaugar sem sérhönnuð er fyrir mjög fatlaða einstaklinga og er einn búningsklefi jafnframt hannað- ur með þarfir slíkra einstaklinga í huga. Þá er heitur pottur við laug- arnar og fjórir aðrir búningsklefar og þrír þjálfunarsalir sem samtals eru 310 fermetrar. Í húsinu er auk þess 510 fermetra íþróttasalur, 30 x 17 metrar, þar sem hægt er að stunda boltaleiki. Auk þess er í hús- inu góð starfsmannaaðstaða, tækni- rými og geymslur. Húsið tengist beint bæði við sjúkrahúsálmu og endurhæfingardeild og sjúklingar á göngudeild geta gengið beint inn í húsið. Hjördís Jónsdóttir lækningafor- stjóri segir hönnun hússins ótrúlega vel heppnaða og að staðsetning á lóð- inni sé frábær, enda verði margir undrandi á því að ganga inn í svo rúmgóða byggingu mið- að við hve hún lætur lítið yfir sér utan frá. „Það verða alveg geysilega mikil viðbrigði að fá nýja húsið og við fyllumst eig- inlega bæði gleði og kvíða við að fara inn húsið, því við verðum að nýta það vel.“ Heildarkostnaður við byggingu þjálfunarhússins er áætlaður 410 til 420 milljónir króna og er að mestu fjármagnaður með happdrætti SÍBS, en auk þess skilaði la unin „Sigur lífsins“ í októ 1998 um 57 milljónum í by sjóð. Þá átti Reykjalundu milljónir sem safnað hafði v með sölu á eignum. Engin lög koma frá ríkinu og ti ljúka framkvæmdum var á SÍBS tæki langtímalán helmingi kostnaðarins og g borganir með rekstri hap ins. „Við erum að gera tilra fyrirspurnum um það hvor reiðubúið að styrkja ok byggingaframlögum, en h höfum við ekki gengið í ríki ir einu eða neinu. Það er farið sé af stað í framkvæ þær stöðvist síðan þegar fj er uppurið en hér var farin leita eftir lánsfé til að ljú kvæmdum í þeirri von drættið myndi síðan standa borgunum af þeirri lánsupp er dálítið nýtt í þessu að það sem tekur slíkt byggingarlá að ljúka verkinu og síðan æ að veðja á góða þátttök manna í happdrættinu á næ til þess að brúa þetta, auk um við að fullnýta nýja húsi leigu,“ segir Björn. Göngudeild tekur til s kjölfar þjónustusamn Árið 1945 hófst atvinnule hæfing berklasjúklinga á lundi og stóð það starf yfir Þá varð Reykjalundur alh urhæfingarstofnun sem fé lag frá ríkinu í formi dagg stóð það fyrirkomulag yfir 2001 þegar gerður var samningur við heilbrigðisrá með skilgreindum verkefnu segir að nú heyrist víða frét urskurði og rekstrarvan brigðisstofnana en hin blómstri starfsemin á Re og það megi rekja til áhrifa þjónustusamningsins „Í daggjaldakerfinu á sí náðum við með fullum afk hér um bil 100% nýtingu taka hér 934 innlagnir. Þega um yfir á þjónustusamning innlagnir orðið 1.138 á fy mánuðum ársins, sem er 2 ing.“ Þá segir Björn að sa Framkvæmdum að ljúka við nýtt 2.700 fer Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Iðnaðarmenn að störfum við heita pottinn í þjálfunarhúsinu. Hjörd Nýja þjálfunarhúsið st Innlögnum hefur fjölg- að um 22% á árinu Um þessar mundir er verið að leggja loka- hönd á nýtt og glæsilegt þjálfunarhús við Reykjalund sem tekið verður í notkun í janúar. Eiríkur P. Jörundsson ræddi við forsvarsmenn Reykjalundar um nýja húsið og þá miklu uppsveiflu sem orðið hefur í starfsemi Reykjalundar á árinu. Þúsund manns eru á biðlista eftir meðferð ALÞINGI GÆTI AÐ PERSÓNUVERNDARSJÓNARMIÐUM SKEMMDARVERK UNGLINGA Tvær fréttir af alvarlegum árásumunglinga á vegfarendur, sem birt-ust í Morgunblaðinu í gær, vekja ugg og ótta um framferði og siðferði æsku landsins. Í annarri fréttinni var sagt frá því að unglingspiltar úr Haga- skóla veittust að tveimur mönnum sem starfa sem hljóðfæraleikarar í Sinfóníu- hljómsveit Íslands fyrir utan Háskóla- bíó. Árásin hófst með því að unglingarnir létu snjóboltum og grjóti rigna yfir mennina sem óskuðu eftir aðstoð lög- reglu. Þegar hún kom á vettvang varð hún einnig fyrir barðinu á unglingunum. Hópurinn hafði þá gereyðilagt bifreið mannanna með því að brjóta í henni rúðu, rífa af henni bretti og rúðuþurrk- ur, brjóta öll ljós og hella olíu inn í hana. Í annarri frétt sagði frá því að 35–40 manna hópur unglinga hefði setið fyrir bifreið öryrkja á sjötugsaldri og kastað í hana snjóboltum. Konan óskaði eftir að- stoð lögreglu sem kom fljótlega á vett- vang. Hvort hér sé um einstök dæmi að ræða sem ber fyrir tilviljun upp á með nokkurra daga millibili, eða vísbendingu um að skemmdarverk af hálfu unglinga séu að aukast er erfitt að segja til um. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, sagði þó í Morgunblaðinu í gær að skemmdarverkum, sem ungling- ar væru grunaðir um, hefði fjölgað í haust frá sama árstíma á liðnum árum. Undir þetta tók lögregluvarðstjórinn í Hafnarfirði og sagði að tæpar 20 rúður hefðu verið brotnar í Flataskóla í síðustu viku og margir bílar rispaðir í október. Skýrsla dómsmálaráðherra um mál- efni ungra afbrotamanna, sem gefin var út fyrir tveimur árum, rennir stoðum undir þann grun að alvarlegum afbrot- um unglinga hafi fjölgað hin síðustu ár. Í skýrslunni segir að einstaklingum yngri en 18 ára sem dæmdir voru í fangelsi hafi fjölgað töluvert frá árinu 1996, eða úr 44 í 76 árið 1997 og í 114 árið 1998. Við þetta má bæta að átján ára og yngri frömdu milli 30 og 40% allra afbrota árið 1998. Það er von að menn velti fyrir sér or- sökum slíkrar aukningar á afbrotum meðal ungs fólks og spyrji í framhaldi hver beri ábyrgð á vandanum? Það er erfitt að benda á ákveðna aðila í því sambandi en líklega bera foreldrar og skólar landsins sameiginlega ábyrgð. Lengi hefur verið rætt um agaleysi í ís- lensku þjóðfélagi og í íslensku skóla- kerfi. Það er augljóst að sá agi sem ríkti í skólum fyrir nokkrum áratugum ríkir þar ekki í dag. Uppeldi barna gerist jafn- framt æ vandasamara. Erfitt er að verja börn og unglinga fyrir áreiti af ýmsu tagi, hvort sem það er í formi auglýs- inga, kvikmynda, tölvuleikja eða fíkni- efna sem boðin eru börnum allt niður í grunnskólaaldur. Það umhverfi sem börn alast upp í nú er gerólíkt því um- hverfi sem kynslóðirnar á undan upp- lifðu sem börn. Margt hefur breyst til betri vegar en margt á verri veg. Hvort virðingarleysi það sem ungling- arnir í Vesturbæ og Garðabæ sýndu sak- lausum vegfarendum og eigum þeirra eru einstök dæmi eða vísbending til okk- ar sem eldri erum; foreldra, kennara og yfirvalda, um að við þurfum að standa okkur betur í hlutverki uppalenda og áhrifavalda á líf þessa unga fólks, er erf- itt að segja til um. Hins vegar er ljóst að bregðast þarf við atvikum sem þessum af mikilli alvöru til þess að sýna að fram- koma af þessu tagi verði ekki liðin. Réttmætar athugasemdir hafa komiðfram af hálfu samtaka lækna og Persónuverndar um 8. grein í frum- varpi heilbrigðisráðherra um heilbrigð- isþjónustu og almannatryggingar, sem nú er til meðferðar á Alþingi. Í grein- inni er gert ráð fyrir að Trygginga- stofnun ríkisins verði veittur aðgangur að sjúkraskrám sjúklinga „vegna ákvörðunar um greiðslu bóta, endur- greiðslur reikninga og vegna eftirlits- hlutverks stofnunarinnar.“ Í athugasemdum með frumvarpinu, eins og það var lagt fyrir Alþingi, segir eingöngu: „Í frumvarpsgreininni eru ákvæði þess efnis að heilbrigðisstarfs- mönnum sé skylt að veita Trygginga- stofnun þær upplýsingar sem stofnunin þarf til að hún geti ákveðið réttar bæt- ur til umsækjenda og að greiðslur reikninga séu í samræmi við samninga og veitta þjónustu. Jafnframt er tekið fram að sé um að ræða upplýsingar úr sjúkraskrám skuli þær einungis veittar læknum eða eftir atvikum tannlæknum stofnunarinnar. Einnig er ákvæði til að tryggja aðgang að sjúkraskrám, sem reikningsgerð á hendur stofnuninni er byggð á.“ Þetta er allt og sumt – enginn frekari rökstuðningur eða umfjöllun. Eins og Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, og Sigrún Jó- hannesdóttir, forstjóri Persónuvernd- ar, benda á í Morgunblaðinu í dag er þetta allsendis ófullnægjandi. Á undan- förnum árum hefur almenningur í vax- andi mæli vaknað til vitundar um að þrengt sé að persónuvernd og friðhelgi einkalífs á ýmsum sviðum, ekki sízt með skráningu alls kyns persónuupp- lýsinga á vegum hins opinbera, sem oft er óljóst hverjir geti fengið aðgang að og hvernig megi nota. Löggjafinn hefur verið á þeirri skoðun að vernda yrði einkalífið og sett lög um persónuvernd og jafnframt um réttindi sjúklinga í því efni. Það er ástæða til að túlka lagaákvæði þröngt, þegar veita á aðgang að jafn- viðkvæmum upplýsingum um einkahagi fólks og finna má í sjúkraskrám. Um- fram allt þarf að fara fram vönduð um- ræða áður en nokkur slík ákvörðun er tekin, þar sem færð eru fram rök með og á móti og kannað hvort ná megi sömu markmiðum með öðrum leiðum, sem ekki þrengja að vernd einkalífs fólks. Slíkt virðist ekki hafa verið gert í þessu tilviki. Sigrún Jóhannesdóttir bendir á að Tryggingastofnun eigi ýmis önnur úrræði til að sinna eftirliti með því að reikningar séu réttir en að krefj- ast aðgangs að sjúkraskrám. Hún spyr réttilega hvaða brýnu almannahags- munir kalli á svo víðtækan aðgang að jafnviðkvæmum upplýsingum. Almenningur verður að geta treyst því að þetta mál fái vandaða umfjöllun á Alþingi og verði skoðað af gagnrýni og frá öllum hliðum. Mál, sem snerta per- sónuvernd, eru viðkvæm og ber ekki að meðhöndla þau af neinni léttúð eða flýta sér við meðferð þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.