Morgunblaðið - 02.12.2001, Qupperneq 8
8 B SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁGÚSTA Snæland, semnýlega hefur gefiðKvennasögusafninu bréflangömmu sinnar Aug-ustu Svendsen, er ekki
síður í brautryðjendastétt kvenna en
nafna hennar Svendsen, sem varð
fyrst kvenna til að hefja versl-
unarrekstur í Reykjavík. Ágústa
Snæland er nefnilega fyrsta konan
sem lauk námi í auglýsingateiknun.
Hún menntaði sig í Danmörku á
fjórða áratugnum. Hún fæddist í
Reykjavík 9. febrúar 1915 á áttræð-
isafmæli langömmu sinnar Ágústu
Svendsen.
„Langamma mín lifði til 89 ára ald-
urs og ég man vel eftir henni. Ég kom
oft í Aðalstræti 12, þar var mitt annað
heimili,“ segir Ágústa Snæland. „Við
bjuggum á Túngötu 38 og um leið og
ég fór að geta farið ein niður í bæ þá
lá leiðin í Aðalstrætið til langömmu
og frændfólks míns – meðal þess var
Anna Classen frænka mín og besta
vinkona til dauðadags.
Ég man að okkur Birni bróður
mínum fannst svo gaman að sækja
langömmu ef hún var boðin í mat á
Túngötuna. Hún var svo lítil og það
passaði nákvæmlega fyrir okkur að
leiða hana undir hendi. Ég man að
dótturdætur hennar sögðu frá því að
ef hún sat á venjulegum borðstofustól
þá náði hún ekki niður á gólf með fæt-
urna. En hún var kná þótt hún væri
smá.
Móðir mín Ólöf Björnsdóttir var
elst af börnum Louise og Björns
Jenssonar. Hún var alnafna ömmu
sinnar Ólafar sem var kona Björns
Gunnlaugssonar stærðfræðings.
Kvennasetur
Í Aðalstræti var mikið
kvennasetur. Konurnar þar
virtu hver aðra mikils,
stundum þótti manni nóg
um hvað dæturnar dáðu
mikið móður sína og
ömmu. En þegar ég les
bréfin frá þeim, sem nú
eru komin í Kvenna-
sögusafnið, þá sé ég að
þær hafa báðar verið þess-
arar aðdáunar verðugar.
Louise eignaðist öll börnin
sín í húsnæði Menntaskólans í
Reykjavík, sem varla hefur ver-
ið heppilegt sem fjölskylduíbúð.
Þau höfðu stofu niðri en upp undir
súð voru svefnherbergi. Langamma
svaf með ein þrjú börn hjá sér, þar á
meðal Ágústu nöfnu sína sem síðar
giftist Kjartani Thors.
Miðbærinn var
minn vettvangur
Faðir minn Pétur Halldórsson var
bóksali, keypti bókaverslunina af Sig-
fúsi Eymundssyni. Miðbærinn var
því minn vettvangur. Við fluttum á
Túngötu 38 þegar ég var þriggja ára
gömul og þá var það fyrir utan bæinn
– þrjú hús voru við Unnarstíg og svo
tún.
Við systkinin vorum fjögur, Björn
sem tók við versluninni og dó sextug-
ur, Halldór, sem var teiknari og dó á
sama aldri, og Kristjana sem gift var
Lúðvík Hjálmtýssyni. Ég var á milli
Halldórs og Kristjönu.
Mamma hafði mikið og náið sam-
band við fjölskyldu sína og fjölskyldu
pabba. Afi var Halldór Jónsson
bankagjaldkeri og hann byggði
græna timburhúsið Suðurgötu 4, sem
er á móti Hjálpræðishernum á horni
Suðurgötu og Túngötu.
Eftir að mamma var dáin fann ég í
hennar pappírum teikningar og
reikninga fyrir byggingu þessa húss,
það kostaði 15 þúsund krónur og ég
gaf Reykjavíkurborg teikningarnar.
Pabbi var meðal þeirra sem stofnaði
kvartettinn Fóstbræður, hann og
systkini hans og mamma og hennar
systkini voru öll vinir og félagar. Þeir
sungu mikið saman og þær spiluðu all-
ar á hljóðfæri.
Amma mín, Henrietta Louise, hefur
vafalaust lært á hljóðfæri, hún var
dáin þegar ég fæddist og ég man því
ekkert eftir henni. Ég man hins
vegar sem fyrr sagði vel eftir
langömmu, hún kallaði okkur
alltaf lambið sitt, þess vegna
kölluðum við hana lambalamb.
Ég sé hana fyrir mér uppi á lofti
í Aðalstræti. Hún er að baka
flatkökur. Við kölluðum þetta
kökurnar lambalamb. Ég man
eftir höndunum á henni, þær voru
búttaðar og hringurinn sem hún
var alltaf með skarst inn í fingurinn.
Langamma sat gjarnan frammi í
teikniherbergi Arndísar móðursystur
minnar og saumaði. Hún var þá hætt
að afgreiða, henni fannst að fólki þætti
orðið óþægilegt að láta svo fullorðna
konu vera að snúast við sig. Hún sat
því frammi hjá Öddu og var að sauma
slifsi. Þegar hún var þreytt setti hún
skúfinn á húfunni yfir augun og fékk
sér blund. Móðursystur mínar, Sigríð-
ur og Arndís, tóku við rekstri búð-
arinnar af langömmu en Arndís var
líka þekkt og vinsæl leikkona. Þær
systur giftust ekki.
Rétti tónninn
Arndís var að leika frá því hún var
lítil stelpa, sögðu systur hennar mér.
Hún líktist meira nútímakonum ...
Standandi eru f.v. Ólöf Björnsdóttir og Þórdís Claessen. Sitjandi f.v. Ágústa
Svendsen með Ágústu Pétursdóttur Snæland, Björn Pétursson og Louise
Svendsen situr með Önnu Claessen.
KVENNASÖGUSAFNIÐmóttók fyrir skömmubréfabunka sem ÁgústaSnæland hafði fengið fráættingjum sínum í Dan-
mörku og innihélt fjölmörg bréf sem
amma hennar Augusta Svendsen
kaupkona hafði skrifað Sophie dóttur
sinni frá árinu 1874 og meðan báðar
lifðu. Augusta eða Ágústa varð ung
ekkja. Hún átti tvö börn fyrir og
neyddist til þess að gefa þessa dóttur
sína nýfædda til ættleiðingar en tók
upp samband við hana þegar hún var
á fermingaraldri.
Auður Styrkársdóttir, forstöðu-
maður Kvennasögusafns, hefur
flokkað þessi bréf og hyggst sækja
um styrk til þess að gefa þau út.
„Ágústa Svendsen er fyrsta kaup-
konan í Reykjavík, samkvæmt bestu
heimildum,“ segir Auður. „Hún rak
verslun í Reykjavík frá árinu 1887.
Hún hafði ári áður komið til Íslands
frá Kaupmannahöfn ásamt Henri-
ettu Louise dóttur sinni sem þá ný-
lega hafði giftst Birni Jenssyni sem
var kennari við Reykjavíkurskóla.
Ágústa hóf að versla í smáum stíl í
þakherbergi við Bankastræti en árið
1903 keypti hún Aðalstræti 12 og í
því reisulega húsi, sem var kjallari og
tvær hæðir, hafði hún verslun á
fyrstu hæð en í rúmgóðri íbúð bjuggu
dóttir hennar og maður hennar með
sjö börn sín.
Verslun Ágústu hét Refill og þar
seldi hún efni í íslenska búninginn.
Eldri konur hér í bæ muna vel eftir
þessari verslun því dóttir Ágústu og
síðar dótturdóttir ráku hana áfram
allt til fram undir 1950.
Í bréfum Ágústu til Sophie eru
ekki bara fréttir af fjölskyldunni og
systkinum Sophie heldur líka lífi
hennar sem kaupkonu í Reykjavík.
Hún biður í bréfunum Sophie að
kaupa hitt og þetta fyrir sig í Dan-
mörku sem hún átti erfitt með að ná í
og sendir henni peninga fyrir vörun-
um.
Til dæmis er eitt stórskemmtilegt
bréf þar sem allt snýst um hatt sem
Ágústa þarf að fá fyrir kaupanda í
Reykjavík. Hún gefur dóttur sinni
ráð um hvernig hún eigi að finna
hattinn og ná í hann.
Ágústa varð ekkja aðeins 27 ára
gömul. Maður hennar Hendrik
Henckel Svendsen var íslenskur í
föðurætt en átti danska móður. Hann
rak verslun á Djúpavogi í félagi við
danskan mann og var ekkjumaður er
hann kvæntist Ágústu. Hann dó 1862
úr barnaveiki og var þá verslunin
gjaldþrota að sögn hins danska fé-
laga hans. Ágústa var í Kaupmanna-
höfn með börnin þegar maður henn-
ar lést, en þau höfðu þá öll dvalið þar
í nokkur misseri. Hin nýfædda Soph-
ie var ættleidd, sonurinn Viggó fór í
fóstur til föðurbróður síns og Ágústa
fór með eldri dótturina Louise til Ísa-
fjarðar til Lárusar Snorrasonar
bróður síns, sem var kaupmaður þar.
Þar kenndi Ágústa hannyrðir sem
hún hafði ung lært. Hún stofnaði
skóla fyrir stúlkur ásamt Sigríði
konu Ásgeirs Ásgeirssonar, kaup-
manns á Ísafirði. Ágústa fór eftir
mörg ár með Lárusi bróður sínum til
Kaupmannahafnar þar sem hann
gifti sig danskri konu. Þá setti
Ágústa á stofn matsölu þar í borg.
Eftir að Louise dóttir Ágústu gifti
sig sem fyrr greindi og flutti til Ís-
lands áttu þær mæðgur og eigin-
maður Louise fyrst heimili í húsnæði
Menntaskólans í Reykjavík og
Ágústa fór að reka verslun sem fljót-
lega gekk mjög vel.
Líklega hafa það helst verið ógift-
ar konur sem voru við verslunar-
rekstur á þessum tíma í Reykjavík.
Tengdasonur Ágústu lést 1904 og
voru barnabörn hennar þá á aldrin-
um þriggja til sextán ára. Við lát
Björns tók Ágústa að sér að sjá um
heimilið þótt hún væri þá orðin um
sjötugt. „Hún greiddi allar skuldir
búsins og klæddi okkur öll,“ segir
dótturdóttir hennar Ágústa Thors í
frásögn sem hún skrifaði um ömmu
sína og móður.
Verslun Ágústu virðist hafa gengið
vel. Hún keypti vörur inn frá útlönd-
um, hún seldi mest efni en saumaði
líka sjálf og hafði konur til að sauma
fyrir sig svuntur, slifsi og fleira. Efn-
in keypti hún frá Þýskalandi og
Frakklandi og keypti bara gæðaefni.
Hún stóð alltaf í skilum og fékk því
mjög góða þjónustu. Þess má geta að
Ágústa Svendsen og dóttir hennar
Louise bjuggu um tíma í Austur-
stræti þar sem var Ísafoldarprent-
smiðja.
Mér finnst þessi bréf Ágústu
Svendsen afar spennandi heimildir
sem athyglisvert er að raða saman og
sjá hvernig líf hennar hefur verið.
Það kemur vel fram í bréfunum að
Ágústa hefur verið mjög atorkusöm,
áhugasöm og hefur lítið þurft að sofa.
Meðal bréfa Ágústu eru líka mörg
bréf frá Louise sem hún skrifar
Sophie systur sinni.
Ég hef sem fyrr sagði mikinn
áhuga á að þessi bréf verði gefin út.
Þau eru á mjög skiljanlegu máli og
það er ekki erfitt að lesa þau þótt þau
séu öll skrifuð á dönsku. Ágústa
skrifaði bréfin sín héðan á vorin og
haustin enda voru þá helst skipaferð-
ir til Danmerkur.
Bréfasafn
Augustu
Svendsen
Augusta, eða Ágústa, Svendsen var frum-
kvöðull kvenna í verslunarrekstri í Reykjavík.
Ágústa Snæland segir hér Guðrúnu Guðlaugs-
dóttur frá minningum sínum um þessa lang-
ömmu sína, en hún afhenti Kvennasögusafninu
bréfasafn Ágústu Svendsen fyrir skömmu.
Morgunblaðið/Ásdís
F.h. Ágústa Snæland og Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns, með bréf úr safni Ágústu Svendsen,
ömmu Ágústu Snæland.