Morgunblaðið - 02.12.2001, Síða 10

Morgunblaðið - 02.12.2001, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐ LOKNU ferðalaginu kvaddi ég kórfélaga mína úti á La Guardia- flugvelli í New York og varð eftir þar til þess að fara í leiklistarskóla. Ég man að kórfélagarnir eftirlétu mér allt klinkið sitt þarna á flugvellinum, hreinsuðu vasa sína. Það voru þó- nokkrir fjármunir sem nýttust mér vel fyrstu dagana í stórborginni. Ég hafði hringt í skólann af hót- elherbergi í Dallas og beðið um inn- göngu. Mér var sagt að ég yrði að þreyta inntökupróf. Þau próf voru að vísu afstaðin en mér var samt gefinn kostur á að koma til viðtals þegar ég kæmi til New York. Herbergisfélag- ar mínir úr kórnum gerðu grín að mér þegar ég sýndi þeim reikning- inn fyrir símtalinu. Það var auðvitað álíka dýrt að hringja til New York alla leið frá Dallas eins og frá Íslandi. Ég hafði séð auglýsingu frá þess- um skóla í kvikmyndatímariti en af þeim barst mikið til Íslands á þess- um tíma. Þetta er þekktur skóli og sá elsti þar vestra. Í þessari auglýsingu var talinn upp fjöldinn allur af fræg- um stjörnum sem útskrifast höfðu þaðan eins og Rosalinde Russel, Spencer Tracy og fleiri og fleiri. Ég sá í hendi mér að þessa stofnun yrði ég að gera að minni. Skólinn heitir American Academy of Dramatic Arts. Ég var alltaf ákveðinn í að fara í amerískan skóla, ekki til Englands eins og flestir sem stefndu á leiklist- arnám gerðu á þessum tíma. Ég var sá eini sem fór til Ameríku. Skólinn var þá í sama húsi og tón- listarhöllin fræga, Carnegie Hall, á horninu á Broadway og 57. stræti. Þegar ég kem þarna á staðinn er ég boðaður upp á skrifstofu til yfirkenn- arans. Þetta var fullorðinn maður og hann tók mig eiginlega upp á sína arma, elskulegur karl. Önnin átti ekki að byrja fyrr en eftir áramót. Þó að búið væri að velja nemendur fyrir hana fékk ég að taka mitt próf þarna, aleinn. Hann fékk mér texta, þessi gamli kennari, eintöl, sem ég átti að æfa mig á og koma með nokkrum dögum seinna. Ég þekkti þessi verk ekki neitt en flutti þau svo fyrir hann uppi á skrifstofunni hans þegar þar að kom. Hann hlustaði þolinmóður en að því loknu tók hann af mér blöð- in og sagði að ég yrði fjandakornið að sýna meira. Svo flutti hann textann sjálfur með þvílíkri tilfinningu að tárin flutu niður kinnarnar. Ég komst í slíka stemmningu við að horfa á karlinn að mér tókst að flytja atriðin á nógu sannfærandi hátt til þess að fá inngöngu. Þetta var allt prófið. Á skólasetningunni hélt skóla- stjórinn auðvitað tölu, bauð okkur velkomin, gaf okkur góð ráð og sagði þá meðal annars með áherslu: „List- en, listen, listen!“ (hlustið, hlustið, hlustið!) Sem sagt, þú ert ekki uppi á sviði til þess að þylja einhvern texta sem þú hefur lært eins og páfagauk- ur heima hjá þér, heldur skaltu hlusta á persónurnar sem standa með þér á sviðinu og eiga við þig samskipti. Þetta heilræði hefur æ síðan setið í mér. Mér var ágætlega tekið af skólafélögunum, ég var ekki fyrr kominn á skólasetninguna en fólk fór að spjalla við mig og spyrja um allt mögulegt. Sumir héldu að ég væri eskimói. Þetta voru dæmigerðir Ameríkanar, opnir og elskulegir, töl- uðu mikið og ekki síst um sig sjálfa. Í fyrstu kennslustundinni var hver látinn segja frá sjálfum sér. Ég lýsti því hvernig ég hefði komið til lands- ins sem kórsöngvari. Það þótti merkilegt að ég skyldi koma frá Ís- landi. Ég var eini nemandinn í þess- um skóla sem ekki hafði ensku að móðurmáli. Þetta var nokkuð fjöl- menn stofnun með um 360 nemendur í allt að mig minnir. Ég talaði auðvitað með hreim, en ég man ekki eftir neinum erfiðleik- um varðandi tungumálið. Ég hafði bara lært ensku hjá Hervaldi í ung- lingaskólanum heima og svo þennan eina vetur í gagnfræðaskólanum í Reykjavík. En ég lærði talmálið af bíóinu. Ég hygg að það hafi bjargað því að ég var ekki sendur heim þarna um hæl. Þessi samtöl sem ég spann upp úr mér á ferðum mínum á hálf- kassabílnum og öðrum farartækjum um Borgarfjörðinn komu mér að töluverðu gagni þegar til kom. Það var aldrei meðvituð þjálfun, bara leikaradellan í hnotskurn. Þetta var mikil vinna, skólinn stóð allan daginn, ekki bara tvo tíma síð- degis eins og verið hafði í skólanum hjá Lárusi Pálssyni. Kennslan var alhliða; raddbeiting, leiktúlkun, hreyfing, útvarpsleikur, allt mögu- legt var tekið fyrir. Við fengum að spreyta okkur á margs konar leik- ritum, einkum amerískum náttúr- lega, en líka til dæmis Shakespeare og Ibsen og einnig höfundum eins og Noël Coward, Oscar Wilde og fleiri og fleiri. Ég var meira að segja spurður hvort ég kannaðist við leik- ritið „Eyvind of the Mountains“. Það hafði þá verið leikið í New York. Fólki þótti mjög fyndið að heyra ís- lenska nafnið, „Fjalla-Eyvindur“. Mér leið vel þarna, ég var kominn þangað sem ég ætlaði mér. Formaður og leikstjóri Tíu árum síðar er Jón orðinn einn af máttarstólpum Leikfélags Reykja- víkur. Ástæðan fyrir því að ég var kosinn formaður Leikfélagsins var sjálfsagt sú að ég var alltaf að gjamma á fund- um og hafði mínar skoðanir á hlut- unum. Eitthvað af því sem ég var að segja hefur talist trúverðugt. Ég var kosinn formaður vorið 1956. Auk þess var ég ráðinn framkvæmda- stjóri félagsins á hálfum launum. Einhver kann að segja að með því hefði ég verið orðinn sá pótintáti að geta ráðstafað sjálfum mér verkefn- um. En upp úr þessu fór ég að leik- stýra. Það átti upphaf sitt í því að ég hafði verið að lesa gamanleik sem mér fannst ofboðslega fyndinn. Við fórum norður á Akureyri með „Syst- ur Maríu“ þá um sumarið og ég hafði með mér nokkur leikrit til þess að lesa með tilliti til sýninga næsta vet- ur. Ég sat þarna uppi á herbergi á Hótel KEA og las á daginn, meðal annars þennan gamanleik eftir Phil- ip King og Falkland Cary. Hann hét á enskunni „Sailor beware“ (Varaðu þig sjóliði). Ég veltist um af hlátri og vissi að þarna var komið verkefni fyrir næsta vetur. Ég segi svo stjórn félagsins frá þessu verki og eins leik- Karlinn í miðasölunni Ævi leikarans, óperusöngv- arans og hrossabóndans Jóns Sigurbjörnssonar þykir að flestra mati litrík. Haust- ið 1946 fór kappinn í fræga söngferð til Ameríku ásamt Karlakór Reykjavíkur. Jón Hjartarson segir hér frá því sem á daga hans dreif að því loknu. Ljósmynd/Oddur Ólafsson Horfst í augu: „Húrra, krakki“ (Arnold og Bach) var ein af þeim sýn- ingum sem settar voru upp í Austurbæjarbíói. Áróra Halldórsdóttir og Jón sitja fyrir miðju. Aðrir eru f.v.: Guðrún Ásmundsdóttir, Pétur Ein- arsson, Bessi Bjarnason, Helga Stephensen, Guðmundur Pálsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Þórarinn Sigurðsson Mackie hnífur faðmar brúði sína (Sigríði Hagalín) í sýningu Leik- félagsins á Túskildingsóperu Brechts 1959. Á þessum árum var Jón lausráðinn og lék jöfn- um höndum í Iðnó og í Þjóðleik- húsinu. Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette Ungbarnafatnaður Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og verðið. Allt fyrir mömmu. Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.