Morgunblaðið - 02.12.2001, Síða 13
Vínrækt og
franskir klettar
Kirkjugarðarnir
voru grafnir upp
og beinin flutt nið-
ur í klettinn til að
rýma fyrir húsum
FRÉTTABRÉF Lonely
Planet, Scoop, greinir frá
því að borgaryfirvöld í
Los Angeles hafi nýverið
lagt bann við reykingum
á afmörkuðu svæði í
400 görðum og útivist-
arsvæðum í borginni.
Lögin taka gildi um ára-
mótin og er þeim ætlað
að vernda börn fyrir tóbaksreyk og vindlingastubb-
um meðan þau leika sér. Fleiri samfélög innan vé-
banda Kaliforníuríkis styðjast við samskonar reglur.
Hermt er að sumir borgarráðsmanna í Los Angeles
vilji ganga lengra og leggja algert bann við reyk-
ingum hvarvetna í öllum skemmtigörðum. Reyk-
lausu svæðin sem búið er að segja fyrir um eru
einkum í grennd við leik- og körfuboltasvæði. Langt
er síðan bann var sett við reykingum á veit-
ingastöðum, börum og opinberum byggingum í Los
Angeles og segja þeir sem andvígir eru reyk-
ingabanni utan dyra áhyggjur yfirvalda af tóbaks-
reyk í andrúmslofti skjóta skökku við í borg sem
hulin sé mengunarskýi að staðaldri. Ekki er langt
síðan indversk stjórnvöld lögðu blátt bann við reyk-
ingum á opinberum stöðum.
Bannað að reykja í 400 görðum
og útivistarsvæðum LA
SACHER-tertur eru sendar
frá Austurríki í þúsundavís á
aðventunni, segir fréttabréf
ferðamálaráðs Vínar. Sacher-
tertan er einn frægasti æti
minjagripur borgarinnar og
ferðast landa og landshorna á
milli í sínum hefðbundna litlum
trékassa fyrir jólin. Tertan var fyrst gerð árið 1832
af Franz Sacher (1816-1907) sem var 16 ára lærling-
ur hjá Metternich fjölskyldunni. Fékk drengurinn
það verkefni að galdra fram gómsætan eftirrétt
handa matargestum kvöldsins þar sem yfirkokk-
urinn var rúmfastur. Var hann ekki lengi að hnoða
saman létta súkkulaðitertu með apríkósusultu und-
ir kreminu sem þakti kökuna. Uppskriftin gekk síð-
an áfram til Játvarðar, sonar Franz Sacher, sem
annaðist rekstur fágaðs veitingastaðar við Kärntn-
er Strasse. Hann lét síðar byggja Sacher-hótelið
sem fagnar 125 ára afmæli um þessar mundir. Ekki
þarf mikið að brjóta heilann um afmælistertuna,
sem auðvitað var Sacher-tertan góða en hótelið
lætur baka um 370.000 slíkar á hverju ári og ber
fram með þeyttum rjóma eða sendir heimshorna á
milli. Uppskriftin er enn leyndarmál.
Þeir sem vilja senda Sacher tertu til fjölskyldu
eða vinar geta farið inn á heimasíðuna www.sach-
er.com og lagt fram pöntun hjá Café Sacher í Vín.
Byrjunarverð er rúmar 2.200 krónur án póstburð-
argjalds.
Sætar jólakveðjur frá Vín
í trékassa frá Sacher
ANTOR Travelguide greinir
frá því að heimsins stærsta vél-
knúna jólasýning verði haldin í
höfuðstað Jótlands, Árósum, í
desember. Mismunandi atriði
verða sett upp með 400 hreyf-
anlegum jólasveinum í 1.200
fermetra tjaldi fyrir framan tón-
listarhús borgarinnar. Framan
við jólasveinatjaldið verður svo
jólamarkaður með fjölbreytilegum sölutjöldum og
skautabraut.
Stærsta vélknúna jólasveinasýn-
ing heims sett upp á Jótlandi
HRYLLINGSBÚÐIN Igor’s
var opnuð í Singapore í október
en fyrir er sams konar staður
með sama nafni í Hong Kong.
Igor’s er veitingastaður með
skelfingarblæ, sem alla jafna
gefur að líta í hryllingsmyndum
af besta tagi. Í kynningu á
heimasíðu staðarins segir að
Igor’s sé ekki bara upplifun fyrir
bragðlaukana heldur sjón,
heyrn, snerti- og lyktarskyn.
Igor’s í Singapore er tvisvar
sinnum stærri en sams konar
staður í Hong Kong og helmingi
hryllilegri að sögn. Innviðirnir
líkjast gömlum kastala og þar
gefur að líta veggbrúnir í haus-
kúpulíki, beinagrindarljósa-
krónur, leðurblökuskreytingar
og annað af draugalegu tagi.
Þeir sem heimsækja staðinn eru
ekki gestir í hefðbundnum skiln-
ingi, heldur fórnarlömb sem
leidd eru gegnum hverja hryll-
ingsaðstöðuna á fætur annarri
þar til sest er að borðum. Máls-
verðurinn er þriggja rétta og
með alþjóðlegu sniði og meðan
hans er neytt flytja persónurnar
Igor, Blóðsugan og Riff Raff
leikþætti fyrir gesti. Að því búnu
leika The Rolling Bones fyrir
dansi.
Fréttabréfið Singapore Tour-
ism Business fjallar um Igor’s í
nýjasta tölublaði og greinir frá
því að fórnarlömb geti keypt sér
hárkollur og fleiri aukahluti á
staðnum og þeir sem kjósa geta
látið farða sig á viðeigandi hátt.
Matsölustaður í hryllings-
dúr fyrir soltin fórnarlömb
Fórnarlömb Igor’s sækjast eftir skelfingu.
Frekari upplýsingar:
www.igors.com
Upplýsingar um ferðaþjón-
ustu í Singapore:
www.stb.sg og www.-
newasia-singapore.com
FJÓRIR íslenskir veitingastaðir
eru í árlegri bók um bestu veit-
ingastaði Evrópu, The Florman
Guide to Europe’s Best Restaur-
ants. Þrír þeirra fá stjörnu í bók-
inni, það er Hótel Holt, Hótel
Saga/Grillið og Humarhúsið, en
fjórði íslenski veitingastaðurinn,
sem getið er, er Sommelier. Krist-
ján Þorsteinsson hjá Humarhúsinu
segir niður-
stöðuna
hafa „gífur-
lega þýð-
ingu fyrir
íslensk
veitingahús
að vera
getið í einni
af bestu
veitinga-
húsabókum
augnabliks-
ins. Flor-
man Guide
er áþekk
Michelin en
á bara við
veitinga-
staði í Evrópu,“ segir hann.
Framkvæmdin er þannig að
fulltrúi frá Florman heimsækir
veitingastaðinn án þess að gera
boð á undan sér eða láta vita af
sér, segir Kristján. Síðan fær við-
komandi sent bréf þar sem greint
er frá niðurstöðunni og leyfis óskað
að mega birta nafn staðarins í bók-
inni.
Lagt er mat á 325 veitingastaði í
18 Evrópulöndum í bókinni, auk
þess sem birtur er listi yfir bestu
veitingahús Bandaríkjanna og
Austur-Evrópu. Segir Kristján
þessa niðurstöðu „æðislegri en orð
fá lýst“ og nefnir að meðlimir vild-
arklúbbs SAS fái bókina gefins frá
flugfélaginu.
Florman gefur 0–3 stjörnur og
merkir engin eða ein stjarna
„gæða- og hágæðamatseld“. Ein og
hálf stjarna táknar „næstum því
framúrskarandi“, tvær „framúr-
skarandi matseld og þjónustu“,
tvær og hálf „nánast yfirburðamat-
seld“ og þrjár „yfirburða mat-
reiðslu og þjónustu“.
Íslensk veit-
ingahús með
bestu matsölu-
stöðum Evrópu
Á EINNI helstu heimasíðu á
Netinu um dægradvöl í Lund-
únum er að finna margvíslegar
ábendingar um jólalega afþrey-
ingu í stuttri borgarferð.
Jólasöngvar
Fallegustu jólatónleikarnir
verða í Dómkirkju heilags Páls
hinn 18. desember frá klukkan
18.30 og aðgangur er ókeypis.
Jólaskautar
Hægt er að skauta í til-
komumiklu umhverfi við Somer-
set House þar sem svellið er upp-
lýst með logandi kyndlum eftir að
skyggja tekur og stirnir á til-
komumikið 13 metra jólatré í
hallargarðinum. Skautasvellið
rúmar um 2.000 manns í einu en
einnig má sitja á kaffihúsi við ísj-
aðarinn og njóta útsýnisins.
Tímapantanir: 020 7413 3399.
Jólagjafir
Mælt er með „hátíðlegri
smásölumeðferð“ í versl-
unarhúsum Harrods,
Selfridges eða Hamleys,
svo dæmi séu nefnd. Falli
það ekki í kramið er bent á
glænýjan vodkabar á 4.
hæð Selfridges.
Jólahnetur
Þeir sem þræða götur
borgarinnar ættu að gefa
sér tíma til þess að njóta ilmsins
og bragðsins af steiktum kast-
aníuhnetum og ylja sér. Hnetu-
vagnar standa í röðum eftir að-
alverslunargötu Lundúna,
Oxford-stræti.
Jólaljós
Jólin eru hátíð ljóss og friðar
og jólaljósin skína skært við Reg-
ent-, Oxford- og Bond-stræti.
Jólasveinninn
Jólasveinar eru önnum kafnir
á þessum árstíma og láta sjá sig í
fjölda verslana. Vinsælustu jóla-
sveinabúðirnar er að finna í
Harrods og Selfridges.
Jólatré
Norðmenn gefa fleirum en Ís-
lendingum jólatré og eitt slíkt
stendur prýtt hvítum ljósum við
Trafalgar-torg frá klukkan 18.30,
6. desember. Sungnir eru jóla-
sálmar við tréð milli 17 og 21
tiltekin kvöld vikunnar.
Jólaskraut
Sérfræðingar sýna áhorfendum
réttu handtökin við jólaskrautsgerð
víðs vegar um borgina, til dæmis á
Samgöngusafni Lundúna 20. og 21.
desember, eða Lundúnasafni 2.–16.
desember.
Jólaleikrit
Töfrar leikhússins laða um jóla-
leytið sem aldrei fyrr. Jólaævintýri
Dickens verður leikið á fjölum
Bloomsbury-leikhússins, svo dæmi
sé tekið.
Nánari upplýsingar um Lund-
únajól:
www.londontown.com
Rómantísk skauta-
ferð eða hátíðleg
smásölumeðferð
Reuters
Jólaösin á Oxford-stræti Lund-
úna stendur svo sannarlega undir
nafni.
GLÆSILEGIR GRIPIR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.845 á viku.
Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar. (Allt nema bensín og
afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
GSM- símakort
með dönsku símanúmeri.
Nú einnig bílaleigubílar frá
Kaupmannahöfn og Hamborg sem
má aka um Austur-Evrópu.
Heimasíðan, www.fylkir.is
fjölbreyttar upplýsingar.
Fylkir Ágústsson
Fylkir — Bílaleiga ehf.
Sími 456 3745
Netfang fylkirag@snerpa.is .
Heimasíða www.fylkir.is .