Morgunblaðið - 02.12.2001, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 B 27
bíó
Jóhannes Kári Kristinsson hefur opnað augnlæknastofu sína
í Spönginni 39, 112 Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga frá kl. 8.30 - 16.30
Sérgrein: Almennar augnlækningar, hornhimnu- og sjónlagslækningar
með laser við nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju.
www.lasik.is www.sjonlag.is
Skráning skuldabréfa
á Verðbréfaþingi Íslands
Útgefandi:
Lyfjaverslun Íslands hf, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, kt. 630269-4029.
Lýsing á flokknum:
Heiti flokksins er 1. flokkur 2001. Bréfin eru til 5 ára, bundin vísitölu
neysluverðs og bera 8,1% ársvexti.
Nafnverð útgáfu:
Heildarfjárhæð útgáfunnar er allt að 1.000.000.000 kr. að nafnverði og eru
520.000.000 kr. að nafnverði þegar seldar
Gjalddagar:
Útgefandi greiðir verðbættan höfuðstól skuldarinnar í einu lagi þann 1. apríl
2006. Skuldabréfin hafa vaxtagjalddaga 1. apríl ár hvert. Fyrsti gjalddagi
vaxta er 1. apríl 2002, og sá síðasti þann 1. apríl 2006..
Skráningardagur á VÞÍ:
Þegar útgefin og seld bréf að upphæð 520.000.000 kr. að nafnverði verða
skráð á VÞÍ þann 7. desember 2001.
Skráningarlýsing og aðrar upplýsingar varðandi ofangreind skuldabréf liggja
frammi hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum.
MEISTARAR þöglumyndanna, á borð viðChaplin, Harold Lloyd,The Keystone Cops og
Buster Keaton, hófu gamanmyndina
til vegs og virðingar strax við upphaf
kvikmyndaaldarinnar. Ærsluðust
einsog þeir ættu lífið að leysa, enda
fengu bíógestir aldrei nóg af fettum,
brettum, bakföllum, fáránlegri
hegðun sem oftar en ekki átti að ein-
kennast af yfirþyrmandi gáfna-
skorti. Margir frumkvöðlanna hófu
ferilinn í kabarett- og fjölleikahúss-
ýningum, þar sem ærsla- og lát-
bragðsleikur var aldagömul list-
grein. Þeir fullkomnuðu hana síðan
með tækninni sem kvikmyndin bauð
uppá.
Chaplin, Keaton og Lloyd voru
hvað fremstir í hópnum sem beitti
ærslaleiknum til að kryfja þjóð-
félagsástandið, ekki síst baráttu
smælingjans við að halda áttum í ört
hraðskreiðari tímans rás og síbreyti-
legum og tæknivæddari heimi. Aðrir
gamanleikarar, einsog Abbott og
Costello, Laurel og Hardy og ekki
síst The Three Stooges, byggðu sína
gamansemi frekar á ófullkomleika
mannsins; heimsku og fáfræði.
Tengdu ærslaganginn á engan hátt
þjóðfélagsumræðunni, hvorki gagn-
rýnir né sposkir, frekar stjórnlausir,
látbragðið hömlulaust. Börðu höfð-
inu í steininn.
Þróunin hélt áfram og tók sífelld-
um breytingum í höndum nýrra ær-
ingja, einsog Marx-bræðra, sem
voru gjörsamlega óforskammaðir og
var ekkert heilagt. Víkkuðu formið
útá ystu nöf geggjunarinnar. Enda
sjálfir léttruglaðir. Fræg er sagan af
því er Louis B. Mayer, æðsta yfir-
valdið hjá hinu volduga MGM-kvik-
myndaveri, lét þá bræður bíða eftir
sér, fulllengi, að þeim fannst.
Skyndilega fann hann reykjarlykt
berast af biðstofunni. Höfðu óláta-
seggirnir kveikt bál á miðju gólfi þar
sem innbúið logaði glatt, svo við lá
eldsvoða.
Er talið kom til sögunnar um
1930, vék látbragðs- og ærslaleikur
fyrir uppákomugamanmyndinni
(screwball) og fágaðra gríni, þar sem
æ meiri áhersla var lögð á að hið tal-
aða mál héldi uppi fjörinu í stað lík-
amlegrar tjáningar. Samræðulistin
tók miklum stökkbreytingum fram á
við á fjórða áratugnum, þróaðist og
slípaðist í höndum fjölda frábærra
handritshöfunda og leikstjóra.
Eftir seinni heimsstyrjöldina fór
ærslaleikur aftur að láta á sér kræla
að einhverju gagni. Frakkar stóðu
framarlega í að hefja formið aftur til
vegs og virðingar, með Tati í far-
arbroddi. Bretar áttu Carry On-
myndirnar; Peter Sellers og In-
spector Clouseau og Norman Wis-
dom. Bandaríkjamenn sprellikarla á
borð við Jerry Lewis.
Fáráðlingarnir mæta til leiks
Aulamyndin fór smám saman að
fá á sig svip, en naut ekki umtals-
verðrar virðingar né vinsælda fyrr
en háðfuglar á borð við leikstjórann,
handritshöfundinn og leikarann Mel
Brooks komu fram á sjónarsviðið á
sjöunda og áttunda áratungum.
Ásamt fríðum flokki óhefðbundinna
gamanleikara sem ekkert víluðu fyr-
ir sér. Chevy Chase, Dan Aykroyd,
Bill Murray, Steve Martin og John
Belushi komu með ferskan og hress-
an gust inní gamanmyndina. Myndir
einsog Caddyshack, Meatballs, The
Jerk og The Blues Brothers voru
undanfarar grínmynda sem byggð-
ust nánast eingöngu á fávísi aðalper-
sónanna. Strákhvolpur sá gjörsam-
lega við aulunum, illmennunum í
hinum feikivinsælu gamanmyndum
kenndum við Aleinn heima – Home
Alone. Joe Pesci og ennfrekar Dan-
iel Stern voru einkar trúverðugir
ratar sem höfðu ekki roð við vits-
munum 8 ára stráks. Home Alone
(’80) hleypti af stað fjölmörgum eft-
irlíkingum og var ein lykilmynda
aulagrínsins.
Á níunda áratugnum komu fram á
sjónarsviðið myndirnar um Bill og
Ted og bjálfagrín kennt við skopritið
National Lampoon, oftast með
Chevy Chase í aðalhlutverki og
Randy Quaid eða John Candy
óborganlega í bakgrunninum. Jim
Varney lék í fjölmörgum myndum
um Ernest P. Worrell, vitgrannan
klaufabárð. Skásti aulamyndabálk-
urinn var kenndur við Lögregluskól-
ann – Police Academy. Fór ágætlega
í gang 1984, lognaðist útaf á 10. ára-
tugnum, örþunnur eftir einar 10
hrakandi endurtekningar.
Aulinn fær rétta andlitið
Um 1990 kemur Jim Carrey fram
á sjónarsviðið og aulinn fær rétta
andlitið. Að ógleymdum Chris Farl-
ey, Adam Sandler, Jon Lovitz, og
þeim félögum öllum. Carrey setti
allt á annan endann með Ace Vent-
ura: Pet Detective (’92), kvikmynda-
heimurinn hefur ekki jafnað sig
síðan. Carrey er meistari látbragðs-
leiksins og andlitið einsog gríma sem
hægt er að móta nánast á alla vegu.
Myndirnar um gæludýraspæjarann
Ace Ventura urðu tvær, þá gerðist
viðburður í aulamyndasögunni:
Farrelly-bræður hittu Jim Carrey.
Útkoman varð bylgja bjálfamynda
sem stendur enn og ekkert útlit á að
henni linni í bráð.
Heimskur, heimskari – Dumb &
Dumber, var nánast tímamótamynd.
Carrey leikur torgefinn ökuþór, Jeff
Daniels fer með hlutverk jafnvel enn
vitgrennri hundasnyrtis. Íðilfögur
kona og skjalataska full af peningum
rugla gjörsamlega takmarkaða
heilastarfsemi félaganna, sem fara á
flakk um Bandaríkin þver og endi-
löng til hjálpar ungfrúnni. Carrey
lék einnig aðalhlutverkið í mynd
bræðranna, Me, Myself and Irene
(’00). Fór á kostum sem geðklofi;
önnur helftin ljúf sem lamb, hin
hrokafull mótorhjólalögga. Báðar
elskuðu Irene…
Árið 1994 reyndi Nicolas Cage
fyrir sér á bjálfamarkaðnum, en
gekk illa og gerðist hasarmynda-
hetja. Tilraunin hans var reyndar
jólamynd, sem nefnist Trapped in
Paradise. Cage leikur einn þriggja
bræðra (hinir eru Jon Lovitz og
Dana Carvey; jafngóðir aulaleikarar
og Cage er slakur), sem ræna bank-
ann í bænum Paradise en sjá að sér
er þeir kynnast hjartahlýju íbúanna.
Mislukkuð blanda Capra- og aula-
myndar.
Farley og Sandler
Nýr kafli hefst er Chris Farley
kemur fram, ásamt Carvey og Mike
Myers í Wayne’s World 2. Farley
(1964–97) er einn konunga greinar-
innar, en féll frá um það leyti sem
hann var orðinn stórstjarna. Farley
fékk að spreyta sig fyrst í aðalhlut-
verki í Tommy Boy (‘95) og fór á
kostum sem fávísi erfinginn sem öllu
bjargar er ættarauðurinn er í húfi.
David Spade, annar einkar liðtækur
bjálfaleikari, fer með hlutverk þess
sem allt á að vita en ekkert getur. Í
Black Sheep fer Farley enn á ný
með hlutverk svarta sauðsins. Hann
er svo vitlaus að bróðir hans (Tim
Matheson), sem berst fyrir endur-
kjöri sem ríkisstjóri, ræður aðstoð-
armann sinn (David Spade) til að
gæta sauðsins á meðan kosningabar-
áttan stendur yfir. Hver skyldi svo
bjarga málunum? Næstsíðasta og
besta mynd Farleys er Beverly Hills
Ninja (’97), þar sem hinn ofvaxni
leikari fer á kostum sem uppeldis-
sonur ninja-stríðsmanna. Af ber-
sýnilegum ástæðum fellur Naru,
einsog hann er kallaður, aldrei inní
hópinn, en nær að sanna sig að lok-
um.
Maður kemur í manns stað, ein
stærsta aulagrínstjarna samtímans
er Adam Sandler, sem sló í gegn
með Happy Gilmore (’96); þar var
hann í býsna skemmtilegu formi sem
kjáni sem reynist með ótrúlegan
höggkraft sem nýtist gjörsamlega á
golfvellinum. The Waterboy (’98) er
framlenging; Sandler leikur sauð-
heimskan kúsk ruðningsliðs, o.s.frv.
Í Little Nicky (’00) fer Sandler á
kostum sem svarti sauðurinn í fjöl-
skyldu Skrattans og á að taka við í
Helvíti. Sem gengur brösuglega.
Tvær feikivinsælar myndir hafa ver-
ið gerðar um Austin Powers, þar
sem Mike Myers lætur öllum illum
látum sem spæjari á sjöunda ára-
tugnum í „Swinging London“.
Í Dude, Where Is My Car? (’00)
vakna tveir hasshausar upp við
vondan draum, finna ekki bílgarm-
inn sinn. Á leiðinni hitta þeir sam-
safn af furðufuglum, sumir langt að
komnir. Freddy Got Fingered (’01)
nýtur þeirrar vafasömu sérstöðu að
þykja svo yfirmáta vitlaus og
ósmekkleg að hún verður líklega
ekki sýnd utan Bandaríkjanna! Evil
Woman (’01) hefði gjarnan mátt
lenda í þeim hópi, ásamt Corky
Romano.
Aular til framtíðar
Lítið lát verður á aulum í náinni
framtíð. Næst sjáum við hinn feiki-
góða Jack Black, sem fer með aðal-
hlutverkið í Shallow Hal (’01), nýj-
ustu Farrelly-myndinni, sem var
frumsýnd vestra í mánuðinum. Þá er
von á Not Another Teen Movie (’01),
sem virðist, af sýnishorninu að
dæma, með endemum vitlaus. Á
næsta ári kemur m.a. nýjasta Austin
Powers-myndin, kennd við Gold-
member, og Adam Sandler verður á
sínum stað með Deeds. Markaður-
inn virðist ekkert á því að stíga í vit-
ið.
Heimskur, heimskari…
Gamanmyndin er jafngömul kvikmyndasögunni
og greindist snemma í fjölmarga flokka; svartar,
dramatískar, tragískar, kaldhæðnislegar, ærslaleik
(slapstick) o.s.frv. Sæbjörn Valdimarsson kynnti
sér tískufyrirbrigðið aulamyndina.
Adam Sandler: Einn helsti aulaleikari samtímans.
Fáviskan ekki lengur aukabúgrein í Hollywood Nýjasta aulastjarnan: Jack Black ásamt Gwyneth
Paltrow í Shallow Hal.
Laurel og Hardy: Aular í öndverðu.
Chris Farley: Efnisauli lést fyrir aldur fram. Jim Carrey: Aulinn fann sitt rétta andlit.