Morgunblaðið - 07.02.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MÖRGUM höfuðborgarbúum hef-
ur væntanlega brugðið í brún að
sjá alhvíta jörð og þurfa að skafa
af bílnum í gærmorgun. Ekki
furða, þar sem vart hefur fest
snjó sunnanlands frá því í desem-
ber og meðalhitastig í janúar víð-
ast hvar langt yfir meðallagi.
En það var einkar fallegt
gönguveður við Tjörnina þar sem
þessi mynd var tekin í gær og
umferð fótgangandi allnokkur ef
marka má slóðana.
Gert er ráð fyrir norðlægri átt
á morgun, víða með éljum eða
snjókomu og frost verður allt að
tíu stig.
Morgunblaðið/Ásdís
Snjóar
í höfuð-
borginni
FORSETI Alþingis greip til þess
ráðs í gær að víta Ögmund Jónasson,
formann þingflokks Vinstri hreyfing-
arinnar – græns framboðs, fyrir
ósæmileg ummæli í sinn garð. At-
burðurinn, sem sætir miklum tíðind-
um í þingsögunni vegna þess hve vít-
ur þingforseta eru fátíðar, varð við
umræður um störf þingsins í upphafi
þingfundar, en Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður VG, lýsti þá áhyggj-
um af byggðaþróun í landinu.
Benti Steingrímur á að 11. desem-
ber sl. hefði hafist á Alþingi umræða
um byggðamál og Byggðastofnun
sem ekki hefði tekist að ljúka. Þegar
henni hefði verið frestað hefði a.m.k.
10 manns verið á mælendaskrá, þar á
meðal hann sjálfur. Innti hann for-
seta Alþingis eða ráðherra byggða-
mála eftir því hvenær menn hefðu
hugsað sér að halda þessari umræðu
áfram og ljúka henni.
Greip tvívegis fram í
Forseti Alþingis, Halldór Blöndal,
lýsti af þessu tilefni samkomulagi
sem orðið hefði á fundi sínum með
formönnum allra þingflokka um það
hvaða mál yrðu tekin fyrir í þessari
viku. Hafi orðið um þetta algert sam-
komulag, en enginn hefði nefnt að
ræða þyrfti þær skýrslur sem ekki
hefði tekist að ljúka umræðum um,
þ.e. skýrslu um byggðamál og um
Ríkisendurskoðun. Sagði forseti
sjálfsagt að skoða þetta mál á fundi
með þingflokksformönnum um mál
næstu viku og áréttaði þetta eftir að
Ögmundur Jónasson hafði komið í
ræðustól og gagnrýnt að ríkisstjórn-
in og stjórn þingsins setti jafnan í for-
gang þau mál sem kæmu frá ríkis-
stjórninni.
Sagði Halldór Blöndal að hann
hefði ætíð samráð við formenn þing-
flokka um dagskrána um leið og
beiðni um slíkt kæmi fram. Gall þá í
Ögmundi: „Ekki um stjórnarmálin.“
Hélt forseti þá áfram máli sínu með
þeim orðum að hann héldi í sakleysi
sínu og sökum þess að hann væri ekki
þingreyndur maður, að þingmenn
væru svo háttvísir að þeir gripu ekki
fram í fyrir forseta þingsins þegar
hann væri að tala við þá. Hló þá þing-
heimur, enda Halldór með einna
mesta þingreynslu að baki. Kallaði
Ögmundur hins vegar þá aftur fram í
fyrir forseta með orðunum: „Það
þekkir hann allavega, háttvísina,“ og
þegar komu fram í sal óskir um vítur
á hendur þingmanninum.
Fór svo að forseti vítti þingmann-
inn fyrir ummæli sín, sagði þau „víta-
verð“. Er þetta í fyrsta sinn í áratugi
sem þingmaður er víttur fyrir um-
mæli sín á þingi. Síðast gerðist það,
svo vitað sé, árið 1950. Þá vítti Jón
Pálmason forseti varaþingmanninn
Magnús Kjartansson fyrir meiðandi
og óviðurkvæmileg ummæli sem
fram komu í nefndaráliti.
Fyrstu vítur forseta Alþingis á þingmann í ríflega hálfa öld
Ummæli Ögmundar Jón-
assonar talin vítaverð
FORSETI Alþingis, Halldór Blön-
dal, segist hafa talið óhjákvæmilegt
að víta Ögmund Jónasson fyrir um-
mæli hans á þingfundi í gær. Hann
sagði við Morgunblaðið að þingmað-
urinn hefði ítrekað gripið fram í fyr-
ir sér í forsetastóli. Ögmundur segir
Halldór hafa orðið á í messunni en
hann muni ekki erfa þetta við hann.
„Ég hafði kurteislega áminnt hann
um að hafa ekki í frammi framíköll
við forseta og þá greip hann aftur
fram í fyrir mér með hálfkæringi og
það er það sem mér finnst vítavert,
að þingmaðurinn skuli endurtaka
framíkall við forseta þingsins,“ sagði
Halldór. Ástæður vítanna væru
þannig hvort tveggja tónninn í um-
mælunum og það að grípa þrásinnis
fram í fyrir forseta Alþingis. Slíkt
hlyti að vera vítavert.
„Forseti þingsins verður að geta
talað óhindrað úr forsetastóli. Menn
geta haft mismunandi skoðanir á
því hvort hann hefur rétt fyrir sér
eða ekki og til þess hafa þeir réttinn
að tala í ræðustól um fundarstjórn
forseta.“
Halldór Blöndal, sem tók við emb-
ætti forseta Alþingis eftir kosningar
1999, segist ekki hafa átt von á því
að til þess kæmi að hann vítti þing-
mann. „Það hefur aldrei hvarflað að
mér áður. Ég man ekki til þess að
gripið hafi verið fram í fyrir forseta
Alþingis með þessum hætti.“
Málefnaleg ábending
Ögmundur Jónasson kvaðst í
samtali við Morgunblaðið ekki vilja
segja annað en að benda þeim sem
vildu fá botn í málið á að kynna sér
alla umræðuna. Sagði hann tilefni
hennar hafa verið leiðréttingu af
sinni hálfu við þau ummæli forseta
að samkomulag hefði orðið um
hvaða mál skyldu tekin til umræðu.
Kvaðst Ögmundur þá hafa talið
nauðsynlegt að vekja á því athygli
úr sæti sínu að ekki hefði orðið sam-
komulag um stjórnarfrumvörp, þar
réðu ríkisstjórn og stjórn þingsins
málum.
„Með þetta í huga þá held ég að
menn geti varla komist að annarri
niðurstöðu en að forseta hafi orðið á
í messunni,“ sagði Ögmundur og
kveður ábendingu sína hafa verið
fullkomlega málefnalega. Hann
kvaðst ekki munu erfa þetta við for-
seta og sagði að yrði þetta að for-
dæmi hljóti forseti að eiga eftir að
gera athugasemdir við ummæli ann-
ars hvers þingmanns.
„Forseti þingsins verður
að geta talað óhindrað“
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra kynnti rík-
isstjórninni í gærmorgun frumvarp til
laga um virkjun Jökulsár á Brú og
Jökulsár í Fljótsdal og stækkun
Kröfluvirkjunar vegna uppbyggingar
stóriðju á Austurlandi. Frumvarpið
var kynnt þingflokkum stjórnarflokk-
anna síðdegis í gær og samþykkt í
þeim báðum.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði varla nást að leggja
frumvarpið fram á Alþingi í þessari
viku þar sem engir þingfundir væru á
föstudögum en það yrði gert strax eft-
ir helgi.
Tilgangur frumvarpsins er að afla
lagaheimilda fyrir virkjunarfram-
kvæmdum vegna stóriðjufram-
kvæmda sem áformað er að ráðast í á
næstu árum á Austurlandi. Skv.
ákvæðum orkulaga veitir Alþingi leyfi
til að reisa og reka virkjanir stærri en
2MW.
Í frumvarpinu er lagt til að Alþingi
heimili Landsvirkjun að reisa og reka
vatnsaflsvirkjun í Fljótsdal, þ.e.
Kárahnjúkavirkjun með allt að 750
MW afli og virkja til þess í tveimur
áföngum vatnsföllin Jökulsá á Brú og
Jökulsá í Fljótsdal. Þá er lagt til að
iðnaðarráðherra verði heimilað að
veita Landsvirkjun leyfi til að stækka
Kröfluvirkjun í allt að 220 MW.
Fram kemur í tilkynningu iðnaðar-
ráðuneytisins að raforkuþörf álvers í
Reyðarfirði sé áætluð 3.850 GW-
stundir á ári vegna fyrri áfanga en
tæplega 2.000 GW-stundir á ári vegna
síðari áfanga. Gert sé ráð fyrir að raf-
orkuþörf vegna álversins verði mætt
með eftirfarandi framkvæmdum:
Fyrri áfangi álvers:
Fyrri áfangi Kárahnjúkavirkjunar,
þ.e. virkjun Jökulsár á Brú með
gerð Hálslóns og
Fljótsdalslínur 3 og 4.
Síðari áfangi álvers:
Síðari áfangi Kárahnjúkavirkjunar,
þ.e. virkjun Jökulsár í Fljótsdal
ásamt Hraunaveitum,
byggingu Bjarnarflagsvirkjunar
Stækkun Kröfluvirkjunar og
Kröflulína 3.
Kárahnjúkavirkjun og stækkun
Kröfluvirkjunar rædd í ríkisstjórn
Frumvarpið
samþykkt í
þingflokkum
„HÉR hefur áður verið raf-
magnslaust og allt upp í viku í
einu svo við kippum okkur
ekki upp við þetta,“ sagði Sól-
veig Jónsdóttir, húsfreyja á
Munaðarnesi í Ingólfsfirði, í
samtali við Morgunblaðið. Þar
um slóðir urðu miklar raf-
magnstruflanir um síðustu
helgi og var rafmagnslaust í
þrjá sólarhringa í Munaðar-
nesi og álíka lengi á nokkrum
öðrum nálægum bæjum.
Sólveig sagði aftakaveður
hafa brostið á sl. föstudags-
kvöld sem staðið hafi allan
laugardaginn og fram á nótt.
„Hér var blindbylur með mik-
illi veðurhæð og sjógangi og
rafmagnið fer út vegna seltu
sem sest á spenna og allt slær
út,“ segir Sólveig. Auk þess
brotnaði staur á einum stað og
sagði Sólveig viðgerðarmenn
frá Orkubúi Vestfjarða hafa
komist til að gera við þegar
veðrinu hafði slotað á sunnu-
dag.
Búið er á um 10 bæjum í
Ingólsfirði, Trékyllisvík, Norð-
urfirði og víðar nyrst á Strönd-
um og segir Sólveig flesta hafa
ljósavélar til að bjargast á þeg-
ar rafmagnið fer. Á Munaðar-
nesi var einnig hægt að kynda
upp með rekaviði sem hún
sagði að nóg væri af og því
hefði ekki væst um íbúa og
sagði Sólveig flesta búa við
svipaðar aðstæður. Sólveig og
maður hennar, Guðmundur G.
Jónsson hreppstjóri, eru ein á
bænum eftir að börnin eru
horfin til annarra starfa. Sagði
hún börn á nokkrum bæjanna
en íbúa á Ströndum ekki vera
marga í allt.
Rafmagnslaust í allt
að þrjá sólarhringa
á Ströndum
Ljósavél
og vara-
kynding
taka við