Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJA stólalyftan í Hlíðarfjalli
verður vígð með formlegum hætti
laugardaginn 9. febrúar kl. 10:30
og fer athöfnin fram við drifstöð
lyftunnar. Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, og Björn
Bjarnason íþróttamálaráðherra
flytja ávörp.
Við sama tækifæri mun lyftunni
verða gefið nafn sem valið hefur
verið úr 132 tillögum sem bárust í
samkeppni sem haldin var í desem-
ber sl. Að athöfn lokinni verður
boðið til hádegisverðar í Strýtu kl.
12:30.
Góður skíða- og brettasnjór er
kominn í Hlíðarfjall eftir snjókomu
síðustu daga sem reyndar stendur
enn yfir og von er á meiri snjó
næstu daga, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Skíðastöðum.
Nýja stóla-
lyftan vígð
á laugardag
FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrar-
bæjar fyrir árið 2002 var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudag.
Akureyrarbær er fyrsta sveitarfé-
lagið til að leggja fram fullbúna áætl-
un sem er að öllu leyti í samræmi við
ný reikningsskil sveitarfélaga.
Ákvörðun um að fara þá leið varð til
þess að áætlunin er seinna á ferðinni
en vant er. Á sama tíma og unnið var
að gerð fjárhagsáætlunar var unnið
að breytingum samkvæmt nýjum
reikningsskilum auk þess sem unnið
hefur verið að breytingum sem
fylgja stofnun Framkvæmdamið-
stöðvar og Fasteigna Akureyrar-
bæjar.
Við afgreiðslu áætlunarinnar var
fallið frá tillögum um hækkun á leik-
skólagjöldum og gjöldum fyrir skóla-
og heimaþjónustu. Þá var gjaldskrá
Norðurorku lækkuð um síðustu ára-
mót og einnig var álagningarhlutfall
fasteignagjalda lækkað. Þetta gerði
Akureyrarbær til að leggja sitt af
mörkum við að halda aftur af verð-
lagshækkunum.
Bréf í eigu Framkvæmda-
sjóðs verða leyst út á árinu
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir
að heildartekjur Akureyrarbæjar
verði 7,2 milljarðar króna. Þar af eru
skatttekjur áætlaðar um 3,2 millj-
arðar og framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga 350 milljónir króna.
Heildargjöld bæjarins verða tæpir 7
milljarðar króna. Útgjöld aðalsjóðs
eru um 4,8 milljarðar og munar þar
mestu um fræðslu- og uppeldismál,
en gjöld vegna þeirra eru rúmir 2
milljarðar króna. Útgjöld til félags-
mála eru um 1 milljarður og 1,7 millj-
örðum er varið til annarra verkefna
innan aðalsjóðs. Gert er ráð fyrir að
hagstætt verði að leysa út markaðs-
verðbréf í eigu Framkvæmdasjóðs
og er framlag sjóðsins áætlað 500
milljónir króna. Eigið fé sjóðsins var
í ársbyrjun 2002 um 886 milljónir
króna.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar samþykkt í bæjarstjórn
Heildartekjur um
7,2 milljarðar króna
„ÉG hlakka til að takast á við þetta
verkefni,“ sagði Þorsteinn Bach-
mann, nýráðinn leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Akureyrar. Hann mun
hefja störf sem slíkur við hlið Sig-
urðar Hróarssonar, núverandi
leikhússtjóra, 1. mars næstkom-
andi, en taka svo við þegar Sig-
urður lætur af stöfum næsta sum-
ar.
Þorsteinn sagði að Leikfélag Ak-
ureyrar stæði vel um þessar mund-
ir, listrænt séð og einnig fjárhags-
lega, og andrúmsloftið væri mjög
gott. „Það skiptir miklu máli að
andrúmsloftið sé gott, sérstaklega
á stað, þar sem fólk kemur saman
til að fá andlega næringu og
njóta.“
Þorsteinn sagðist taka við góðu
búi. Mikil umskipti hefðu orðið í
rekstri leikfélagsins á síðustu miss-
erum. Staðan hefði ekki verið sér-
lega góð, en nú kvæði við annan
tón. „Sigurður hefur unnið gott
starf fyrir félagið og það stendur
nú afar vel,“ sagði Þorsteinn.
„Samkomuhúsið er fallegt og þar
er góður hljómburður. Þá stendur
til að gera á húsinu nauðsynlegar
úrbætur sumarið 2003.“
Þorsteinn og kona hans, Laufey
Brá Jónsdóttir, gerðust fastráðnir
leikarar hjá Leikfélagi Akureyrar
síðasta sumar og mun Þorsteinn
ljúka þeim samningi. Þau Þor-
steinn og Laufey koma fram í
tveggja manna leikverki sem frum-
sýnt verður í byrjun maí; Saga um
pandabirni, sögð af saxófónleikara
sem á kærustu í Frankfurt. Þá hafa
þau staðið fyrir fjölsóttum leiklist-
arnámskeiðum fyrir áramót og
verður þráðurinn tekinn upp að
nýju nú í næstu viku. Eins hafa þau
verið með námskeið í grímugerð
og leik- og leiklistarnámskeið í
grunnskólum. „Það virðist vera
mikill áhugi fyrir leiklist á Ak-
ureyri. Hér eru tónlistarskóli og
myndlistarskóli, en það hefur vant-
að að fólki sé boðið upp á tilsögn í
leiklist,“ sagði Þorsteinn.
Hann leikstýrir einnig um þessar
mundir Leikfélagi Verkmennta-
skólans á Akureyri, en það mun
frumsýna söngleikinn Rocky Horr-
or Picture Show í næsta mánuði.
„Það er mikið að gera og það er
mjög gaman,“ sagði Þorsteinn.
Um þessar mundir leikur hann í
Slövum og kvaðst hann vona að
fólk fjölmennti á verkið, enda hefði
það fengið góða dóma. Hann sagði
gott umtal um leikfélagið og hið já-
kvæða andrúmsloft sem innan þess
ríkti spyrjast vel út og því ekki
ólíklegt að fólk lengra að komið
myndi í ríkum mæli sækja leik-
húsið heim í vetur.
Leikhús er
fyrir áhorfendur
„Leikhúsið er fyrir áhorfendur,
því ber skylda til að þjóna þeim og
samfélaginu og ég mun hafa það að
leiðarljósi þegar ég tek við starfi
leikhússtjóra,“ sagði Þorsteinn. Í
ljósi þess að Akureyri auglýsti sig
sem fjölskylduvænan bæ hefur
hann í hyggju að bjóða í framtíð-
inni upp á „litlar fallegar barna-
sýningar“ eins og hann orðaði það.
Þorsteinn Bachmann nýráðinn leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Leikfélag-
ið stendur
vel, fjár-
hagslega
og listrænt
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Bachmann, nýráðinn leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
SKYGGNIR hf. hefur nú tekið við
rekstri tölvukerfa Akureyrarbæjar,
en þau eru með þeim stærstu á
Norðurlandi. Tölvukerfin eru hýst
miðlægt hjá Skyggni í nýjum vélasal
fyrirtækisins á Akureyri. Umsýsla
með fjarskiptaneti bæjarins er einn-
ig hluti samningsins, en í hagræðing-
arskyni hafa verið gerðar nokkrar
breytingar á fjarskiptarekstrinum.
Markmið með samningnum er að
hagræða í rekstri upplýsingakerfa
Akureyrarbæjar.
Flutningur á þjónustunni fór fram
nú fyrir skömmu. Skyggnir hefur
fjölgað starfsmönnum sínum á Ak-
ureyri um tvo vegna samningsins við
Akureyrarbæ og útlit fyrir frekari
fjölgun á næstunni.
Tölvukerfi
Akureyrarbæjar
Skyggnir
tekur við
KEPPNI í karlaflokki á Íslands-
mótinu í handbolta er að fara af stað á
ný eftir þátttöku íslenska landsliðsins
á Evrópumótinu í Svíþjóð. Þar náði ís-
lenska landsliðið mjög góðum árangri
og minnti enn og aftur á að hand-
knattleikur er sú flokkaíþrótt sem við
Íslendingar höfum náð lengst í.
Fyrsti leikur Þórs í Esso-deildinni
á þessu ári verður gegn Gróttu/KR
föstudaginn 8. febrúar í Íþróttahöll-
inni á Akureyri og hefst kl. 20.00.
Heiðursgestir á leiknum verða hjónin
Ragna Ingólfsdóttir og Samúel Jó-
hannsson en synir þeirra þrír taka all-
ir þátt í leiknum, Ingólfur sem liðs-
stjóri Þórsliðsins en Atli og Jóhann
sem leikmenn í liði Gróttu/KR. Allir
eru þeir bræður uppaldir í Þór og
Ingólfur og Jóhann urðu Íslands-
meistarar með yngri flokkum félags-
ins.
Þórsarar eru hvattir til að mæta á
leikinn og styðja sína menn til sigurs í
leiknum, segir í fréttatilkynningu frá
handknattleiksdeild Þórs.
Bræður
munu
berjast
Þór mætir Gróttu/
KR í úrvalsdeildinni
í handbolta
♦ ♦ ♦
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá efnir
til stórtónleika í Glerárkirkju laugar-
daginn 16. febrúar næstkomandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.
Fjöldi tónlistarmanna kemur fram
á tónleikunum. Þar má nefna Gosp-
elsystur Reykjavíkur undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur, Kór Glerár-
kirkju undir stjórn Hjartar Stein-
bergssonar, Óskar Pétursson, Björgu
Þórhallsdóttur, Örn Viðar Birgisson,
Erlu Þórólfsdóttur, Pálma Gunnars-
son, Örnu Valsdóttur, Ingu Eydal og
loks hljómsveitina Einn og sjötíu.
Kynnir á tónleikunum verður Pétur
Þórarinsson, sóknarprestur í Laufási.
Forsala aðgöngumiða verður á
Glerártorgi dagana 8., 9. og 10. febr-
úar. Eftir helgi verður hægt að kaupa
miða í versluninni Fold-Önnu í Hafn-
arstræti 85 og í Rammagerðinni,
Langholti 13. Ágóði tónleikanna
rennur til kaupa á steindum glugga í
Glerárkirkju.
Stórtónleikar í Glerárkirkju
VALGERÐUR H. Bjarnadóttir,
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu,
mun skipa fyrsta sæti á lista Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
fyrir sveitarstjórnarkosningar á Ak-
ureyri í vor. Hún verður jafnframt
bæjarstjóraefni flokksins.
„Ég er mjög bjartsýn,“ sagði Val-
gerður en hún kvaðst finna fyrir mikl-
um stuðningi við hreyfinguna í bæn-
um. Hún sagði hópinn sem stæði að
Vinstri hreyfingunni á Akureyri væri
breiður, fólk kæmi víða að úr sam-
félaginu, aldurinn væri breiður og þá
væri kynjahlutfallið einnig jafnt. „Ég
hef trú því að þessi hópur geti unnið
kraftaverk,“ sagði Valgerður.
Engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um skipan annarra sæta á listan-
um, því verður að sögn Valgerðar
haldið opnu lengur.
„Ég viðurkenni það fúslega að
þetta var erfið ákvörðun. Ég er í
starfi sem ég tel mjög mikilvægt og
hef ekki verið lengi í. Mér þótti ekki
auðvelt að horfa hugsanlega fram á að
kveðja það, en ég geng heilshugar til
þessa verks,“ sagði Valgerður. Hún
taldi flokkinn eiga möguleika á ná inn
þremur mönnum í bæjarstjórn. Um
30% bæjarbúa voru tilbúnir til að
kjósa flokkinn síðasta haust, sam-
kvæmt könnun sem þá var gerð, án
þess að framboðslisti né málefni
hefðu verið kynnt. „Og ég vona að fólk
vilji styðja okkur áfram.“
Valgerður var kosin í bæjarstjórn
Akureyrar árið 1982 og sat það
kjörtímabil, eða til 1986 fyrir Kvenna-
framboðið. Á því kjörtímabili gegndi
Valgerður m.a. störfum forseta
bæjarstjórnar. Valgerður stýrði nor-
ræna jafnréttisverkefninu Brjótum
múrana og þá gegndi hún stöðu jafn-
réttis- og fræðslufulltrúa Akureyrar-
bæjar um nokkurra ára skeið. Að
loknu framhaldsnámi stýrði Valgerð-
ur Menntasmiðjunni en nú síðast hef-
ur hún stjórnað Jafnréttisstofu frá
því hún var opnuð fyrir einu og hálfu
ári.
Valgerður H. Bjarnadóttir í fyrsta sæti Vinstri grænna
„Hef trú á að þessi hóp-
ur geti gert kraftaverk“