Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 21
UNNIÐ er að lokafrágangi nýs fé-
lagsheimilis að Goðalandi í Fljóts-
hlíð en smíði þess hófst um miðjan
júní 2001. Forveri þessa nýja húss
skemmdist mikið í jarðskjálftunum
í júní árið 2000 enda orðið býsna
lúið eftir áratuga þjónustu sem
íþróttahús skólans að Goðalandi og
félagsheimili heimamanna.
Nýja húsið sem teiknað er af
arkitektunum Hjördísi Sigurgísla-
dóttur og Dennis Jóhannssyni er
samtals 705 fermetrar að stærð,
fjölnotahús sem á að nýtast sem
íþróttahús, félagsheimili, fundar-
staður o.m.fl. Í húsinu verða mat-
og fundarsalur, salur með sviði,
búningsherbergi með sturtum, gott
eldhús, handavinnu- og smíðastof-
ur og skrifstofa. Margir hafa komið
að byggingu hússins og má af þeim
hópi nefna Svein Sigurðsson sem
sá um grunn og fleira sem að und-
irstöðum sneri, Límtré annaðist
uppsetningu hússins, smiðirnir
Hjálmar Ólafsson og Hákon Mar
Guðmundsson hafa annast verkið
eftir uppsetningu og um rafmagn
sér Einar Sigurþórsson.
Nú er unnið hörðum höndum við
að gera húsið hæft til að hýsa ár-
legt þorrablót heimamanna sem
haldið verður laugardaginn 23.
febrúar n.k., reyndar á þorraþræl
því konudagurinn er sunnudaginn
24. febrúar. Allir sem á einhvern
hátt tengjast Fljótshlíð eru hvattir
til að mæta og njóta vel þess sem
upp á verður boðið í nýjum húsa-
kynnum.
Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson
Hið nýja félagsheimili í Goðalandi í Fljótshlíð er hið veglegasta hús að
allri gerð enda fátt eða ekkert til sparað til að svo mætti verða.
Þorri verður blótað-
ur í nýju Goðalandi
Fjölnotahús rís í Fljótshlíð
Breiðabólstaður
frá því að fyrsta Bond-myndin, „Dr.
No“, var frumsýnd.
Framleiðendur
á báðum áttum
Leifur Dagfinnsson, framleiðslu-
stjóri hjá Saga Film, segir að fram-
leiðendur myndarinnar séu þessa
dagana að vega og meta hvort þess-
ar tökur fari fram á Íslandi eða í
Alaska en Saga Film er samstarfs-
aðili framleiðendanna hér á landi.
Aðstæður hérlendis séu á marg-
an hátt betri en veðurfarið setji þar
strik í reikninginn. Jökulsárlón
þurfi að vera ísi lagt og ísinn af til-
tekinni lágmarksþykkt til þess að af
Á NÆSTU dögum verður ákveðið
hvort atriði í næstu James Bond-
mynd verði tekin í nágrenni Horna-
fjarðar. Gert er ráð fyrir að tökur
hefjist í lok febrúar og standi yfir í
fjórar vikur og að á annað hundrað
manns verði í tökuliðinu. Hér er því
um mjög umfangsmikið verkefni að
ræða og gífurlegir hagsmunir í húfi
fyrir Hornfirðinga því kvikmynda-
gerðarmennirnir kæmu til með að
kaupa margvíslega þjónustu af
heimamönnum.
Ferðaþjónustuaðilar í sýslunni
myndu fá sem svaraði „auka sum-
arvertíð“ um hávetur því búið er að
bóka mestalla gistingu í Austur-
Skaftafellssýslu. Ekki hefur verið
gefið upp hvort Pierce Brosnan,
sem leikur Bond, muni koma hing-
að til lands.
Framleiðendum James Bond
myndanna eru hornfirskir stað-
hættir ekki ókunnir því árið 1983
var upphafsatriðið í James Bond
myndinni „A View to a Kill“, tekið
við Jökulsárlón. Það atriði var örfá-
ar mínútur að lengd en kostaði að
sögn álíka mikið og íslenska kvik-
myndin „Hrafninn flýgur“ sem var
frumsynd um svipað leyti. Þetta
verður tuttugasta myndin um
njósnara hennar hátignar og er
frumsýning hennar áætluð í nóv-
ember þegar fjörutíu ár verða liðin
tökum verði. Í Alaska þurfi hins-
vegar engar áhyggjur að hafa af
veðrinu en þar þurfi að flytja að eða
byggja upp alla aðstöðu fyrir töku-
liðið og því um töluvert meiri kostn-
að að ræða.
Aðstandendur myndarinnar
komu til Hornafjarðar í janúar til
að skoða hugsanlega tökustaði en
veðrið setti menn nokkuð út af lag-
inu því að á meðan á dvöl þeirra
stóð var suðaustan rok og met-
úrkoma mældist á Kvískerjum.
Menn hafa því eðlilega áhyggjur af
veðrinu, því þó svo að Jökulsárlón
leggi er ekkert grín að fá hlýinda-
kafla í miðju kafi.
Hugsanlegar tökur á James Bond-mynd á Hornafirði
Mikið í húfi fyrir
Hornfirðinga
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Á næstu dögum verður ákveðið hvort atriði í næstu kvikmynd um njósn-
arann James Bond verða tekin við Jökulsárlón.
Hornafjörður