Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 53

Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 53 DAGBÓK Dúndur útsala 25-70% afsláttur Yfirhafnir í úrvali Allt á að seljast Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið laugardag frá kl. 10-15 Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert hlý og hvatvís mann- eskja. Margir myndu lýsa þér sem jarðbundinni og eðlilegri manneskju. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú gætir hitt einhvern á óvænt- um vettvangi sem verður vinur þinn eða jafnvel nánari. Þessi manneskja kann að vera ánægjulega allt öðru vísi en nokkur í þínum nánasta vina- hópi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Óvænt tækifæri á framabraut- inni, sem hugsanlega er boðið fram af yfirmanni þínum eða einhverjum háttsettum, gæti orðið þín blessun í dag. Hvað- eina sem þér stendur til boða er spennandi, öðru vísi og hugsan- lega eitthvað sem þú hefur aldr- ei gert áður. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Óvænt áform um ferðalög gætu komið þér á óvart. Þar sem þú ert mikið fyrir nýbreytni og kannt illa við rútínuna mun möguleikinn á stuttu ferðalagi örugglega gleðja þig. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Maki þinn eða einhver nákominn gæti orðið fyrir óvæntum gróða í dag. Á einhvern máta mun þetta líklega verða þér til góðs. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sambandið sem þú ert í kann að taka óvæntan endi í dag. Þú gæt- ir á ómeðvitaðan hátt hafa stuðl- að að þessu þar sem þú leitar örvunar og leiða til að brjóta upp reglubundið og fyrirsjáanlegt líf þitt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vinnudagurinn í dag verður ekki venjubundinn. Eitthvað óvenju- legt mun eiga sér stað, annað- hvort í formi óvæntrar uppá- komu eða þá að þú hittir einhvern sem er allt öðru vísi og forvitnilegur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ástin og sköpunargáfan verða uppspretta óvenjulegra atburða, spennu og nýrrar reynslu fyrir þig. Úranus skapar óvenjulegar afleiðingar í lífi þínu í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú munt hugsanlega fá tækifæri til að kaupa eitthvað óhefðbund- ið eða óvenjulegt fyrir heimilið eða einhvern í fjölskyldunni í dag. Þér finnast furðulegir hlutir spennandi og skemmtilegir núna. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú munt líklega hitta einhvern óvenjulegan í dag sem er dálítill sérvitringur. Þessi vinátta verð- ur spennandi og örvandi en lík- lega skammlíf. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Möguleikinn á óvæntum gróða er fyrir hendi í dag. Þú gætir fjárfest skynsamlega og einkum einblínt á tækni, vísindi og hvað- eina tengt flugi. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ert eirðarlaus og gáskafull- (ur) í dag. Innst inni leiðist þér fyrirsjáanleg rútínan og þú leit- ar eftir spennu og einhverju óvenjulegu frá heiminum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Dagdraumar og villtir órar flögra um í kollinum á þér í dag. Þar sem ímyndunarafl þitt er af- ar virkt í dag gæti þér reynst erfitt að einbeita þér að núver- andi verkefni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÝMSIR sagnhafar fóru flatt á fjórum hjörtum í eftirfarandi spili úr Cap Gemini-keppninni í Hol- landi. Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ 95 ♥ 874 ♦ D3 ♣KD9863 Vestur Austur ♠ D107432 ♠ G6 ♥ G6 ♥ 93 ♦ ÁG ♦ K10654 ♣Á74 ♣G1052 Suður ♠ ÁK8 ♥ ÁKD1052 ♦ 9872 ♣– Þetta var algeng sagn- röð: Vestur Norður Austur Suður – 3 lauf Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Hvernig á að spila með spaða út? Það blasir við að spila tígli í öðrum slag til að byggja upp stungu í borði. Vörnin getur mætt þessari sjálfsögðu byrjun með því að trompa út, og aftur þeg- ar síðari tígulslagurinn er tekinn. En þar eð vestur er með ÁG stakt í tígli er hægt að fría slag á litinn á kröftum og trompa spaða í borði. Sem dugir til vinn- ings. Þetta er vissulega draumalega, en upp á ann- að er varla hægt að spila. Eða hvað? Í reynd gerðist þetta víða: Vestur tók á tígulás og spilaði spaða áfram, en ekki trompi. Þessi vörn vekur falskar vonir hjá suðri og margir sagnhafar gengu í gildruna – spiluðu tígli strax aftur. En þá kom þriðji tígullinn frá austri, sem vestur tromp- aði með gosa og spilaði spaða og nú gat austur stungið með níunni. Þessari hættu má mæta á tvennan hátt: Annars vegar með því að taka ein- faldlega tromp tvisvar og spila upp á hagstæða tíg- ullegu, eða spila þriðja spaðanum og henda tígul- drottningu úr borði. Sem er sterkari leikur og leiðir af sér tíu slagi í fyllingu tímans. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 70 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 7. febrúar er sjötug Valdís Þorsteinsdóttir, Brekku- götu 1, Hrísey. Hún og eig- inmaður hennar verða að Hraunbæ 144, Reykjavík, hjá dóttur sinni og tengda- syni (Kristínu og Ásgeir), þann 9. febrúar og það verð- ur heitt á könnunni milli kl. 15-18. 80 ÁRA afmæli. Föstu-daginn 15. febrúar er áttræður Árni Helgason, fyrrum bóndi í Neðri- Tungu, Örlygshöfn, Þórs- götu 1, Patreksfirði. Af því tilefni munu hann og eigin- kona hans, Anna Hafliða- dóttir, ásamt börnum, taka á móti gestum sunnudaginn 10. febrúar eftir kl. 16 í Fé- lagsheimili Rafveitunnar í Elliðaárdal, Reykjavík. Blóm og gjafir eru vinsam- lega afþökkuð, en gestir eru beðnir að muna eftir góða skapinu og dansskónum. LJÓÐABROT UM SIGVALDA JARL Munkat nefna, nær mun ek stefna: niðrbjúgt er nef á níðingi, þeim er Svein konung sveik ór landi ok Tryggva son á tálar dró. Stefnir Þorgilsson hafði hvítt gegn Zoran To- dorovic (2125). 26. Hxg5! hxg5 27. Dh3+ Kg8 28. Bxf5 Hxf5 29. Dxf5 Df8 30. Dxg5 He8 31. f4 Hxe6 32. Hd8 He8 33. Dd5+ Kh7 34. Dh5+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2 O-O 5. a3 Be7 6. e4 h6 7. Bd3 d6 8. De2 Rbd7 9. e5 dxe5 10. dxe5 Rh7 11. Re4 b6 12. Bf4 Bb7 13. O- O-O Dc8 14. g4 f5 15. gxf5 exf5 16. Rc3 Rc5 17. Rd5 Bd8 18. Hhg1 Kh8 19. Bc2 Re6 20. Be3 c6 21. Rf4 Rxf4 22. Bxf4 c5 23. e6 Bxf3 24. Dxf3 Rg5 25. Bxg5 Bxg5+ Staðan kom upp í Rilton Cup sem lauk fyrir skömmu í Stokkhólmi. Mats Sjöberg (2338) Hvítur á leik. FRÉTTIR 80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7. febrúar, er áttræð Ólöf Álfs- dóttir, Háagerði 37, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í dag kl. 16–19 í Listhúsinu í Laugardal, Engjateigi 17– 19. 60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7. febrúar, er sextugur Pétur Guðmundsson, Grundar- tjörn 1, Selfossi. Hann tek- ur á móti gestum í sal Karla- kórs Selfoss við Eyrarveg á morgun, föstudag, kl. 20. 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7. febrúar, er fimmtugur Sveinn Vilhjálmsson, Garðavegi 6c, Hafnarfirði. Eiginkona hans er Jónína Sveinsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum föstudaginn 8. febrúar kl. 19.30 í Slysavarnarhúsinu, Hjallahrauni 9, Hafnarfirði. 60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7. febrúar, er sextug Hildur Magnúsdóttir, Aðalgötu 29, Ólafsfirði. Eiginmaður hennar er Jóhann Helga- son, smiður. Þau taka á móti gestum á heimili sínu í kvöld eftir kl. 20. FYRSTA Íslandsmeistaramót árs- ins verður haldið sunnudaginn 10. febrúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Keppt verður um Ís- landsmeistaratitla í suður- amerísku dönsunum fimm annars vegar og sígildu samkvæmisdöns- unum fimm hins vegar, með frjálsri aðferð. Einnig verður grunnsporakeppni og byrjendur sýna dans. Keppt verður í öllum aldursflokkum. Til gamans má geta þess að samhliða Íslands- meistaratiltlunum er verið að keppa um rétt til þátttöku á Evr- ópu- og heimsmeistaramóti og má búast við spennandi og skemmti- legri keppni. Keppnin hefst kl. 13 og verður húsið opnað kl. 12. All- ir hjartanlega velkomnir. Minnum á ókeypis aðgang fyrir eldri borgara. Karen og Adam. Íslands- meistaramót í samkvæm- isdansi VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð efnir á næstu vikum til funda og heimsókna vítt og breitt um landið. Þingmenn og aðrir for- svarsmenn VG munu heimsækja byggðir landsins í febrúar–apríl, fara á vinnustaði og halda almenna stjórnmálafundi. Samheiti fundanna er Lífið í landinu, þar sem sérstök áhersla verður lögð á sveitarstjórnarmál, atvinnu-, um- hverfis- og velferðarmál og Ísland og Evrópusambandið. Fundirnir í febrúar verða sem hér segir: Föstudaginn 8. febrúar kl. 20 á Hótel Þórshamri, Vest- mannaeyjum. Laugardaginn 9. febrúar kl. 11 á Álafoss föt bezt í Mosfellsbæ. Fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20 á Kænunni við smá- bátahöfnina í Hafnarfirði. Föstu- daginn 15. febrúar kl. 20 á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Laugar- daginn 16. febrúar kl. 11 á Hótel Borgarnesi og á sama tíma í Þing- hóli, Kópavogi. Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20 á Kirkjubraut 2, Akranesi. Fimmtudaginn 28. febr- úar kl. 20 á Kristjáni IX í Grund- arfirði. Fundaröð Vinstri grænna VINNUEFTIRLITIÐ gengst fyrir málþingi um kulnun í starfi 8. febr- úar kl. 13–17 í Norræna húsinu. Aðalfyrirlesari er Wilmar Schau- feli, prófessor í félags- og skipu- lagssálfræði við háskólann í Ut- recht í Hollandi. Prófessor Schaufeli er þekktur fyrir rann- sóknir og skrif um þetta efni. Einnig halda erindi: Eyjólfur Sæmundsson forstjóri, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur, Bjarni Jónasson heilsugæslulækn- ir, Guðlaug Teitsdóttir skólastjóri, Þórður Óskarsson framkvæmda- stjóri, Yrsa Þórðardóttir fram- kvæmdastjóri, Kristinn Tómasson yfirlæknir. Fundarstjóri: Ásta Möller. Öllum er heimill ókeypis aðgangur. Málþingið er styrkt af ASÍ, BHM, BSRB, SA, VR, Geðlækna- félagi Íslands og GlaxoSmithKline, segir í fréttatilkynningu. Málþing um kulnun í starfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.