Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 55
Banvænar bólfarir
(Sexual Predator)
Spennumynd
Bandaríkin 2001. Skífan, VHS. Bönnuð
innan 16 ára. (85 mín.) Leikstjórn Robert
Angelo og Rob Spera. Aðalhlutverk
Angie Everhart, Richard Grieco.
HEFÐI maður vitað hvurslags dilk
Fatal Attraction og Basic Instinct
ættu eftir að draga á eftir sér hefði
maður kannski ekki verið svo jákvæð-
ur í garð þeirra annars frambærilegu
erótísku spennutrylla á sínum tíma.
Veruleikinn er einfaldlega sá að allt
síðan þær myndir slógu í gegn hafa
þeir í B-myndaforinni rembst eins og
rjúpan við staurinn við að leika sama
leikinn – nær alltaf með algjörlega
mislukkaðri útkomu. Það virðast í of-
análag vera örlög
allra leikara á
hraðri niðurleið í
Hollywood að láta
bendla sig við þessa
blessuðu „erótísku
trylla“. Leggja allt
undir, lýsa því yfir
að þeir séu tilbúnir
að gera hvað sem er fyrir frægðina,
LÍKA að koma naktir fram. Hér er
það sykursætur og snoppufríður
sjarmör sem muna má fífil sinn feg-
urri. Það líður örugglega ekki dagur
hjá Richard Grieco án þess að hann
hugsi til þess örskotstíma er hann var
heitasta heitt eftir að hafa heillað
stúlkur á öllum aldri með suðrænu út-
litli sínu í unglinganjósnamyndinni If
Looks Could Kill. En það var fyrir 11
árum og nú, 27 myndum síðar (já, 27
myndum!) tyllir hann sér á botninn,
sjúskaður, þybbinn, með hallær-
islubba og vitanlega NAKINN. Og
maðurinn ekki nema 36 ára gamall.
Þar sem þau lágu hvort í annars
annars, Grieco og mótleikkona hans,
Everhart, berskjölduð og viðkvæm, í
ísköldum og tilfinningasljóum gervi-
bólförum, frammi fyrir ókunnuga og
ólánsama tökuliðinu, hafa þau vafalít-
ið velt fyrir sér hvert ferill þeirra væri
kominn og hugsað þeim perrum Adr-
ian Lyne og Paul Verhoeven þegjandi
þörfina.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Hættulegar
hvatir
HALDIN var kontrapunkts-
keppni á vegum Ýmis – nemenda-
félags Tónlistarskólans í Reykja-
vík. Keppnin var í anda Sixten og
félaga og fór fram í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Þreytt var
keppni í því að þekkja tónverk
frá ýmsum tímabilum tónlistar-
sögunnar. Þrjú nemendalið
kepptu innbyrðis í þremur lotum
þar sem í hverri lotu voru fimm
ólík tóndæmi. Keppendur voru
bæði úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík og tónlistardeild
Listaháskóla Íslands og voru á
aldrinum 12–22 ára.
Sigurlið nemenda var skipað
Tinnu Sigurðardóttur, Bjarna
Frímanni Bjarnasyni, Helga
Heiðari Stefánssyni og Víkingi
Ólafssyni. Það bar síðan skarðan
hlut frá borði í viðureign sinni
við kennara skólans. Sameinuðu
liði nemenda tókst hins vegar
með naumindum að sigra lið
kennara.
Kontra-
punktur í
Tónlistar-
skólanum
Morgunblaðið/KristinnKeppnin er í anda Kontrapunkts í Sjónvarpinu.