Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 59
Kvikmyndahátíðin
í Berlín, ein af að-
sópsmestu kvik-
myndahátíðum
heims, hófst með
sprengingum og
látum í gær. Að-
standendur gátu
vart beðið um betri
byrjun því opnun-
armyndin, ítalsk/
þýska myndin
Heaven hefur vakið
mikið umtal og
deilur. Ástæðan er
sú að myndin, sem
Þjóðverjinn Tom
Tykwer leikstýrði,
fjallar á samúðar-
fullan hátt um konu
sem veldur sprengingu í háhýsi.
Myndin var gerð fyrir hryðjuverkin
11. september en síðan þá hefur við-
fangsefni á borð við það í Heaven
þótt afar eldfimt og umdeilanlegt.
Kanslari Þýskalands Gerhard
Schroeder var viðstaddur 2.500
gesta galaopnunarsýningu á mynd-
inni í gærkvöldi en þar var einnig
ástralska leikkonan Cate Blanchett,
aðalleikkona myndarinnar.
Hún sagði í viðtali við Reuters-
fréttastofuna að aðstandendur
myndarinnar hefðu eflaust notað
aðrar áherslur hefðu þeir gert
myndina eftir atburðina 11. septem-
ber. En hún bætti við að menn ættu
að fara sér varlega í að gagnrýna og
setja niður skáldverk sem tengja má
á einn eða annan máta hryðjuverk-
um eða sprengingum. Gerðar hefðu
verið kvikmyndir sem tækju á hrein-
skilinn hátt á heimsstyrjöldinni síð-
ari og stríðunum í Víetnam og við
Persaflóa og því væri óeðlilegt ef
ekki mætti fjalla um hryðjuverk á
sama máta. „Það væri fáránlegt að
banna mönnum að sýna sprengingar
í byggingum því menningin hjálpar
okkur að skilja raunveruleikann.“
Heaven fjallar samt ekki á beinan
hátt um hryðjuverk heldur er ljúfsár
ástarsaga með andlegum undirtón
sem tekur á sekt-
arkennd og eft-
irsjá. Viðtökur
blaðamanna á sér-
stakri sýningu,
sem sett var upp
fyrir þá í gærdag,
voru blendnar.
Myndin gerist í
Tórínó á Ítalíu.
Blanchett leikur
enskan kennara
sem gerir morðtil-
raun á eiturlyfja-
sala sem verið hef-
ur að selja skóla-
krökkum eiturlyf.
Hún kemur fyrir
sprengju á skrif-
stofu hans sem
verður fjórum saklausum fórnar-
lömbum að bana en skilar ekki tilætl-
uðum árangri, að farga sölumanni
dauðans. Lögreglan handtekur hana
fyrir verknaðinn en túlkur sem henni
er útvegaður, leikinn af Giovanni
Ribisi, fellur fyrir henni og hjálpar
henni að flýja svo hún geti lokið ætl-
unarverki sínu. Leikstjórinn Tykwer
vakti heimsathygli árið 1998 fyrir
myndina Lola rennt.
400 myndir á 12 dögum
Heaven er ein fjögurra þýskra
mynda sem taka þátt í aðalkeppni
Berlínarhátíðarinnar þar sem alls 23
myndir keppa um Gullbjörninn eft-
irsótta. Aðrar myndir sem bítast
munu um Björninn eru The Shipping
News eftir Lasse Hallström og The
Royal Tenenbaums eftir Wes And-
erson og Iris, mynd um breska rit-
höfundinn Iris Murdock með þeim
Dame Judi Dench og Kate Winslet.
Formaður dómnefndarinnar, sem
ræður valinu, er indverska kvik-
myndagerðarkonan Mira Nair.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
gera ráð fyrir að um 420 þúsund
manns muni sækja þær 400 kvik-
myndir sem sýndar eru í tengslum
við hátíðina þá 12 daga sem hún
stendur yfir.
Cate Blanchett brosir breitt
á blaðamannafundi í Berlín.
Kvikmyndahátíðin í Berlín er hafin
Opnunarmynd hlið-
holl hryðjuverkum
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6.
Ísl tal Vit 320
Hasarstuð frá
byrjun til enda
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 340
Sýnd kl. 8 og 10.10
Vit 332
DV
Rás 2
MAGNAÐ
BÍÓ
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2 Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi 14.
Riddarinn hugrakki
og fíflið félagi hans
lenda óvart í
tímaflakki og þú
missir þig af hlátri.
Jean Reno fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd.
Endurgerð hinnar
óborganlegu
Les Visiteurs!
i
l
i i
Sýnd kl. 10. Forsýnd kl. 8.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i 14.
1/2
Kvikmyndir.is
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.30.
1/2
RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sjóðheitasta mynd
ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope
Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni,
Cameron Diaz.
www.laugarasbio.is
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
i ir.
HJ. MBL.
Sýnd kl. 6 og 8. B.i 12 ára
Rick og félagar kunna bara eitt og það er að skemmta
sér. Um leið og reynt er að eyðileggja það fyrir þeim
taka þeir til sinna ráða... Frábær grínmynd með
svakalegum snjóbrettaatriðum og geggjaðri tónlist!
SVAL
ASTA
GAM
ANM
YND
ÁRSI
NS
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Miðasala er í síma 595 7999 og 800 6434 á milli kl. 9 og 17 virka daga
og á slóðinni www.midasala.is,
en einnig má leggja inn pantanir á símsvara 551 5677.
„Winterreise“
„Vetrarferðin“ eftir Franz Schubert
á Sunnudags-matinée 10. febrúar kl. 16.00
Hans Zomer, bassa-barítón
Gerrit Schuil, píanóleikari
UNGLINGAR sem stunda fé-
lagsmiðstöðina Tónabæ efndu til
skemmtilegs maraþons í Tónabæ
um síðustu helgi til styrktar út-
varpi Tónabæjar en það hefur
verið starfrækt í félagsmiðstöð-
inni undanfarna daga og mun
senda út á tíðninni FM 106,5
fram á laugardag. Tónabæjar-
krakkarnir hafa af óbilandi
áhuga og hugvitssemi séð alfarið
um dagskrárgerð og reksturinn
allan og hafa útsendingarnar
mælst mjög vel fyrir.
Unglingarnir voru staðráðnir í
að safna sem mestum áheitum í
maraþoninu um síðustu helgi til
handa útvarpsrekstrinum og það
ríkti sannarlega líf og fjör í
Tónabæ þegar tekið var í spil í
heila 12 tíma, án afláts.
Maraþon til styrktar
útvarpi Tónabæjar
Þessir hressu strákar komust
sannarlega að því um síðustu
helgi að fátt er skemmtilegra en
að taka í spil í góðra vina hópi. Það er mikill og góður andi í Tónabæ.
Líf og fjör í Tónabæ
Reuters