Vísir - 19.05.1980, Side 1
Mánudagur 19. maí 1980/ 118. tbl. 70. árg.
LAGMETISUTFLUTNINGURINN „SKÝLAUST REGLUGER0ARBROT”
LATA opinberir aðilar
her maub kyrrt liggja?
„Innflytjandinn hefur greini-
lega gerst brotlegur viö reglur
ráðuneytisins”. „Hér er um
skýlaust reglugerðarbrot að
ræða.” „Það er verið að athuga
hvort ástæða sé til að kæra i
þessu máli”.
Þetta eru sumar þeirra yfir-
lýsinga, sem gefnar voru i lag-
metismálinu, sem Visir skýrði
fyrst frá 26. mars siðastliðinn.
Þar var fjallað um útflutning á
lagmeti til Danmerkur án til-
skilinna vottorða, en hráefnið
hafði áður verið dæmt ónothæft.
Núna, hálfum öðrum mánuði
siðar, viröast opinberir aðilar
hins vegar ekkert hafa gert til
að upplýsa máliö frekar.
Tollstjóri, sem mun lögum
samkvæmt hafa eftirlit með, að
útflutningur frá Reykjavik fari
eftir settum reglum, segir ekki
óalgengt, að þannig sé staðið að
útflutningi.
Fulltrúinn i viðskiptaráðu-
neytinu, sem sagði 26. mars, að
reglur hefðu greinilega veriö
brotnar og verið væri að athuga
hvort ástæða væri til að kæra,
neitar nú að svara spurningum.
Þeir, sem fluttu lagmetið út,
eru stórorðir, finnst máliö ó-
réttlátt og kenna öðrum um út-
flutninginn.
Þessi afstaða kemur nú fram
þó að I bréfi, sem Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins sendi
viðskiptaráðuneytinu um þenn-
an útflutning, segi skýrt og
skorinort, að hér sé ,,um ský-
laust reglugerðarbrot að ræða
og athæfi, sem skaðað gæti
gaffalbitamarkað okkar i Dan-
mörku”.
Sigurjón Valdimarsson,
blaðamaður Visis, fór nokkuð
ofan i saumana á þessu máli, og
segir frá þvi á bls. 20-21 i blaöinu
i dag. Þar segir blaöamaðurinn
einnig sitt álit og birt eru viðtöl
við ýmsa þeirra manna, sem
koma við sögu.
Bfl var ekið út af Nýbýlavegi I Kópavogi um klukkan fimm á sunnu dagsmorgun. ökumaður var elnn Ibilnum en hann slapp ómeiddur. Við
rannsókn kom Iljós að ökumaður var undir áhrifum áfengis. (Visism. Kristján Ari Einarsson).
Teiknar iram-
liðið fólk
- S|á bls. 30
Sparaksturs-
keppnin
um helgina
- Sjá bls. 6
Norðurhjara-
trðllið setti
Evrópumet
- Sjá ípróttlr bls.
14.15.16.17.18.19
Var hægt að ná betrl samn-
ingum um JanMayen I fyrra?
Það tuiiyrðip flrni Gunnarsson, alpingismaður. og birtir í pvf
sambandi tillðgur sem hingað tíl hafa verið trúnaðarmál
„Ef stefna Benedikts Gröndal
I samningunum við Norðmenn
hefði náð fram að ganga, eru
talsverðar likur á þvi, að tekist
hefðu betri samningar en nú
hafa veriö undirritaðir. En
Ólafur Ragnar Grlmsson og
Matthias Bjarnason sórust i
fóstbræðralag og komu i veg
fyrir, að samningafundum yrði
haldiö áfram”.
Þetta segir Arni Gunnarsson,
alþingismaður, i grein, sem birt
er I Visi i dag um samningana
viö Jan Mayen. Hann birtir þar
drög að umræðugrundvelli við
Norðmenn, sem Benedikt Grön-
dal lagði fram á rikisstjórnar-
fundi 7. ágúst siðastliðinn og
sem hingað til hefur veriö
trúnaðarmál.
„í þessum drögum birtist
raunhæft matá stöðu Islendinga
i þessu viðkvæma máli, og um
leið gengið allmiklu iengra en
lagaskilgreiningar gáfu tilefni
til. Um þessi atriði hefði þegar
verið unnt að semja á siðasta
ári. En upphlaup og ólæti komu i
veg fyrir þaö. Nú, mörgum
mánuðum siðar, er svo samið
um nákvæmlega sömu atriöin,
og I nokkrum tilvikum tekið lin-
legar á málum”, segir Arni
Gunnarsson i grein sinni, sem
birt er á bls. 7.