Vísir - 21.05.1980, Page 8
8
VÍSIR
Miðvikudagur
21. mai 1980
utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davift Guömundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Ellert B. Schram
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaóamenn: Axel Ammendrup, Friða Astvaldsdóttir, Gisli Sigurgeirsson, Hannes
Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir,
Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L Pálsson.
Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson.
Utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Askrift er kr. 4.800 á mánuöi_.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innan-
Auglýsingar og skrifstofur:
Siftumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur.
Verö i lausasölu
240 kr. eintakiö.
Prentun Blaöaprent h/f.
NÚ VERÐUR ERFITT AÐ HALDA LAGI
Ráðagerðir ríkisstjórnarinnar
um að skerða verðbaetur á laun
hafa nú verið opinberaðar. Stein-
grímur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra sagði af sinni al-
kunnu hreinskilni í útvarpsum-
ræðum frá Alþingi að ríkisstjórn-
in stefndi að lækkun verðbóta á
laun með því að auka niður-
greiðslur á landbúnaðarvörur og
dreifa hækkun húsnæðiskostnað-
ar síðustu 12 mánaða yfir lengra
tímabil. I sama streng tók Ingvar
Gíslason menntamálaráðherra í
sinni ræðu. Ráðherrar sögðu að
þetta ætti að gera í samráði við
launþega, bændur og sjómenn.
Eins og oft áður ræddi Stein-
grímur Hermannsson þessa hluti
á mæltu máli án mikilla umbúða
og því vöktu ummæli hans meiri
athygli en þegar Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra drap á
skerðingu verðbóta í ræðu sinni
við útvarpsumræðurnar.
Enginn þarf þó að fara í graf-
götur um hvað Svavar átti við
þegar hann spurði hvaða réttlæti
væri í því að hálaunamaðurinn
fengi 220 þúsund krónur um
næstu mánaðamót í verðbætur á
laun, meðan láglaunamaðurinn
fengi aðeins 30 þúsund krónur.
Það fór heldur ekki milli mála
hvað Svavar Gestsson átti við
þegar hann sagði í sömu ræðu að
ekki væri hægt að bæta kjör hinna
lægst launuðu nema skerða kjör
þeirra sem hafi hæstar tekjurn-
reiði hinsalmenna launþega eða
valdahringur launþegasam-
takanna er enn þrengri en talið
hefur verið til þessa.
Rikisstjórnin hefur beitt Al-
þingi miklum þrýstingi undan-
farna daga til að knýja fram
þinglausnir og áttu þær að fara
fram í gær. Nú er Ijóst að þing
mun sitja áfram fram til næstu
mánaðamóta. Hafi ríkisstjórnin
ætlað að gefa út bráðabirgðalög
um skerðingu vísitölubóta örfá-
um dögum eftir þinglok er Ijóstað
sú ráðagerð hefur misheppnast.
Lagasetning um ráðstafanir í
kjaramálum launþega og vinnu-
veitenda á auðvitað að vera í
höndum Alþingis. Á undanförn-
um árum hefur ríkisvaldið
nokkrum sinnum gripið til bráða-
birgðalaga sem hafa átt að að-
laga kjarasamninga að þeirri
efnahagsstefnu sem höfð hefur
verið uppi í hverju tilviki. Oftar
en ekki hafa slík bráðabirgðalög
verið miður þokkuð og árangur
lagasetningarinnar eftir því.
Nú komast ríkisstjórnarflokk-
arnir ekki hjá því að ræða á Al-
þingi þær ráðstafanir sem í bí-
gerð eru um skerðingu verðbóta
á laun velflestra launþega í land-
inu. Það má mikið vera ef sum-
um af forsöngvurum slagarans
um samningana í gildi gengur
ekki illa að halda réttu lagi í þeim
umræðum. Það verða eflaust
margar feilnótur í þeirri
synfóníu.
Þann 1. mal síöast liðinn var lögð áhersla á það I kröfugöngum verkalýðsins að
kaupmáttur yrði ekki skertur. Þremur vikum siðar opinberar rikisstjórnin fyrirætl-
anir slnar um aðhafa þessa kröfu að engu.
ar. Hér var ráðherrann aðeins að
staðfesta að ríkisstjórnin hefði í
hyggju að láta hina allra lægst
launuðu í þjóðfélaginu fá því sem
næst fullar verðbætur á laun en
skerða verulega verðbætur
hinna. Man nú nokkur kröfuna
um samningana í gildi?
Sumir verkalýðsleiðtogar virð-
ast koma af fjöllum þegar þeir
eru inntir álits á þessum fyrir-
ætlunum ríkisstjórnarinnar.
Engu að síður hafa farið fram
þreifingar í þessa átt að undan-
förnu milli ráðherra og einstakra
valdamanna innan launþega-
samtakanna. Annað hvort vilja
sumir foringjar verkalýðshreyf-
ingarinnar ekki kannast við að
hafa rætt þessi mál af ótta við
Fjöldi
mánaöa
sem rit-
höfundar
hafa verið
áiaunumúr
5 sjúöum
síöustu
fimm árin,
mm
Höln rlttiolunúa Mánuölr: 10 20 30 40 50 60
Guödergur Bergsson Guðmundur G. Hagalln
Guðmunúur Danlelsson Thor viihlálmsson Inrinini R hnnéiplnssnn ■ 42.0
vesteinn LuoviKsson
ingimar t. sigurosson
nriðlllldllll uUUIIIUIIUooUII
pptur fiiinnarssnn
llina Rliirk Árnarihltlr
uiaiui n. oiuiuiidi ouii
i*i loljdll II d UJUJJdliLH
Hallflnn 1 aimpcc
Snnrrl Hlartarisnn
Tnrnac RnAmnnriéénn
QlPlán KhnAup Hpímccnn
hiafnp .Ihhann Sinupftccnn
Ásn Shlunln
Rrnta Sintnsithttir
.Ihn nr Mhr
Sigurður Palsson
Jakohina Sigurðardóttir Guðiaugur Arason
Blrglr Slgurösson Krlstlnn Reyr
rithSfundar. opinber laun og styrkir