Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 13
NÝTT gistiheimili verður
opnað að Brekkugötu 1 á Ak-
ureyri innan tíðar. Húsnæðið,
þar sem Sparisjóður Akur-
eyrar var m.a. til húsa, er á
þremur hæðum með risi. Júl-
íus Stefánsson í Kópavogi
keypti húsnæðið af Spari-
sjóðnum og hann sagði stefnt
að því að opna gistiheimilið
fyrir sumarið – þ.e. ef sum-
arið byrjar seint, eins og
hann orðaði það.
Júlíus sagði að í húsinu
yrðu 11 herbergi, 5 á annarri
og þriðju hæð og eitt á jarð-
hæð, auk afgreiðslu. Tölu-
verðar breytingar hafa farið
fram á húsnæðinu og sagði
Júlíus að vinna við lokafrá-
gang væri að fara í gang.
Nýtt gisti-
heimili í
miðbænum
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 13
Sælkera kaffi
og te.
sími 462 2900
Blómin
í bænum
AUDI A8 4,2 QUATTRO
ÁLBÍLLINN FRÆGI (ÁRG.1996)
ÞESSI GLÆSILEGI BÍLL ER TIL SÖLU! AÐEINS ÖRFÁ EINTÖK TIL Á ÍSLANDI.
ÞESSI ER MEÐ V-8 VÉL 300 HESTÖFL, SÍTENGT FJÓRHJÓLADRIF, ABS , SPÓLVÖRN,
LEÐUR SPORTSÆTI MEÐ FORRITAÐA STILLINGU, RAFMAGNI Í ÖLLU , AKSTURSTÖLVU,
TIPTRONIC SKIPTINGU (sjálfsk. beinsk.), SÓLLÚGU MEÐ SÓLARRAFHLÖÐUM TIL AÐ
KÆLA BÍLINN Í KYRRSTÖÐU, RAFKNÚINNI SÓLVÖRN FYRIR AFTURRÚÐU,
SKÍÐAPOKA MILLI AFTURSÆTA, INNBYGGÐAN GSM SÍMA, XENON LJÓS,
18 TOMMU ÁLFELGUM FYRIR SUMARDEKKIN,
17 TOMMU ÁLFELGUM FYRIR VETRARDEKKIN, KEYRÐUR 139 Þ. KM. ÞAR AF 73 Þ. Í
ÞÝSKALANDI. AÐEINS TVEIR EIGENDUR. VIÐMIÐUNARVERÐ 4,4 M.
(NÝVIRÐI UM 12 M). SKIPTI Á ÓDÝRARI KOMA TIL GREINA.
UPPLÝSINGAR:
Höldur s. 461 3020, 862 1043.
Bílasala Akureyrar s. 461 2533
LEIKKLÚBBURINN Saga á Akur-
eyri frumsýnir í dag, laugardaginn 6.
apríl barnaleikritið Fróða og alla hina
grislingana eftir danska barnabóka-
höfundinn Ole Lund Kirkegaard.
Sýningin hefst kl. 14:30 og er í Komp-
aníinu. Næstu sýningar verða um
aðra helgi, 13. og 14. apríl. Miðapant-
anir eru hjá Drífu í síma 8233777 og
er aðgangseyrir aðeins 600 kr.
Leikritið fjallar um grallarann
Fróða og segir frá baráttu hans og
vina hans við hinn mjög svo dularfulla
þjóf á hlaupahjólinu en hann herjar á
Storm, hinn geðstirða nágranna
Fróða. Inn í söguna fléttast svo tvær
eldri dömur sem eru afar skotnar í
Stormi, mótorhjólatöffarinn Simmi,
kennarinn og fleiri skemmtilegar per-
sónur.
Leikgerðina að Fróða og öllum hin-
um grislingunum unnu Anna og Arne
Aaberhus, Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson þýddi, Valgeir Skagfjörð
samdi tónlist og söngtexta og leik-
stjóri er Ármann Guðmundsson.
Leikklúbburinn Saga er skipaður
fólki á aldrinum 15-19 ára og hefur
starfað frá árinu 1976. Hann hefur frá
upphafi verið þátttakandi í hinu sam-
norræna leikhúsverkefni Fenris sem
unnið er fjórða hvert ár og tók 10
manna hópur frá Sögu þátt í Fenris 5
síðastliðið sumar og ferðaðist með
frumsamið verk til allra Norður-
landanna.
Frumsýning hjá Leikklúbbnum Sögu
Fróði og allir hinir
grislingarnir
arútgjöld upp á 60 milljónir króna
haft mikil áhrif á rekstrarniðurstöð-
una. „Þetta eru útgjöld sem ekki
voru vituð og fyrirtækið hafði engin
áhrif á,“ sagði Franz.
Rekstrartekjur Norðurorku á síð-
asta ári voru um 1.252 milljónir
króna og rekstrargjöld um 1.164
milljónir króna. Fjármagnsliðir voru
neikvæðir um tæpar 116 milljónir
króna en handbært fé frá rekstri var
um 378 milljónir króna. Eignir fé-
lagsins eru um 4 milljarðar króna. Í
árslok 2000 voru starfsmenn Hita-
og vatnsveitu Akureyrar og Raf-
veitu Akureyrar samtals 50 en í kjöl-
farið voru fyrirtækin sameinuð í
Norðurorku. Í lok síðasta árs voru
starfsmenn fyrirtæksins 43 talsins.
Í vikunni var undirritaður samn-
ingur milli Norðurorku og landeig-
enda í Arnarneshreppi um einkarétt
til jarðhitaleitar og vinnslu við
Hjalteyri. Um er að ræða jarðirnar
Arnarnes, Arnarholt og Hvamm og í
landi hreppsins. Arnarneshreppur
hefur undanfarin tvö ár staðið fyrir
rannsóknum á svæðinu en nú tekur
Norðurorka við því starfi. Franz
sagði stefnt að því að hefja vatnsleit
í byrjun næsta mánaðar. Á vegum
hreppsins voru boraðar 18 grunnar
rannsóknarholur og bendir árangur
þeirra borana mjög eindregið til að
þar sé að finna jarðhitakerfi með yf-
ir 80 gráðu heitu vatni.
NORÐURORKA, veitufyrirtæki
Akureyrarbæjar, tapaði um 28 millj-
ónum króna á síðasta ári. Franz
Árnason, forstjóri Norðurorku, er
mjög ánægður með afkomu félags-
ins í fyrra og sagði hana betri en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Franz
sagði að tapreksturinn væri til kom-
inn vegna lífeyrisskuldbindinga
starfsfólks upp á rúmar 60 milljónir
króna sem settar voru beint inn í
reksturinn. Að öðrum kosti hefði
orðið hagnaður upp á rúmar 30
milljónir króna.
Franz sagði að áætlanir félagsins
hafi gert ráð fyrir taprekstri á síð-
asta ári, m.a. vegna gengisbreyt-
inga. Hins vegar hafi þessi viðbót-
Tap varð á rekstri Norðurorku á síðasta ári
Jarðhitaleit að hefjast
í Arnarneshreppi
ÁRLEGIR Kaffitónleikar Kórs Ak-
ureyrarkirkju verða haldnir í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju á
morgun, sunnudaginn 7. apríl, kl.
15 að lokinni messu þar sem kórinn
syngur einnig.
Á tónleikunum ætlar kórinn að
heiðra minningu Jóhanns Ó. Har-
aldssonar og Halldórs Laxness en í
ár eru liðin 100 ár frá fæðingu
þeirra. Kórinn flytur kórlög eftir
Jóhann Ó. og tónlist við texta Hall-
dórs eftir Jón Nordal, Jón Ásgeirs-
son og Gunnar Reyni Sveinsson.
Einnig munu félagar úr kórnum
syngja einsöng, þau Bryngeir
Kristinsson, Hadda Hreiðarsdóttir,
Haraldur Hauksson, Margrét Sig-
urðardóttir, Sesselja Fríða Jóns-
dóttir og Sigrún Arngrímsdóttir.
Stjórnandi á tónleikunum er Björn
Steinar Sólbergsson.
Auk kórsöngs og einsöngs verður
að venju boðið upp á glæsilegt
kaffihlaðborð.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur en
börn og ellilífeyrisþegar greiða 500
krónur.
Kaffi-
tónleikar
Kór Akureyrarkirkju
JÓGVAN Mørkøre frá Fróð-
skaparsetri Færeyja flytur fyr-
irlestur um byggðamál Færey-
inga næstkomandi mánudag, 8.
apríl. Fyrirlesturinn nefnist:
From „bygdamenning“ to „øk-
ismenning“ – or a Faroese
story on regional politics from
disaster to new hopes.
Fyrirlesturinn verður hald-
inn í húsnæði Háskólans á Ak-
ureyri, Þingvallastræti 23,
stofu 25 og hefst klukkan 15:30.
Hann er öllum opinn.
Jógvan starfar við sögu- og
samfélagsdeild Fróðskaparset-
ursins í Færeyjum og stundar
rannsóknir á sviði byggðamála.
Hann er jafnframt formaður
fagráðs norrænu byggðarann-
sóknastofnunarinnar Nord-
regio.
Fyrirlestur
um byggða-
mál Fær-
eyinga
SETT hefur verið upp sýningin
„Leikföng“ í Punktinum. Notendur
Punktsins hafa lánað leikföng unnin
af fólki á öllum aldri.
Foreldrar eru sérstaklega boðnir
velkomnir með börn sín á sýninguna
og í leiðinni geta þeir nýtt sér aðstöð-
una á Punktinum til að búa til leik-
föng með börnunum.
Sýningin er opin á sama tíma og-
Punkturinn, alla virka daga frá kl.
13–17 og mánudags- og miðviku-
dagskvöld frá kl. 19–22.
Leikföng á
Punktinum
KOSNINGABARÁTTA Sam-
fylkingarinnar á Akureyri hefst
formlega í dag, laugardaginn 6.
apríl. Dagurinn byrjar í Hlíð-
arfjalli að morgni dags þar sem
Samfylkingin býður upp á kakó
og kex.
Stefnuþing Samfylkingar-
innar hefst kl. 15 á Græna hatt-
inum þar sem kynntur verður
afrakstur umfangsmikillar
málefnavinnu síðustu vikna.
Heiðursgestur fundarins er
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri. Kosningaskrif-
stofa að Brekkugötu 1 verður
svo opnuð formlega kl. 17. Boð-
ið verður upp á kaffiveitingar,
hljómsveitin Hrafnaspark leik-
ur og þá verða hófleg ræðuhöld.
Samfylking-
ardagur
♦ ♦ ♦
Morgunblaðið/Kristján
MÓTTÖKU á fisk- og beinaúrgangi
var hætt hjá verksmiðju Krossanes
nú um nýliðin mánaðamót, en áður
var úrgangurinn notaður í mjöl.
Eftir að móttöku úrgangsins var
hætt hefur verið ekið með hann á
sorphauga Sorpsamlags Eyjafjarð-
ar í Glerárdal þar sem hann er urð-
aður.
Hilmar Steinarsson verksmiðju-
stjóri í Krossanesi sagði að allt of
lítið magn hefði borist verksmiðj-
unni til að það borgaði sig að fram-
leiða mjölið. Magnið hefði verið
komið allt niður í 10 tonn á viku og
verksmiðjan hefði greitt kostnað
við að safna úrgangi af Eyjafjarð-
arsvæðinu saman. „Þetta stóð eng-
an veginn undir sér,“ sagði Hilmar.
Eftir að hætt var að vinna karfa
hjá ÚA síðasta sumar snarminnk-
aði úrgangurinn og þá sagði Hilm-
ar að menn væru einnig að taka
hann beint í refafóður og blanda
sjálfir.
Guðmundur Guðlaugsson fram-
kvæmdastjóri Sorpsamlags Eyja-
fjarðar sagði að vissulega væri
betra ef hægt væri að nýta úrgang-
inn, en fyrst svo væri ekki væri
ekki um annað að ræða en urða
hann. „Ef ekki er til farvegur til að
nýta úrganginn verðum við að taka
við honum eins og hverju öðru,“
sagði Guðmundur.
Svarar ekki kostnaði að vinna mjöl úr fiskúrgangi
Úrgangur frá Krossa-
nesi fer á haugana
Morgunblaðið/Kristján
Ingvar Hárlaugsson hjá Gámaþjónustu Norðurlands losar fiskúrgang
úr gámi á sorphaugunum í Glerárdal og er gusugangurinn allmikill.
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is