Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 24
LISTIR
24 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUNDAR
VITJI
HANDRITA
Dómnefnd Verðlaunasjóðs
íslenskra barnabóka hefur
lokið störfum og valið verð-
launahandrit í samkeppn-
inni um Íslensku barna-
bókaverðlaunin 2002.
Nefndin hefur skýrt við-
komandi höfundi frá niður-
stöðu sinni en úrslit verða
tilkynnt opinberlega, um
leið og verðlaunabókin
kemur út. Dómnefnd
biður aðra þátttakendur í
samkeppninni um að vitja
handrita sinna sem fyrst hjá
Eddu, miðlun og útgáfu,
Suðurlandsbraut 12, í
afgreiðslu á 3. hæð. Þar eru
þau afhent gegn því að
nefnt sé dulnefni höfundar
eða titill handrits.
Verðlaunasjóðurinn
þakkar góða þátttöku
í samkeppninni.
ÁBERANDI tvíhyggja er ríkjandi
í síðustu fjórum leikritum Halldórs
Laxness rétt eins og í skáldsögunum
frá sama tíma, milli þeirra sem álíta
manngildi fara eftir fjárráðum fólks
og þeirra sem hlúa lítilþægir að ein-
faldleika lífsins og una glaðir við sitt.
Leikrit þessi hafa ætíð staðið í
skugga skáldsagna Halldórs og ótal
leikgerða sem hafa verið af þeim
leiddar. Af leikritunum fjórum hefur
Strompleikurinn hlotið einna
minnsta athygli, enda hefur ekki
fundist búningur við hæfi.
Frumsýning verksins í Þjóðleik-
húsinu haustið 1961 vakti litla hrifn-
ingu og þó sviðsetning Maríu Krist-
jánsdóttur hjá Leikfélagi Akureyrar
1972 upp á comedia dell’arte þætti
betri hlaut hún sáralitla aðsókn. .
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri
leggur áherslu í viðtali í Mbl. í gær á
tengsl verksins við alþjóðlega
strauma í leiklist. Þ.a.l. að sýningin
er mikið sjónarspil, jafnt framúr-
stefnuleg sviðsmyndin, búningarnir
og ótal leiklausnir sem spanna allt
frá götuleikhúsi til upphafs hryll-
ingsmyndagerðar, t.d. í tónlist. Það
ægir saman ótal góðum hugmyndum
en þær ná hvorki að mynda sannfær-
andi heild né tengjast framvindu og
boðskapi leiksins á sannfærandi
hátt. Það kemur hvað eftir annað
fyrir að buslugangurinn og fyrirbær-
in á sviðinu draga athyglina frá því
sem persónurnar hafa fram að færa.
Eins og oft vill verða er hlutfalls-
lega fleiri þessara sjónrænu lausna
fundinn staður fyrir hlé. Það er eins
og hugmyndaauðgin sé þorrin þegar
kemur að seinni hluta verksins. Í
fyrri hlutanum veittist leikurunum
jafnerfitt að fóta sig í ristardjúpu
vatninu sem þeim var gert að leika í
og í þeim leikstíl sem verkinu er val-
inn. Gott dæmi um slíkt eru sjógörlin
sem þrátt fyrir snilldarlega hönnun
gervisins náðu ekki að nýta sér það
til að setja mark sitt á sýninguna.
En eftir hlé, þegar leikbrellunum
linnti, gerðist eitthvað stórkostlegt
og sýningin tók við sér. Leikararnir
fengu tækifæri til að ná saman í ýkt-
um revíustíl sem hæfir verkinu svo
vel. Það hefði mátt leggja meiri
áherslu á tengsl verksins við íslenska
gamanleikjahefð bæði fyrir og eftir
ritunartíma þess. Persónurnar (og
nöfn þeirra) eru margar hverjar eins
og klipptar út úr gömlum revíum og
samanburður á saklausum sveitalýð
og spilltum stórkaupmönnum er þar
algeng klisja. Laxness leikur sér að
þessu formi til að koma boðskap sín-
um til skila líkt og gamanleikjahöf-
undar íslenskir fyrr og síðar.
Sólveig Arnarsdóttir var ekki trú-
verðug í langri einræðu í upphafi
verksins enda forsendur fyrir því frá
hendi leikstjóra og leikmyndahönn-
uðar litlar. En þegar leið á leikinn
lifði hún sig æ betur inn í hlutverkið.
Hún er glæsileg á sviði, hefur sterka
útgeislun og skýra framsögn. Ekki
er að efa að hún muni vinna stóra
sigra á leiksviði í framtíðinni. Eftir-
minnilegastir eru þeir leikarar sem
náðu sér upp í gamanleiknum: Pálmi
var stórkostlegur, Kristbjörg bráð-
fyndin, Ólafía Hrönn óborganleg í
litlu hlutverki og Jóhann Sigurðar-
son bjó til undirfurðulega persónu úr
saungprófessornum. Leikur Baldurs
Trausta Hreinssonar var eins og
hressandi andblær. Atli Rafn, Lilja
Guðrún, Linda, Marta, Þórunn
Edda, Hjalti og Sigurður tóku sig vel
út í skemmtilegum gervum en það
vantaði töluvert upp á að möguleikar
persónanna væru fullnýttir. Hlut-
verk Guðmundar Inga, Vals Freys
og Alberto Sánchez Castellón kröfð-
ist meira af jafnvægisskyni þeirra en
leikhæfileikum.
Það hefur verið leitað langt yfir
skammt í að leita að stíl sem hentar
þessari sýningu. Ofgnótt hugmynda
er skemmtileg en bætir engu nýju
við verkið. Það er svo allt annað mál
hvort tækist betur til með einfaldari
búning sem væri nær texta og rit-
unartíma. Ef til vill er sjónarspilið
„betra en ekta“ eftir allt saman?
„Betra en ekta?“
Morgunblaðið/Þorkell
Þórunn Lárusdóttir, Linda Ásgeirsdóttir og Marta Nordal sem sjógörl-
in. Góð hugmynd en möguleikar hennar eru ekki nýttir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Halldór Laxness. Tónlist: Hilm-
ar Örn Hilmarsson. Leikstjóri: Kristín Jó-
hannesdóttir. Leikmynd og búningar: Re-
bekka A. Ingimundardóttir. Lýsing: Páll
Ragnarsson. Sviðshreyfingar: Ástrós
Gunnarsdóttir.Leikarar: Alberto Sánchez
Castellón, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur
Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Hjalti
Rögnvaldsson, Jóhann Sigurðarson,
Kristbjörg Kjeld, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Linda Ásgeirsdóttir, Marta Nordal,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson,
Sigurður Skúlason, Sólveig Arnarsdóttir,
Valur Freyr Einarsson og Þórunn Lár-
usdóttir. Föstudagur 5. apríl.
STROMPLEIKURINN
Sveinn Haraldsson
Á 15.15 TÓNLEIKUM í Borgarleik-
húsinu í dag verður boðið til Ferða-
lagatónleika og skyggnst inn í hljóð-
heim Ungverjalands og Tékklands í
kammertónlist Mátyás Seiber, Fer-
enc Farkas, Bohuslav Martinu og
Leoš Janáêk.
Flytjendur eru: Þórunn Guð-
mundsdóttir sópran, Pétur Jónasson
gítarleikari, Hildigunnur Halldórs-
dóttir fiðluleikari, Helga Þórarins-
dóttir víóluleikari, Hallfríður Ólafs-
dóttir flautuleikari, Eydís Franz-
dóttir óbóleikari, Ármann Helgason
klarínettleikari og Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir fagottleikari.
Á efnisskrá eru verk eftir Mátyás
Seiber: Fjögur frönsk þjóðlög fyrir
söngrödd og gítar og Uglan og kött-
urinn fyrir söngrödd, gítar og fiðlu.
Ferenc Farkas: Cinque canzoni dei
trovatori fyrir söngrödd og gítar. Þrír
Madrígalar fyrir fiðlu og víólu eftir
Bohuslav Martinu Fjórir Madrígalar
fyrir óbó, C-klarínett og fagott og
Leoš Janáêk: Þrír dansar frá Mæri
fyrir flautu, óbó, klarinett og fagott.
Tónskáldin Mátyás Seiber, Ferenc
Farkas, Bohuslav Martinu og Leoš
Janáêk eiga það allir sameiginlegt að
hafa leitað mikið í smiðju þjóðlaga-
tónlistar heimalands síns í tónsmíð-
um sínum. Því má ætla að efnisskrá
með verkum þeirra einkennist af
glaumi og gleði eins og best gerist á
mannamótum meðal Ungverja og
Tékka þar sem dunar dans við gleði-
raust.
Morgunblaðið/Golli
Þau leika á Ferðalagatónleikunum í Borgarleikhúsinu: Hallfríður Ólafs-
dóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Kristín Mjöll Jakobsdóttir, Ármann
Helgason, Pétur Jónasson, Eydís Franzdóttir og Þórunn Guðmundsdótt-
ir. Fjarverandi þegar ljósmyndara bar að garði var Helga Þórarinsdóttir.
Glaumur og gleði á
Ferðalagatónleikum
SIGURÐUR Þórir list-
málari opnar sýningu á
olíumálverkum í Listhúsi
Ófeigs á Skólavörðustíg
5 í dag, laugardag, kl. 16.
Í list sinni fjallar málar-
inn um manninn, frá-
sögnina og fantasíuna, þar sem hann
vinnur myndirnar að jöfnu út frá
huglægum og hlutlægum veruleika.
Myndirnar á sýningunni eru mál-
aðar í sterkum litum og má greina
átök milli andstæðra lita,
en Sigurður hefur ein-
beitt sér að samspili lit-
anna mörg undanfarin
ár. Sigurður hefur haldið
ótal einka- og samsýn-
ingar bæði hér á landi og
víða erlendis, en hann hefur starfað
að list sinni í 30 ár.
Sýningin er opin alla daga, nema
sunnudaga kl. 10–18, laugardaga kl.
11–16 og stendur til 24. apríl.
Átök andstæðra lita
EFNT verður til fjölbreyttrar lista-
dagskrár í Norræna húsinu í kvöld,
en þá verður opnuð samsýning
ungra finnskra listamanna sem ber
yfirskriftina Púslusving. Þar munu
Maria Duncker, Gun Holmström,
Markus Renvall, Alli Savolainen og
Simo Rouhiainen sýna innsetningar
og myndbandsverk ásamt Seppo
Renvall sem jafnframt er sýning-
arstjóri.
Listamennirnir eru allir virkir
þátttakendur í finnsku listalífi, og
eiga það sammerkt að nota efnivið
á margvíslegan hátt.
„Það verður margt að gerast við
opnunina,“ segir Guðrún Dís Jón-
atansdóttir, kynningarstjóri Nor-
ræna hússins. Opnunin hefst kl. 20
og mun standa langt fram á nótt.
Boðið verður upp á léttar veitingar
og flutt verkið The Ball Show, sem
er í senn innsetning og gjörningur
og inniheldur hljóð, myndir, mynd-
varpa og diskókúlur. Þá verður raf-
tónlist spiluð við opnunina auk þess
sem píanóleikarinn Laura Sovio
mun flytja finnska nútímatónlist,“
segir Guðrún.
Í klúbbnum verður einnig sýnt
myndbandsmaraþonið The Best of
View, sem er sett saman af AV-
arkki, dreifingarmiðstöð finnskrar
listar og veitir innsýn í hræringar í
finnskri samtímalist. Auk þess hef-
ur verið skipulögð dagskrá þar sem
bæði gestir og nemendur frá mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands
munu leika af fingrum fram,“ segir
Guðrún.
List frá Finnlandi
Morgunblaðið/Ásdís
Hópur finnskra listamanna er kominn hingað til lands til að fylgja
opnun samsýningar sinnar í Norræna húsinu úr hlaði.