Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 41 Hin seinni ár, þegar amma var komin á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki, hófst annar kafli í lífi hennar, núna hafði amma ekki leng- ur sveitina sína. Hún varð að láta sér nægja að horfa út um gluggann á herberginu sínu, til Blönduhlíðar- fjallanna, sem voru henni svo kær. Amma var skýr í hugsun næstum fram á það síðasta og spurði hún mig ávallt um börnin mín og hvað ég væri að starfa þegar ég hitti hana. Skrýtið verður að fara norður og geta ekki hitt hana framar. Elsku amma mín, þú hefur lagt að baki langa leið, en nú ertu komin á leiðarenda. Afi tekur á móti þér og þið getið haldið áfram þar sem frá var horfið. Njóttu hvíldar í faðmi Drottins, elsku amma. Ljúfar endurminningar um þig lifa í huga okkar. Líney Óladóttir og fjölskylda. Það var sárt að fá þær fréttir að amma væri búin að kveðja þó svo að vitað hafi verið að hverju stefndi. Þó svo að aldursárin hafi verið orðin nokkuð mörg áttaði maður sig ekki alltaf á því. Hún var allt fram á síð- asta dag tiltölulega hraust og vel ern. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa hana ömmu okkur til halds og trausts á uppvaxtarár- unum og var hún órjúfanlegur hluti af öllu okkar lífi. Fyrstu minningarn- ar eru af jólaboðunum sem haldin voru í Sólheimagerði þar sem eldað- ur var dýrindis matur og sparistellið sett á borð. Einnig dvöldumst við í sveitinni hjá henni og Jóhanni frænda á sumrin og er óhætt að segja að oft hafi verið handagangur í öskjunni. Hún var dugleg að kenna okkur, leiðbeina og ala upp í betri siðum. Við búum að því enn í dag og miðlum nú til barna okkar. Amma var stolt af sínu fólki og lagði mikið upp úr því að við mennt- uðum okkur. Ekki skipti öllu hvað við gerðum, svo lengi sem við stefndum að einhverju. Ætíð gat maður treyst því að hún segði manni það sem henni fannst. Spáði hún mikið í það hvernig maður var tilhafður og hvernig maður bar sig og var ekkert að skafa utan af því ef henni mislík- aði. Hún var hrein og bein á allan hátt. Þegar við minnumst ömmu okkar kemur hún fram í hugann sem ein- staklega glæsileg kona sem alltaf var vel til höfð og klædd við hæfi. Það er sérstaklega minnisstætt hve gaman hún hafði af því að fá sér nýja peysu og alltaf virtist hún geta fundið réttu hálsfestina við hverja og eina. Hún var með einstaklega fallegt hvítt hár sem jók enn á glæsileika hennar og alltaf bar hún sig vel, var dama fram í fingurgóma. Það er erfitt að kveðja manneskju sem hefur fylgt okkur alla ævi en nú er hún komin til hans afa, sem hún hefur þurft að vera án í svo langan tíma. Við erum þakklát fyrir að hafa haft hana svona lengi hjá okkur og þótt söknuðurinn sé mikill er þakk- lætið okkur efst í huga fyrir að hafa átt svona einstaka konu fyrir ömmu. Elsku amma, við kveðjum þig með söknuði og biðjum góðan guð að geyma þig. Minningin um góða ömmu mun aldrei gleymast. Hvíl í friði. Gísli Óskar Konráðsson, Ása Dóra Konráðsdóttir. Það hefur verið fjársjóður að eiga hana ömmu til þessa dags. Hún var alla tíð trú sínum uppruna og rætur hennar í íslenskri bændamenningu högguðust ekki hvað sem á gekk í tæknibyltingu síðustu 50 ára. Hún var níu ára frostaveturinn mikla 1918, upplifði ris og fall Þýskalands nasismanns og mundi þessa tíma jafn vel og hrun Berlínarmúrsins rúmri hálfri öld síðar. Um þessa at- burði og um þessa tíma talaði hún með sama jafnaðargeðinu. Það var eins og hún væri viss um að ef him- intunglin á annað borð snerust þá yrði aftur vor í dal með sauðburði og heyskap og tilveran krydduð með sil- ungi úr vötnunum og því óþarfi að hafa of miklar áhyggjur af einhverj- um voðaatburðum í útlöndum. Það hefur verið fjársjóður að eiga að og fá innsýn í gildismat þeirra sem fæddust í byrjun síðustu aldar og hafa átt ömmu sem tók þátt í að ala mig upp að nokkru leyti og reyndi að móta í anda þessara liðnu tíma. Fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Það sem ég kunni alltaf best við við hana ömmu var hvað hún leyfði sér að vera hún sjálf. Mislíkaði henni eitthvað var hún ófeimin að láta vita af því þótt alltaf væri stutt í hárfínan húmorinn. Vissulega er slíkt tvíeggj- að vopn og mörgum sjálfsagt stund- um sárnað. Ég hef þó alltaf kunnað slíkri hreinskilni vel og oft hló ég dátt að gömlu konunni þegar hún var að segja sínar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún hélt heimili í Sól- heimagerði fram undir nírætt og var alltaf stjórnandi, skipandi og mót- andi sitt nánasta umhverfi. Ég mun sakna hennar ömmu, ekki síst vegna nálgunar hennar á mál- efnum líðandi stundar, nálgunar sem mótaðist af aðstæðum og straumum löngu liðinna tíma, tíma sem gerðu okkur að því sem við erum í dag. Þótt Ingibjargar langömmu nyti við þar til ég var um fermingu voru aðrir áar mínir fallnir frá þegar ég byrjaði að muna eftir mér. Ég hef því aðeins átt eina ömmu sem hefur þurft að koma í stað hinnar ömmunnar og afanna beggja. Það er því með söknuði sem ég kveð hana ömmu og fyrir mér er tilveran mun fátækari en áður. Friðrik Hansen Guðmundsson. Lífsleið hvers og eins er hlutur sem enginn getur vitað fyrir hve löng verði né heldur hvenær hún muni taka enda. Þannig er það með okkur öll og þannig var það með ömmu okk- ar sem lést 24. mars sl. Hún lést á 94. aldursári. Að baki voru tímar þar sem allt þjóðfélagið hafði gjörbreyst og sá maður það oft á ömmu að hún var undrandi á þeim stakkaskiptum sem orðið höfðu á þjóðfélaginu. Okkar fyrstu minning- ar um ömmu ná aftur til þess tíma þegar við komum pínulitlir í heim- sókn í Sólheimagerði með pabba og mömmu. Þá urðu ætíð miklir fagn- aðarfundir og var amma alltaf glöð að fá okkur í heimsókn. Þegar við urðum fimm til sex ára gamlir fórum við að verða reglubundið í sveit yfir sumarið í Sólheimagerði hjá ömmu og Jóhanni frænda okkar og urðu ár- in ansi mörg eða alveg upp að 18. ári. Því varð amma mjög stór þáttur í lífi okkar og uppeldi og voru þau mörg vandamálin sem amma leysti fyrir okkur og hafði alltaf velferð okkar að leiðarljósi. Í Sólheimagerði var alltaf mikið um gestakomur og mikið um að menn væru í fæði hjá henni vegna vinnu við búið. Því varð vinnudag- urinn oft mjög langur, og alltaf stóð amma á fullu í eldhúsinu eða störfum tengdum heimilinu. Hún lagði okkur lífsreglurnar og kenndi okkur ýmsa hluti sem nú í dag hafa komið sér vel og talaði oft um mikilvægi góðrar menntunar. Amma var mjög reglu- föst kona og með sínar skoðanir á hlutunum en hún tók alltaf vel hinum ýmsu hrekkjum sem við gerðum henni. Stundum svaraði hún þeim til baka, í óþökk sumra. Þegar árin fóru að færast yfir fór heilsu ömmu að hraka og síðustu árin var hún á Heil- brigðisstofnun Sauðárkróks þar sem hún lést. Við þessi leiðarlok viljum við þakka ömmu fyrir öll árin og allar góðu stundinar sem við áttum með henni og geymum nú í minningu okk- ar. Hennar verður sárt saknað og aldrei þakkað nóg. Við biðjum góðan Guð að gæta hennar. Blessuð sé minning hennar. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. Davíð og Elvar Konráðssynir. Mér þótti þetta óendanlega leið- inlegt með langömmu mína. Mamma hringdi í mig þegar ég var í Rhonda en náði svo ekkert í mig en ég las skilaboðin hennar og þetta setti mik- inn skugga á daginn. Ég vildi óska að ég gæti verið við jarðarförina því mér þótti mjög vænt um langömmu og myndi langa til að segja bless í seinasta skipti. Ég held að sveitin verði ekki sú sama þegar hún er þar ekki lengur. Mér fannst nógu skrýtið að koma við í Sólheima- gerði þegar hún var ekki þar en þá fór maður samt alltaf í heimsókn til hennar á spítalann þannig að ég sá hana alltaf þegar ég kom í Skaga- fjörðinn. Minning mín um hana mun alltaf vera bundin við gamla konu sem gaf mér konfektmola og reyndi að troða í mig „ekta“ kúamjólk sem ég, borgarbarnið, gat alls ekki hugs- að mér að drekka. Mér fannst alltaf gaman að koma við í Sólheimagerði og ég á sterkar æskuminningar frá þeim stað. T.d. þar sem langamma situr úti í garði í sólskininu og prjón- ar lopasokka á mig og Óla. Ég vildi að ég gæti verið heima núna og tekið þátt í öllu sem þessu viðkemur en ég verð að láta mér nægja að hugsa til ykkar. Sigrún Björk, Spáni. Ég vil minnast ömmu minnar, Nikólínu Jóhannsdóttur. Ég fór í sveitina til ömmu á hverju sumri fram til 16 ára aldurs. Þar ólst ég því upp að hluta til, í skagfirskri sveit. Hjá ömmu lærði ég margt og urð- um við góðir vinir. Ég mun sakna þessa góða vinar, hennar ömmu. Gísli H. Guðmundsson. Elskuleg tengda-amma mín er lát- in. Ég minnist hennar sem „hefðar- konu“ þessi ríflega tuttugu ár sem ég hef haft kynni af henni. Margt hafði ég heyrt um hana og sveitina í Sól- heimagerði hjá Friðriki áður en ég hitti hana. Í minni fyrstu ferð í Sól- heimagerði sumarið 1979 var hún fyrir sunnan svo ég hitti hana ekki í sínu rétta umhverfi fyrr en seinna. En eftir það lá leið okkar mörgum sinnum í sveitina til ömmu og Jó- hanns frænda, börnunum til ómældr- ar gleði og ánægju. Ekki stóð á að fá góðan mat þegar við komum, þarna var hún og sá um heimilið fyrir þau Jóhann son sinn og nutu allir gest- risni þeirra hvenær sem komið var. Ekki voru allir eins heppnir og hún Nikólína með heilsuna því hraust var hún fram á síðustu ár. Það eru ekki nema fjögur ár síðan hún fór frá Sól- heimagerði inn á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks og fannst henni það erf- itt hlutskipti. Þegar við Friðrik bjuggum í Kaupmannahöfn fyrir tuttugu árum kom hún í heimsókn til okkar, sem var mjög skemmtilegt. Að fara með henni að skoða fallega blómum skrýdda garða í góðu veðri var einkar ánægjulegt og gaf hún manni aðra sýn á slíka staði, hún var mikill fagurkeri. Já, eða bara ganga Strikið og líta í búðir, eiginlega var sama hvað gert var, allt varð áhuga- vert. Heimskona var hún í eðli sínu að mér finnst enda heimsótti hún barnabörnin og okkur maka þeirra erlendis þegar færi gafst og meðan heilsan leyfði. Henni fannst ekkert liggja á því að verða langamma, en í skírnarveislu elsta langömmubarnsins, hans Hall- dórs Gíslasonar, hallaði hún sér að mér og hvíslaði: „Nú þegar komið er eitt skiptir ekki máli þó að þau verði fleiri úr þessu.“ Skrítin tilviljun að við áttum svo næsta langömmubarn, hana Sigrúnu Björk. Í fyrstu heimsókn hennar Nikó- línu á heimili okkar Friðriks á Bald- ursgötunni skrifaði hún nafn sitt óstytt í gestabókina og var þá haft á orði að ekki væri hún vön að skrifa Nikólína heldur Lína. Svaraði hún að það vendist nú með aldrinum og hún væri nú bara farin að kunna því bet- ur en áður. Eftir því sem mér skildist vildi hún ekki að skírt yrði eftir sér, „þessu erfiða nafni“, en það var samt notað í annarri mynd. Yfirleitt ávarpaði ég hana fullu nafni og fannst annað skrítið, ég vissi aldrei og fæ aldrei að vita hvort henni líkaði það eða ekki, en hún svaraði alltaf þegar ég ávarpaði hana. Mér fannst það ekki passa að ég segði Lína við hana, það gerðu bara þeir sem höfðu þekkt hana miklu lengur en ég. Börn okkar Friðriks þekktu hana bara sem langömmu Nikólínu. Í mínum huga var hún bæði sátt við að heita Nikólína og vera langamma. Alltaf hafði hún áhuga á útliti sínu hvað varðaði fatnað og hár og man ég hve ég undraðist það að kona, komin á meira en fullorðinsár, hefði gaman af því að prjóna sér peysur, sauma á sig dragtir, kjóla og fleira. Mætti þetta verða fleiri konum til eftir- breytni eftir að efri árum er náð og vonandi að ég standi mig eins vel og hún í því. Einnig heklaði hún dúka og saumaði út, en fyrir um sjö árum sagðist hún ekki nenna að gera neina handavinnu nema sokka og vettlinga ef einhver vildi nota. Öll eiga börnin okkar dýrmætar minningar úr sveit- inni og það að hafa aðgang að sveit og öllu sem henni tilheyrir er meira en mörg börn eiga kost á. Þar sem ég er lærð í hárgreiðslu- faginu naut ég þeirra forréttinda að hitta hana þegar hún kom í bæinn og áttum við þá spjallstund saman á meðan permanentið var sett í, svo klipping og þá hárlagningin í lokin. Þá urðu samverustundir okkar jafn- vel ein dagstund og leiddist mér það ekki. Fáar konur var og er hægt að gleðja meira með slíkri þjónustu en hana. Það kom yfir hana þessi ánægjusvipur öll þessi skipti sem við „áttum í hári saman“ og ekki skemmdi það að snyrta augabrúnirn- ar í leiðinni. Hún var alltaf „langflottust“ í tauinu þegar hún kom í veislur í fjöl- skyldunni, þá uppáklædd í íslenskan upphlut eða peysuföt, en hvort tveggja átti hún og bar með sóma og glæsibrag svo eftir var tekið í okkar veislum, að minnsta kosti af minni fjölskyldu og vinum okkar. Það má segja að hún hafi verið mér fyrir- mynd í því að vera í upphlut við há- tíðleg tækifæri sem hvatti mig til að koma mér upp slíkum búningi þar sem ég átti skrautið sem til þurfti, sem ég og gerði, og veitti það mér mikla ánægju að vera með henni í veislu þannig klædd. Þegar hún heimsótti okkur í upphlutnum síðast var það við fermingu dóttur okkar, en fljótlega eftir það leyfði heilsan ekki lengur svona langferðir suður og má því segja að í síðustu minn- ingum okkar fólks sé hún þessi myndarlega kona í upphlut og „lang- flottust í tauinu“. Í minningu hennar mun ég klæðast búningnum og heiðra hana á þann hátt og fylgja henni þannig uppábúin síðasta spöl- inn. Þökk sé henni fyrir allt og allt. Ingibjörg Óladóttir. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjálfr it sama, en orðstírr deyr aldregi hveim er sér góðan getr. (Hávamál.) Elsku langamma, þakka þér fyrir allar okkar góðu samverustundir. Nú ertu loksins komin til langafa. Guð veri með þér. Þín langömmubörn, Halldór, Harpa Þöll og Hákon Freyr Gíslabörn. Ég vona að þér líði betur. Ég skal aldrei gleyma þér og tímunum sem við vorum saman. Guð skal passa þig þangað til þú fæðist aftur. Hún langamma var mjög góð og reyndi að hjálpa öðrum eins mikið og hún gat. Einu sinni þá gaf hún mömmu minni hálsmen sem langamma átti. Ég elskaði hana og ég elska hana ennþá. Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda, Amen. Frá elsku barnabarnabarninu þínu. Þórdís Magnadóttir. Minningar frá bernsku- og æsku- árum eru dýrmætur fjársjóður sem gott er að leita í. Minningar mínar frá þessum árum tengjast mjög heimilinu í Sólheimagerði. Því er mér bæði ljúft og skylt að setja á blað kveðjuorð til húsfreyj- unnar þar, Nikólínu Jóhannsdóttur, eða Línu, en það nafn notaði hún jafnan. Lína var mikil myndarkona og yfir henni var reisn. Hún fór í Kvennaskólann á Blönduósi og mun sú dvöl hafa nýst henni vel. Lína var mikil hannyrðakona og bar fagurt heimili hennar því glöggt vitni. Einn- ig lék hvers kyns saumaskapur í höndum hennar og m.a. saumaði hún íslenska búninginn. Gísli og Lína hófu búskap í Sól- heimnagerði árið 1934 eða 5. Jörðin var lítil og kostarýr en þau breyttu henni í góðbýli, bæði hvað snerti ræktun og húsakost. Gísli í Sólheimagerði var kennari og síðar skólastjóri við barnaskóla Akrahrepps í 32 ár. Hann var ein- stakur kennari, mannvinur og gleði- gjafi. Í tæpa tvo áratugi var skólinn til húsa í Sólheimagerði að hluta til en þá var farskóli. Ekki fer hjá því að skólahaldið hefur verið álag á heim- ilið. Eitt sinn spurði ég Línu hvort hún hefði aldrei verið þreytt á að hafa skólann á heimilinu öll þessi ár. „Nei,“ sagði hún, „þetta var bara góð tilbreyting.“ Aldrei var amast við okkur, þvert á móti. Ekki gleymast „litlu jólin“ uppi í stofunni hennar sem okkur skólakrökkunum voru haldin. Þar stóð jólatréð svo fagurlega skreytt að það fangaði barnsaugun. Lesnar voru jólasögur, farið í leiki, gengið í kringum jólatréð og svo bauð Lína til veislu. Stundum voru sett upp leikrit og þá tók Lína okkur upp til sín og hjálpaði til með bún- ingana. Einnig man ég hana sitja hjá okkur í skriftartímum þegar Gísli þurfti að bregða sér frá. Hún var svo fallega klædd og var með handavinn- una sína. Já, litli sveitaskólinn var menning- arstofnun. Störf þeirra, Línu og Gísla frænda míns, mörkuðu þar djúp spor sem enn hafa ekki máðst út. Á milli bæjannna Sólheimagerðis og Uppsala greru aldrei götur. Þangað gengum við systkinin í skóla, þar átti ég leikfélaga og jafn- öldru og segja má að þar hafi verið mitt annað heimili því auk skólans var mikill samgangur milli bæjanna, bæði frændsemi og vinátta. Það dró ský fyrir sólu er Gísli lést í ársbyrjun 1960, fyrir aldur fram, tæplega 60 ára. Pabbi sagði m.a. í minningu frænda síns: „Það var að öllum jafnaði hátt til lofts og vítt til veggja í huga hans og í kringum hann líka. Hann bar fjörið og birtuna með sér fram á ævikvöldið.“ En lífið heldur áfram. Lína hélt sinni reisn. Hún stóð fyrir heimilinu með Jóhanni, syni þeirra, sem þá hafði tekið við búinu. Þegar Lína var 68 ára fór hún í sína fyrstu utanlandsferð, þá til Ed- inborgar, að heimsækja hjónin Sig- rúnu dóttur sína og Guðmund sem þar dvöldu. Og ferðirnar til útlanda urðu fleiri, bæði til Svíþjóðar og Danmerkur. Á áttræðisafmælinu var hún í Trier í Þýskalandi með börnum sín- um og tvær ferðir fór hún til Þýska- lands eftir það. Lína naut þessara ferðalaga. Hún var heilsuhraust og í raun glæsileg eldri kona. Með húsmóðurstörfunum lagði hún mikla rækt við hannyrðir og saumaskap, keypti ýmiss konar hannyrðablöð og tímarit, bæði ís- lensk og erlend og gat þannig sinnt sínum áhugamálum. Það var henni þung raun er að því kom að hún, vegna sjúkleika, þurfti að fara á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1998, þá 89 ára að aldri. Hún hafði þá séð um heimili sitt í Sól- heimagerði í 64 ár, þó með aðstoð síð- ustu árin, en aldrei fyrr þurft á sjúkrahúsvist að halda. Ég er þakklát fyrir þær stundir er við áttum saman á sjúkrahúsinu. Þar var gott að heimsækja hana. Við rifjuðum upp ýmislegt frá liðnum dögum. Stundum varð augnaráðið fjarrænt er hún horfði til Blönduhlíð- arfjallanna sem blöstu við út um gluggann hennar og hún sá fram í sveitina sína. Nú er langri og farsælli göngu lok- ið. Ég kveð Línu með virðingu og þökk. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð og þakka fyrir að eiga minningarnar um heimilið í Sól- heimagerði. Helga Bjarnadóttir frá Uppsölum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.