Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 43 Þau voru þung spor- in hjá starfsfólki Frí- hafnarinnar þegar það mætti til vinnu sinnar snemma morguns mið- vikudaginn 12. mars. Flest okkar höfðu feng- ið þær sorglegu fréttir daginn áður að einn starfsmaður myndi ekki mæta þennan morgun. „Hann Óli Ragnar er dáinn,“ var þessi sorglega frétt sem við höfðum fengið. Þegar fólkið bauð hvert öðru góðan daginn hljómaði röddin öðruvísi og maður gat greint vot augu þess. Hópurinn minntist Óla í hljóðri þögn, og síðan hurfu allir til síns starfa. En dagur- inn leið öðruvísi en allir aðrir dagar. Það var vorið 2000, sem Óli mætti sem nýr starfsfélagi í Fríhöfnina, og strax sá maður að hann var ekkert á förum þaðan ef hann hefði eitthvað um það að segja sjálfur. Hann kynnti sig vel og líkaði vel í vinnunni. Hann gekk í öll störf og lagði sig fram um að verða góður sölumaður, áhuga- samur og ákafur og alltaf stutt í bros- ið sem einkenndi hann. Mjög fá okk- ar vissu að Óli ætti við veikindi að stríða, því ekkert í hans daglega fari gaf neitt annað til kynna en að allt væri með felldu. Óli var svolítið sér- stök persóna, alltaf í góðu skapi, sam- viskusamur svo tekið var eftir, heið- arlegur og ákveðinn. Þetta eru margir góðir kostir en hann stóð fyllilega undir þeim. Nokkrum dög- um fyrir andlát sitt kom Óli í vinnu skælbrosandi. Hann hafði verið að gera íbúðarkaup og búinn að kaupa sér raðhús. Hann var strax farinn að plana hvernig allt skyldi vera og gera þær breytingar í huganum sem hann vildi gera. Lífsmottó hans var að koma sem mestu í verk meðan maður væri ungur. Og þótt Óli hafi ekki náð því að lifa lengur kom hann ótrúlega mörgu í verk, og sumt af því mun aldrei sjást, því það býr innra með okkur sem þekktum hann. Það voru aldrei neinir lausir endar hjá Óla, allt þaulhugsað, en samt þessar léttvægu áhyggjur um hvernig þetta myndi nú allt ganga. Hann vissi að allt færi þetta vel, en það væri vissara að hafa þessar léttvægu áhyggjur upp á að hlaupa og það gerði hann ákveðnari. Fjölskyldan var Óla mjög hjart- fólgin og það var unun að fylgjast með þeirri virðingu og ást sem hann bar til hennar Sigurrósar unnustu sinnar og aldrei gerði hann neitt nema ráðfæra sig við hana fyrst og stundum gerðum við grín að því, en honum var svo nákvæmlega sama og varð ekki haggað. Við starfsfélagar Óla Ragnars sendum þér, Sigurrós, foreldrum hans, Heiðu og Halli, bræðrum hans og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning um einstaklega ljúfan og góðan dreng mun lifa með okkur. Elsku Óli, það er komið að leiðar- lokum í bili og okkur langar til að kveðja þig með þessum línum. Góðan dreng er gott að muna geymum fögru minninguna, hún er perla í hugans reit, kynnin þökkum þér af hjarta, berst til himins bænin heit. (I.S.) Vinnufélagar þínir í Fríhöfninni. Þegar ég hitti Óla fyrir tæpum mánuði óraði mig auðvitað ekki fyrir því að þetta væri síðasta samtal okk- ar félaganna. Þá tilkynnti hann mér að hann væri að kaupa sér nýtt hús- næði með henni Sigurrós sinni og að þau hefðu ákveðið að gifta sig í sum- ar. Lífsgleðin skein af Óla sem aldrei fyrr enda blasti framtíðin við. Síð- ustu daga hefur hugurinn reikað til ÓLAFUR RAGNAR PÉTURSSON ✝ Ólafur RagnarPétursson fædd- ist í Keflavík 27. mars 1976. Hann lést í Keflavík 12. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 21. mars. æskuáranna þar sem ótal minningar tengdar Óla hafa komið upp. Það var haustið 1987 sem ég byrjaði í Myllu- bakkaskóla. Ég þekkti engan í bekknum, þá kom Óli upp að mér og spurði hvort ég vildi ekki verða samferða honum heim þar sem hann væri nýfluttur í götuna. Frá þessum degi vorum við óaðskilj- anlegir í mörg ár. Það sýnir hversu mikið hörkutól Óli var að þrátt fyrir að eiga erfiðara með gang en við flestir gaf hann okkur strákun- um ekkert eftir þegar við lékum okk- ur við að klifra í trönunum eða í ferð- unum út í Berg. Óli hafði mikinn áhuga á tónlist og var Iron Maiden í miklu uppáhaldi, sagði hann að þar væru hámenntaðir tónlistarmenn á ferð. Hann skildi aldrei í mér að hafa ekki gaman af þeim. Það er einlæg trú mín að Óla hafi verið ætlað stærra hlutverk enda hef ég aldrei kynnst betri manni. Þrátt fyrir að samband okkar hafi minnkað undanfarin ár var hann og verður alltaf einn af mínum kærustu vinum. Í minningu minni er Óli alltaf bros- andi, fallega klæddur og fullur af lífs- gleði og þannig ætla ég að muna hann. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Megi góður Guð vernda og blessa Sigurrós, Hall, Heiðu, Mumma, Lúlla, Viktor og alla fjölskyldu Óla, þeirra er mesti missirinn og söknuð- urinn. Bjarki Freyr Guðmundsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Kæri Óli, ég vil þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þú varst alltaf svo elskulegur, brosandi og vildir allt fyrir alla gera. Megi Guð varðveita sál þína og vernda. Sigurrós, Ragnheiður, Hallur og aðrir aðstandendur, ég vil votta ykk- ur mína dýpstu samúð og bið Guð að vera með ykkur. Oddný. Kæri vinur. Þriðjudaginn 12. mars fékk ég þær hræðilegu fréttir að þú hefðir kvatt þennan heim fyrirvara- laust. Ég var nýlega búinn að hitta þig og eiga við þig gott spjall eins og alltaf þegar við hittumst, þú hafðir alltaf tíma til að spjalla aðeins. Minn- ingarnar um þig, Óli, hafa hrannast upp. Og það líður varla mínúta án þess að maður sjái fyrir sér brosið þitt. Við erum búnir að þekkjast í u.þ.b. 20 ár. Og við Pétur Óli erum búnir að vera að rifja upp gömlu dag- ana. Þegar við löbbuðum upp í hest- hús nánast hvern einasta dag og þeg- ar þú fékkst hestastóðið á harðahlaupum beint yfir þig. Við héldum að það yrði þitt síðasta, en þú stóðst upp, dustaðir af þér og lést þetta ekki á þig fá. Við vorum saman í bekk nánast alla okkar skólagöngu og við unnum saman a.m.k. eitt sum- ar. Það var alltaf stutt í glettnina og prakkarann í þér og skemmtum við okkur oft konunglega. Ég held, Óli, að maður hafi aldrei gert sér grein fyrir hvurslags rosa- legum krafti þú bjóst yfir. Þú gafst aldrei neitt eftir þrátt fyrir líkamleg- ar hindranir. Þú beist bara á jaxlinn og gafst engum neitt eftir. Þakklæti er okkur vinunum efst í huga þegar við lítum til baka. Og við erum sammála um að við og allir get- um lært margt af þér og svo sann- arlega tekið þig til fyrirmyndar á mörgum sviðum. Við kveðjum þig, Óli, með söknuð í hjarta og við hlökkum til að hitta þig aftur. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur til foreldra þinna, bræðra og Sig- urrósar. Guð gefi ykkur styrk í sorg- inni. Sigurður B. Magnússon, Pétur Óli Pétursson. Elsku Óli minn, ég á eftir að sakna þín, nærveru þinnar, hláturs og kar- akters. Aldrei mun ég gleyma hversu einstakur þú ert, manstu fyrsta skiptið að púa sígarettu fyrir aftan hjá Sigga eða ferðina til Salzborgar? Það verður erfitt að vera án þín, að vita að þú ert farinn. Óli, þú varst mér sem bróðir og ég mun bera þig í brjósti mér þar til við hittumst aftur. Við Finna söknum þín alveg rosalega. Þinn vinur Jón Stefán. Elsku Óli frændi, það er sárt að þurfa að kveðja þig, ég hefði heldur viljað vera að kynnast þér betur. Þú áttir allt lífið framundan, bjart og gott. Ég man eftir þér þegar þú varst lítill og komst oft til mín þegar ég bjó í Keflavík, ég safnaði fyrir þig strumpum sem þú varst að safna. Og svo varst þú allt í einu orðinn stór strákur. Það er leitt að hafa misst af tímanum sem er þar á milli. Eftir að pabbi þinn, Pétur Þór Karlsson, dó eignaðist þú fósturpabba, Hall Þór- mundsson, og tel ég að þú hefðir ekki getað eignast betri fósturföður en hann. Eins og hann segir sjálfur, þá varst þú ljósið á heimilinu, ljósið sem var slökkt svo sorglega þann 12 mars. Ég hef oft hugsað, getum við ekki farið í verkfall og farið fram á lengra líf, eins og að fara í verkfall til að fá hærri laun? En það er ekki hægt, því við ráðum ekki lífi okkar, hvað sem við reynum. Við fáum eitt líf sem við lifum, þar til kallið kemur. Gott væri að geta falið sig á deginum sem það kemur. Elsku Óli minn, takk fyrir þær góðu stundir sem við áttum sam- an. Hvíl þú í friði. Ég votta unnustu þinni, foreldr- um, systkinum og ættingjum mína dýpstu samúð og bið Guð að vera með þeim á þessum sorgardögum. Þinn frændi Þorlákur Karlsson. Það er ekki til sú hugsun hjá ungu fólki að það sé hætta á því að missa einhvern vin eða vinkonu á svipuðu reki, það gleyma allir sér í því að njóta þess að vera til. Gleymum oft að hver stund er svo dýrmæt og í raun er ekkert sjálfgefið. Þess vegna verður skellurinn svo mikill og harður þegar maður sér á eftir einhverjum sem í huga manns er hluti af framtíðinni. Ég var svo heppinn að vera ráðinn til starfa hjá Fríhöfninni og kynntist þar yndislegu starfsfólki og eignaðist þar marga góða vini. Einn þeirra, Ólafur Ragnar, er nú skyndilega lát- inn. Samvera okkar Óla var litrík, það var mikið brallað í vinnunni sem og utan vinnunnar. Við ræddum sam- an um allt milli himins og jarðar og þrösuðum líka oft hvor við annann, en þó alltaf í góðu. Óli hafði skipulagt framtíðina vel og vann markvisst að því að láta drauma sína rætast, einn þeirra var að giftast unnustu sinni sem hann elskaði svo heitt og bar mikla virðingu fyrir. Hann bað henn- ar í lok síðasta sumars og bað mig um að vera veislustjóri. Ég svaraði hon- um að ég myndi örugglega gera það en við skyldum endurskoða málið með vorinu, en brúðkaupið átti að vera á komandi sumri. Leiðir okkar skildi þegar ég fór í skóla í haust, síð- asta skiptið sem ég hitti Óla var í byrjun mars, þá sagði hann mér frá brúðkaupsundirbúningnum og áætl- uðum húsakaupum. Einnig sagði Óli mér frá því hvað Sigurrós væri undir miklu álagi í náminu en stæði sig svo vel. Framtíðin var svo björt í orðum hans, að maður gat vart annað en öf- undað hann af því hve vel gekk að láta drauma sína rætast. En hann var samt bara að byrja, því stærstu draumarnir líkt og barneignir yrðu að bíða þar til Sigurrós lyki námi. Við Óli ræddum líka um það hve gaman yrði þegar ég kæmi aftur upp í Frí- höfn í vor og yrðum við strákarnir sameinaðir á ný, í myndavéladeild- inni hjá Einari. Það verður tómlegt að mæta til vinnu í vor. Óli var heiðarlegur, opinskár, framsækinn og umfram allt góður og tryggur sínum og tók alltaf upp hanskann ef hallað var á einhvern sem honum þótti vænt um. Hann var tilfinningavera sem hafði mikla þörf fyrir nærveru foreldra sinna og fjöl- skyldu og var ófeiminn við að hæla sínu fólki. Það er svo ótrúlegt að setjast niður og skrifa nokkur orð til minningar um Óla vin minn, þegar hugur minn var byrjaður að velta sér upp úr skrítlum og öðru fyrir brúðkaupið í sumar. Ég flaggaði í hálfa stöng fyrir Óla, en stóð sjálfan mig að verki við að stara út um gluggann á vindinn leika um stolt þjóðarinnar, en gat samt engan veginn áttað mig á því, að ég ætti ekki eftir að rekast á Óla fljót- lega. Óli sem átti bara eftir að flytja í nýja húsið, gifta sig, eignast fjöl- skyldu og njóta lífsins með sínu fólki. En þó svo að við kveðjumst núna hitt- umst við um síðir á ný og á meðan mun samvera okkar alltaf fylgja mér í gegnum lífið og kenna mér það að taka engum í kringum mig sem sjálf- sögðum hlut, heldur að meta þær stundir sem bjóðast. Elsku Sigurrós, foreldrar, fjöl- skylda og vinnufélagar í Fríhöfninni, ég votta ykkur samúð mína og megi minningin um Ólaf Ragnar vera ljós í lífi okkar allra. Lífið, eins og ljóð eða saga, ljóð um nætur og daga. Allt sem kemur og fer liðinn tími, og minningar sem sækja á mig, sérhver mynd sem fylgir mér. Allar hugans uppsprettulindir, okkar fortíðarmyndir, birtast hér eða þar. Æskudraumar og augnablik sem enginn fær breytt, allt það líf sem áð- ur var. Ævin styttist, okkur finnst sem ár- in líði hraðar. Í eldi tímans mun allt það brenna, sem áður var til staðar. Nóttin, full af stjörnum sem stara. Stund sem verður að fara eins og draumfagurt lag. Tíminn líður og nóttin verður minning ein, sólin vek- ur nýjan dag, ljúfar stundir, liðin tíð og líf sem allir sakna. Við njótum lífsins, þegar nætur líða og nýir dagar vakna. Árni Árnason. Árið 2002 var rétt byrjað og það byrjaði með því að góður vin- ur minn var jarðsett- ur vestur í Súðavík. Hann hét Elvar og mig langar að kveðja hann hér með nokkrum orðum um leið og ég þakka honum fyrir alla góðvild og vinarþel sem hann sýndi mér í þau ár sem ég þekkti hann. Elvar var faðir sonar míns Hilmars. Við átt- um ekki samleið í lífinu. Elvar ELVAR RAGNARSSON ✝ Elvar Ragnars-son fæddist í Súðavík 16. janúar 1957. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði 29. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Súðavíkur- kirkju 5. janúar. eignaðist yndislega konu hana Önnu sem var hamingja hans ásamt Guðrúnu og Ragnari börnum þeirra. Hilmari reynd- ist hann góður faðir og Sóloni besti afi. Elvar var, eins og all- ir vissu sem hann þekktu, frábær vinur, mátti ekkert aumt sjá og átti alltaf eitthvað fallegt til að segja við vini sína. En nú erum við með hjartað fullt af sorg þegar við kveðjum kæran vin. Elsku besti Hilmar minn, Sólon, Anna, Guðrún og Ragnar. Ég votta ykkur alla mína samúð og bið algóðan guð að blessa minn- inguna um góðan dreng. Rafnhildur.             1- '"#            '  (   '       $   67 !!" 1 )0 * ##   !#&'67 !!" #1$ ! ##  ) 67 ! ##  *(#  !!" 2 67 !!" , "0  ! ##  5"5+ ) *              86  9    3&(5:: %*   + $   ) (  "    $  1 % (!!" %!1 ! ##  2 % (!!"   & ! ##  ;' % (!!"      5" 5((5+
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.