Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 40

Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Nikólína Jó-hannsdóttir fæddist í Borgar- gerði í Norðurárdal í Akrahreppi 12. mars 1909. Hún lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Sauðárkróki á pálmasunnudag, 24. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Sig- urðsson, bóndi í Borgargerði og síð- ar á Úlfsstöðum í Blönduhlíð, f. 15. júní 1883, d. 14. mars 1970, og kona hans Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, f. 25. desember 1885, d. 3. mars 1975. Systkini Nikólínu eru: Sigrún, f. 18. mars 1914, d. 20. september 1997. Hún var gift Sigurði Jónassyni frá Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðar- strönd, f. 29. október 1910, d. 11. apríl 1978; Sigurður Norðdal, lengi bóndi á Úlfsstöðum, f. 11. júní 1916, d. 28. febrúar 2002. Eft- irlifandi kona hans er Hólmfríður Jónsdóttur frá Víðivöllum í Akra- hreppi, f. 3. apríl 1915; Jónas Gunnlaugur, húsgagnasmiður á Akureyri, f. 11. október 1917, d. 15. júní 1976. Hann var kvæntur Rósu Gísladóttur frá Akureyri, f. 31.3. 1919, d. 23.1. 1999. Nikólína giftist 2. maí 1931 Gísla Gottskálkssyni, bónda, skólastjóra og vegaverkstjóra frá Syðstu-Grund í Akrahreppi, f. 27. febrúar 1900, d. 4. janúar 1960. Börn þeirra eru fimm: 1) Jóhann Ingvi Gíslason, f. 8. ágúst 1933, bóndi í Sólheimagerði í Akra- hreppi. Hann er ókvæntur og barnlaus. 2) Sigrún Gísladóttir, f. 11. júlí 1935, skrifstofustjóri. Hennar maður er Guðmundur Hansen frá Sauðárkróki, f. 12. kennari. Kona hans er Anna Hall- dórsdóttir frá Stóru-Seylu í Skagafirði og eiga þau fjögur börn sem eru: Gísli Óskar Kon- ráðsson, f. 6. nóvember 1971, maki Þórey Sigurjóna Karelsdóttir, þau eiga son; Ása Dóra Konráðsdóttir, f. 20. nóvember 1973, gift Árna Ragnari Stefánssyni frá Sauðár- króki, þau eiga tvo syni; Davíð Örn Konráðsson, f. 2. júlí 1975; Elvar Atli Konráðsson, f. 28. júní 1976. Nikólína sleit barnsskónum á fæðingarstað sínum, Borgargerði, til átta ára aldurs en flytur þá að Úlfsstöðum í sömu sveit ásamt fjölskyldu sinni. Á uppvaxtarárum fékk hún venjulega skyldunáms- fræðslu eins og hún var í sveit á Ís- landi á fyrri hluta síðustu aldar. Auk þess stundaði hún eins vetrar nám í Kvennaskólanum á Blöndu- ósi, veturinn 1927–1928. Þar nam hún þau fræði sem í hald komu um langt árabil við bústjórn innan- stokks á miklu myndarheimili og varð lagin og athafnasöm hann- yrðakona sem einnig fékkst við að sauma og prjóna og áhuga á garð- yrkju og skógrækt hafði hún einn- ig. Nikólína var mikil myndarkona sem eftir var tekið hvar sem hún fór. Hún og Gísli maður hennar hófu búskap í Sólheimagerði árið 1935 og bjuggu þar góðu búi til ársins 1960 er Gísli lést fyrir aldur fram. Þau byggðu upp bæinn, íbúðar- og peningshús, og hófu umfangsmikla ræktun, þannig að búskapur þeirra varð blómlegur og skilaði góðum arði ásamt öðr- um störfum húsbóndans. Fyrstu árin eftir missi bónda síns bjó Nikólína áfram á jörðinni í nokkur ár en var síðan bústýra þar hjá Jó- hanni syni sínum í löngum ekkju- dómi. Komin fast að níræðu lá leið hennar til Sauðárkróks á hjúkr- unarheimili fyrir aldraða og þar dvaldist hún síðustu árin við gott atlæti og umönnun starfsfólks. Útför Nikólínu fer fram frá Miklabæjarkirkju í Akrahreppi í dag og hefst athöfnin klukkan 14. febrúar 1930. Þau búa í Kópavogi og eiga fjóra syni. Þeir eru: Gísli H. Guðmunds- son, f. 22. júní 1957, kvæntur Önnu Hug- rúnu Jónasdóttur frá Siglufirði, þau eiga þrjú börn; Friðrik H. Guðmundsson, f. 4. desember 1958, kvæntur Ingibjörgu Rögnu Óladóttur, þau eiga þrjú börn; Krist- ján Gottskálk Guð- mundsson, f. 3. mars 1960, kvæntur Hjör- dísi Svavarsdóttur frá Lyngholti í Skagafirði, þau eiga fjögur börn; Árni Jökull Guðmundsson, f. 21. mars 1962. 3) Halldór Gíslason, f. 21. apríl 1938, bifvélavirki. Kona hans er Fanney Sigurðardóttir frá Borgarfirði eystra. Þau búa í Kópavogi og eiga tvö börn. Þau eru: Gísli Sverrir Halldórsson, f. 19. janúar 1956, hans kona var Jónína Hallsdóttir, þau eiga þrjú börn; Fjóla Kristín Halldórsdóttir, f. 6. mars 1962, gift Magna Þór Geirssyni, þau eiga fjögur börn. Auk þess á Halldór son, Brynjólf Dan. Kona hans er Kolbrún L. Hauksdóttir. Þau eiga tvö börn; 4) Ingibjörg Salóme Gísladóttir, f. 15. mars 1943, bókasafnsfræðing- ur. Hennar maður er Óli Gunn- arsson frá Akranesi. Þau búa í Kópavogi og eiga tvær dætur. Þær eru: Líney Óladóttir, f. 3. ágúst 1965. Fyrri sambýlismaður hennar var Þorsteinn Sigtryggs- son og eiga þau eina dóttur, seinni sambýlismaður er Sigurbjörn Kristjánsson og eiga þau tvö börn; Sigrún Óladóttir, f. 4. febrúar 1970. Unnusti hennar er Valdimar Örn Halldórsson. 5) Konráð Gísla- son, f. 12. maí 1946, grunnskóla- Nikólína Jóhannsdóttir, eða Lína eins og hún var kölluð, var á 94. ald- ursári þegar hún féll frá. Banamein hennar var þung lungnabólga. Lengst af átti hún heima í hinum sjálfstæða og barnvæna Akrahreppi, þeim sem hvorki er lengur hægt með góðu móti að kenna við sýslu né hér- að. Þaðan fór hún eftir tæplega níu- tíu ára dvöl, „eftir fimmtíu ára dvöl“ kvað skáldið forðum um sig og „með- ferðina“ þar. Lína var hins vegar ekki alls kostar ánægð með að hafa þessi vistaskipti, sem þó voru nauð- synleg. Þá var hugurinn óbugaður sem jafnan áður en líkamsþrekið tekið að þverra. Það vildi hún helst ekki viðurkenna. Dæmi þar um er að þegar henni var ráðlagt að fá sér staf til að ganga við, þá rúmlega áttræð, á hún að hafa sagt: „Nei, stafir eru bara fyrir gamalt fólk.“ Þennan þátt í skapgerð Línu skynjuðu jafnvel börn á óvitaaldri. Guðmundur H. Gísla- son, langömmubarn hennar, mun hafa verið á fimmta árinu þegar hann leit upp frá tölvuleik og sagði: „Hún langamma mín í sveitinni er elst, hún er stærst, hún er sterkust og hún er ódrepandi.“ Það var á miðjum sjötta áratug síðustu aldar sem ég fór að venja komur mínar á heimili Línu og Gísla í Sólheimagerði og þá í fylgd með konuefni mínu, Sigrúnu dóttur þeirra. Þar var mér strax vel tekið og það sá ég við fyrstu sýn að þarna var stórt bú og mikið myndarheimili. Húsbóndinn hafði ekki mikinn tíma aflögu fyrir búverk þar sem hann hafði störfum að gegna á öðrum vett- vangi bæði sumar og vetur, við vega- verkstjórn í héraðinu og við kennslu barna í hreppnum. Þá kom það oft í hlut Línu að fylgjast með útivinnunni og stjórna því fólki sem vann að bú- skapnum eða við nýbyggingar og ræktun. Það gat verið vinnufólk, kaupafólk, verkamenn og smiðir. Slík verkstjórn fór henni einatt vel úr hendi. Ég minnist þess frá þess- um árum að eitt sinn var ég á heim- ilinu um jól og einnig um páska. Ekki gleymi ég hangikjötinu sem hverjum og einum var skammtað á aðfanga- dagskvöld og góður þótti mér feiti bringukollurinn með laufabrauði og vænni smjörflís. Skammturinn entist fram yfir áramót en til hans var oft gripið sem snarls árdegis eða að kvöldlagi þegar seint var komið heim. Þetta var gamall sveitasiður í Blönduhlíðinni sem ég þekkti ekki í raun áður. Lína stóð ein fyrir búinu í Sól- heimagerði í nokkur ár eftir að hún missti ágætan mann sinn snemma árs 1960 en lét það síðan koma í hendur elsta sonarins, Jóhanns Ingva, sem hafði unnið búinu vel og hafði viljann sem til þurfti. Á þessum árum tók Lína virkan og heilladrjúg- an þátt í uppeldi sona okkar Sigrún- ar. Þar voru þeir á sumrin og reynd- ar einnig stundum að vetri til þegar þeir voru ungir, ekki komnir á skóla- aldur. Þar var þeim kennt að gott verksvit væri meira virði en allur annar vísdómur og þar lærðu þeir að tala gott og kjarnyrt íslenskt mál þannig að þegar þeir komu heim úr sveitinni var á orði haft að þeir töl- uðu eins og fullorðnir menn. Matur var þar jafnan mikill og góður og ber í því sambandi að nefna sérstaklega nýmjólkina spenvolgu sem alltaf var nóg til af fyrir ungt fólk. Þarna fundu allir sem komu að gestrisni var í heiðri höfð. Lína var mikil myndarkona, fríð sýnum og fönguleg og sómdi sér afar vel þegar hún var komin í íslenskan búning sem hún átti. Hún var hrein- skiptin í tali og drengskaparkona sem vildi hafa gott samband við fólk og rausnarkona og kom það meðal annars fram í því að hún var óspör á góðar gjafir til afkomenda sinna við hátíðleg tækifæri. Varð þar engin þurrð á þótt aldurinn færðist yfir og í fleiri horn væri að líta eftir því sem hópurinn stækkaði. Þá vildi hún halda góðu sambandi við allt sitt fólk og gerði það m.a. með heimsóknum. Í sína fyrstu utanlandsferð, sem þann- ig var til komin, fór hún haustið 1977. Kom hún þá í heimsókn til okkar Sig- rúnar til Edinborgar þar sem við bjuggum um skeið og dvaldi hjá okk- ur í hálfan mánuð. Eftir það skrapp hún nokkrum sinnum út fyrir land- steinana, hélt t.d. upp á áttræðisaf- mæli sitt með fjölskyldunni í borg- inni Trier við Móselfljót. Bæði fyrir og eftir þá ferð fór hún til Danmerk- ur og Svíþjóðar í heimsókn til barna- barna sem þar voru við nám. Nú að leiðarlokum er margt að þakka og margs að minnast. Blessuð sé minning hennar og megi hún hvíla í friði. Guðmundur Hansen. Síðastliðinn pálmasunnudag, 24. mars, lést á Heilsustofnuninni á Sauðárkróki tengdamóðir mín, Nikó- lína Jóhannsdóttir, oftast kölluð Lína. Aldurinn var orðinn hár, 93 ár, en þótt líkaminn væri orðinn þreytt- ur var Lína lengstum bærilega hress andlega. Lína var elst fjögurra systkina, sem nú eru öll látin. Lína fæddist í sveit, Borgargerði í Norðurárdal, og segja má að tengsl hennar við sveit- ina – náttúruna hafi aldrei rofnað, þrátt fyrir sjúkrahúsvist næstum fjögur síðustu æiviárin. Lína ólst upp í föðurgarði, fyrst í Borgargerði og síðan á Úlfsstöðum í Blönduhlíð og vandist þar hefðbundnum sveita- störfum, jafnt úti sem inni. Árið 1931 giftist Lína Gísla Gott- skálkssyni, kennara og vegaverk- stjóra. Þau hjón keyptu jörðina Sól- heimagerði í Blönduhlíð, þá húsalitla, og byggðu algjörlega upp, bæði íbúðarhús og peningshús. Einnig var ráðist í mikla ræktun lands. Þau hjón voru samrýnd og samstiga í aðgerðum sínum enda búnaðist þeim vel. Lína lét ekki sitt eftir liggja enda margur starfinn og heimilið lengstum mannmargt. Þeg- ar hefðbundnum vinnudegi lauk var gjarnan tekið til við að prjóna eða sauma en Lína var afar flink hann- yrðakona. Lína var áhugasöm um trjá- og blómarækt og kom sér upp fallegum garði sunnan við bæinn og síðar all- nokkrum trjálundi norður undir gamla þjóðveginum. Það var mikill missir fyrir Línu þegar Gísli lést, langt um aldur fram, árið 1960. Hér urðu að sjálfsögðu mikil kaflaskil í hennar lífi en hún hélt ótrauð áfram og gerðist nú bú- stýra hjá elsta syni sínum, Jóhanni. Ég kynntist Línu fyrst árið 1965 er ég og dóttir hennar, Ingibjörg Sal- óme, fórum að draga okkur saman. Er skemmst frá því að segja að Lína tók mér afar vel og fór alla tíð vel á með okkur. Lína var fríð kona og tiginmann- leg og virkilega glæsileg þegar hún bjó sig upp á, en það gerði hún gjarn- an á tyllidögum og hafði yndi af. Lína hafði ákveðnar skoðanir í þjóðmálum, sérstaklega er laut að landbúnaði, og var ekki alltaf sátt við aðgerðir á hverjum tíma og ég man að hún sagði stundum: „Það held ég að þeir séu nú alveg orðnir vitlausir, karlarnir.“ Áreiðanlega hafði hún oft mikið til síns máls, að minnsta kosti er ástandið í landbúnaðarmálunum ekki allt of björgulegt. Það hefur frá upphafi ferða okkar norður verið tilhlökkunarefni að koma í Skagafjörðinn. Ég hef að vísu aldrei orðið svo mikill Skagfirðingur í mér að ég hafi fellt tár þegar ég hef komið á fögrum sumardegi niður af Vatnsskarði og séð út um eyjar og fram um Blönduhlíðarfjöll, en það hefur legið nærri. Stór hluti af til- hlökkuninni voru endurfundir við tengdamóður mína og hennar fólk. Ekki skemmdi fyrir að þegar komið var heim á hlað í Sólheimagerði kom pönnuköku- og hangikjötsilmur á móti manni. Á svona stundum var Lína í essinu sínu, að fá fólkið sitt heim í sveitina og gera vel við það. Á kvöldin var svo setið og spjallað og Lína rifjaði upp liðna tíð, t.d. þegar hún var að koma frá Akureyri að vetri til og ferðin tók fjóra daga vegna illviðris og fannfergis. Árið 1998 varð Lína að fara út á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki vegna heilsubrests. Þetta var Línu afar þungbært þó að hún vissi að ekki yrði undan komist. Það var henni huggun harmi gegn að fá stofu með gluggum sem vísa fram um fjöll og dali Skaga- fjarðar. Framan af dvölinni á spít- alanum hafði Lína heilsu til að fara með okkur í stuttar ferðir fram í Sól- heimagerði og hafði hún mikla ánægju af. Einnig fór hún með okkur einn góðviðrisdag heim að Hólum og út í Hofsós. Í þeirri ferð kom hún mér virkilega á óvart með því að fara með fjölmargar lausavísur eftir því sem staður og stund blésu henni í brjóst og er reyndar synd að þessar vísur og fleiri sem hún kunni skuli ekki hafa verið skráðar. Það er komið að leiðarlokum. Ég votta ástvinum Línu innilega samúð og þakka ánægjulega samfylgd. Óli Gunnarsson. Elskulega amma mín. Margs er að minnast og þér á ég margt að þakka. Það var alltaf jafn skemmtilegt að heyra stríðnishláturinn þinn, enda fannst þér gaman að grínast og láta grínast í þér. Báðum fannst okkur það nú jafn sniðugt þegar þú kallaðir mig Sigrúnu litlu. Þú varst glæsileg kona og hafðir unun af því að klæðast huggulegum fötum og vera vel til höfð. Það var ósjaldan sem við kíktum saman í búðir, ýmist á Króknum, í Reykjavík eða í Amaró á Akureyri á sínum tíma. Þá varst þú nú vís til að kaupa vel valda gjöf handa mér. Sumrin sem ég sem krakki dvaldi hjá þér og Jóhanni frænda í Sól- heimagerði eru mér minnisstæð. Nokkur þeirra svaf ég á dýnu við hlið þér og þau voru ófá kvöldin sem við lásum Hendes Verden saman, sem var fastur liður eftir Króksferð. Þú sást með sóma um heimilishaldið í Sólheimagerði í áratugi. Fyrir mér er dæmigerð minning frá þeim tíma þú vinnandi í eldhúsinu, raulandi lög sem ég kannaðist ekki við þá og fannst forn og æði framandi. Gaman var að heyra þig segja frá uppvexti þínum í Skagafirði. Ég man enn hvað mér þótti mikið til þess koma að vinnumennirnir á bernsku- heimili þínu, Úlfsstöðum, skyldu hafa séð um að söðla hestinn fyrir þig. Það fannst mér sýna hversu mikil hefðardama þú varst. Já, það eru svo ótalmargar ánægjulegar minningar sem ég á frá samveru- stundum okkar sl. þrjá áratugi og vil ég fá að þakka þér fyrir þær og að hafa ávallt verið virkur þátttakandi í lífi mínu. Guð geymi þig. Sigrún Óladóttir. Við syrgjum aðeins gleðina og hið góða sem við söknum hjá ástvinum að þeim gengnum. Þannig er það með hana ömmu sem andaðist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki á pálma- sunnudag, tæpum hálfum mánuði eftir 93. afmælisdaginn sinn. Einkennilegar þessar tilviljanir, en amma var elst fjögurra systkina og bara hálfur mánuður liðinn frá út- för bróður hennar, hans Sigga á Úlfsstöðum. Amma var barn síns tíma og mjög mótuð af umhverfi sínu, en hún lifði alla sína ævi í Blönduhlíðinni, fyrst í Borgargerði í Norðurárdal, síðan á Úlfsstöðum ásamt fjölskyldu sinni þar til hún og afi hófu búskap í Sól- heimagerði, sem þá hefur verið hálf- gert örreytiskot. Síðan þá er allt breytt á bæjunum í Blönduhlíðinni, kynslóðaskipti orðið á nánast hverj- um bæ, ýmist hafa börnin tekið við eða nýtt og dugmikið fólk flutt í sveitina, nema í Sólheimagerði. Þar var amma þar til fyrir tæpum fjórum árum og Jóhann föðurbróðir minn, alveg eins og forðum þegar ég fór að koma í heimsókn fjögurra til fimm ára gamall fyrir rúmum fjöru- tíu árum. Lengi vel fannst manni að þetta væri eitthvert eilíft ástand sem aldrei myndi breytast, amma og Jó- hann yrðu bara þarna eins og þau höfðu alltaf verið. Ég og nafni minn Hansen vorum ekki háir í loftinu þegar við fórum að koma og vera hjá ömmu í sveitinni á sumrin og reyndar oftar árið um kring í fríum, svo var einnig um fleiri af barnabörnunum mann fram af manni. Það var gott að vera hjá ömmu og Jóhanni í sveitinni, alltaf nóg að gera. Ekki var nú amma alltaf sátt við að við pjakkarnir skyldum vera fyrst á hestvélum og síðar á drátt- arvélunum, löngu áður en við höfðum lögboðinn aldur til, en við elskuðum það að sjálfsögðu. Amma var á margan hátt sérstæð kona sem hélt fast í gömul gildi alda- mótakynslóðarinnar og leit á sig sem húsbónda á sínu heimili alla tíð. Hún var hreinskilin og lét sínar skoðanir í ljós umbúðalaust þrátt fyrir að það félli ekki alltaf öllum í geð. Oft kom þetta fram, t.d. þegar nýir fjöl- skyldumeðlimir komu til sögunnar, þá var ekki alltaf sama hvað börnin voru skírð! Amma var alla tíð heilsuhraust og alveg fram undir nírætt var hún bú- stýra hjá Jóhanni, oft á mannmörgu heimili þar sem vinnumenn og -kon- ur komu og fóru á hverju ári eins og víða tíðkast til sveita. Á 89. ári fluttist hún síðan á Hjúkrunarheimili fyrir aldraða við sjúkrahúsið á Sauðárkróki og dvald- ist þar við góða umönnun starfsfólks. Ég hitti ömmu í síðasta sinn á þrettándanum. Þá var hún bara nokkuð hress, hafði mestar áhyggjur af því að við fengjum ekki nóg að borða og drekka úr nógu fínum bolla- pörum. Þannig var amma, vildi hafa stíl yfir hlutunum. Blessuð sé minning hennar. Gísli Sverrir. Ég á henni ömmu minni margt að þakka, en hún hefur verið stór hluti af lífi mínu frá því að ég var barn. Ég var hálfgerður heimalningur hjá henni og Jóhanni móðurbróður mín- um allt fram á unglingsár. Þegar ég var unglingur dvaldi ég heilu sumrin hjá þeim. Ég gat varla beðið eftir að skóla lyki á vorin og að ég gæti drifið mig norður í Sólheimagerði, en það var bærinn hennar ömmu og þar bjó hún mestan hluta ævi sinnar. Amma kenndi mér margt, hvort sem það sneri að heimilisstörfum eða bara það að búa sig upp á. Amma hafði gaman af því að punta sig og aldrei gleymi ég því hve gaman var að skoða skartgripaskrínð, sem hún átti. Ekki var það neitt leiðinlegt að fá að skoða hjá henni allt þetta fínerí. Ég held að áhuga minn á fínum föt- um og skarti hafi ég fengið í arf frá henni. NIKÓLÍNA JÓHANNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.