Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 16
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÝSLUMAÐURINN á Selfossi,
Ólafur Helgi Kjartansson, er þriðji
sýslumaðurinn sem kemur til emb-
ættisins frá Vestfjörðum. Ólafur
tók við embættinu 1. janúar á
þessu ári. Stefán Bjarnason var
sýslumaður Árnessýslu 1879 –
1890 og Magnús Torfason 1921 –
1936. Ólafur byrjaði sem fulltrúi
sýslumanns á Selfossi í maí 1978
en hafði þar áður verið starfs-
maður hjá sýslumanninum á Ísa-
firði. Hann var skattstjóri á Vest-
fjörðum frá 15. ágúst 1984 til 14.
okt 1991. og síðan sýslumaður á
Ísafirði frá 15. október 1991.
Ólafur segir samfélagið á Suður-
landi annarrar gerðar en það sem
er á Vestfjörðum. „Ég þekkti þetta
samfélag hér áður en ég kom, þar
sem ég hafði búið hér áður. Hér á
Suðurlandi virðist samfélagið
streyma fram sem lygnt fljót en
fyrir vestan má líkja því við fossa
og flúðir með lygnum hyljum á
milli. Það er þó ekki þar með sagt
að maður sjái allt sem býr í fljótinu
bara með því að horfa á það,“
sagði Ólafur þegar hann var innt-
ur eftir muninum á samfélaginu
fyrir vestan og því á Suðurlandi.
Samfélagið er heillandi
„Samfélagið hérna er heillandi
að mörgu leyti. Selfoss er þjón-
ustukjarni sem sprettur upp úr
landbúnaðinum en hann stendur
traustum fótum hérna. Svo er
þjónustan og afþreyingin farin að
skipta meira máli núna. Hér eru
5100 sumarbústaðir sem þýðir að
um helgar eiga sér stað þjóðflutn-
ingar yfir Hellisheiðina frá höf-
uðborgarsvæðinu sem kallar á
mikla þjónustu við umferðina og
skemmtanir fólks. Um helgar má
segja að það sé þéttbýli í sveit-
unum hér í Árnessýslu. Þetta þýðir
að hagsmunir þessa fólks eru mis-
munandi og stór hópur fólks úr
öðrum héruðum sækir þjónustu til
sýslumannsins á Selfossi.
Mér finnst mjög upplífgandi að
sjá áhrif Fjölbrautaskólans hér í
samfélaginu. Hann tengir saman
íbúa Suðurlands. Annað er líka
ótrúlegt en það er uppbyggingin
hér á svæðinu sem sýnir að Árnes-
sýsla er framtíðarbúsetusvæði
fólks. Kostirnir af nálægðinni við
höfuðborgarsvæðið eru snöggtum
meiri en gallarnir.
Varðandi starfshætti hjá emb-
ættunum þá hafa þeir breyst mikið
frá því sem var fyrr á árum með
því að sett hafa verið stjórn-
sýslulög sem embættismenn verða
að halda sig við. Nú þarf að gera
allt strax og allt þarf að vera skrif-
legt. Í þessu sambandi minnist ég
heimspekilegs viðhorfs Páls Hall-
grímssonar, fyrrum sýslumanns,
gagnvart embættinu og hann rakst
sárasjaldan á menn. Hann einfald-
aði hlutina og náði því að fara
mannlegu leiðina og þá stystu að
markinu."
Stones-áhuginn er mikill
„Já, það er alveg rétt, áhugi
minn á Rolling Stones er enn mik-
ill,“ segir Ólafur en hann var dóm-
ari á söngkeppni Fjölbrauta-
skólanema nú fyrir skömmu.
„Þessi áhugi á Stones byrjaði hjá
mér sem barni í Grafningnum og
varð til þess að ég fór að hlusta á
erlendar útvarpsstöðvar og komst
þannig í snertingu við það sem var
að gerast nýjast í tónlistinni. Svo
heldur Stones alltaf áfram og ég
held líka áfram að hlusta á þá. En
ég hef líka áhuga á annarri tónlist
og er þeirrar skoðunar að okkur
vanti góðan tónleikasal hér fyrir
austan Hellisheiði.
Núna hlakka ég mjög til sumars-
ins hér í Árnessýslu, að njóta þess
með fjölskyldunni að rifja upp
gömul kynni af landi og fólki,“
sagði Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður á Selfossi.
Selfoss
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður utan við sýsluskrifstofuna.
ÚTIBÚ Landsbankans í Þorláks-
höfn og fiskverkunin Auðbjörg hf.
hafa styrkt Grunnskólann í Þor-
lákshöfn til kaupa á kennsluefni í
ensku ætluðu elstu nemendum
skólans. „Ástæða þess að ekki er
farin hefðbundin leið í öflun náms-
gagna í ensku fyrir skólann er að
við teljum að Námsgagnastofnun
bjóði ekki upp á besta námsefnið á
markaðnum,“ sagði enskukennari
skólans, Sigrún Berglind Ragnars-
dóttir.
Bækurnar sem skólinn notar og
hafa verið notaðar síðan haustið
2000 heita REWARD og eru þær
samsettar úr margvíslegu lesefni,
hlustun, ritunarverkefnum og öðru
ítarefni. Reynslan af þessu efni er
góð og sagði Sigrún að efnið hent-
aði betur kunnáttu og getu nem-
enda í ensku í dag en annað efni
sem hún hefði kynnt sér. Árangur
kemur að vísu ekki endanlega í
ljós fyrr en þeir nemendur sem
byrjuðu með efnið eru komnir í
elsta bekk.
Námsefnið er pantað beint frá
Englandi, er nokkuð dýrt og því
kemur það sér vel að þessi tvö fyr-
irtæki skuli hafa sýnt skólanum
þennan velvilja og tekið að sér að
fjármagna kaupin í þessi þrjú ár
sem það tekur að eignast sett í
þrjá elstu bekki skólans.
Styrkja
Grunn-
skólann til
bókakaupa
Þorlákshöfn
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Sigrún Berglind Ragnarsdóttir enskukennari, Ægir Einarsson Haf-
berg, útibússtjóri Landsbankans í Þorlákshöfn, og Einar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Auðbjargar hf.
ÚT er komið dreifirit, sem unnið er
af Tryggva Þórðarsyni líffræðingi á
Rannsóknarsetri Háskólans í
Hveragerði, um náttúruperlu Hver-
gerðinga – Varmána. Þar segir m.a.
að Hvergerðingar standi nú á nokkr-
um tímamótum í viðleitni sinni til að
draga úr mengun Varmár.
Nú er komin fullkomin skólp-
hreinsistöð þar sem allt skólp úr
skólpveitu Hveragerðis er hreinsað
áður en því er veitt í ána. Skólpið er
nú hreinsað með lífrænni hreinsun,
þar sem örverur eru notaðar til að
brjóta niður lífræn efni. Ef eitur og
spilliefni berast í skólpið minnkar
hreinsivirknin. Til að tryggja há-
marksafköst stöðvarinnar þarf virka
þátttöku bæjarbúa, þ.e. að draga úr
notkun skaðlegra efna og koma í veg
fyrir að þau hafni í skólpinu. Þetta er
stórt skref í verndun Varmár og líf-
ríkis hennar.
Í samtali við Guðmund Baldurs-
son tæknifræðing bæjarins kemur
fram að þetta er liður í umhverfisá-
taki bæjarins og Staðardagskrár-
verkefnisins. Um leið er verið að
minna á Varmána – náttúruperlu
bæjarins. Undanfarin ár hefur verið
unnið að því að smíða þessa skólp-
hreinsistöð og útgáfa dreifiritstins
er lokahnykkurinn í þeirri vinnu.
Dreifiritinu er einnig ætlað að gera
bæjarbúa meðvitaðri um umhverfi
sitt og taki þátt í að vernda það með
bæjaryfirvöldum. Guðmundur
nefndi að í bæklingnum væri m.a.
sagt frá notkun þvottaefna, æskilegt
væri að fólk notaði þau þvottaefni
sem eru umhverfisvæn, því þar fara
saman gæði þvottarins og verndun
umhverfisins.
Verkefnisstjóri Staðardagskrár
21, Kolbrún Þóra Oddsdóttir, segir
að búið sé að leggja mikla vinnu í
verkefnið sem vonandi verði öðrum
leiðarljós um það hvernig við getum
öll minnkað slæm áhrif okkar á nátt-
úruna. Auk Kolbrúnar eru í fram-
kvæmdaráði Staðardagskrár þau
Anton Tómasson, Garðar Árnason
og Sigfríður Sigurgeirsdóttir.
Næstu verkefni framkvæmdaráðs-
ins eru m.a. að vera með veiðidag
fyrir börn í tengslum við hreyfingu
og hreyfingarleysi, bjóða fólki upp á
gönguferð um nánasta umhverfi og
kynna fjölbreytileika umhverfisins,
auka vatnsdrykkju hjá grunnskóla-
börnum og upplýsa fólk um flokkun
og skil á sorpi með.
Verndun Varmár – ný skólphreinsistöð
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Varmá – náttúruperla staðarins.
VELUNNARAR heilsugæslunnar í
Þorlákshöfn eru margir og oft á ári
eru hennar færðar gjafir. Nú fyrir
skömmu komu félagar frá Lands-
samtökum hjartasjúklinga og Félagi
hjartasjúklinga á Suðurlandi fær-
andi hendi.
Með í farteskinu var vandað þrek-
hjól af Funturi-gerð. Baldur Krist-
jánsson, stjórnarformaður heilsu-
gæslunnar, tók við gjöfinni úr hendi
Vilhjálms B. Vilhjálmssonar, for-
manns Landssambands hjartasjúkl-
inga.
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Frá vinstri: Sigríður Bergsteinsdóttir, formaður Félags hjartasjúklinga
á Suðurlandi, Helgi Hauksson heilsugæslulæknir, Vilhjálmur B. Vil-
hjálmsson, formaður Landssambands hjartasjúklinga, Laila Panduro
sjúkraþjálfari og Bergdís Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur.
Heilsugæsl-
unni færð-
ar gjafir
Þorlákshöfn
HALLDÓR Forni myndhöggvari var
með málverkasýningu að Stað á Eyr-
arbakka yfir páskahátíðina. Forni,
eins og hann kallar sig gjarnan,
kvaðst hafa verið að fikta við pensla
og striga síðast liðin tvö ár og hér var
svo árangurinn sýndur. Hann kvaðst
hafa leikið sér með ýmis form, en
þessar myndir væru af margháttuð-
um toga.
Athygli sýningargesta vakti hve lif-
andi andlit persónanna á ýmsum
myndunum væru. Myndirnar virtust
falla sýningargestum vel í geð og voru
margar þeirra þegar seldar. Högg-
myndir Forna og skúlptúrar hafa
undanfarin ár verið til ánægju og
prýði á ýmsum stöðum á Eyrarbakka.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Ein af myndum Halldórs Forna
á sýningunni.
Hliðarspor á
Eyrarbakka
Eyrarbakki
Samfélagið á
Suðurlandi ólíkt
því á Vestfjörðum