Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 26
NEYTENDUR 26 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MEISTARINN.IS Býður einhver betur? IKEA er opið: Virka daga kl. 10-18.30 Laugardaga kl. 10-17 Sunnudaga kl. 12-17 GLIMMA sprittkerti 100stk. í pakka295 kr. Glimrandi lágt verð ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 17 38 4 04 . 20 02 HAUKUR Valdimarsson aðstoðar- landlæknir segir ástæðu fyrir emb- ættið að „hafa áhyggjur“ af niður- stöðu rannsóknar á fjölda auka- og milliverkana vegna náttúrulyfja, nátt- úruvara og fæðubótarefna, sem greint hefur verið frá í Læknablaðinu, og Morgunblaðið sagði frá í gær. Haukur segir fjölda lækna sem orðið hafi varir við fyrrgreindar auka- verkanir meiri en ætla hefði mátt, en fram kom að 91 læknir hefði orðið var við slíkt og að 43 hefðu „hugsanlega“ orðið varir við það sama. Svarendur voru 410. Í niðurstöðum koma lang- flest tilvik með aukaverkunum, eða 78, vegna Herbalife, að mati lækna, og 47 vegna Ginseng, sem bæði flokk- ast undir náttúruvörur. Haukur segir landlæknisembættið eiga samstarf við Lyfjastofnun við af- greiðslu umsókna um leyfi til inn- flutnings á náttúruvörum og fæðubót- arefnum. „Við höfum auðvitað áhyggjur af þessum niðurstöðum og munum reyna, eftir sem áður, að upp- lýsa almenning um virkni þessara efna þegar það á við og fá það til þess að taka skynsamlegar ákvarðanir,“ segir hann. Einnig segir Haukur að reynt hafi verið að hvetja fólk til þess að láta lækninn sinn vita ef það er að taka inn náttúrulyf, náttúruvörur eða fæðu- bótarefni. „Fólk heldur ef til vill að læknar séu fordómafullir gagnvart þessum vörum, en það þarf ekki að vera. Auk þess er nauðsynlegt fyrir lækninn að hafa þessa vitneskju, þar sem tiltekin efni geta haft milliverk- anir við lyf sem viðkomandi tekur og jafnvel komið í veg fyrir virkni þeirra,“ segir hann. Mikill munur á náttúruvörum og náttúrulyfjum Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir mikinn greinar- mun gerðan á náttúruvörum, náttúru- lyfjum og fæðubótarefnum, en til stendur að þrengja skilgreininguna á fæðubótarefnum með tilskipun hjá Evrópusambandinu. „Skilgreiningin á náttúruvöru er vara sem unnin er úr efnum úr náttúrunni en ekki er skil- greind sem lyf. Náttúrulyf þurfa hins vegar að gangast undir nákvæma at- hugun hjá Lyfjastofnun áður en markaðsleyfi er veitt og þau má selja sem lyf,“ segir hún. Bæði lyf og náttúrulyf fá útgefið svokallað markaðsleyfi eftir að sótt er um leyfi til þess að markaðssetja lyfið til stofnunarinnar og með slíkri um- sókn þurfa að fylgja víðtæk gögn um alla framleiðslu, framleiðsluaðferðir, hreinleika, prófanir á innihaldsefnum, rannsóknir á eituráhrifum og virkni, segir Rannveig. „Kröfur til umsókna um markaðsleyfi fyrir náttúrulyf eru þó ekki jafnmiklar og til annarra lyfja, til dæmis hvað varðar rann- sóknir á virkni,“ segir hún. Veitt hefur verið veitt markaðsleyfi fyrir 12 náttúrulyf á Íslandi, að Rann- veigar sögn, og munu 2–4 þeirra vera á markaði. Greindu læknar frá fjórum tilvikum um aukaverkanir af völdum eins þeirra, það er Jóhannesarjurtar, í fyrrgreindri könnun í Lækna- blaðinu. Hvað fæðubótarefni áhrærir, sem bæði geta innihaldið náttúruvöru og efni sem búin eru til á rannsókna- stofu, segir Rannveig á döfinni hjá Evrópusambandinu að þrengja skil- greininguna á fæðubótarefnum. „Þá mætti einvörðungu skilgreina þekkt vítamín, málmsölt og snefilefni sem líkamanum eru nauðsynleg sem fæðubótarefni. Önnur efni sem hing- að til hafa verið kölluð fæðubótarefni mætti ekki kalla því nafni án sam- þykkis vísindanefndar ESB, sem ekki mun veita slíkt leyfi án þess að vís- indalegar rannsóknir liggi þar til grundvallar,“ segir hún. Rannveig segir Lyfjastofnun hafa „haft áhyggjur af þessum markaði“ um skeið, eins og tekið er til orða, þar eð framleiðendur náttúruvara og fæðubótarefna hiki ekki við að „al- hæfa um almenna vellíðan í kjölfar notkunar tiltekinna efna, þótt einung- is sé byggt á upplifun fáeinna einstak- linga,“ segir hún. Einungis farið yfir innihaldslýsingar Í rannsókninni benda læknar á fjölda aukaverkana af völdum Gin- seng og Herbalife, sem hvorttveggja teljast náttúruvörur, og segir Rann- veig náttúruvöru koma til meðferðar hjá Lyfjastofnun þegar sótt er um leyfi til innflutnings. „En þá er ein- ungis farið yfir innihaldslýsingar á umbúðum og leitað að efnum sem vit- að er að hafi lyfjaáhrif eða hættuleg áhrif. Í sumum tegundum Herbalife er að finna Ma huang, sem inniheldur efedrín og er skilgreint sem lyf og því bannað hér. Annað dæmi er Ripped Fuel, sem einnig getur innihaldið efe- drín og er því líka bannað hérlendis,“ segir hún. Engar aðrar kröfur eru gerðar til fæðubótarefna eða náttúruvöru nema hvað Lyfjastofnun kannar með skoð- un áletrun á umbúðir og innihalds- efni, sem fyrr segir, og gerir athuga- semdir við áletranir varðandi notkun ef þörf er á, segir Rannveig ennfrem- ur. „Herbalife og Ripped Fuel sem innihalda efedrín eru ekki heimiluð sem fæðubótarefni eða almenn vara á markaði hérlendis. Það myndi þurfa að sækja um markaðsleyfi sem lyf fyrir slíka vöru á grundvelli innihalds- efna,“ segir hún að síðustu. Læknar kveðast verða varir við fjölda aukaverkana af völdum náttúruvara Niðurstöður rannsóknar áhyggju- efni að mati landlæknisembættis Ný tilskipun um skilgreiningu á fæðubótarefnum mun vera á döfinni hjá Evrópusambandinu. VERÐLAGSEFTIRLIT ASÍ hefur sent frá sér leiðréttingu á verðkönn- un á lyfjum í apótekum á höfuðborg- arsvæðinu, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, þar sem fram kemur að Lyfja sé oftast með hæsta verð á lyfseðilsskyldum lyfjum til elli- og örorkulífeyrisþega. „Mistök starfsmanns Árbæjar- apóteks gerðu að verkum að rangt var farið með verð lyfja í apótekinu í könnun sem birt var í gær. Lyfja er oftast með hæsta verðið á lyfseðils- skyldum lyfjum til örorku- og ellilíf- eyrisþega en ekki Árbæjarapótek, eins og fram kom í fréttatilkynningu í gær,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Laugarnes- og Grafarvogs- apótek fylgja í kjölfar Lyfju Á eftir Lyfju eru Laugarnes- og Grafarvogsapótek næstoftast með hæsta verð á lyfseðilsskyldum lyfj- um til elli- og örorkulífeyrisþega, samkvæmt verðkönnun ASÍ. Munur á hæsta og lægsta lyfja- verði til þessa hóps er aldrei minni en 20% og allt upp í 261%, sam- kvæmt fyrrgreindri könnun. Lyfja dýr- ust fyrir elli- og ör- orkulífeyr- isþega ÝMUS ehf. flytur inn meðgöngu- og brjóstagjafahaldara úr bómull og spandex, Bravado, sem laga sig að brjóstun- um og veita stuðning þrátt fyrir formbreyt- ingar, eins og hjá mjólkandi mæðrum, eins og seg- ir í tilkynn- ingu. Bak- hlið haldaranna er „sportleg og veitir góðan stuðn- ing og heldur hlírunum á sínum stað, einnig meðan á gjöf stendur“. Bravado-haldararnir eru til í þrem- ur mismunandi gerðum og fjölda stærða, segir ennfremur í tilkynn- ingu. Litirnir eru hvítt, svart og ferskjulitt og mynstrin doppótt, rósótt og pardus. „Einnig eru til Bravado meðgöngunærbuxur, bæði hefðbundnar og með g-streng, sem og buxur upp fyrir maga,“ segir ennfremur í tilkynningu. Bravado-haldararnir fást fyrst um sinn í versluninni Móðurást við Auðbrekku 2. NÝTT Brjóstagjafa- haldarar sem laga sig að líkamanum REDKEN hefur sett á markað við- bót í vörulínu sína sem ætlað er að hafa róandi og slakandi áhrif á hár og hársvörð en í tilkynningu frá Hári ehf. kemur fram að 40% fólks segi hár sitt „þurrt, gróft og óstýrlátt“. Umrædd vörulína er seld undir merkinu True calm og segir ennfremur í tilkynn- ingu að efnasamböndin í hinni nýju vörulínu hafi „róandi, kælandi, streitulosandi og sefandi áhrif“ á hársvörð sem ekki er í jafnvægi. Í línunni er rakagefandi og kæl- andi sjampó með mentól, hárnæring sem vinnur gegn álagi á hárið og fljótandi, rakagefandi áburður sem borinn er á höfuðleður, gagnaugu og úlnliði. Á hann að stemma stigu við „þurrki, ertingu og spennu í hárs- verðinum“. Áburðurinn nefnist Quiet zone og ekki þarf að skola hár- ið á eftir. True calm vörulínan inniheldur kamilluolíu, black tea-kjarna, hvei- tiprótín og rakagefandi olíur úr sedr- usviði, kóríander, rósmarín og sítrus. NÝTT Rakagefandi nýjungar fyrir hárið VÍFILFELL hefur sett á markað Fanta gosdrykk með berjabragði, Fanta Wildberry, sem er þriðja Fanta bragðtegundin sem sett er á markað á Íslandi, samkvæmt upplýsingum frá Vífil- felli. Fanta Wildberry er til í hálfs lítra og tveggja lítra umbúð- um. „Fanta Wildberry er með blönduðu berja- bragði og hefur fengið frábærar viðtökur víða í Evrópu frá því dreif- ing hófst á síðastliðnu ári,“ segir ennfremur. Fanta með berjabragði ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.