Morgunblaðið - 06.04.2002, Page 47

Morgunblaðið - 06.04.2002, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 47 Það tekur mig sárt að þurfa að sjá á eftir honum svo allt of snemma. Ég vil votta foreldrum, systur og öllum öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Í von um að þér líði vel á nýjum slóðum kveðjum við þig nú, kæri vin- ur, hinstu kveðju. Örlygur Atli Guðmundsson og fjölskylda. Það er óendanlega sárt að þurfa að kveðja þig minn kæri vinur. Þegar þessi orð eru skrifuð er ég staddur á Ísafirði. Ég keyrði til Bolungarvíkur í gær og þá rifjuðust upp margar skemmtilegar stundir sem við áttum saman þegar við dvöldum þar og unn- um saman í frystihúsinu á daginn og spiluðum á böllum um helgar. Þetta sumar á Bolungarvík er einstakur tími í minningunni, áhyggjuleysi og bjartsýni voru það sem einkenndi þennan tíma. Ekkert var ómögulegt, vandamálin voru ekki vandamál held- ur verkefni sem einungis þurfti að leysa. Það var þó ekki slorið sem dró okkur saman heldur hin dýra list, tónlistin. Hæfileika á því sviði hafðir þú mikla og þegar mig vantaði tón eða hljóm leitaði ég til þín og þurfti ekki að bíða lengi eftir svari. Þú varst alltaf svo kátur og ávallt reiðubúinn að hjálpa ef eitthvað bjátaði á. Mér hefur alltaf fundist ég geta treyst þér fyrir hverju sem er. Það var sá horn- steinn sem vinátta okkar byggðist á, gagnkvæmt traust og virðing. Erfitt er að lýsa því hvað felst í slíkri vináttu en þau vináttubönd bresta ekki, jafn- vel þótt þú sért nú horfinn á braut. Það er dýrmætt að hafa átt slíkan vin og fyrir það er ég þakklátur. Þegar fram liðu stundir völdum við okkur ólíkan lífsstíl og tókumst á við lífið á ólíkan hátt en þrátt fyrir það dafnaði vinátta okkar. Vináttan var gjöf okkar hvors til annars, án skil- yrða og væntinga. Við skeggræddum oft um lífið og tilveruna og leystum lífsgátuna mörgum sinnum. Þótt mörgum spurningum hafi verið svar- að á svo skynsamlegan hátt hafði okkur ekki tekist að leysa hina stóru spurningu um tilgang lífs og dauða. Þeirri spurningu er enn ósvarað fyrir okkur sem eftir lifum. Ég bið fyrir þér minn kæri vinur og vona að þú hafir nú fundið þann frið og þau svör sem við leituðum að. Ég trúi því að í augnablikinu sé falinn gimsteinn, óendanlega verðmætur, vandlega hulinn draumum okkar og vænting- um. Steinninn er kærleikurinn í allri sinni dýrð, innsti kjarni okkar sjálfs, og til að snerta hann þurfa draumar okkar, skoðanir og væntingar að víkja. Hjartans vinur, ég trúi því að þú hafir nú fundið gimsteininn, sam- einast kærleikanum og fundið frið. Ég féll í þá gryfju að líta á það sem sjálfsagðan hlut að hafa þig innan seilingar, að geta alltaf hringt þegar minnst varði og skipst á skoðunum og ekki síst gamanyrðum eins og við gerðum svo oft. Hvenær lærist manni að njóta augnabliksins með okkar nánustu nákvæmlega eins og stundin birtist? Hvenær lærist manni að taka ekki hversdagslega hluti sem gefna? Það er í grámanum sem gimsteinninn er falinn, sveipaður slæðu hversdags- leikans. Það er besta gjöfin sem við getum fært samferðamönnum okkar því í andartakinu er uppspretta vin- áttunnar og kærleikans. Kæri vinur, ég kveð þig nú með söknuði. Ástvaldur Traustason. Í dag kveð ég þig minn kæri frændi og nafni, en þú kallaðir mig alltaf nafna þegar þú varst lítill. Það var að morgni 23. mars að ég fékk þá harmafregn að þú værir allur, það tók mig langan tíma að trúa því að þú værir ekki lengur á meðal okkar, svo ótímabær sem þinn hörmulega slysa- legi dauðdagi var. Við svona tímamót vill hugurinn reika til liðinna ára. Reyndar hef ég fylgst með þér frá því þú fæddist, en nokkurra ára hlé varð á samleið okkar, þegar þú fluttist ungur drengur til Svíþjóðar vegna náms foreldra þinna. Að vísu heim- sóttum við hjónin fjölskyldu þína sumarið 1977 og fjölskyldan bar okk- ur á höndum sér, sem hennar var von og vísa. Frá þeirri heimsókn er okkur ógleymanlegt ferðalag sem við hjónin fórum ásamt þér. Við fengum lánað- an fjölskyldubílinn, en við vorum al- veg ókunnug í Svíþjóð og töluðum vart orð í sænsku, sem þú talaðir sem innfæddur. Með leiðsögn og túlkun þinni varð ferðalagið ógleymanleg skemmtiferð, þar sem glens og gam- an þitt réð ríkjum. Tónlistarhæfileikar þínir voru óumdeildir og þar hefðir þú örugg- lega getað náð enn lengra. Ekki var ónýtt í góðra vina hópi að vita af þér nærri ef gítar var til staðar, þá lékst þú af fingrum fram nánast hvað sem beðið var um. Eitt áttum við frænd- urnir sameiginlegt varðandi tónlist- ina, báðir vorum við sannir Bítla- aðdáendur og ófá Bítlalögin lékst þú á gítarinn fyrir mig. Þinn aðall var þessi hispurslausa glaðværð og glens, ásamt því að geta skipt yfir í háheimspekilegar sam- ræður, ef því var að skipta, og þú varst vel heima í flestu sem bar á góma, hvort heldur var úr fortíð eða samtíð. Mér er það minnisstætt hversu afburða vel þú varst lesinn um heimsstyrjaldirnar fyrri og síðari ásamt fleiri sögulegum efnum. Að lokum viljum við Anna og frændsystkin þín þakka þér allar ánægjulegu samverustundirnar. Elsku Jósa, Mundi, Helga Salbjörg, Siggi Torfi og litlu drengirnir, ég og fjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi minning um góðan dreng lengi lifa. Sigurður Helgi Jóhannsson og fjölskylda. Sigurður Hrafn frændi minn var aðeins nokkrum dögum yngri en ég. Við þekktumst alltaf og vorum mikið saman; sér í lagi þegar við vorum lítil og hann var hjá ömmu sinni á Sauð- árkróki. Þar var margt brallað og einnig síðar í Laugarási og Reykja- vík. Fjölmörg atvik koma upp í hug- ann frá þessum tíma tengd leikjum, alls konar uppátækjum og óteljandi prakkarastrikum. Siggi Hrafn bjó yfir miklum per- sónuleika. Hann hafði sterka og óvenjulega krefjandi návist. Það var alltaf líf og fjör í kringum hann. Hann var skarpgreindur og skemmtilegur, en um leið sjálfum sér og öðrum erf- iður. Hann var stríðinn, músíkalskur, gáfaður, ógleymanlegur og heillandi. Siggi Hrafn dó af slysförum fyrir aldur fram. Ekki gafst ráðrúm til að kveðja og það er alltaf erfitt. Ég votta Jósu og Guðmundi, Helgu Salbjörgu og fjölskyldu hennar og öðrum ást- vinum hans samúð mína. Þeir, sem kynntust Sigurði Hrafni, gleyma honum aldrei. Ingibjörg Ásta. Það er engin einföld leið til að skýra frá andláti vinar og það er heldur engin leið að útskýra hvernig þér verður innanbrjósts þegar slík fregn berst þér til eyrna. Eitthvað á þessa leið hugsaði ég eftir að vinur minn frá menntaskólaárunum á Laugarvatni hringdi í mig og sagði: „Ég flyt þér nú engar gleðifréttir, hann Siggi læknisins er dáinn …“ Hvað er manni efst í huga þegar slík- ar fregnir berast? Trúlega er það ein- hvers konar söknuður. Söknuður vegna þess tíma er við áttum saman allir félagarnir á heimavistinni á Laugarvatni og er liðinn. Söknuður vegna heimsóknanna í Stuðlaselið meðan við báðir bjuggum í Reykja- vík. Söknuður vegna þeirra ára sem nutum ekki samvista og ræktuðum ekki nægilega vináttuna hin seinni ár. Þegar ég hugsa til baka finnst mér eins og við Siggi höfum aldrei verið sammála um neitt, en einhvern veg- inn finnst mér að það hafi aldrei skipt nokkru máli. Vinátta menntaskólaár- anna er þannig gerð. Hún er óháð skoðunum manna og leiðunum sem þeir velja sér í lífinu. Hún bara er. Eitt eftirminnilegasta atvik lífs míns er tengt Sigga læknisins. Þann- ig var að eftir gleðskap á heimavist- inni á Laugarvatni vorið 1993, þar sem við tíu ára stúdentar komum saman, fórum við félagarnir í gufu. Það upplýsist hér, ef einhver skyldi ekki hafa vitað það, að sjálfsagt þótti á þessum árum að klifra yfir veggi gamla gufubaðsins við Laugarvatn og fara í gufu. Við strákarnir fórum upp á þak og sigum þaðan niður á hellulagða stéttina fyrir neðan. Flest- ir. Ekki Sigurður Hrafn. Þótti honum lítilmannlegt að síga svona niður og stökk því þessa mannhæð eins og ekkert væri. Léttleiki og lipurð var sjaldan nefnt sem einn af höfuðkost- um Sigga og vildi því ekki betur til en að hann brotnaði á báðum hælum þegar niður kom. Fótamein þessi voru reyndar ekki staðfest þarna á staðnum og þrátt fyrir að Siggi kveinkaði sér og gæti sannarlega ekki stigið í fæturna báru menn sig þó mannalega og ekki átti þetta smáóhapp að skyggja á samgleðina. Ég bauðst m.a. til þess að bera hann á herðum mér upp í skóla og lét ekki sitja við orðin tóm heldur hafði í frammi tilburði í þá veru að hefja manninn á loft. Svo óheppilega vildi til að Sigurður rak þá hné í andlit mér. Af hreinni slysni auðvitað en á þeirri stundu var ég einhvern veginn ekki alveg dús við sjúklinginn. Réð þar mestu að viku seinna stóð til að ég gengi í heilagt hjónaband og þótti mér ekki fýsilegur kostur að koma heim til minnar heittelskuðu með fagurblátt glóðarauga í farteskinu. Allt fór það nú reyndar vel en ég vissi að Siggi hafði miklar áhyggjur af þessu atviki. Hann hringdi til að vita um niðurstöður málsins, var greini- lega mikið niðri fyrir og hafði mestar áhyggjur af brestum í vináttu okkar. Ég á hinn bóginn, eins og asni, böl- sótaðist út af þessu lengi. Allt of lengi. Ég átti ekki erindi til Reykjavíkur í nokkuð langan tíma eftir þetta og eins og gengur þegar langt er á milli manna fyrndist yfir þennan atburð en því sterkar kom hann fram í huga mér þegar ég fékk jólakort einu og hálfu ári síðar þar sem stóð: „Ég ætla rétt að vona að glóðaraugað sé hjaðn- að! Við þurfum að taka upp þráðinn fljótlega. Þinn vinur, Siggi Hrafn.“ Þá fyrst skildi ég þvílíkur reginasni ég gat verið og þvílíkur tilfinninga- maður Sigurður var. Hafði þetta leg- ið á honum eins og mara allan þennan tíma. Mikið fann ég hvað við glöddumst báðir þegar við sátum næst saman þegar ég kom til Reykjavíkur. Í einu vetfangi urðum við skólastrákar á nýjan leik, ekki sammála um neitt, en það skipti bara ekki nokkru máli. Það átti einhvern veginn svo vel við. Öll þessi saga er lýsandi fyrir Sig- urð Hrafn; seinheppinn, einlægur og trúfastur. Þar tóku kostirnir löstun- um fram. Mikið er ég hræddur um að sam- gleði árgangs ’83 verði miklum mun dauflegri þegar Sigga læknisins nýt- ur ekki lengur við en minningin lifir um góðan dreng. Guðmundi, Jósefínu og ástvinum öllum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ólafur Týr Guðjónsson. Elsku Siggi Hrafn. Ég mun alltaf minnast löngu samræðnanna okkar í eldhúsinu hjá mömmu þinni og pabba áður fyrr. Ég man best tónlistarhæfi- leikana þína, heimspekilegar hugleið- ingar þínar um lífið og tilveruna og svo man ég gamansemina og húm- orinn. Við vorum að mörgu leyti lík í okkur, höfðum bæði þörf fyrir grín og gaman en sökktum okkur líka oft í djúphyggnar og stundum dapurlegar hugleiðingar. Þess vegna skildum við svo vel hvort annað og náðum svo vel saman sem raun varð á. Það sýndi kímni þína við brúðkaupið mitt að senda mér ,,hnapphelduna“ ef ég skyldi þurfa að hafa stjórn á mann- inum mínum, það vakti mikla kátínu og þú vissir að svona fyndni félli mér í geð. Þú varst þekkingarleitandi, vissir bæði svolítið um svo margt en einnig mikið um margt smátt, því gastu rætt við alla um hvað sem var, sem þeir höfðu áhuga á, það var eiginleiki, sem þú hefur fengið frá foreldrum þínum og hafðir gott vald á. Það var alltaf spennandi að spjalla við þig. Bless, Siggi Hrafn, þín er sárt saknað. Kær kveðja frá frænku í Kaup- mannahöfn. Nina. 1  2     3    3   !"  960A166A6 '  #!*  B#CD  5 ! + , *-$!#! ##  -$!# *!!" -!*;' ! ##   *%+ * ##  1+E) ! F2F) -+ * ##   $ !" 0"&5 *!!" 6 2 ! ##  %    * ##  " &5 !3 +          ,   9< 9 >9  '2  G% (  (!*:H 63   5    - 4 &$  6!"   ! !  ! - 4   !"  %7$ % # ()*!!" > * # (!!" )*# (!!"  &5#  ! ##  # (!!" 0 ) *0 * ##  "5((5 + )   2    4       3        3      !          - %2   >& 5#CI ,!#(3&(+ ,+& #  +& # 8 + "!!" 0* + "! ##  % 5* *(!!" ! "! ##  $  "!!" %  "! ##  "(  8 J      "5+ 6!"         !"       , !"  ! 9  6 9   " IK &* ! !  4 24!"  8$   2"  3   3  ! ! 0 !J).* ! ##   &5 *(!!"  !#&5;' ! ##  *$ *(! ##  1 ) 2 !!"    & 1 )!!" *(0 1 )!!"+ /"  3   3    !"           ,  "  881  28-   *:I "!  '*# ) ( ! '%" ! 5#:D3&+ 9  2  !*   !!  ,-,    9 - , !4   "     *B *& ! ##  %  + !#&'!!"  *& !!" 6#"! ##  % ( *1 ) *& ! ##  1  * !!" 5" 5((5+

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.