Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 59 DAGBÓK Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið laugardag frá kl. 10-15 Nýjar vörur Jakkar Stuttkápur Hörkápur Vínilkápur Regnkápur frá 5.900 15% afsláttur af öllum vörum á Löngum laugardegi í báðum verslunum okkar! Laugavegi 44 og Mjódd Nú er vor í lofti á Vestfjörðum og bókin Nokkur kvæði og kitlandi vísur að vestan eftir Elís Kjaran komin úr prentun Þetta er fyrsta bókin hans Ella. Hann er fáum líkur og yrkir um lífið og tilveruna á sinn sérstaka hátt. Fæst í bókabúðinni þinni. Vestfirska forlagið, Hrafnseyri, sími og fax 456 8181, netfang: jons@snerpa.is Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Hvað fá þátttake ndur út úr slíkum námsk eiðum? Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleiki hjá öllum) og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi. Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggi- legan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs. Læra að hjálpa öðrum til þess sama. Lausir einkatímar í heilun og ráðgjöf Námskeið í Reykjavík 13.-14. apríl 1. stig. Helgarnámskeið 15.-17. apríl 2. stig Kvöldnámskeið Árnað heilla 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Bd3 Bxd3 5. Dxd3 e6 6. Re2 Db6 7. O-O c5 8. c4 Da6 9. b3 Rc6 10. Be3 O-O-O 11. Dc3 dxc4 12. bxc4 Rh6 13. d5 exd5 14. cxd5 Hxd5 15. Rf4 Hxe5 16. Rd3 Bd6 17. Bxh6 Rd4 18. Dd2 gxh6 19. Rc3 He6 20. a4 Dc4 21. Rb2 Staðan kom upp í Skákþingi Íslands, áskor- endaflokki, sem fór fram um páskana. Sigurbjörn Björnsson (2345) hafði svart gegn Birgi Berndsen (1800) . 21...Dxc3! og hvítur gafst upp enda verður hann manni undir eftir 22. Dxc3 Re2+. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. VILLT skiptingarspil voru óvenju algeng á nýliðnu Ís- landsmóti og sáust hreinar tvílita hendur með tvær eyður. Í sjöundu umferð kom upp 8-5 skipting í spaða og hjarta: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ K2 ♥ D10 ♦ 108765 ♣10873 Vestur Austur ♠ 65 ♠ 10 ♥ K93 ♥ Á72 ♦ ÁG3 ♦ KD942 ♣ÁG962 ♣KD54 Suður ♠ ÁDG98743 ♥ G8654 ♦ – – ♣– – Á fimm borðum af tíu fékk suður að spila fjóra spaða doblaða. Vörnin á að- eins tvo slagi á ás og kóng í hjarta, svo það gerir 650 í NS. Yfirleitt vakti austur á einum tígli og suður stökk í fjóra spaða, sem vestur do- blaði og þar við sat. Á tveimur borðum spilaði suð- ur fimm spaða doblaða eftir að AV höfðu barist upp á fimmta þrep, en aðeins þrjú AV-pör treystu sér í slemmu í láglit. Það eru tólf slagir bæði í tíglum og lauf- um, svo það borgaði sig að selja sig dýrt. Íslandsmeist- ararnir Hermann Lárusson og Erlendur Jónsson voru með spil AV gegn Sverri G. Kristinssyni og Björgvini Má Kristinssyni: Vestur Norður Austur Suður Erlendur Björgvin Hermann Sverrir – – – – 1 tígull 4 spaðar Dobl Pass 5 lauf 5 spaðar 6 lauf Pass Pass 6 spaðar Dobl Allir pass Dobl Erlendar á fjórum spöðum er fyrst og fremst til sóknar og því þótti Her- manni sjálfsagt mál að taka út í fimm lauf. Sverrir gat ekki gefist upp við svo búið og reyndi fimm spaða, en þá teygði Erlendur sig í sex. Sverrir tók af sér höggið með því að fórna í sex spaða, en Íslandsmeist- ararnir unnu 13 IMPa á spilinu, því á hinu borðinu spiluðu Ólafur Lárusson og Rúnar Magnússon fjóra spaða doblaða. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 6. apríl er fimmtug Björg Ólafsdótt- ir, hjúkrunarfræðingur, Bakkastöðum 157, Reykja- vík. Hún tekur á móti gest- um á heimili sínu eftir kl. 17 í dag. 50 ÁRA AFMÆLI Í daglaugardaginn 6. apríl er fimmtugur Valþór Hlöð- versson framkvæmdastjóri Athygli, Álfatúni 8a, Kópa- vogi. Hann og eiginkona hans, Guðrún Gunnarsdótt- ir, hafa boðið vinum og sam- starfsfólki til samkomu í til- efni dagsins frá kl. 17 dag í Ými, tónlistarhúsi Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð. LJÓÐABROT Siglufjörður Hvernig er þitt létta líf og ljúfu æsku kynni? Hvort ertu snauðum hjálp og hlíf og hamingjunnar inni? Þá flotinn siglir allur inn aflaföngum hlaðinn, er það líflegt, lagsi minn, að líta yfir staðinn. Allstaðar er strit og starf og stærsta þrekraun unnin. Þeir taka allt, sem taka þarf og tefla á fremsta hlunninn. Saman leggja ljósan dag og langar, dimmar nætur stritsins börn með bágan hag og bölsins gröf við fætur. Hér á fjöldinn húsaskjól, það heitir síldarbraggar. Þar er flest, sem örbirgð ól. – Ekkert niður þaggar hundraðanna andvörp hljóð, sem erja hér og kvíða. Hver telur þá, sem missa móð og máttinn til að stríða? - - - Aðalbjörn Pétursson        MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Með morgunkaffinu Auðvitað er ég af- brýðisamur út í fyrri manninn þinn. Þú skildir jú við hann. Ég verð heima í kvöld, pabbi, svo þú mátt fá bílinn. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Sú orka sem þú gefur frá þér er jákvæð og hefur mikil áhrif á aðra. Þú getur einnig rutt öllum hindrunum úr vegi og ferð oftast ekki troðnar slóðir. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þér býst fasteign á góðu verði. Þú skalt að minnsta kosti skoða málið enda oft hægt að bæta þá aðstöðu sem fólk býr við. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert einstaklega ánægð/ ur í dag og vilt deila tilfinn- ingum þínum með öðrum sem þú þekkir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Stuðningur frá yfirvöldum eða stórri stofnun kemur sér að góðum notum í dag. Þú munt örugglega hagn- ast á slíkri liðveislu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn hentar vel til þess að eiga ljúfa stund með vinum þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú skalt leita ráða hjá öðr- um um hvaða stefnu þú eig- ir að taka í lífinu eða hvort hægt sé að auka möguleika þína á vinnumarkaði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú færð hugmynd að því hvernig mögulegt er að treysta fjárhagslega fram- tíð þína. Aðstoð frá þínum nánustu kemur að góðum notum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Auðlegð þeirra sem þú þekkir kemur sér að góð- um notum fyrir þig, ekki síst hvað atvinnu snertir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú skalt gera ráðstafanir til þess að eyða deginum með þeim sem þér þykir vænt um. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sá stuðningur, sem þú ósk- aðir eftir í starfi, verður að veruleika, en stuðningur- inn getur falið í sér ráðstöf- unarfé eða efni í verkefni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Njóttu dagsins með öðrum, hvort sem það er leikur með börnum, heimsókn til vina eða afþreying. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú býrð yfir mikilli orku í dag sem gerir þér kleift að koma mörgum hlutum í verk. Nýttu þennan kraft til þess að bæta einkalíf þitt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Vinátta eða ástarsamband mun reynast þér hagstætt, en slík sambönd laða það besta fram í þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.