Vísir - 07.06.1980, Side 5
Laugardagur 7. júni 1980.
5
NJÓSNARARNIR SEM SKÓKU BRETLAND:
Turn Játvarðs Kóngs og Þrenningarskóli I Cambridge þar sem njósn-
ararnir tilvonandi stunduðu nám.
meira en það. Hann þótti einrænn
og sjálfur sér nægur, eins og
hæfði syni St. Johns. Ahrifin frá
fööurnum voru mikil, enda þótt
hann hefði litla elsku sýnt syni
sinum, Kim erföi frá honum sjálf-
stæöið og svo að vissu marki litið
álit á Bretlandi. Kim sagði oftar
en einu sinni að hann liti ekki á sig
sem Englending fremur en eitt-
hvaö annað, enda fetaði hann að
þvi leyti i fótspor föður sins að
hann tók sér annað föðurland en
hið eiginlega, þó það þýddi að
hann yrði að snúast gegn Eng-
landi.
1 ævisögunni, „Þögla striðiö”,
koma hvergi fram nokkrar efa-
semdir Philbys um aö hann hafi
breytt rétt er hann snerist til fylg-
is við sovésku leyniþjónustuna, né
að hann hafi átt i nokkrum erfiö-
leikum með að velja þessa leið.
Þvert á móti lætur hann þess get-
ið aö hann hafi gripið tækifærið
tveim höndum: „Maður lætur
ekki bjóða sér tvisvar i einvala-
lið!” Einnig kemur þar fram
fyrirlitning hans á „hinni úrkynj-
uðu valdastétt” beggja vegna
Atlantshafsins. Eftir að Philby
hafði valiö sér leið hélt hann
henni af öryggi og vissu. Sumir
hafa talið Philby, liktog Maclean,
hafa fundiö i kommúnismanum
þá trú sem hann ekki hafði. Hins
vegar er liklegra að Philby hafi
fremur verið ævintýramaður,
málaliði. Hann aðhylltist
kommúnisma og fékk tækifæri á
að starfa að framgangi hans með
leynd, þaö tækifæri greip hann
sem áður segir og eftir það kom-
ust engar vangaveltur að, hann
var að vinna fyrir ákveðinn mál-
stað, naut jafnvel spennunnar,
undirferlanna og valdanna. Það
er nefnilega litill vafi á þvi að
og Kim Philby en þeir þekktust
allir meira eða minna.
Það er ekki vitað hvernig
sovéskir „agentar" fóru aö þvi i
upphafi að nálgast kommúnist-
ana ungu i Cambridge, enda
skiptir tæpast verulegu máli. Hitt
er ljóst að Sovétmenn lögðu á það
unum og alheimskommúnisman-
um meira gagn en meö opinská-
um áróðri. Rússar notuðu Versl-
unarráð sitt i London mjög til aö
dylja njósnastarfsemi og þar
störfuðu þeir menn sem taliö er
vist að hafi ráöið þá félagana sem
njósnara. Maður aö nafni Samuel
sovésku^gentum"á liklega menn.
Hann mun þá hafa bent á Guy
Burgess, Donald Maclean og Kim
Philby.
Þremenningar-
nir ráðnir
Ariö 1933 tók Lady Maclean
(þ.e.a.s. hin raunverulega) eftir
þvi að hinn mjög svo vinstrisinn-
aöi sonur hennar virtist vera að
missa áhugann á pólitik. Og vinir
Guy Burgess undruöust það mjög
að eftir aö hann fór i ferðalag til
Sovétrikjanna áriö 1934 virtist
hann ekki lengur neitt yfir sig
hrifinn af hinu kommúniska
skipulagi og sagði sig fljótlega úr
Flokknum. Hvað Kim Philby
snertir varð ekki annaö séð en að
hann hefði sagt skilið viö
kommúnista þegar hann kom frá
Vinarborg árið 1934. Vinir þeirra
þremenninganna furðuðu sig á
þessum umskiptum en ættingj-
arnir vörpuðu flestir öndinni létt-
ar, þeir heföu einungis hætt þess-
um „barnaskap”.
Skýringin var allt önnur.
Sovéskir útsendarar höfðu haft
samband við þá, skýrt út fyrir
þeim að besta leiðin til að koma
kommúnismanum að gagni væri
að fela skoðanir sinar og vinna
innan frá, ekki utan frá. Það er
óljóst hvort þeir geröu sér undir-
eins grein fyrir þvi að þetta þýddi
njósnir, Philby þó örugglega.
Philby haföi fariö til Vinar eftir
að hafa lokiö prófi 1 hagfræöi viö
Cambridge og lenti þar i miöjum
suðupotti. Sósialistar og fasistar
börðust um völdin en Dolfuss
Ð í LOFTINU”
Philby jxitti beinlinis gaman að
starfi sinu, ólikt Burgess og sér-
staklega Maclean.
Anthony Blunt
og postularnir
Einsog fram kom hér að fram-
an var kommúnismi talsvert út-
breiddur i Cambridge þegar þeir
félagar stunduðu þar nám upp úr
1930. Meölimir kommúnista-
flokksins voru að visu fáir en þvi
fleiri höfðu samúð með Sovétrikj-
unum og töldu þau einasta brim-
brjótinn gegn fasismanum. Það
var „fint” að vera kommúnisti i
Cambridge á þessum árum og
fjöldamargir stúdentar sem
seinna urðu áhrifamenn aðhyllt-
ust Moskvu-linuna sem þeir sner-
ust siöar gegn. Meöal þeirra sem
ákafastir þóttu var Anthony
nokkur Blunt, siðar listaráðgjafi
drottningar. Hann var mikill vin-
ur Burgess, enda kynvilltur eins-
og hann og stóö samband þeirra
allt þar til Burgess flúöi land.
Blunt var i félagsskap sem kall-
aðist „Postularnir”, nokkurs
konar leynifélag útvaíinna snill-
inga. A 19. öldinni hafði Tennyson
lávaröur stofnað þetta félag en á
þeim tima sem hér er til umfjöll-
unar voru margir eða flestir með-
limanna kommúnistar og notuöu
félagið þeirri stefnu til fram-
dráttar. Auk Blunts voru margir
ungir menntamenn, sem siðar
komust til metoröa, I þessum
„exklúsiva” félagsskap. Blunt
kom þvi til leiöar að Guy Burgess
var tekinn i hópinn en Guy var þá
mjög farinn að hallast að
kommúnisma. Svipaða sögu var
að segja um þá Donald Maclean
mikla áherslu að finna menn sem
vildu vinna fyrir þá óopinberlega,
þeir geröu sér ljóst að Kommún-
istaflokkur Bretlands var ekki
liklegur til stórræöa og hvöttu þvi
fylgismenn sina til þess að láta
ekki mikið á sér bera en reyna
þess i staö að koma sér vel fyrir 1
bresku samfélagi að námi loknu.
Þannig gætu þeir unnið Sovétrikj-
Cahan er talinn hafa stýrt verk-
inu en Leonid Tólokonskij og sið-
ar Ungverjinn Theodore Maly,
fyrrverandi kaþólskur prestur,
héldu m.a. sambandi við Philby.
Hlutur Anthony Blunts I máli
þessu er ekki fyllilega ljós en þó
öruggt að sjálfur hafði hann ekk-
ert með mannaráðningar að gera
en mun aðeins hafa bent hinum
Litzi Friedman Philby, fyrsta kona Kims. Þau kynntust i Austurriki
þar sem Kim stóö f ströngu við að koma flóttamönnum undan nasist-
um.
þeirra fyrir Sovétrikin 1. hluti
kanslari reyndi að halda friðinn
milli þessara striðandi afla. 1
febrúar 1934 kom til mikilla átaka
þar sem nasistar, með óopinber-
um stuðningi stjórnarinnar, réð-
ust að sósialistum og kommúnist-
um sem gátu litla björg sér veitt.
Miklir bardagar geisuðu i marga
daga og Kim Philby tók virkan
þátt I þvl aö koma flóttamönnum
undan böölum nasista. Philby
hafði aldrei látiö mikið uppi um
skoðanir sinar og margir töldu
hann á linu Verkamannaflokks-
ins. Nánum vinum hans var þó
ljóst aö þar fór harösnúinn
kommúnisti og dvölin 1 Vin sann-
færði hann endanlega. Þar taldi
hann sig sjá, svo ekki varö um
villst, aö aðeins harka kommún-
ista gæti séö við nasistum. 1 Vin
náði hann sér einnig { fyrstu konu
sina (til þessa dags eru þær
fimm). Það var Alice „Litzi”
Friedmann, einnig sannfæröur
kommúnisti.
Undir sumar 1934 sneri Philby
heim til Englands, albúinn að
taka upp sitt nýja hlutverk sem
njósnari Sovétrikjanna. Donald
Maclean og Guy Burgess voru um
sama bil að búa sig undir það
sama.
(Þráðurinn verður síðan
tekinn upp að nýju næsta
laugardag og þá f jallað um
njósnastarfsemi Philbys,
Burgess og Macleans, fall
þeirra og flótta.)
Samantekt: — IJ.
Þessi samantekt er að mestu byggð
á bókunum ,,Philby: The Spy who
Betrayed a Generation" eftir Bruce
Page, David Leitsch og Phillp
Knightley, „The Climate of Treason"
eftir Andrew Boyle og svo „Þögla
strrðið" eftir Kim Philby sem komið
hefur út á (slensku I eilítlð styttri út-
gáfu. Auk þessa er stuðst vlð ýmsar
blaða- og tlmaritsgrelnar um ýmsar
hliðar málsins.
Harold
„Kim”
Philby:
„Maður læt-
u r e k k i
bjóða sér
tvisvar i ein-
valalið”,
sagði Philby
þegar hon-
um var boð-
ið að gerast
njósnari fyr-
ir Rússa.
Hann er
frægasti
njósnari
þessarar
aldar og olli
Bretum og
Bandarikja-
mönnum
gifurlegum
skaða.
Gay Francis
de Money
Burgess:
Orðhákur og
spjátrungur
sem gerði
sitt ýtrasta
til þess að
táldraga
alla karl-
menn sem á
vegi hans
urðu. Undir
niðri leynd-
ist sterkur
persónuleiki
s e m v a r
sannfærður
um aö hann
væri að gera
rétt þegar
hann njósn-
aði fyrir
Rússa.
Donald
Maclean:
Hæglátur og
feiminn ráð-
herrasonur
sem hélt
meö indján-
u n u m i
kúrekaleikj-
um æskunn-
a r . Hið
mikla and-
iega álag
sem var
samfara
njósnum og
tvöföldu lif-
erni átti eftir
að brjóta
hann næst-
um niður.
Anthony
Blunt: Einn
af fyrir-
svarsmönn-
um leynifé-
lagsins
„Postularn-
i r ” f
Cambridge
og harður
kommúnisti
sem benti
sovéskum
útsendurum
á Philby,
Burgess og
Maclean.
Hann varð
iistráðu-
nautur
Elisabetar
drottningar
áður en upp
um hann
komst á slð-
asta ári.