Vísir - 16.07.1980, Blaðsíða 13
vtsm
Miðvikudagur 16. júll 1980
HROLLUR
og »A ber|»*t' Alllal »A iberjastl!
jm L'^,7\<ruTi' Hflr'? 1 »1WMir^iliV ía—|
Prátt tyrlr allt —
/ EINHVERJIR verða
aA gera þetta....
TEITUR
AGGI
MIKKI
p
1
H§
12
VÍSIR
Miðvikudagur
16. júli 1980
ferö um Vesffirði:
„Þeip vita Dað
fyrir vestan”
A Isafirði og i Hnlfsdal búa
um 3.400 manns, en þessir tveir
staðir hafa tilheyrt sama
sveitarfélagi frá árinu 1971.
Mikill uppgangur er þarna nú,
sem felst einkum I bygginga- og
vegaframkvæmdum. Blaða-
maður VIsis var staddur á ísa-
firði fyrir stuttu og leit þá á
helstu framkvæmdir með að-
stoð Kristjáns Jóhannssonar
viðskiptafræöings hjá Ishús-
félagi ísfiröinga.
Hótel — skóli — spitali
Við aðalgötu Isafjarðar er
heljarins stórt hús I byggingu og
var mér tjáð, að þar ætti að vera
hótel. Forgöngu um byggingu
þess hefur Junior Chamber á
ísafirði, en byggingin mun fjár-
mögnuð af bæjarsjóði og út-
geröinni.
Nýtt skólahús mun einnig rlsa
fljótlega, en bygging þess er ný-
hafin. Þar mun menntaskólinn
verða til húsa, en til þessa hefur
hann verið starfræktur I gamla
barnaskólanum.
Einhver stærsta bygging sem
þarna er og sem nánast ber bæ-
inn ofurliði, er hinn nýi spltali
og heilsugæslustöð, sem veriö er
að taka I gagnið. En ætlunin er,
að gamli spltalinn, sem svo
lengi og dyggilega hefur þjónað
ísfiröingum, verði geröur að
ráðhúsi bæjarins.
Margt aðkomufólk
Undanfarin ár hefur margt
aðkomumanna flust til Isaf jarö-
ar, og samfara því hefur Ibúðar-
þörf aukist. Ibúðasvæði sveitar-
félagsins eru á þrem stöðum,
þ.e. Eyrin, Holtahverfi og
Hnlfsdalur. Slðustu ár hefur llt-
ið verið byggt á Eyrinni, en
aftur á móti hefur risið ný byggð
I Holtahverfi og búa þar nú milli
400 og 500 manns.
Einnig er verið að byggja nýtt
barnaheimili og Ibúöir
aldraöra.
Skipasmíðastöð — eina
sinnar tegundar á Vest-
f jörðum
Niður við höfnina er skipa-
smiöastöö M. Bernharössonar.
Hún er sú eina sinnar tegundar
á Vestfjörðum. Þess utan að
smiða skip, eru þeir með slipp
fyrir smábáta og sjá um allar
báta- og skipaviðgerðir. Eins og
er eru þeir aö smlða litiö tog-
skip, en I fyrra afhentu þeir
rækjuskip, en úthafsrækju-
veiöar eru einmitt I mikilli sókn
við lsafjarðardjúp. I framhaldi
af þessu má bæta við, að I
byggju er að byggja fimm
rækjuverksmiðjur, verða 4 á
tsafirði, en 1 I Hnifsdal.
Friðlýsing eidri húsa
Á tlmum framkvæmda og
húsbygginga hafa eldri
byggingar ekki alveg gleymst,
þvl ákveöið hefur veriö aö frið-
lýsa nokkur gömul hús. Hafnar
eru á þeim endurbætur og koma
þau til með að setja skemmti-
legan svip á bæinn. Meðal þess-
ara húsa er gamla faktorshúsiö
I Neðstakaupstað, en fyrsti simi
á tslandi lá einmitt þangaö.
ishúsfélagið er í u.þ.b.
6000 ferm. húsnæði
1 sveitarfélaginu eru þrjú
frystihús. Þau eru Hraðfrysti-
húsiö á Hnifsdal, Noröurtangi
og tshúsfélag Isfirðinga.
Þegar komið er inn I húsnæði
íshúsfélagsins blasa við mál-
verk á veggjunum, bæði I andyri
og upp eftir öllum göngum.
Þetta eru I allt 35 verk ungra
heimamanna, þeirra Harðar
Kristjánssonar; og Péturs
Guðmundssonar.
Hjá tshúsfélaginu vinna að
meðaltali 240 manns og yfir
sumartlmann koma þangað
milli 50 og 60 tonn á dag, sem
unnið er úr. Þessi fiskur, sem aö
megninu til er þorskur, þó einn-
ig ufsi, ýsa og karfi, fer að
mestu leyti á Amerlkumarkað,
þó einnig til Evrópu. Á vegum
Ishúsfélagins eru tveir togarar,
þeir Július Geirmundsson og
Guöbjörg, en auk þess tveir
færabátar yfir sumartimann.
En Ishúsfélagið er eign útgeröa-
félaga togaranna og bæjarsjóðs.
Iþróttirnar fá einnig sinn
skerf
A Isafirði fá Iþróttirnar einnig
sinn skerf I framkvæmdum
bæjarfélagsins, en nú er verið
að búa til grasvöll fyrir fótbolta-
áhugamenn. Það eru starfrækt
tvö knattspyrnufélög á lsafirði,
þó þau keppi sem eitt I 2. deild
IBI. Annars er sklðalþróttin
vinsælust og mjög almenn I
þessum landshluta.
Þegar hér var komiö sögu
fannst mér ég vera búin að tefja
leiösögumannminn, Kristján
Jóhannsson, alltof lengi, þakk-
aði honum veitta aðstoð og hélt
á vit nýrra Vestfjarðaævintýra.
—K.Þ.
Þessar voru að pakka inn fiski hjá ishúsfélaginu.
Faktorshúsið I Neðstakaupstað hefur verið friðlýst.
Þ1£R
/WONA'
PUSUNDUM!
Cr skipasmlðastöð M. Bernharðssonar.
Veggir tshússfélagsins eru margir hverjir myndskreyttir.