Vísir - 16.08.1980, Síða 9
Laugardagur 16. ágúst 1980
9
Pólitísk axar-
sköft fyrr og nú
Ágætur kunningi minn
sem jafnframt er mikill
stuöningsmaður núver-
andi ríkisstjórnar lét þau
orð falla nýlega# að hon-
um þætti Vísir of harður í
stjórnarandstöðu. Hann
minnti á þær yfirlýsingar
eftir myndun stjórnar-
innar að blaðið tæki
málefnalega afstöðu til
ríkisst jórnarinnar og
dæmdi hana af verkum
sínum.
Það skal viðurkennt að
mörg og þung orð hafa
verið látin falia um
stjórnarathafnir og ein-
staka ráðherra á sex
mánaða valdatima ríkis-
stjórnarinnar. Það hefur
ekki verið skafið utan af
þeirri gagnrýni og vel má
vera að einhverjum hafi
undan henni sviðið. Sjálf-
sagt gætir ákafa og nokk-
urrar málafylgju í þeim
skrifum. En gagnrýni á
gerðir rikisstjórnar jafn-
gildir ekki stjórnarand-
stöðu/ enda er það ekki
hlutverk dagblaða að
halda uppi hefðbundinni
andstöðu eða stuðningi
við ríkisstjórnir, ef og
þegar þau blöð eru ekki
málgögn stjórnmála-
flokka. Stjórnarandstað-
an hefur einnig fengið
kaldar kveðjur hér í blað-
inu/ og Vfsir biður engan
afsökunar á stjórnmála-
skrifum sinum.
Pólitískur skotspónn
Hitt er annaö, aö á þvl hálfa
ári sem rikisstjórnin hefur
starfaö, hafa athafnir hennar
einkennst af bráöabirgöaráö-
stöfunum og björgunaraögerö-
um frá degi til dags. Engin
heildarstefna hefur veriö sett
fram, nema ef einhverjum detti
i hug aö nefna niöurtalninga-
leiöina stjórnarstefnu. Allir vita
aö niöurtalningin hefur mis-
heppnast, þótt meö meinfýsni
megi halda þvi fram aö launa-
kjör og kaupmáttur hafi veriö
niöurtalin.
Enginn rikisstjórn, hverjir
svo sem í henni sitja, getur
vænst þess aö Visir sýni blinda
hollustu eöa vægö og allra sist
þegar aögeröir hennar er fálm
eitt og kák. Enginn vafi er á þvi
aö reyndir stjórnmálamenn
gera sér grein fyrir þvl aö þeir
eru og veröa skotspónn gagn-
rýni, um leiö og þeir taka aö sér
völd og forystu. Þaö er lögmál
lýöræöisins. Gagnrýni má auö-
vitaö ekki vera rakalaus eöa
fordómafull og sjálfsagt aö gæta
sóma sins aö þvi leyti. Dagblöö,
og þeir sem I þau skrifa, bera á-
byrgö engu siður en stjórnvöld
og stjórnmálamenn. Sannleik-
urinn er lfka sá, aö fólk hættir
fljótt að lesa eöa taka mark á
þeim blaöaskrifum, sem eru
einhliða og óvönduö.
Umhyggjan ristir grunnt
Þaö leikur til dæmis ekki á
tveim tungum, aö máttur Þjóð-
viljans I pólitisku tilliti hefur
stórlega minnkað á slöustu
misserum. Þaö á rætur slnar aö
rekja til þess, aö pólitisk blinda
og flokksleg afstaöa ræöur al-
gjörlega feröinni I öllum skrif-
um þess blaðs. Þaö er raunar
meö óllkindum, hversu um-
hyggjan fyrir launamanninum
og skattgreiðandanum ristir
grunnt, þegar hagsmunir
Alþýöubandalagsins og stjórn-
arseta þess er annarsvegar.
Þegar allir útreikningar, skatt-
seölar og stjörnutékkar sýna
það svart á hvitu, aö skattbyröi
eykst, þá rembist blaöiö eins og
rjúpa viö staur, aö halda hinu
gagnstæöa fram.
Þegar gerö hafa verið drög aö
samkomulagi milli rlkissjóös og
BSRB um kaup og kjör, sem fel-
ur I sér fráhvarf frá upphaflegri
kröfugerö og kaupmáttar-
rýrnun, þá slær Þjóöviljinn þvi
upp, aö „besti kosturinn er að
fallast á samkomulagiö”. Hér
þarf ekki aö taka fram, hvernig
fyrirsagnir blaösins heföu veriö,
ef Alþýöubandalagiö sæti utan
stjórnar.
Þaö er út af fyrir sig ánægju-
legt, ef Alþýðubandalagiö hefur
ákveðiö aö reka raunhæfa
launamálapólitik og taka tillit
til aöstæöna I þjóöfélaginu, og
þaö er sannarlega ástæöa til aö
hrósa Ragnari Arnalds fyrir
festu og hreinskiptni 1 þeim efn-
um á undanförnum vikum.
Hráskinnsleikur
Meö þessum oröum er ekki
veriö aö fagna þvl, aö opinberir
starfsmenn njóti ekki betri
kjarasamninga en raun ber
vitni. Hlutur þeirra mætti vera
mikiö betri eins og raunar
annars launafólks i landinu. Þaö
er hinsvegar margsannaö mál,
að samningar um 15-20% kaup-
hækkanir eða annað I þeim dúr,
hefur ekki reynst mikil kjarabót
fyrir launafólk og virkað sem
sprengja I verðbólgu og dýrtiö.
Hóflegir kjarasamningar eins
og nú standa sakir, eru öllum
fyrir bestu og sýna virðingar-
veröa tilraun launþega-
hreyfingarinnar til aö láta yfir
sig ganga nokkra fórn.
ritstjórnar
pistill
Ellert B. Schram
ritstjóri skrjf^ir
Þetta gerir launafólk aö sjálf-
sögöu I trausti þess, aö þaö
sama gangi yfir aðra, og stjórn-
völd, beiti samræmdum aögerð-
um á fleiri sviöum en I kaup-
gjaldsmálum einum sér.
Þaö sem veldur hiki aö kjara-
samningum BSRB sé tekiö
tveim höndum eru þær upp-
lýsingar, aö lagfæringar á efri
launaflokkum til samræmis viö
launaflokka BHM, þýöi allt aö
60 þús. kr. launahækkun hjá
hærra launuðum starfsmönnum
hins opinbera. Ef þetta reynist
rétt, er allt tal um launabætur
til láglaunaðra út I hött og I
hrópandi andstöðu viö yfir-
lýsingar þeirra sem aö
samningunum standa. Þá er
enn einu sinni veriö aö endur-
taka hráskinnaleikinn, þar sem
láglaunafólkiö situr eftir meö
skarðan hlut frá borði.
Kommisarakerfið
Blaöamannafundur forsætis-
ráöherra fyrr I vikunni var
hvorki fugl né fiskur. Tilefniö
mun hafa veriö hálfsárs afmæli
rlkisstjórnarinnar en litiö kjöt
reyndist á beininu þegar garn-
irnar voru raktar úr ráöherran-
um. Hinsvegar er þaö lofsvert
aö halda slika fundi, og reyndar
er ástæöa til að þakka viöbrögö
ráöamanna, þegar blaöamenn
sækjast eftir upplýsingum eða
ummælum frá þeim i tlma og ó-
tlma.
Þeir sýna jafnan lipurö og
þolinmæöi ekki slst þegar þaö er
haft I huga, aö oftast eru um-
mæli þeirra teygö og toguö af
litilli nærgætni. Forsætisráö-
herra vildi lltiö segja um
væntanlegar efnahagsaögeröir
sem hann minntist óljóst á.
Siöar I vikunni hefur ýmislegt
kvisast um innihald þeirra til-
lagna, sem efnahagsnefndin
hefur lagt fram. Um þær veröur
ekki fjallaö fyrr en þær eru
opinberaöar i heild sinni en á-
stæöa er þó til aö lýsa ánægju
meö þá tillögu, ef rétt reynist,
aö leggja skuli niöur
kommisarakerfið I Fram-
kvæmdastofnuninni.
Þvi kommisarakerfi var kom-
iö á I fyrri stjórn Ólafs Jó-
hannessonar og var illa þokkaö
af þáverandi stjórnarandstööu,
ekki síst af sjálfstæöismönnum.
Þaö var eitt ljótasta axarskaft
rlkisstjórnar Geirs Hallgrims-
sonar, þegar hún skipaði slna
eigin menn I þau embætti I staö
þess að leggja stöðurnar sam-
stundis niöur.
Þaö voru pólitisk mistök sem
grófu undan trúnaöartrausti
þeirrar rikisstjórnar meir en
flesta grunar.
Gegn ofstjórn og vald-
nfðslu
Geðþóttaákvaröanir og póli-
tisk fyrirgreiðsla hefur veriö
landlægur kvilli og meinsemd I
islensku þjóðlifi. Misnotkun
banka, opinberra stofn-
ana ýmiskonar valds, sem
lengst af var I höndum stjórn-
málamanna eöa handbenda
þeirra er einkenni spillingar, og
þyrnir I augum heiöarlegs fólks.
Þessi spilling þreifst vel, þegar
hafta- og skömmtunarskrifstof-
ur voru allsráðandi. Þær eru
fylgifiskur hinnar sósialisku
stefnu sem felst I þvi aö rikiö
eigi aö drottna og deila. Sjálf-
stæöismenn hafa alla tlö barist
gegn ofstjórn og valdniðslu, og
áhrif þeirra I gegnum tlöina
hafa sem betur fer átt stærsta
þáttinn I þvl, aö pólitísk mis-
notkun og hrossakaup meö al-
mannafé heyra sögunni til.
Framkvæmdastofnunin og
kommissarakerfiö var þess
vegna afturhvarf til miöstýr-
ingar og afskipta stjórnmála-
manna af verkefnum, sem betur
væru komin I höndum annarra.
Byggöasjóöur útdeilir
milljöröum króna ár hvert, og
þótt þingmenn geti og eigi aö
hafa yfirstjórn stofnunarinnar
með höndum meö stjórnarsetu
meöan hún er á annað borö rek-
in, þá eiga þeir ekki að sitja þar
yfir kjötkötlum eins og sinum
eigin, sem starfsmenn.
Hér er ekki veriö aö væna nú-
verandi kommisara um ó-
heiöarleika eöa pólitlska mis-
notkun, en formiö eitt og tilvist
þeirra yfirhöfuö aö tala er óeöli-
leg og óviöeigandi.
Þaö væri þarft verk og tíma-
bært ef rikisstjórninni tækist aö
gera þar skipulagsbreytingar,
enda er þá gengiö út frá þvi, aö
annaö sambærilegt pólitiskt
leikfang sé ekki sett á laggirnar
I staöinn.
Landsfundur
Ummæli varaformanns Sjálf-
stæöisflokksins, Gunnars Thor-
oddsen I siðasta helgarblaöi
VIsis um formann flokksins Geir
Hallgrlmsson, hafa aö vonum
vakiö mikla athygli. Ekki hefur
Vlsir hugsað sér aö kynda undir
innanbúöardeilum I Sjálfstæöis-
flokum, en óhjákvæmilegt er þó
aö heyra sjónarmiö Geirs Hall-
girímssonar um þá fullyröingu
Gunnars, aö fylgiö hrynji af
flokknuru ef formennskan verö-
ur áfram I höndum Geirs. Þess
vegna er haft viötal viö hann I
blaöinu I dag.
Þaö sem stingur I augun, eru
ummæli Gunnars um aö hann og
formaöurinn ættu aö geta náö
samkomulagi um þriöja mann-
inn I formannsstöðuna, sem yröi
þá leiö til sátta og sameiningar.
Ekki skyldi loka neinni leiö,
sem oröiö getur til þess aö sjálf-
stæöismenn gangi sameinaöir
til baráttu gfgn pólitlskum and-
stæöingum: Þaö er lifsnauösyn,
ekki aöeins fyrir flokkinn,
heldur þjóöina og þær hugsjónir
sem Sjálfstæöisflokkurinn er
myndaöur um. Aftur á móti er
aldeilis ljóst, aö þaö verður ekki
tveggja manna samkomulag
eöa hrossakaup, sem ræöur þvi
hverjir veljast til forystu i Sjálf-
stæöisflokknum. Trúnaöarmenn
Sjálfstæöisflokksins og nlu
hundruö manna landsfundur
eru ekki ósjálfstæöar leikbrúöur
i höndum eins eöa neins. Ef
sjálfstæöismenn á annaö borö
taka þá ákvöröun aö skipta um
forustu, þá veröur annaö haft I
huga en valdatafl einstakra
manna.
Ellert B. Schram.