Vísir - 16.08.1980, Page 32
♦ w
Laugardagur 16. ágúst 1980
síminner86611
Veðurspá
ðagsms
Skammt suövestur af Jan
Mayen er 1000 mb lægö, sem
þokast norönorövestur frá
henni lægöardrag suövestur
um Island, en 1008 hæö yfir
Grænlandi. Hiti breytist lítiö.
Suöurland tii Breiöafjaröar
og suövesturmiö til Breiöa-
fjaröarmiöa, sunnan og suö-
vestan kaldi eöa stinnings-
kaldi, skúrir.
Vestfiröir og Vestfjaröar-
miö: noröaustan gola eða
kaldi dálitil súld, einkum
noröan til.
Strandir og Noröurland
vestra: og norövesturmiö:
noröan og norövestan gola,
smáskúrir á stöku staö.
N'oröurland eystra og norö-
austurmiö: hægviöri, skýjaö
og úrkomulaust aö mestu.
Austurland aö Giettingi,
Austfiröir, austurmiö og Aust-
fjaröamiö: sunnan og suövest-
an kaldi, sumstaöar léttskýjaö
til landsins, en dálitil súld á
miðunum.
Suöa usturla nd og
suöausturmiö: suövestan
kaldi eöa stinningskaldi,
skúrir einkum vestan til.
Veðrlð hér
og har
Akureyri skýjaö 10, Bergen
skýjaö 22, Helsinki þokuruön-
ingar 17, Kaupmannahöfn
léttskýjaö 18, Oslóhálfskýjaö
21, Heykjavik skýjaö 11,
Stokkhóimur iéttskýjaö 21,
Feneyjar léttskýjaö 25,
Godthaab rigning 5, London
skúr 23, Luxemburg skúr 20,
Las Paimas skýjaö 26,
Mailorka léttskýjaö 27, Paris
skýjaö 19, Róm þokumóða 25,
Malagaléttskýjaö 32, Vlnlétt-
skýjaö 21.
Lokl
seglr
Mikiö er fjailaö um ,,gólf”
og „þak” I kjarasamningaviö-
ræðum þessa dagana. Sagt er,
aö þetta sé einkennandi fyrir
þá samninga, sem veriö er aö
gera: i þeim séu bara „þök”
og „góif" en engir veggir!
„SAMANTEKIN RAD
rabherra og Asr
segir Þorsielnn Pálsson um boð fjármálaráðherra lil RSRR varðandl vísliðlugölf
„Þetta tilboð Ragn-
ars Arnalds er tilraun
af hans hálfu til þess að
eyðileggja kjarna-
sa mn ings v ið ræðurn-
ar”, sagði Þorsteinn
Pálsson framkvæmda-
stjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands i
samtali við Visi siðdeg-
is i gær um boð fjár-
málaráðherra til handa
BSRB varðandi „gólf”
á vísitölu.
Þorsteinn kvaö alltaf hafa
veriö ljóst aö kjarnasamning
væri ekki hægt aö gera meö visi-
tölugólfi þvi þaö eyöilegöi
samninginn. „Þar aö auki”,
sagöi Þorsteinn, „eru þetta
samantekin ráö fjármálaráö-
herrans og Alþýöusambandsins
til þess aö eyöa áhrifum frá-
dráttarliöanna i vfsitölunni, þvi
„gólfiö” tekur til innan viö 20%
félagsmanna BSRB en nær til
yfir 70% félagsmanna i ASl. Til-
gangur Alþýöusambandsins aö
þvinga fjármálaráöherra til aö
bjóða BSRB „gólf”, er enginn
annar en sá, aö eyöa frádráttar-
liöum visitölunnar og koma
þannig bakdyramegin út þeim
leiöréttingum sem geröar voru
á visitölunni meö Ólafslögum
svonefndum”.
Um samningsdrög BSRB og
fjármálaráöherra og þýöingu
þeirra fyrir samningaviöræöur
VSl og ASl sagöi Þorsteinn:
„Viö höfum ákveöiö sagt, aö
ekki sé hægt aö taka aöra viö-
miöun af samningsdrögunum
heldur en heildarútgjaldaaukn-
ingu rikisins og viö hljótum aö
vera bundnir viö aö auka ekki
okkar launaútgjöld meira en
rikið gerir”.
Næsti samningafundur ASI og
VSI hefur veriö boöaöur á miö-
vikudag klukkan sautján.
Sjá einnig bls. 31. —Gsal
Fjölmenni var á Torfunesbryggju á Akureyri I gærdag þegar hiö gamia aflaskip Akraborg EA 50 lagöi I
slna hinstu för. Vélskipiö ólafur Magnússon dró Akraborgina noröur fyrir Flatey á Skjálfanda þar sem
henni var slöan sökkt á svipuöum slóöum og Snæfellinu gamla. Skip I Akureyrarhöfn kvöddu Akraborg
meö háværu flauti. (Vlsism. GS).
Hækkun Ulvarpsins:
..Vantar 6-8%
tll viðbótar”
- segir fjármálastiórl
útvarpsins
„Mér sýnist aö þurft heföi aö
hækka afnotagjöldin um 6-8% til
viöbótar þeirri 25% hækkun, sem
fékkst fram, til aö rekstur Rikis-
útvarpsins á þessu ári veröi
hallalaus”, sagöi Höröur Vil-
hjálmsson, fjármálastjóri Rlkis-
útvarpsins f samtali viö VIsi i
morgun.
„Þetta kemur fýrst og fremst
niöur á fjárfestingaframkvæmd-
um, þannig aö uppbygging og
endurnýjun dreifikerf isins
gengur hægar fyrir sig en æski-
legter.
Vandamáliö núna eru of lágar
tekjur á fyrri helmingi ársins, en
þá var taprekstur sjónvarps um
400milljónir og hljóðvarpsins um
100 milljónir. Þessi taprekstur
kom að mestu leyti til vegna þess
að viö misstum tolltekjur af inn-
fluttum sjónvarpstækjum. Þá
súpum viö enn seyöið af erfiöleik-
unum frá þvi i fyrra, en þá feng-
um viö allt of litlar hækkanir á af-
notagjöldum”, sagöi Höröur Vil-
hjálmsson. _ATA
..Framkvæmda-
stofnunin
verður ekki
lögð nlður”
Sjá víðtal á Dls. 31
Geír hafnar hugmyndum Gunnars um aö hvorugur heirra takí við formennsku:
„Gef kost á mér áfram
sem formaður flokksins”
„Ég tel þaö fyrir neöan virö-
ingu formanns Sjálfstæöisflokks-
ins, hvaö sem hann heitir, aö
standa I einhvers konar hrossa-
kaupum til þess aö tryggja sjálf-
um sér endurkjör”, segir Geir
Hallgrimsson formaöur Sjálf-
stæöisflokksins I viötali viö Visi i
dag, og birt er á bls. 6.
Geir hafnar hugmynd Gunnars
Thoroddsen um aö hvorugur
þeirra taki viö formennsku á
næsta landsfundi heldur samein-
ist um þriöja mann. Kveöst Geir
munu gefa kost á sér til for-
mennsku þá, en þvi fari fjarri aö
hann ætli sér ævilanga setu I þvi
starfi.
Þá kemur þaö fram I viötalinu,
aöGeir Hallgrlmsson telur engar
vonir vera um sættir I Sjálf-
stæöisflokknum nema þeir Sjálf-
stæöismenn sem styöji núverandi
rikisstjórn dragi sig út úr henni.
Hins vegar telur Geir ekki klofn-
inginn I afstööunni til rikisstjórn-
ar þess eölis, aö leiöir Sjálfstæöis-
manna skilji I framtlöinni.
Þá segir Geir Hallgrimsson
ennfremur, aö i ræöum sinum og
blaöaviötölum um málefni Sjálf-
stæöisflokksins hafi hann ekki
vikið oröi persónulega aö Gunnari
Thoroddsen, en hann kosiö aö
svara meö persónulegum skæt-
ingi. „Þaö er hans vandamál en
ekki m itt og ekki heldur á stæöa til
aögeraþaö aö flokksvandamáli”,
segir Geir Hallgrimsson.
— Sjábls.6. —SG.