Vísir - 18.08.1980, Blaðsíða 20

Vísir - 18.08.1980, Blaðsíða 20
Mánudagur 18. ágúst Analius Hagvaag kom I land er hann sá bla&amennina Það var heldur ein- manalegt við Elliða- vatn, er Visismenn litu þar við á föstudaginn. Engan veiðimann var að sjá, en það var einmitt slikan, sem ætlunin var að rabba við. Það var lika komin rigning og kuldablástur i ofanálag, þó sól hefði skinið i heiði er lagt var af stað frá Siðumúlanum. Harpa Jóhannesdótt- ir, sem selur veiðileyfi í Elliðavatn i bænum Elliðavatni, sannfærði okkur þó um að það væri að minnsta kosti einn maður að veiðum við vatnið, hvar hann væri vissi hún þó ekki. Nú voru góð ráð dýr. Við komum að Elliða- vatni til að tala við veiðimann og við skyld- um tala við veiðimann, hvað sem það kostaði. Það var þvi bara að leita. Og viti menn, við fundum — og ekki bara einn veiðimann heldur tvo veiðimenn (hjón). „Nei, nei, blessaöur vertu, viö höfum ekkert oröiö vör — vatniö er steindautt. Viö erum bara aö þessu vegna Utiverunnar”, sagöi eiginmaöurinn. Ljósmyndarinn gat ekki setiö undir þessu og sagöist oft fá fisk i vatninu, og þaö einmitt á þessum staö. „Ja, allt kalliö þiö fisk! Ég kalla þaö ekki fisk nema hann sé vel yfir tveimur pundum”. Og þegar viö spuröum þau aö nafni, svaraöi eiginmaöurinn: „Ætli viö séum nokkuö aö hlaupa meö þaö i blööin!” Með veiðibakteriuna i 50 ár! Skammt frá hjdnunum var ann- ar veiöimaöur, og notaöi hann greinilega flugustöng, en þaö eru yfirleitt aöeins vanir menn sem veiöa meö flugu. „Ég er búinn aö vera meö veiöibakteriuna i ein fimmtiu ár, eöa lengur”, sagöi Analius Hag- vaag. „Ég byrjaöi aö veiöa þegar ég var smápatti f Noregi og ekki minnkaöi áhuginn eftir aö ég fluttist til íslands fyrir einum fimmtlu árum. Ég fer bæöi i lax og silung og hef komiö viöa viö á landinu I þessum veiöiferöum minum.” Viöspuröum Analius, semnúer kominn á eftirlaun, hvernig veiöi- skapurinn gengi. „Ég hef ekkert oröiö var i dag og ég sé engan fisk, en þaö er gaman aö þessu samt. Ég hef annars mest veitt i Soginu i sum- ar, hef fariö þangaö einar þrjár feröir og veitt ellefu fiska og var sa stærsti 17 1/2 pund. En stærsti fiskur, sem ég hef veitt, var 20 1/2 pund og hann veiddi ég I Stóru- Laxá i Hreppum. Sá lax var vel stór, en hann var samt ekki nema sili viö hliöina á stærsta laxi sem ég hef séö. baö vari'Sandá í Þistilfiröi. Fiskurinn var ekki undir tveimur metrum aö lengd, um 40 pund og sporöur- inn var hreint eins og skóflublaö. Ég hef aldrei séö annaö eins”. — Hvers vegna veiöiröu? „Þaö er enginn fiskur í þessu vatni — ekki þaö sem viö köllum fisk”, sögöu þessi ágætu hjón.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.