Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 3

Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 3
3 vtsnt Þriðjudagur 30. september 1980 Hugmyndir um hlutastörf flugfreyja: „Ekki til umræðu” - lyrr en starfsaldurslislamállð hefur verið afgreitt „Við vorum beðnar um að at- huga möguleikana á hlutastörf- um flugfreyja, og við höfum gert það að litlu leyti. En það var ákveðið á almennum félagsfundi að biða með þetta mál, þangað til starfsaldurslistamálið væri komið i höfn”, sagði Jófrfður Björnsdóttir, formaður Flug- freyjufélags tslands, i viðtali við Visi. Sagði hún að beðið heföi verið um könnun varðandi áhuga flug- freyja á aö gegna hlutastörfum. Hefði verið gerð lausleg könnun, og heföi 98 flugfreyjur skrifað undir lista og lýst áhuga sinum á að þessi möguleiki yröi athugaöur nánar. Hins vegar hefði verið samþykkt að geyma þetta mál, uns starfsaldurslistamálið væri afgreitt. „Stjórnin hefur bent á nauðsyn þess aö fara varlega i þessar hug- myndir. Hún hefur bent á ýmis samningsatriði, sem þurfi að gánga vel frá. Viðhöfum t.d. eitt helgarfri i mánuði, sem við vilj- um halda og fleira þess háttar. Við erum siður en svo á móti þessari hugmynd, en viö viljum ræða við ýmsa aöila varðandi þessi samningsatriöi, áður en við ræðum viö Flugleiðir. Auk þess finnst okkur starfsaldurslistinn þurfa að hafa algjöran forgang. Þetta mál verður þvi ekki rætt frekar, fyrr en hann hefur veriö afgreiddur”, sagði Jófrlöur,—JSS íslenska kvlkmyndastofnunin sf: „Bara bræoraiao „Við erum báöir störfum hlaðnir I augnablikinu, en félagið er náttúrulega stofnað með frek- ari kvikmyndagerð i huga”, sagöi Helgi Gestsson, en nýlega stofnuðu hann og Þráinn Bertels- son „islensku kvikmynda- stofnunina sf”. „Viö erum á kafi við gerð byrja myndarinnar um Snorra Sturlu- son, svo að við höfum ekki getaö sest niöur til að ihuga önnur verk- efni. Þetta er meira bræöralag hjá okkur en nokkuð annað, til aö byrja með að minnsta kosti”, sagði Helgi. — Ætlið þiö að helga fyrirtæk- inu alla ykkar starfskrafta? „Ég er lausráöinn hjá sjón- varpinu og losna fljótlega og mun þá hefja störf hjá þessari merku stofnun okkar. Þráinn er hins vegar fastráðinn hjá sjónvarpinu og enn er ekki ákveöiö hvernig hann hagar slnum störfum hjá „Islensku kvikmyndastofnun- inni”. —ATA MESSIAEN TOIILEIKAR I KVOLD I dag hefst námskeið þýska orgelleikarans Almut Rössler á vegum Tónlistarskólans I Reykjavik. Kl. 16 heldur Rössler fyrirlestur i Flladelfiu um tón- skáldið Messiaen með sérstöku tilliti til orgelverka hans. I kvöld kl. 20.30 leikur Rössler verk eftir Messiaen i Dómkirkjunni og út- skýrir þau. Og á morgun og fimmtudagkl. 14 verður kennsla i Filadelfiu (miðvikudag) og i Dómkirkjunni (fimmtudag), þar sem islenskir orgelleikarar leika undir tilsögn Rössler. Námskeið- inu lýkurmeö kvikmyndasýningu i Norræna húsinu fimmtudags- kvöld kl. 20.30. Myndin er um ævi Messiaen og störf og spjallar Rössler þá um tónskáldið. Almut Rössler er einn þekktasti orgelleikari Evrópu, en kunnust er hún fyrir leik sinn á verkum Messiaen. Hún hefur starfaö mikiö með tónskáldinu og leikið öll orgelverk hans inn á plötur. Það er þvi mikill fengur fyrir is- lenska orgelleikara og unnendur orgelleiks að fá hana hingaö til landsins, en þaö er Tónlistarskól- inn i Reykjavik sem á heiöurinn að þvi. Ms Lands/ns mesta úrva/ af HiNATONE Útvarpsklukka m/segulbandi /íudíoþox HINAT0NE ■ rDcafan Alft tíl hljómflutnings fyrir: HEIMILID - BÍUNN OG DISKÓTEKIÐ D I • Kaaio ARMULA 38 iSelmúla mecjin) 105 REYKJAVIK SiMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366 Leikararnir Ólafur Thoroddsen og Sigurður Karlsson við björg- unarstarfið I Iðnó. Að baki þeirra má greina Steindór Hjörleifsson leikara I sama hlutverki (Ljósm. Kristján) „VATNADAGURINH MIKU” í MDNÓ Það er ekki heiglum hent aö vera leikari hjá Leikfélagi Reykjavikur undir fullu tungli! Þegar Ofvitinn var tekinn aftur til sýningar á fimmtudag i sið- ustu viku, flæddi vatnið úr Tjörninni um kjallara Iðnó, þar sem búningsherbergi eru til húsa og þurfti að fresta sýning- unni dágóða stund, svo að leik- urunum gæfist timi til aö bjarga búningum og leikmunum úr vatnselgnum. Til allrar lukku hefur sá siður tlðkast i Iðnó um áratugabil að geyma engan hlut undir sjávarboröi og voru þvi flestir leikmunir þurrir, utan nokkrar buxnaskálmar. Þeir, sem óhjákvæmilega verða að leggja leiö sina um kjallara á meðan á sýningu Ofvitans stendur, gripu til þess ráðs aö stikla þar á stólum. Það má til ólikinda teljast að þrátt fyrir baksviðserfiöleikana, urðu áhorfendur þess ekki varir utan seinkunarinnar, við hvaöa aö- stæður Ofvitinn bjó þetta k völd. Ms Hamborgarar Langlokur Pizzur Samlokur Meinlokur Pylsur Heitir HRAÐRÉTTIR beint í bílinn Shellstöðinni v/Miklubraut. SOPIÐ 730- 23.30

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.