Vísir - 30.09.1980, Síða 20

Vísir - 30.09.1980, Síða 20
Shilton lékk á slg mark. sem aidrel var skorað Óvenjumikið hefur veriö skoraö af mörkum i ensku knattspyrn- unni i haust og ekkier óalgengt aö fimm mörk séu skoruö i leik. Á laugardaginn var voru skoruö alls 34 m örk i 1. deiidinni og þar af fimm mörk i þremur leikjum. Ipswich jók forustu sina um eitt stig meö sigri á Wolves á heima- veiii Wolves: Molineux, og hefur Ipswich þvi 15 stig og fjögurra stiga forskotá Liverpool, sem er I ööru sæti meö 11 stig ásamt Everton og Aston Villa, en öll þessi liö unnu sigur um heigina. Crslit helgarinnar. 1. deild Arsenal-Notthingham Forest 1-0 Coventry-Everton 5-0 CrystalP.-Aston Villa 0-1 Leicester-Tottenham 2-1 Liverpool-Brighton 4-1 Manch. Utd.-Manch.City 2-2 Norwich-Birmingham 2-2 Stoke-Middlesbro 1-0 Sunderland-Leeds 4-1 WBA-Southampton 2-1 Wolves-Ipswich 0-2 2. deild BristonRov.-Newcastle 0-0 Cambridge-WestHam 1-2 Grimsby-Luton 0-0 Notts County-Cardiff 4-2 Oldham-Bolton 1-1 Orient-Derby 1-0 Preston-Shrewsbury 0-0 Q.P.R-Bristol City 4-0 Swansea-Sheffield Wed. 2-3 Watford-Chelsea 2-3 Wrexham-Blackburn 0-1 Umdeilt mark á Highbury Laugardagurinn, sem var, mun seint liöa Peter Shilton úr minni. Eftir aö hafa variö mjög vel i fyrri hálfleik, fékk hann dæmt á sig mark eftir aukaspyrnu af 30 metra færi, sem Graham Rix tók. Shilton náöi aö verja, en dómar- inndæmdimark og taldi aöknött- urinn heföi fariö allur yfir mark- linu. Mark þetta var sýnt aftur og aftur i ITV-sjónvarpinu I Englandi og sést þar greinilega aö knötturinn fór ekki allur yfir linuna. Ogekki var þaö til aö bæta á eymd Shiltons aö hann varö uppvi's að því i vikunni sem leiö aö halda viö gifta konu I Englandi og lenti i bilslysi viö aö reyna aö foröast reiöan eiginmann hennar. Shilton slasaöist ekki mikið, skarst smávegis, en áhangendur Arsenal létu hann ekki i friöi allan leikinn og létu hann hafa þaö óþvegiö. Arsenal lék betur og átti skilið sigur, þvi aö liöiö átti miklu betri og fleiri færi en Nottingham Forest. Til dæmis komust bæöi Ken Sansom og Brian Talbot einir innfyrir börn Nottingham Forest, en Shilton bjargaöi meö góöu Uthlaupi. í hinu markinu stóö George Wood og spilaöi sinn fyrsta leik fyrir Arsenal eftir aö hafa veriö keyptur frá Everton i sumar.Hann haföilitiöaögera og i eina skiptið, sem hann þurfti aö taka á, var að bjarga hættulegri sendingu frá bakveröi Arsenal, John Devine. Nottingham Forest þarfnast auösjáanlega Trevor Francis, sem byrjaöi aö æfa aftur I seinustu viku eftir aö hafa veriö meiddur I fimm mánuöi. 1 Manchester áttust viö Manchester liöin United og City. Fyrirfram var búist viö sigri United, ekki af þvi aö þeir hafi veriö svo sannfærandi undan- farnar vikur, heldur af þvi aö City hefur veriö svo lélegt. United byrjaöi leikinn af krafti og Steve Coppell náöi forustu viö mikil fagnaöarlæti rUmlega 56.000 áhorfenda. Heldur sló þögn á hópinn, þegar Kevin Reeves jafn- aöi fyrir City.en skömmu siöar skoraöi Arthur Albiston, vinstri bakvöröur United sitt fyrsta mark fyrir United og var þaö mjög umdeilt. Leik þessum var lýst i BBC og virtist áhorfendum sem tveir leikmanna United væru rangstæöir. Roger Palmer jafn- aöi fyrir City á lokaminútu leiks- ins og var þarmeð réttlætinu full- nægt. Malcolm Allison, framkvæmdastjóri Manchester City, mun þvi sennilega vera með liöiö næstu vikuna, en hann hefur átt erfitt meö aö halda sæti sinu ogvarbúist viö,að ef Manchester City tapaöi fyrir Machester United, þá væri hannlátinn fjUka. Liverpool að ná sér á strik Meistaramir Liverpool áttu i erfiöleikum meö Brighton fyrstu 37 minUturnar, en eftir þaö var einstefna aö marki Brighton. Besti leikmaöur vallarins, Graham Souness, skoraöi þá gott mark og leikmenn Liverpool hættuekkifyrr enþeirhöföu bætt við þremur mörkum.McDermott, Fairclough og Souness tvö (1 viti) skoruöu fyrir Liverpool, en Horton Ur viti fyrir Brighton eftir aö Phil Thompson felldi Mike Robinson í vitateignum, á 86. min. Liverpool er komið á skriö eftir frekar slæma byrjun, en frammistaöa Brighton er frekar skrykkjótt. Hitt liðiö frá Liverpool, Everton, sem hefur veriö i skugga Liverpool seinustu árin og likaö illa hefur nU unnið fjóra leiki i röðog er markatala þeirra I þeim leikjum 14-0, þaraf hafa tveir leikir unnist 5-0. Hiö unga lið Coventry vissi ekki hvaöan stóö á sig veöriö, þegar Everton hóf leikinn af miklum krafti og skor- aöi strax. Leikmenn Everton voru I miklu stuöi og yfirspiluöu liö Coventry algjörlega. Þegar yfir lauk, var staðan 5-0, mesta tapCoventry á heimavelli I 20 ár. Joe McBride og Bob Latchford skoruöu tvö mörk hvor, en Peter Eastoe eitt. Ipswich eitt ósigrað il. deild. Ipswich hefur nú einungis tapaö einu stigi i átta leikjum og heldur áfram, þar sem frá var horfiö i fyrravor, þegar gengi þeirra var hvaö sem mest. Fórnardýriö I þetta sinn var Wolves, sem hefur nU tapaö fjórum leikjum I röö. Alan Brazil skoraöi snemma fyrir Ipswich og Paul Mariner bætti viö ööru eftir frábæran undirbUning hollenska landsliösmannsins Frank Thyssen. Fleiri uröu mörkin ekki. Liðsmenn Wolves geta sjálfum sér um kennt, hvernig fór, þvi aö þeir Andy Gray og Mel Eves áttu mjög góö færi I byrjun leiksins, sem þeim tókst ekki aö nýta. Mikiö verk biöur nU framkvæmdastjóra Leeds, Alan Clarke, eftir aö liöhans tapaöi illa fyrir Sunderland 1-4. Pop Robson skoraöi tvivegis fyrir Sunderland i fyrri hálfleik, og staöan var 2-0 i hálfleik. Derek Parlane tókst aö laga stööuna i 2-1, er hann skoraði gott mark I byrjun seinni hálf- leiks. Ahangendur Leeds voru vart hættir að fagna, þegar Powell skoraöi þriöja mark Sunderland og Brown innsiglaöi sigur Sunderlands á 87 minUtu. Stoke hefur ekki gengiö vel I 1. deildinni eftir aö hafa komist upp Ur 2. deild i hitteöfyrra. Þaö er góöur árangur á heimavelli sem ver þá falli i 2. deild. úlfar eru ennþá ósigraöir á heimavelli þetta keppnistlmabil og sigruöu Middlesbro meö einu marki gegn engu. Leikmenn Middlesbro hafa ekki náö aö sýna staöfestu i leik sinum. Þeir unnu Arsenal fyrri laugardag, en áttu ekki svar viö marki hollenska leikmannsins Loek Ursem þessa helgi. Engin sorg hjá Crystal Palace „Hvi eru þiö svona daprir” sagöi Terry Venables, framkvæmdastjóri Crystal Palace, viö áhangendur liösins, sem tóku nærri sér tap Crystal Palace gegn Aston Villa á heima- velli fyrrnefnda liösins. „Þaö er enginn dauöur ennþá”. Venables hefur ekki gefiö árar I bát, þó aö staða Crystal Palace sé orðin heldur slæm. Einungis eitt tap, en sjö ósigrar. Leikmenn Crystal Palace gáfu allt sem þeir áttu i leiknum gegn Aston Villa, en þaö dugöi ekki. Gary Shaw skoraöi mark á 86. minútu eftir undirbUn- ing Des Bremner og Peter Withe, og þaö mark nægöi til aö festa Crystal Palace enn betur viö botninn. Shaw heföi i raun ekki átt aö leika, þar sem hann var meö hita fyrir leikinn. Eins voru fimm aðrir leikmanna Aston Villa rislágir, enda grunur um aö þeir væru meö aökenningu af matar- eitrun. Menn Tottenham, sem vann tvo fyrstu leiki sina I haust, hefur gengiö heldur illa upp á siökastiö, enda hafa þeir ekki skorað nema eitt mark i' sföustu fimm leikjum sinum. Leicester hefur ekki heldurveriösannfærandi.Tvö töp 0-5 siöastliöna laugardaga, hafa fariö illa meö sjálfstraust leikmanna Leicester. Þaö voru bvi taugaóstyrkir leikmenn Leicester, sem hófu leikinn gegn Tottenham á laugardaginn. Þeim tókst þó aö halda hreinu i fyrri hálfleiken á þriöju minútu seinni hálfleiks tókst Ricardo Villa, Argentinumanninum snjalla, aö skora gott mark fyrir Tottenham. Tottenham réöu lögum og lofum á vellinum, en gegn gangi leiksins tókst Leicester aö jafna á 61. minútu meö marki bakvaröarins Bobby Smith og Buchanan bætti um betur og kom Leicester yfir á 84. minútu. Steve Archibald og Garth Crooks sem Tottenham keyptu i' sumar fyrir eina og hálfa milljón punda, eiga þvi á hættu aö missa sæti sitt i liðinu, ef ekki tekst betur til hjá þeim i næstu leikjum, þvi aö þeir hafa haft fjöldann allan af tækifærum til að moöa Ur. Southampton dalar Southampton féll úr þriöja sæti i þaö sjötta meö tapi begn WBA. Charlie George kom Southampton yfir i byrjun seinni hálfleiks, en Alistair Brown skor- aöi tvömörk fyrir WBA og nægöu þau til sigurs. Charlie George mun eiga á hættu aö vera settur i langt leikbann fyrir aö hafa slegiö ljósmyndara alveg upp úr þurru, eins og menn segja, fyrir hálfum mánuöi. Leikmenn Norwich náöu aldrei undirtökunum i leiknum gegn Birmingham. Eftir aö hafa tvisvar náö forustu uröu úrslitin jafntefli tvö mörk gegn tveimur. Justin Fashanu skoraöi aö sjálf- sögöu annaö marka Norwich og Graham Paddon hitt. Fashanu er nú metinn á um tvær milljónir punda og þykir ekki dýr. Mörk Birmingham skoruöu gamla kempan Frank Worthington og Alan Ainscow. Blackburn gefur ekki eftir þumlung Blackburn er ennþá með tveggja stiga forustu f 2. deildinni meö 14 stig, en West Ham og Notts County fylgja fast á eftir meö 12 stig. Þaö er athyglisvert, að tvö af þremur liðunum, sem komu upp úr þriðju deildinni i vor, eru meöal fjögurra efstu liöa i annarri deildinni, þaö er aö segja Blackburn og Sheffield Wednesday. Blackburn heimsótti Wrexham á laugardaginn og haföi á braut bæöi stigin. Wrex- ham er sterkt á heimavelli, þannig aö um meiriháttar afrek var aö ræöa hjá Blackburn. Það var Duncan MacKenzie, sem skoraöi eina mark Blackburn sem er eina ósigraöia liöiö i 2. deild. WestHamsigraöi Cambridge á útivelli meö tveimur mörkum gegn einu. Ahangendur West Ham hafa hagað sér illa undanfariö og hafa meöal annars orðið þess valdandi, að West Ham spilar seinni leik sinn gegn spánska liöinu Castilla i Evrdpu- bikarpkeppni bikarhafa á heima- velli, en án áhorfenda. Aö þessu sinni voru áhorfendur West Ham hafðir i búri, þannig aö þeir gætu ekki valdiö skaöa. Lið West Ham haföi yfirburöi gegn liði Cambridge og John Lyall, framkvæmdastjóri West Ham, var m jög ánægöur meö slna menn og taldi hann þá hafa spilaö einfaldan, nettan en árangursrik- an fótbolta. Paul Goddard skoraöi sitt sjötta mark I haust fyrir West Ham og David Cross bætti viö ööru marki fyrir liðiö. Staöan i 1. deild. Ipswich 8 7 0 0 16-3 15 Liverpool 8 4 3 1 18-7 11 Everton 8 5 1 2 16-7 11 Aston Villa 8 5 1 2 9-7 11 Nottingh.For. 8 4 2 2 15-6 10 Sunderland 8 4 2 2 14-6 10 Southampton 8 4 2 2 14-9 10 Arsenal 8 4 2 2 10-7 10 Manchester U 8 2 5 1 11-4 9 WBA 8 3 3 1 9-9 9 Tottenham 8 2 4 2 9-9 8 Middlesbro 8 3 2 3 10-12 8 Stoke 8 3 2 3 9-15 8 Birmingham 8 1 5 2 11-12 7 Coventry 8 3 1 4 8-13 7 Brfghton 8 2 2 4 11-15 6 Leicester 8 3 0 5 6-15 6 Norwich 8 2 1 4 11-16 5 Woives 8 2 1 5 5-10 5 Manchester C. 8 0 4 4 10-18 4 Leeds 8 1 2 5 6-16 4 CrystalP. 8 1 0 7 10-22 2 StaöanI2. deild. Blackburn 8 6 2 0 14-4 14 West Ham 8 5 2 1 15-6 12 NottsCounty 8 5 2 1 13-10 12 Sheffield W 8 5 1 2 11-7 11 Swansea 8 3 3 2 12-9 9 Oldham 8 3 3 2 8-5 9 Derby 8 4 1 3 9-10 9 Newcastle 8 3 3 2 7-10 9 Orient 8 3 2 3 12-11 8 Wrexham 8 3 2 3 9-10 8 Chelsea 8 2 4 2 12-12 8 Luton 8 3 2 3 7-9 8 Bolton 8 2 3 3 10-9 7 Cardiff 8 3 1 4 12-14 7 Preston 8 1 5 2 5-7 7 Shrewsbury 8 2 3 3 8-12 7 Q.P.R. 8 2 2 4 11-7 6 Watford 8 3 0 5 11-14 6 Grimsby 8 1 3 4 4-8 6 Cambridge 8 2 1 5 9-12 5 Bristol R 8 0 5 3 4-11 5 Bristol C 8 0 3 5 3-11 3 Peter Shilton, umdeildasti knattspyrnumaöur I Bretlandi þessa dagana (sjá umsögn um leik Arsenal-Nottingham Forest) tókst aö halda boltanum fyrir utan marklinu, en samt var dæmt mark. Þessa mynd tók Elias Snæland Jónsson, fréttastjóri Visis, en hann var staddur á Highbury á laugardag- inn og smellti af á réttu augnabliki.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.