Vísir - 01.10.1980, Side 6
vísm
Miðvikudagur 1. október 1980.
ummMmmwmtfíiwmmfmmmwmu
Hvliði úr 3. llokKi í
lanflsliðinu í kðriu
- Mikið um verkefni hjá isienska landsliðinu í körfuknailleik
Jón SigurOsson veröur fyrirliöi
iandsliösins f komandi landsleikj-
um I körfuknattieik. Hann hefur
leikiö 77 iandsieiki fyrir island og
leikur því aö öllum iikindum sinn
80. landsleik gegn Kinverjum.
Islendingar og Kinverjar leika i
næstu viku tvo landsleiki i körfu-
knattleik og fer fyrsti leikurinn
fram á fimmtudaginn 9. október.
A blaöamannafundi, sem
landsliðsnefnd Körfuknattleiks-
sambandsins boöaði til i gær, var
landsliðshópurinn tilkynntur og
eru i honum eftirtaldir leikmenn:
Gunnar Þorvaröarson UMFN
Guðsteinn Ingimarsson UMFN
Jónas Jóhannesson UMFN
Július Valgeirsson UMFN
Valur Ingimundarson UMFN
Jón Sigurðsson KR
AgústLindal KR
Jón Jörundsson ÍR
Kolbeinn Kristinsson IR
Simon ólafsson Fram
Þorvaldur Geirsson Fram
Viðar Þorkelsson Fram
Torfi Magnússon Val
Kristján Agústsson Val
Rlkharður Hrafnkelsson Val
Valdimar Guðlaugsson Armanni
Axel Nikulásson IBK
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu vantar ýmis þekkt nöfn i
hópinn að þessu sinni og ber þar
hæst þá Pétur Guðmundsson,
Kristin Jörundsson og Flosa
Sigurösson.
„Það er mjög slæmt fyrir okkur
að missa Pétur út úr þessu. Við
munum sakna hans mjög enda
hefur undirbúningur landsliðsins
mikið miðast við veru hans i
landsliöinu Þá er einnig mjög
bagalegt að missa þá Kristin
Jörundsson og Flosa Sigurðs-
son”, sagði Einar Bollason,
landsliðsþjálfari, á blaðamanna-
fundinum i gær.
„Kristinn er sem stendur i
Bandarikjunum, en er væntan-
legur heim bráölega og þá
vonumst við til þess að hann hefji
æfingar. Flosi hefur verið við
nám i Bandarikjunum undanfarið
og hann fær sig ekki lausan,”
sagði Einar.
1 landsliðshópnum eru 17 leik-
menn og er búist við að þeir muni
allir fá tækifæri gegn Kinverjum.
I hópnum eru fimm leikmenn,
sem aldrei hafá leikið i islensku
landsliðspeysunni. Það eru þeir
Agúst Lindal KR, Valdimar Guð-
laugsson, Armanni, Valur Ingi-
mundarson, UMFN, Axel
Nikulásson, IBK og Viðar Þor-
kelsson úr Fram, en hann er
fyrsti islenski körfuknattleiks-
maðurinn sem valinn er i lands-
liðið og leikur i 3. flokki, en hann
er aðeins 17 ára gamall.
Eins og fyrr sagði fer fyrsti
leikurinn fram þann 9; þessa
mánaðar og verður þá leikið i
Laugardalshöll. 11. október verð-
ur leikið i Borgarnesi og daginn
eftir i Njarðvik. A mánudaginn
13. október leika Kinverjar siðan
SÍÐBÚNIR MEISTARAR
_ Fyrir stuttu fór fram heldur
| slöbúinn úrsiitaleikur i m.fl.
mm kvenna I körfuknattleik áriö
| 1979.
b Einhverra hluta vegna fór
■ leikurinn ekki fram I fyrra, en i
■ gærkvöldi var sem sagt leikiö tii
ll
I
úrsiita og ÍR sigraði KR meö 58!
stigum gegn 56 eftir aö staöan I
haföi veriö 29:24 i leikhtéi IR iZ
vil. |
Þjálfari IR-stúiknanna er-
Einar ólafsson. |
-sSK.a
gegn úrvaldsliði KKI og er ætlun-
in að nokkrir af þeim erlendu
leikmönnum, sem leika hér i vet-
ur leiki þá með islenska landslið-
inu.
Mikil verkefni eru framundan
hjá islenska landsliöinu.
Frakkar koma hingað um ára-
mótin og leika hér tvo landsleiki
og i byrjun janúar 1981 tekur
Island þátt i fjögurra landa
keppni i Wales. Þá er stefnt að
fjórum landsleikjum hér á landi i
mars og loks verður haldið til
Skotlands 3.-7. april og tekið þátt i
alþjóðamóti, þar sem landslið
Wales, Austurrikis, Noregs,
Irlands og Englands verða meðal
keppenda auk Islands. Þá eru
fyrirhugaðir tveir landsleikir
gegn Belgum 9.-10. april.
Rúsinan i pylsuendanum og
raunar það mót, sem allir þessir
leikir og undirbúningur landsliðs-
ins miðast við, verður svo þátt-
taka Islendinga i heimsmeistara-
keppninni, en tsland er i c-liði
ásamt Sviss, Skotlandi, Alsir,
Portúgal og Luxemburg. Ættu
möguleikar tslendinga að vera
nokkuð góðir á að vinna sig upp i
B-riðilinn, ef vel tekst til.
—SK.
Utborgun allt niður í 25%
og eftirstöðvar fánum við allt að 10 mánuði
RYMINGARSALA
Opið föstudaga til kl. 22
laugardaga kl. 9-12
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600