Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 7
499 kr.
Sumarblóm
á þjóðhátíð
Stjúpur
Fjólur
Alýsur
Flauelsblóm
10 stk.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
BL
O
18
04
7
06
/2
00
2
SELKÓPUR fæddist í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Laugardal
aðfararnótt föstudags og annar á
laugardagsmormorgun.. Urtan Sæ-
rún kæpti fyrst sínum sjöunda kópi
frá því að hún fluttist í garðinn árið
1996 og Kobba fylgdi á eftir rúmum
sólarhring síðar. Hafa þær kæpt á
hverju ári með aðstoð brimilsins
Snorra. Særúnu, Kobbu og kóp-
unum litlu heilsast vel, en þeim hef-
ur ekki verið gefið nafn ennþá.
Verða þeir á spena næstu fjórar
vikurnar og munu á þeim tíma tvö-
falda þyngd sína ef allt gengur vel.
Tveir kópar
á tveimur
sólarhringum
Morgunblaðið/Arnaldur
ÁTTA bæjar- og sveitarfélög aug-
lýstu í Morgunblaðinu á sunnudag
eftir bæjar- eða sveitarstjórum.
Þá var einnig auglýst laust til
umsóknar nýtt starf forstjóra
Umhverfisstofnunar en sú stofn-
un tekur til starfa í byrjun næsta
árs og tekur meðal annars við
hlutverki Hollustuverndar, Nátt-
úruverndar og embætti veiði-
stjóra.
Á Blönduósi lætur Skúli Þórð-
arson af embætti bæjarstjóra, á
Austur-Héraði, Björn Hafþór
Guðmundsson, Ólafsfirði, Ásgeir
Logi Ásgeirsson, í Árborg Karl
Björnsson, Vesturbyggð, Jón
Gunnars Stefánsson og í Ölfusi,
Sesselja Jónsdóttir.
Í Húnaþingi vestra lætur
Brynjólfur Gíslason af embætti
sveitarstjóra og Loftur Þorsteins-
son lætur af því embætti í Hruna-
mannahreppi.
Bæjar- og sveitarstjórastöður
Átta störf auglýst
ÍSLENSKA liðið, Club Logberg,
komst í undanúrslit í norrænu mál-
flutningskeppninni sem háð var í
Stokkhólmi í Svíþjóð um helgina. Í
undanúrslitum gerði liðið jafntefli við
liðið frá Árósum, sem síðar sigraði í
keppninni. Það dugði þó ekki til að
komast í úrslit.
Alls tóku tólf lið frá háskólum á öll-
um Norðurlöndum þátt í keppninni
sem hefur verið haldin á hverju ári í
átján ár. Fimm lið eru frá Svíþjóð,
þrjú frá Noregi, tvö frá Danmörku og
eitt lið frá Finnlandi og Íslandi. Lið-
unum var skipt í vörn og sókn og
snýst keppnin um að gefin er ákveðin
málavaxtalýsing og eiga liðin svo að
sækja og verjast meintum brotum á
tiltekinni grein Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Keppninni er skipt í
greinargerðarskrif og málflutning og
fór fram á Norðurlandamálum.
Auk þess að komast í undanúrslit
fékk íslenska liðið verðlaun fyrir
bestu greinargerð varnarmegin. Í lið-
inu í ár voru: Arnar Thor Stefánsson,
Ásta Stefánsdóttir, Bergþóra Ingólfs-
dóttir, Bjarni Mar Magnússon, Helga
Hauksdóttir, Jóhanna Kristín Claes-
sen og Þórður Sveinsson.
Norræn
málflutningskeppni
Íslenska
liðið komst
í undan-
úrslit
♦ ♦ ♦
ÍSLANDSFLUG hefur ákveðið að
bjóða aftur upp á ATR 46 sæta
skrúfuþotu í áætlunarflugið til Vest-
mannaeyja í sumar, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Fyrsta
ferðin var farin laugardaginn 8. júní
síðastliðinn.
„Íslandsflug flýgur 19 ferðir á viku
milli lands og Eyja í sumar og er
stefnt að því að hafa 46 sæta ATR-
vélina í öllum morgun- og kvöldferð-
um. Síðan fer það eftir bókunum
hvort ATR-vélin verður einnig notuð
í hádegisflugið.
Með endurkomu þessarar vélar
aukast möguleikar Íslandsflugs til
þess að sinna leiguflugi samhliða
áætlunarflugi og getur félagið þá
boðið upp á hvort sem er 19 eða 46
sæta flugvélar,“ segir ennfremur.
Sætum
fjölgað í flugi
til Eyja
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni