Morgunblaðið - 28.07.2002, Side 24
LISTIR
24 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DAGUR Gunnarsson er höfundur
læsilegrar og gagnlegrar bókar um
London. Nú sendir hann frá sér
Bókina um Andalúsíu sem er leið-
sögurit um Suður-Spán.
Bókin er í senn handbók og fræði-
rit því að auk hagnýtra upplýsinga
er fjallað um Spán og spænska sögu
fyrr og nú.
Það er í raun álitamál hvernig
þessu verður blandað saman en ég
hygg að lesendur muni fagna því að
hafa á einum stað jafn ítarlega um-
fjöllun.
Í inngangi er lögð áhersla á að
ferðalangurinn sé sjálfstæður og
sýni eigið frumkvæði: „Hið háleita
markmið þessarar bókar er að
hvetja lesandann til dáða, fræða
hann og leggja grunninn að ævin-
týralegum rannsóknarleiðöngrum
um hina dásamlegu Andalúsíu, og
auka enn frekar á ánægjuna af að
skoða merka og sögufræga staði.“
Höfundinum tekst einkar vel að
fjalla um borgirnar Granada, Sevilla
og Córdoba. Einnig má segja að
ýmsar leiðalýsingar þar sem bókin
nálgast það að vera vegahandbók
komi sér vel fyrir þá sem aka um í
eigin bíl eða bílaleigubíl. Lýsingar
eru nákvæmar og maður hefur á til-
finningunni að fátt sé ótalið. Benda
má á kafla eins og Strandlengjan frá
Málaga til Cádiz og Jerez, Fjalla-
baksleið milli Ronda og Antequera,
Ólífuleiðin frá Córdoba til Granada
og fleiri leiðalýsingar.
Athygli vekur hve höfundurinn
þekkir vel tapasstaði þar sem gæða
má sér á þessum spænsku smárétt-
um og drekka með glas af víni.
Þetta bjargar lesandanum/ferða-
manninum frá glýju yfir fornri
frægð landsins, höllum og köstulum.
Það er staðreynd að í Andalúsíu
og annars staðar á Spáni er það hið
daglega líf sem heillar mest.
En vilji menn njóta hátíða er nóg
af þeim. Það er alltaf verið að gleðj-
ast á Spáni.
Hátíðirnar út um allt koma ferða-
manni á óvart og geta reynt á þolrif-
in. Sérrídrykkjan er til dæmis
gegndarlaus og furðulegt hve menn
geta innbyrt mikið af sérríi.
Í Sevilla til dæmis, á aprílhátíð-
inni, eru miklar átveislur og dansað
fram á nótt. Þá drekka hátíðargestir
jafn mikið sérrí á einni viku og öll
spænska þjóðin neytir á einu ári, að
sögn Dags. Fino er það sérrí sem
menn drekka yfirleitt.
Á milli máltíða, til dæmis fyrir
kvöldmat, eru smáréttirnir á dag-
skrá og geta jafnast á við heila mál-
tíð.
Það er því ekki skrýtið að margir
Spánverjar eru feitlagnir, einkum
þeir sem komnir eru á miðjan aldur.
Fino er þurrt ljóst sérrí en ekki er
skortur á sætum vínum á Spáni,
einkum í Málaga og nágrenni.
Spænska kaffið er mjög gott og er
auðvelt að mæla með mjólkurkaffi
og einföldum sterkum kaffidrykk,
einkum eftir mat.
Dagur er fundvís á ýmsan fróðleik
um Spán og sögu hans. Hið alræmda
gil í Ronda sem notað var sem af-
tökustaður í borgarastyrjöldinni
veldur mörgum hryllingi. Dagur
segir frá því að þegar arkitektinn
sem hannaði brúna, Nýju brú, yfir
gilið var að líta á verk sitt og gekk út
á vinnupall missti hann hattinn en
við að teygja sig eftir honum hrapaði
hann í gilið.
Þótt Spánn sé fullur af góðu fólki
hefur margur óhugnaðurinn gerst
þar. Nægir að minna á Rannsókn-
arréttinn.
Dagur segir í löngu máli frá már-
um í Alhambra. Hallargarðurinn El
Generalife er friðsæll. Kýprusviður
þar var vitni að leynilegum ástar-
fundum Zorayu Máradrottningar og
elskhuga hennar. „Þegar soldáninn,
Abu al-hazan, komst að hjúskapar-
broti uppáhaldseiginkonu sinnar lét
hann hálshöggva elskhugann og alla
karlmenn í hans ætt, sextán talsins.
Það var framkvæmt í einum salnum
sem liggur út frá Ljónagarðinum í
Nazarieshöllinni.“
Borgarastyrjöldin var mikil blóð-
taka eins og Dagur rifjar upp og
sleppir ekki að geta grimmdarverka
þjóðernissinna og líka lýðveldis-
sinna. Það má ekki gleymast að hinir
síðarnefndu voru ekki heldur neinir
englar.
Borgarastyrjöldin, undanfari
hennar og eftirmál, var mótsagna-
kennd og margt flókið blasir við
þegar segja skal frá henni. Nú á síð-
ustu árum hafa komið út bækur, á
Spáni og utan Spánar, sem afhjúpa
mörg leyndarmál og birta ný sjón-
arhorn.
Talið er að 350 þúsund Spánverjar
hafi látið lífið í borgarastyrjöldinni.
Andalúsía er sérstakur heimur,
ekki síst vegnar þeirrar blöndu
ólíkra þjóða sem hún vitnar um.
Márar, gyðingar og sígaunar hafa
skilið eftir sig sín spor og hinir síð-
astnefndu eru þar enn áberandi.
Í Bókinni um Andalúsíu er fjöldi
mynda eftir höfundinn og eru þær
góður stuðningur við textann.
Tapas og vínglas
BÆKUR
Leiðsögurit
eftir Dag Gunnarsson (texti og ljós-
myndir). Umbrot: Edda hf. Prentuð í Dan-
mörku. Mál og menning 2002 – 247 síð-
ur.
BÓKIN UM ANDALÚSÍU
Dagur Gunnarsson, höfundur Bókarinnar um Andalúsíu.
Jóhann Hjálmarsson
KÓR Menntaskólans við Hamra-
hlíð undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur heldur ellefu tónleika á
Alþjóðlegu ungmennalistahátíð-
inni í Aberdeen sem haldin er í
30. sinn á næstunni. Kórinn held-
ur utan á þriðjudag, en komið
verður heim 10. ágúst. Þorgerður
Ingólfsdóttir segir að þátttakan í
hátíðinni sé stórkostlegt tækifæri
fyrir kórinn. Kórnum hefur áður
verið boðið að syngja á hátíðinni,
en það var árið 1986. „Í hvert sinn
sem hátíðin er haldin eru valdir
hópar víðs vegar að úr heiminum
til þátttöku; við sungum þarna ’86,
en Strengjasveit Tónlistarskólans
í Reykjavík hefur líka komið fram
á hátíðinni. Við vorum beðin að
vera alla hátíðina og það verður
farið með okkur víða um suðaust-
urhluta Skotlands til að syngja.“
Þorgerður segir að listhópar frá
16 þjóðlöndum taki þátt í hátíð-
inni í Aberdeen að þessu sinni.
„Þarna ríkir mikil víðsýni og með-
al annarra þátttakenda verða
akróbatar frá Kína, balletthópur
frá Prag, Kammersveit Kons-
ervatorísins í París, aðalæsku-
sinfóníuhljómsveit Japans, þjóð-
dansahópur frá Úkraínu og
mandólínhljómsveit frá Makedón-
íu. Óperan Don Giovanni verður
flutt á hátíðinni, og þar verður
ungt fólk frá ýmsum löndum í að-
alhlutverkum Það er þetta sem
gerir þetta svo ótrúlega hvetjandi
fyrir ungt fólk; – að hitta sína
kynslóð frá öðrum löndum, sem er
að fást við listir af alvöru. Þetta
er alveg ævintýralegt.“ Auk Kórs
Menntaskólans við Hamrahlíð taka
tveir aðrir kórar þátt í hátíðinni;
háskólakór frá Póllandi og kór frá
tónlistarskóla í Noregi. Á opn-
unartónleikum á miðvikudag
syngja kórarnir þrír saman ásamt
þremur hljómsveitum; – þeirri
japönsku, kammersveitinni frá
París og portúgalskri hljómsveit
þjóðsöngva allra þjóðanna sem
taka þátt í hátíðinni í ár. Á undan
verður gengið í skrúðgöngu að
tónleikastaðnum, en sekkjapípu-
hljómsveit leiðir gönguna. „Þessir
þrír kórar hafa því þurft að læra
þjóðsöngva allra þjóðanna, en það
er gaman að segja frá því að það
er búið að velja íslenska þjóð-
söngin sem fallegasta þjóðsöng
landanna sextán, og við eigum að
syngja hann án undirleiks.“
Tónleikaprógramm Kórs
Menntaskólans við Hamrahlíð
verður strangt. Fyrstu stóru tón-
leikar kórsins verða strax annan
dag hátíðarinnar í frægri dóm-
kirju, Brechin, frá 13. öld, en
kynnir á tónleikunum verður
Magnús Magnússon. Kórinn syng-
ur í hámessu á sunnudag í dóm-
kirkjunni í Aberdeen, en meðal
annarra staða sem kórinn heim-
sækir með söng sínum eru Stone-
haven, Arbroath og kastalinn fal-
legi í Crathes. Tónleikar kórsins í
Aberdeen verða í Mitchell Hall, en
kynnir á þeim tónleikum verður
skoska tónskáldið John Hearne,
sem bjó um tíma á Íslandi. Svo vill
til að kórinn hefur einmitt í far-
teskinu íslensk þjóðlög sem hann
útsetti þegar hann bjó hér á landi.
Á galatónleikum í lok hátíðar-
innar tekur kórinn þátt í flutningi
stórra verka ásamt öðrum kórum
og hljómsveitum sem á hátíðinni
verða. Þá verða flutt tvö verk með
kór, Coronation Te Deum eftir
William Walton og Nänie eftir
Brahms, en auk þess tvö hljóm-
sveitarverk, Fiðlukonsert eftir
Bruch og Sinfónía nr. 8 eftir Dvo-
rák. „Við höfum eytt miklum tíma
í að undirbúa þessi verk hér
heima, því við verðum auðvitað að
kunna þau vel þegar við komum
út.“
Þorgerður segir að kórinn hafi
jafnframt með sér stórt pró-
gramm bæði íslenskra og erlendra
kórverka; allt frá þjóðlögum til
verka sem samin hafa verið fyrir
Þorgerði og kórana hennar. Það
hafa því verið stífar æfingar í
Hamrahlíðinni í allt sumar, og
segir Þorgerður krakkana hafa
staðið sig vel. Þá hafi vinnuveit-
endur þeirra og vinnufélagar sýnt
þeim mikinn skilning og hliðrað
til þannig að krakkarnir hafi get-
að mætt á æfingar. Og sumir hafa
komið um langan veg. „Ein stúlka
hefur komið akandi frá Hvera-
gerði á hverja einustu æfingu,
nokkrir hafa komið austan úr
Biskupstungum og austan af
Hvolsvelli og jafnvel norðan úr
Húnavatnssýslu. Þau telja þetta
ekkert eftir sér,“ segir Þorgerður.
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð verður með tónleika í Há-
teigskirkju kl. 17.00 í dag, en þar
verða sungin sýnishorn úr efnis-
skrá Skotlandsferðarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur á Aberdeen International Youth Festival
Hvetjandi að hitta jafnaldra
sem fást við listir af alvöru