Morgunblaðið - 28.07.2002, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.07.2002, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 49 Útsalan A T H ! A fs lá tt a rk o rt g ild a e k k i hefst mánudaginn 29. júlí Skráning er í síma 565-9500 Hraðlestrarnámskeið Viltu margfalda afköst í námi? Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð? Næsta hraðlestrarnámskeið hefst þriðjud. 3. september HRAÐLESTRARSKÓLINN w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s BIRGITTA Haukdal var kjörin söng- drottning sumarsins í óformlegri könnun sem mbl.is stóð fyrir á dög- unum. Það kemur trúlega fáum á óvart þar sem Birgitta hefur verið fremst í flokki söngvara sveitaballa- hljómsveita sumarsins með sveit sinni Írafári. Birgitta er einnig nýr umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Pikktíví á Popptíví, þar sem hún tek- ur við óskalögum áhorfenda í beinni útsendingu. En hvernig skyldi söng- drottning sumarsins hafa það í dag? Mjög gott, takk fyrir, ég er bara mjög sátt við lífið í dag. Hvað ertu með í vösunum? Ég er með 2.000 kall, varasalva og lyklana að æfingahúsnæðinu okkar í jakkavasanum. Er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt? Ég drekk rosalega lítið af mjólk og nota hana bara helst út á morgun- matinn minn, þannig að ég mundi segja að það sé alltaf tómt hjá mér. Ef þú værir ekki söngkona hvað vildirðu þá helst vera? Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að vinna hjá fjölmiðlum og mundi kannski vilja einbeita mér meira að því ef ég væri ekki söngkona. Ég er í hlutastarfi á Popptíví með söngnum og ætli ég geti ekki sagt að þessa stundina hafi ég allt sem ég vil. Hefurðu tárast í bíói? Jáhá, ég er mjög viðkvæm fyrir sorg- legum atriðum í myndum og fór að háskæla á Titanic svo einhver mynd sé nefnd. Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Ég er frá Húsavík. Það voru ekki mjög margar erlendar hljómsveitir sem heimsóttu okkur, eins og kannski er með alla aðra staði úti á landi. En ég fór á Garbage-tón- leikana þegar ég var flutt í borgina og skemmti mér þrusu vel. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Það er eiginlega enginn sérstakur sem pirrar mig, en ég verð að segja að Enrique Iglesias pirrar mig mikið sem söngvari. Það er alltaf eins og hann sé háskælandi. Hver er þinn helsti veikleiki? Ég er mjög viðkvæm og á oft erfitt með að halda aftur af mér og er oft of hreinskilin. Finndu fimm orð sem lýsa persónu- leika þínum vel. Hress, hreinskilin, viðkvæm, indæl og „ókei“ svolítil frekja. Westlife eða Backstreet Boys? Æ, þoli hvoruga, þetta er óttalegt væl hjá þeim. Finnst aftur á móti meira varið í NSYNC svona söng- lega séð. Hver var síðasta bók sem þú last tvisvar? Ég er enginn lestrarhestur og verð að segja að ég hef heldur engan tíma fyrir bækur þessa stundina. Ég nota allan tíma sem ég hef auka- lega fyrir fjölskylduna mína. Ég hugsa að einu bækurnar sem ég hef lesið tvisvar séu skólabækur. Hvaða lag kveikir blossann? Vá, það eru svo mörg yndisleg lög til sem kveikja blossann, en ef ég á að nefna eitt þá er það „When you say nothing at all“ með Ronan Keating . Hvaða plötu keyptirðu síðast? Ég var að kaupa nýja diskinn með Anastaciu og hann er mjög góður. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Þegar ég stal ávísanaheftinu hennar mömmu og bauð vinkon- unum útí sjoppu í eins mikið bland í poka og þær vildu! Hí hí, þetta gekk náttúrulega ekki upp og afgreiðslukonan hringdi í mömmu og lét hana sækja mig. Það mátti reyna. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Ég hugsa að söl séu það skrítnasta sem ég hef smakkað. Bland í poka í boði mömmu SOS SPURT & SVARAÐ Birgitta Haukdal söngkona

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.