Morgunblaðið - 07.08.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.08.2002, Qupperneq 1
182. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 7. ÁGÚST 2002 Norskar skelfimyndir Stuggað við hæl- isleit- endum SÆNSK innflytjendayfirvöld reikna með því að hælisleitend- um í Svíþjóð muni fjölga í kjölfar þess að fyrirhugað er að sýna á kostnað Norðmanna myndir af slæmum aðbúnaði í búðum fyrir hælisleitendur í Noregi í sjón- varpi í Rússlandi og Úkraínu. „Ég á bágt með að trúa að við munum grípa til slíkra ráðstaf- ana hér í Svíþjóð. Bæði hef ég siðferðilegar athugasemdir, og auk þess reynum við að taka á móti flóttafólki á mannvænan og virðingarverðan hátt. Sænska móttökukerfið þarf ekki að skammast sín fyrir neitt og því getum við ekki hrætt neinn. Þessu er greinilega öðruvísi farið í Noregi,“ hefur Svenska Dagbladet eftir Anders Wester- berg, starfandi forstjóra Migr- ationsverket, stofnunar sem hefur umsjón með innflytjenda- málum í Svíþjóð. Migrationsverket er undir það búið að skelfimyndirnar frá búðum fyrir hælisleitendur í Noregi, sem sendar verða út í Rússlandi og Úkraínu, muni beina auknum hælisleitenda- straumi til Svíþjóðar. „Þrýsting- urinn á Norður-Evrópu er stöð- ugur. Þegar hert er á reglunum í einu landanna sitja hin uppi með fleiri flóttamenn,“ segir Westerberg. Nú í sumar hefur metfjöldi hælisleitenda komið til Sví- þjóðar. Migrationsverket reikn- ar með að heildarfjöldi þeirra fari í 30.000 áður en árið er úti. EINMANA áhorfandi fylgist með keppni í gærmorgun á Evrópu- meistaramótinu í frjálsum íþróttum í München í Þýskalandi. Mótið hófst í gær og stendur til sunnudags. Þórey Edda Elísdóttir, Vala Flosa- dóttir og Jón Arnar Magnússon hefja keppni í dag. Reuters Áhugamaður í München RÚSSNESKI herinn jók í gær við- búnað í Grosní, höfuðborg Tsjetsjn- íu, vegna ótta við aðgerðir uppreisn- armanna í tilefni af því að í gær voru liðin sex ár frá því að þeir tóku borg- ina aftur og stökktu rússneska hern- um á flótta. Skæruliðarnir létu hins vegar til skarar skríða annars staðar og sprengdu upp herflutningabíl í suðurhluta landsins í gærmorgun. Létu ellefu tsjetsjneskir menn í rússneska hernum lífið í árásinni og sjö til viðbótar særðust alvarlega. Er árásin sú alvarlegasta frá því að átján rússneskir hermenn féllu í sprengjuárás í Grosní í aprílmánuði síðastliðnum. Talsmaður stjórnarinnar í Grosní, sem er hliðholl rússneskum stjórn- völdum, sagði að enginn hinna 33 hermanna sem í bílnum voru hefði sloppið ómeiddur, en sprengingin var svo öflug að bifreiðin kastaðist um fimmtán metra í burtu og endaði á hvolfi. Að minnsta kosti fjórir rúss- neskir hermenn hafa fallið í árásum skæruliða frá því á mánudag. Rússneskar öryggissveitir hafa handtekið að minnsta kosti áttatíu manns frá því á mánudag, en fólkið er grunað um tengsl við uppreisnar- mennina. Her- og lögreglumenn leituðu í öll- um bifreiðum á leið inn í Grosní til að minnka líkur á skæruliðaárás og næststærsta borg Tsjetsjníu, Gud- ermes, var lokuð allri bílaumferð nema ef bílstjórar höfðu sérstakt leyfi frá hernum. Rússnesk stjórnvöld deila nú við Georgíumenn um framsal sjö manna sem Rússar segja vera skæruliða sem barist hafi í Tsjetsjníu. Yfirvöld í Georgíu hafa hins vegar sagst vilja frekari sannanir fyrir sekt mann- anna áður en þau framselji þá til Rússlands. Dómstóll í Georgíu hefur dæmt mennina til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa farið ólöglega yfir landamæri Tsjetsjníu og Georgíu um helgina. Forseti Georgíu, Eduard Shevardnadze, sagðist mundu framselja mennina um leið og fullsannað væri að um skæruliða væri að ræða. Blóðug árás skæruliða í Tsjetsjníu Moskva, Tbilisi. AP, AFP. MÓTMÆLENDUR úr röðum indó- nesískra stúdenta brjóta niður hlið að þinghúsinu í Jakarta í gær. Stúd- entarnir fordæmdu tilraunir smá- flokka til að hindra breytingar á stjórnarskránni og kröfðust þess meðal annars að forseti landsins yrði framvegis þjóðkjörinn og her- inn hætti afskiptum af stjórn- málum. Reuters Mótmæli í Jakarta EMBÆTTISMENN í varnarmála- ráðuneyti Bandaríkjanna sögðu í gær að leynileg skýrsla sem unnin var fyrir ráðuneytið í síðasta mánuði, þar sem Sádi-Arabíu er lýst sem óvini Bandaríkjanna, væri ekki í samræmi við stefnu stjórnarinnar. Í skýrslunni, sem unnin var af Laur- ent Murawiec, stjórnmálaskýranda hjá Rand-stofnuninni, er sagt að Sádar taki þátt í öllum stigum hryðjuverka, frá skipulagningu til framkvæmda. Flestir hryðjuverka- mennirnir sem réðust á World Trade Center voru Sádar. „Sádi-Arabía styður óvini okkar og ræðst gegn bandamönnum okkar,“ segir í skýrslunni. Þá leggur Murawiec til að olíulindir Sáda verði hernumdar hætti þeir ekki öllum stuðningi við hryðjuverk. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær skoðanir Murawiec ekki samrýmast afstöðu stjórnarinnar. Samband Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu væri náið og stjórnin kynni vel að meta framlag Sáda í baráttunni gegn hryðjuverkum. „Auðvitað er Sádi- Arabía eins og hvert annað ríki,“ sagði Rumsfeld. „Við erum sammála um sumt og okkur greinir á um annað, en það breytir því ekki að samband ríkjanna hefur varað lengi og þar er fjöldi bandarískra her- manna.“ Rumsfeld sagði það hins vegar afar slæmt að efni skýrslunnar hefði lekið til fjölmiðla. „Þetta er hræðilega ófagmannlegt og getur valdið miklum skaða.“ „Höggvum af þeim höfuðið“ Utanríkisráðherra Íraks, Naji Sabri, átti í gær fund með Abdullah, konungi Jórdaníu, og ræddu þeir um það hvernig koma mætti í veg fyrir innrás Bandaríkjamanna í Írak sem fullyrt er að sé í bígerð. „Við munum höggva höfuðið af hverjum þeim sem ógnar íraskri grundu,“ sagði Sabri eftir fundinn. Ráðherrann átti einnig fund með Sukru Sina Gurel, utanríkisráðherra Tyrklands, sem eins og Jórdanía á góð samskipti við Bandaríkin. Gurel sagði að Tyrkir myndu ekki taka þátt í slíkri innrás. „Við höfum ætíð viljað stöðugleika og frið á svæðinu og við höfum alltaf sagt að alþjóð- legar deilur eigi að leysa með frið- samlegum hætti.“ Sádar sagðir óvin- ir Bandaríkjanna Washington. The Washington Post, AP, AFP. Bush fær aukin völd Washington. AFP. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti undirritaði í gær lög sem báðar deildir þingsins hafa samþykkt og auka þau mjög vald forsetans til þess að gera alþjóðlega viðskiptasamn- inga. Getur þingið nú ekki grafið undan framkvæmd slíkra samninga með stanslausum viðaukum og breytingum heldur verður það að segja einfaldlega já eða nei. Forveri Bush í embætti, Bill Clint- on, missti umrætt flýtivald árið 1994 og tókst ekki að fá það á ný þrátt fyr- ir margar tilraunir. Bush sagði að Bandaríkjamenn hefðu á undanförn- um árum misst af mörgum tækifær- um til þess að semja um viðskipti og efla þannig atvinnuvegi sína. „Bandaríkin eru nú aftur komin að samningaborðinu og það af fullum krafti,“ sagði forsetinn. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.