Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ KAMMERTÓNLEIKAR á Kirkjubæjarklaustri hefjast á föstudag og samanstanda af þrennum tónleikum yfir helgina, sem fram fara í félagsheimilinu Kirkjuhvoli. Þeir fyrstu eru haldn- ir á föstudagskvöld kl. 21, aðrir tónleikarnir eru á laugardag kl. 17, en lokatónleikarnir verða haldnir á sunnudag kl. 15. Efnisskrárnar eru að vanda klassískari verk tónbók- menntanna í bland við þau óhefð- bundnari, og taka meðal annars í ár þátt í flutningnum Sigurður Flosason saxófónleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari. Munu þeir meðal annars flytja Raddir þjóðar, efnisskrá sem þeir fluttu á Listahátíð í Reykjavík í vor, þar sem spuna er blandað við upptökur íslenskrar tónlistar. Aðrir flytj- endur á Kirkjubæjarklaustri í ár eru Signý Sæmundsdóttir sópr- ansöngkona, Sif Tulinius fiðluleik- ari, Þórunn Ósk Marinósdóttir lág- fiðluleikari, Scott Ballantyne sellóleikari, Richard Simm píanó- leikari og Edda Erlendsdóttir pí- anóleikari, sem jafnframt er list- rænn stjórnandi tónleikanna. Tónleikarnir eru skipulagðir af menningarmálanefnd Skaft- árhrepps ásamt Eddu Erlends- dóttur og eru í ár styrktir af Menningarborgarsjóði og Bún- aðarbanka Íslands. Spuni í bland við klassík „Í ár reynum við að halda áfram með sama opna þemað og í fyrra, þegar við vorum með tangóinn,“ segir Edda Erlendsdóttir um dag- skrá Kammertónlistar á Kirkju- bæjarklaustri í ár. „Núna erum við með djass og spuna í bland við klassík. Ég vona að með þeim hætti getum við stækkað áheyr- endahópinn að vissu marki og lað- að að fólk með mismunandi tónlist- arsmekk.“ Á efnisskrá tónleika föstudags- kvöldsins er verk eftir Pierre Max Dubois fyrir saxófón og slagverk ásamt Röddum þjóðar, en einnig verður flutt Ljóð án orða fyrir sópran, slagverk og blást- urshljóðfæri eftir Hjálmar H. Ragnarsson, sem hann samdi við leikritið Yerma eftir Federico Garcia Lorca. „Þetta er mjög glæsilegt verk og ég hlakka til að heyra það flutt,“ segir Edda. „En Raddir þjóðar er tónlist sem mun ganga eins og rauður þráður í gegn um helgina og verða flutt á öllum tónleikunum. Sigurður og Pétur hlutu mjög góða dóma fyrir þessa tónleika sína á Listahátíð í vor.“ Eftir hlé verða leikin selló- sónata og fimm þjóðlög í útsetn- ingu Beethoven. „Þessi verk eftir Beethoven eru spiluð til heiðurs Jóni Pálssyni sem var einn af okk- ar allra dyggustu gestum á Kirkju- bæjarklaustri. Hann lést fyrir tveimur árum á tíræðisaldri. Hann hafði oft stungið upp á því við mig að ég léki Beethoven oftar og ég lét því verða af því nú.“ Á tónleikum laugardagsins eru á efnisskránni verk eftir frönsk tón- skáld, Vieuxtemps, Debussy og Jean Francais, auk Radda þjóðar og Sex stuttra dansa eftir banda- ríska tónskáldið Lou Harrison. „Það getur verið erfitt að finna verk fyrir hljóðfæraskipan hóps- ins,“ segir Edda. „Þetta verk eftir Harrison er skrifað fyrir strengja- tríó, píanó og slagverk. Þetta eru mismunandi dansar, alls staðar að, og eru mjög skemmtilega skrifaðir fyrir þessi hljóðfæri.“ Á lokatónleikum helgarinnar á Kirkjubæjarklaustri, sem fram fara á sunnudag kl. 15, kveður við rómantíska tóna fyrir hlé, en þá verða flutt sönglög eftir Liszt og píanókvartett í c-moll eftir Brahms. Eftir hlé verða aftur fluttar Raddir þjóðar og svo tónlist sem Jóhann G. Jóhannsson, tón- listarstjóri Þjóðleikhússins, hefur útsett sérstaklega fyrir hópinn. „Við leikum verk eftir Piazzolla í útsetningu hans, en einnig leikum við annað lag eftir Jóhann í s-am- erískum stíl sem heitir Í lófa lagið, og hefur verið útsett fyrir allan hópinn.“ Edda segist hafa látið val á tón- listarmönnum ráða fyrst og fremst förinni, en síðan leitað að verkum sem hentuðu hópnum og sett sam- an efnisskrá. „Mér finnst hljóð- færaskipanin mjög spennandi í ár og gaman að hafa saxófón og slag- verk í bland við strengina, píanóið og sönginn, sem ekki hefur verið hjá okkur áður. Það gekk mjög vel í fyrra að blanda saman ólíkum stefnum í tónlist og ég vildi end- urtaka það í ár, með öðrum hætti þó. Ég leitaði til Péturs og Sig- urðar vegna þess að þeir voru með þessa sérstæðu tónlist á efnisskrá sinni, en svo leika þeir auðvitað einnig með okkur í öðrum verkum. Ég held að það fari ekki á milli mála að kveði við nokkuð nýjan tón með þessari hljóðfæraskipan á tón- leikunum um helgina,“ segir Edda. Spunnið við íslenskar upptökur Sigurður Flosason saxófónleik- ari er annar hljóðfæraleikaranna á bak við spunaverkið Raddir þjóð- ar, en ólíkir hlutar úr því verða leiknir á öllum tónleikum helg- arinnar á Kirkjubæjarklaustri. Ásamt Pétri Grétarssyni slag- verksleikara spinnur hann við gamlar upptökur af Íslendingum sem syngja sálma og stemmur og fara með kvæði og segja sögur. „Við fluttum Raddir fyrst á Listahátíð í vor og höfum verið að þróa þetta áfram síðan,“ segir Sig- urður. „Upptökurnar eru varð- veittar á Stofnun Árna Magn- ússonar og á Þjóðminjasafninu og eru allt að hundrað ára gamlar. Þetta er bæði veraldleg og andleg tónlist, allt frá sálmasöng eins og Passíusálmunum til barnagælna, drykkjuvísna og klámvísna. Við nýtum þessar upptökur inn í okkar tónlistarsköpun og spinnum í kring um þær. Það má segja að þær séu eins konar þriðji aðili í okkar hljómsveit.“ Í Röddum þjóðar spilar Sig- urður á margvísleg blást- urshljóðfæri og Pétur á ýmis slag- verkshljóðfæri, auk ýmissa rafmagnshljóðfæra. Röddunum af böndunum er svo skeytt á ýmsan hátt inn í tónlistina. „Við tengjum á þennan hátt saman gamlan arf og nýjan,“ segir Sigurður. „Íslend- ingar þekkja bókmenntaarf sinn mjög vel, en tónlistararfinn minna og oft hefur verið álitið að hann væri lítill sem enginn, þótt hann sé kannski meiri en margur hyggur. Það er því spennandi að komast í beina tengingu við hann. Við Pétur erum ekki að spila gamlar laglínur, heldur birtist fólkið hreinlega út úr hátölurunum og syngur þær. Það virkar mjög sterkt, að minnsta kosti á mig þegar ég spila með þeim, og vonandi líka á áheyr- endur.“ Sigurður mun ekki bara fást við spuna á tónleikum helgarinnar, heldur mun hann einnig leika tón- list sem skrifuð er fyrir klassískan saxófón. „Það er gaman fyrir mig, því að í námi mínu sem ég lauk fyrir þó nokkrum árum, spilaði ég jöfnum höndum klassíska tónlist og djasstónlist. Eftir að ég lauk námi hef ég nánast eingöngu stundað djassinn, svo þetta er í raun í fyrsta sinn síðan þá sem ég spila klassískt verk fyrir saxófón og píanó,“ segir Sigurður og á þar við 5 exótíska dansa eftir Jean Francais, sem fluttir verða á laug- ardagstónleikunum. „Það má því greina báðar hliðar á mér í þessu prógrammi helgarinnar,“ bætir hann við. Hann tekur undir með Eddu að ákveðin blöndun einkenni efnis- skrár helgarinnar. „Þar er verið að setja saman ólíka krafta. Við Pétur komum til dæmis báðir meira úr hinum rytmíska tónlistargeira þótt við höfum klassískan bakgrunn. Það er spennandi að blanda saman hópi af tónlistarmönnum sem koma hver úr sinni áttinni og sjá hvað gerist,“ segir Sigurður að lokum. Ólíkir kraftar sem mætast Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Flosason, Pétur Grétarsson, Sif Tulinius, Signý Sæmundsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Richard Simm og Edda Erlendsdóttir. Á myndina vantar Scott Ballantyne. Árlegir Kammertónleikar á Kirkju- bæjarklaustri hefjast á föstudagskvöld og standa yfir helgina. Edda Erlendsdóttir og Sigurður Flosason sögðu Ingu Maríu Leifs- dóttur frá spunanum í bland við klassíkina sem einkennir efnisskrána, sem og hinni sérstæðu hljóðfæraskipan hópsins í ár. ingamaria@mbl.is FÆREYSKI kórinn Mpiri heldur þrenna tónleika hér á landi dagana 7. til 10. ágúst, þar sem á efnisskrá er færeysk samtímatónlist auk fleiri verka. Fyrstu tónleikar kórs- ins verða í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld, 7. ágúst, aðrir tónleikar verða í Langholtskirkju í Reykja- vík á föstudag, 9. ágúst, og að lok- um heldur kórinn tónleika í Skál- holtskirkju laugardaginn 10. ágúst. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20. Kórinn Mpiri samanstendur af tólf færeyskum söngvurum á aldr- inum 20 til 35 ára sem búsettir eru í Kaupmannahöfn. Kórinn var stofnaður árið 1999 undir stjórn tónskáldsins Sunleifs Rasmussen sem hlaut m.a. Menningarverðlaun Norðurlandaráðs fyrir sinfóníuna Oceanic Days. Í starfi sínu beinir Mpiri einkum sjónum að nýrri færeyskri kór- tónlist, og segir Rasmussen efnis- skrána mestmegnis samanstanda af færeyskri tónlist frá 20. öld, þó svo að einnig verði leitað aftur til endurreisnartímans í efnisvali. „Við munum flytja verk eftir fær- eysk samtímatónskáld, sem sum hafa verið samin sérstaklega fyrir kórinn, en öll eru verkin samin á síðustu fimm árum. Við flytjum m.a. þrjú verk eftir Thrónd Boga- son, ungt tónskáld sem stundar nám við konservatoríið í Kaup- mannahöfn. Í tónlist sinni blandar hann saman ólíkum stíltegundum og verður henni best lýst sem nokkurs konar suðupotti ólíkra tegunda og hefða. Kórtónlist hans er því mjög áhugaverð, og kemur þar við sögu fleira en söngur, s.s. dans, leikur og jafnvel rapp. Þá flytum við verk eftir Pauli í Sanda- gerði, en hann er velþekkt kórtón- skáld í Færeyjum og er tónlist hans öllu hefðbundnari. Þriðja tón- skáldið er Kári Bæk og munum við flytja eftir hann verk sem samið er upp úr tveimur ólíkum melódíum, þýskri og færeyskri, sem samdar eru við sama textann, þ.e. Nun lob Mein Seel. Þetta er einstaklega gott verk,“ segir Sunleif. „Við munum flytja verk eftir íslensk tónskáld, m.a. Gunnar Reyni Sveinsson. Þá flytjum við verk frá nýliðinni öld og endurreisnartím- anum sem eru tengd að því leyti að þau sækja efnivið sinn til bibl- íunnar. Annars vegar er um að ræða verkið Wie liegt die Stadt eftir Rudolf Mauersberger og hins vegar endurreisnarverk eftir Tallis sem nefnist The Lamentations of Jeremiah,“ bætir hann við. Mpiri hefur vakið athygli fyrir nýstárlegan flutning en kórinn lætur sig ekki muna um að stíga dans eða stilla sér upp á óvenju- legan hátt. Í „Asbest“ eftir Thrónd Bogason er t.d. vísað í hinn hefð- bundna færeyska keðjudans og kallar futningurinn því á slíkan dans. Í nokkrum verkum dreifir kór- inn sér víða um salinn, sem þannig er nýttur til fulls. Með því er kórinn m.a. að sögn Sunleifs að endurvekja söngaðferð sem notuð var á endurreisnartímanum. „Í Tallis-verkinu fara söngvararnir t.d. inn á milli áhorfenda, en í öðru verki skilur kvartett sig frá kórn- um og syngur annars staðar á sviðinu. Þessar aðferðir henta okk- ur mjög vel þar sem kórinn er í raun mun minni en almennt geng- ur og gerist,“ segir Sunleif Rasm- ussen. Kórinn Mpiri hefur verið á söng- ferðalagi um Norðurlöndin, en fyr- ir komuna til Íslands höfðu kór- meðlimir farið um Danmörku og Færeyjar með efnisskrá sína. Kórtónlist í óhefðbundnum flutningi Færeyski kórinn Mpiri mun halda þrenna tónleika 7. til 10. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.