Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 49
LÖG ÚR Hollywood-myndum eru
efst á lista yfir lög sem leikin eru í
jarðarförum og eru þau að taka
við af hefðbundnum sálmum.
Lögin eru oftar en ekki úr kvik-
myndum þar sem persónur í
myndinni hafa orðið fyrir ástvina-
missi, eins og The Bodyguard,
Ghost og Titanic.
Efst á listanum er lagið „Wind
Beneath My Wings“ með Bette
Midler, sem tekið er úr myndinni
Beaches. Annað sætið vermir lag
Celine Dion, „My Heart Will Go
On“ úr Titanic. Ballaða Whitney
Houston, „I Will Always Love
You“ er í þriðja sæti en lagið er úr
kvikmyndinni The Bodyguard.
Lagalistinn var tekinn saman
samkvæmt upplýsingum frá 560
útfararstofum í Bretlandi. Alls
68% útfararstjóra sögðu að sífellt
væri að aukast að beðið væri um
popplög í jarðarförum.
Ekki vilja þó allir heyra eitthvað
sorglegt og kjósa fremur að heyra
hressilegri popplög í jarðarförum
ástvina sinna. Útfararstjórar
greindu frá því að óskað hefði ver-
ið eftir Platters-laginu „Smoke
Gets In Your Eyes“ og „Another
One Bites The Dust“ með Queen.
„Það sem er fremur ruglað í
augum einnar manneskju skiptir
aðra manneskju máli, sem sér lag-
ið sem kjörna leið til að minnast
maka, vinar eða fjölskyldu-
meðlims,“ sagði talsmaður sam-
taka útfararstofa.
Topp tíu jarðarfararlögin:
„Wind Beneath My Wings“ (Bette
Middler)
„My Heart Will Go On“
(Celine Dion)
„I Will Always Love You“
(Whitney Houston)
„Simply The Best“
(Tina Turner)
„Angels“
(Robbie Williams)
„You’ll Never Walk Alone“ (Gerry
& The Pacemakers)
„Candle In The Wind“
(Elton John)
„Unchained Melody“
(The Righteous Brothers)
„Bridge Over Troubled Water“
(Simon & Garfunkel)
„Time To Say Goodbye“
(Sarah Brightman)
JÆJA, það er ekki að spyrja að því
þegar ofursjarmörinn Mel okkar
Gibson skellir sér á hvíta tjaldið.
Toppurinn var það heillinn, en 60
milljónir bandaríkjadala runnu í
kassa aðstandenda nýjustu myndar
kappans, Signs. Myndin fjallar um
hin dularfullu tákn sem hafa birst á
kornökrum jarðarinnar, svo
lengi sem elstu menn muna og
reynir „Mad“ gamli „Max“ að
fá botn í þessa leyndardóma,
í eitt skipti fyrir öll. Leikstjóri
myndarinnar er M. Night
Shyamalan en hann á að baki
verk eins og The Sixth Sense og
Unbreakable.
Austin Powers þurfti því að víkja
settlega til hliðar en fór ekki langt,
settist í röðina beint fyrir aftan Gib-
son. Hins vegar eru tvær nýjar ræm-
ur í þriðja og fjórða sæti. Skemmti-
leg tilviljun að það er nýjasta nýtt
frá Dana Carvey, gamanmyndin
Master of Disguise, sem situr einu
sæti fyrir neðan Austin Powers, en
þeir félagar Mike Myers (sem ljær
Austin Powers líkama sinn og grett-
ur) og Dana Carvey léku saman hina
ógleymanlegu Wayne og Garth í
Wayne’s World, sem nú er orðinn tíu
ára. Í þessari nýjustu mynd sinni
skellir hann sér, eins og titillinn gef-
ur til kynna, í 36 mismunandi gervi,
hvorki meira né minna.
Þá fer Martin Lawrence með
uppistandsmynd sína, Martin
Lawrence Live: Runteldat í fjórða
sæti og meiri voru lætin ekki
þessa vikuna. Fylgist með næst!
Tímanna tákn
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!"##
$
%!
%!& "'
()*+ ' "
,-.*
/*.*
* .,
0.1
,.,
,.**
1.2
/.*
/.-
.+
,-.*
*1*.0
* .,
0.1
00.
1,.+
*2 .*
**.2
1-.
/-.0
Faðir Hess
(Gibson) og fjöl-
skylda standa í
ströngu í Signs.
Dáleiðsla
(Trance)
Spennumynd
Bretland, 2001. Skífan VHS. (104 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Joe
Ahearne. Aðalhlutverk: Neal Pearson,
Susannah Harker og John Light.
BRESKAR glæpamyndir hafa
undanfarin ár verið undir óhófleg-
um og allt að því þreytandi áhrif-
um frá bandaríska ofurleikstjór-
anum Quentin Tarantino sem
birtast m.a. í mikilli áherslu á svalt
útlit, skondnar persónur, handa-
hófskennt ofbeldi
og ýmiss konar
frásagnarfræði-
lega galdra (segja
söguna í bútum,
byrja í miðjunni
o.s.frv.). Mestum
áhrifum í eftir-
hermubransanum
náði leikstjórinn
Guy Ritchie með
myndinni Snatch
sem var eins kon-
ar bresk útgáfa af Pulp Fiction.
Þetta tengist myndinni sem hér
um ræðir að því leyti að Dáleiðsla
er blessunarlega laus við allar
Tarantino-þreifingar. Heldur er
hún vel skrifaður krimmi af því
taginu sem Bretar hafa ávallt ver-
ið afar lagnir við að gera. Áherslan
er á góðan leik og ekki síður sam-
leik, söguþráð sem er ekki fyr-
irsjáanlegur þótt honum vindi
fram í tímaröð, spennuhlaðin sam-
skipti aðalpersónanna og úrlausn
sem kemur á óvart þótt hún sé
áhorfendum auðskiljanleg.
Segir hér frá málverkaráni sem
að flestu leyti heppnast nema hvað
ránsfengurinn er vandlega falinn
og sá eini sem veit hvar hann er
þjáist af minnistapi. Leitað er á
náðir sálfræðings sem með dá-
leiðslu reynir að grafast fyrir um
felustaðinn. Spennan skapast í
gegnum gagnkvæmt vantraust
ræningjanna og spurninguna hvort
sá sem faldi fenginn sé í raun
minnislaus eða hvort hann ætlar
sér að sitja einn að ágóðanum.
Vönduð mynd sem stendur fyrir
sínu án flugeldasýninga. Myndbönd
Örlaga-
rík minn-
isglöp
Heiða Jóhannsdóttir
Celine Dion
kyrjar titillag
kvikmyndarinn-
ar Titanic.
Holly-
wood-lög
í jarðar-
förum
arnart@mbl.is
3.8. 2002
15
6 5 2 3 3
5 5 1 1 7
19 24 25 35
29
31.7. 2002
8 15 23
30 37 40
13 48
Tvöfaldur
1. vinningur
í næstu viku
Tvöfaldur
1. vinningur
í næstu viku
Tívolí 5 9 0 9 78
SÍMI 587-8900 ÁLFABAKKI www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 398
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
1/2
Kvikmyndir.is
Pétur Pan-2
DV
Það eru margar leiðir
til að slá á tannpínu.
Bráðskemmtileg og kolsvört kómedía með
spennuívafi. Háðfuglinn Steve Martin fer
hreinlega á kostum í myndinni.
Þú átt eftir að fá verk í beinin af hlátri. Kol-
rugluð grínmynd sem kemur öllum í gott skap.
Í anda „God's
must be crazy“
myndana.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 415
THE MOTHMAN PROPHECIES
Með Steve Martin Helena Bonham Garter
„Fight Club“ og Laura Dern „Jurassic Park“.
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal. Vit nr. 407.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 400
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 414
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 412
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 358. Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára Vit 408Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 406
Kvikmyndir.is
DV
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sexý og Single
yfir
32.000.
MANNS
Búðu þig undir geggjaða gamanmynd í
anda There´s Something About Mary!
Cameron Diaz hefur aldrei verið betri.
Sýnd kl. 10.20. B.i. 10.
2 FYRIR EINN
Þegar ný ógn steðjar
að mannkyninu hefst
barátta upp á
líf og dauða.
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR OG BRJÁLAÐUR HASAR.
2 FYRIR EINN
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.
Smekkbuxur
Gallabuxur, kvartbuxur,
sokkabuxur, nærbuxur
Þumalína, Skólavörðustíg 41
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.