Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands og leiðtogi jafnaðar-
manna, hefur formlega hafið barátt-
una fyrir þingkosningarnar í sept-
ember, næstum þremur vikum fyrr
en fyrirhugað var. Í ræðu, sem hann
hélt á mánudag, kvaðst hann mundu
berjast fyrir hagsmunum „litla
mannsins“ en lagði einnig mikla
áherslu á utanríkismálin. Er það tal-
ið endurspegla slæma stöðu hans og
flokksins í innanlandsmálum en
skoðanakannanir sýna, að kristilegu
flokkarnir tveir muni bera sigurorð
af jafnaðarmönnum í kosningunum í
næsta mánuði.
Um 10.000 manns mættu á útifund
í Hannover er Schröder hóf kosn-
ingabaráttuna með yfirlýsingum um,
að hann ætlaði sér að standa vörð um
hefðbundin gildi jafnaðarstefnunn-
ar, menntun fyrir alla og félagslegt
réttlæti. Sagði hann, að margt hefði
tekist vel í stjórnartíð sinni en við-
urkenndi, að ekki hefði allt gengið
eftir.
Í ræðu sinni vék Schröder að
hneykslismálunum í bandarískum
fyrirtækjarekstri og sagði, að stjórn
sín myndi koma í veg fyrir, að „gráð-
ug yfirstétt rændi litla manninn eft-
irlaununum“ eins og gerst hefði í
Bandaríkjunum. „Það er ekki háttur
okkar í Þýskalandi,“ sagði Schröder
við mikil fagnaðarlæti. Þá lagði hann
einnig áherslu á, að Þjóðverjar
myndu krefjast umboðs Sameinuðu
þjóðanna áður en til greina kæmi að
taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn
Saddam Hussein, forseta Íraks.
Sagði hann, að undir sinni stjórn
myndi Þýskaland ekki taka þátt í
neinni ævintýramennsku.
Á brattann að sækja
Þess eru fá dæmi, að utanríkismál
hafi vegið þungt í þingkosningum í
Þýskalandi og áhersla Schröders á
þau þykir því sýna vel hvað ríkis-
stjórnin stendur höllum fæti gagn-
vart kjósendum. Lítið hefur dregið
úr atvinnuleysinu, hagvöxtur er
sama og enginn og ekki hefur
hneykslið í kringum Rudolf Scharp-
ing, fyrrverandi varnarmálaráð-
herra, og brottrekstur hans orðið til
að auka veg stjórnarinnar.
Það sama má segja um síðustu
hneykslismálin, uppljóstranir um, að
stjórnmála- og embættismenn, ekki
síst jafnaðarmenn og græningjar,
hafi notað flugpunkta, sem þeir hafa
aflað sér í opinberum ferðum, til að
fljúga ókeypis. Stjórnin bætti síðan
gráu ofan á svart með því að kæra
dagblaðið Bild fyrir að hafa aflað sér
upplýsinga um þetta „með ólögleg-
um hætti“.
Lítill ágreiningur
um Írak
Edmund Stoiber, kanslaraefni
kristilegu flokkanna, sakar Schröder
um að reyna að flýja raunveruleik-
ann heima fyrir með áherslu sinni á
utanríkismálin og hann og raunar
ýmsir frammámenn í flokki jafnað-
armanna segja, að ekki sé hægt að
tala um neinn ágreining í Íraksmál-
unum í þýskum stjórnmálum. Wolf-
gang Schäuble, ráðgjafi Stoibers í
varnarmálum, segir, að ekki sé unnt
að útiloka þátttöku Þjóðverja í að-
gerðum gegn Írak en skilyrðið sé, að
þær verði í umboði Sameinuðu þjóð-
anna.
Þrátt fyrir það hafa ýmsir stjórn-
arandstæðingar, meðal annars
Hans-Dietrich Genscher, fyrrver-
andi utanríkisráðherra úr flokki
frjálsra demókrata, gagnrýnt yfir-
lýsingar Schröders um Íraksmálin
og saka hann um einangrunarstefnu.
Segja þeir, að spurningin um „stríð
eða frið“ eigi ekki heima í þýsku
kosningabaráttunni.
Schröder hefur reynt að lýsa
Stoiber sem hörðum hægrimanni,
sem sé í litlum tengslum við líf og
starf hins almenna Þjóðverja, en
ekki fer þó á milli mála, að hingað til
hefur Stoiber reynt að halda sig sem
næst miðjunni. Hefur hann lagt
áherslu á aukinn hagvöxt og minna
atvinnuleysi eða með öðrum orðum á
þau tvö meginmál, sem Schröder
hefur orðið minnst ágengt með.
Stoiber þykir ekki sérlega frumlegur
og frá honum hefur komið fátt nýtt
en honum hefur á hinn bóginn tekist
að forðast meiriháttar mistök það,
sem af er kosningabaráttunni.
Nærri fjórar milljónir Þjóðverja,
9,5% af vinnufæru fólki, voru án at-
vinnu í júní síðastliðnum en Schröd-
er hafði stefnt að því, að atvinnuleys-
ingjar yrðu ekki fleiri en 3,5 milljónir
er gengið yrði til kosninga 22. sept-
ember. Er samdrættinum í efna-
hagslífi heimsins að mestu um að
kenna en fyrir það geldur Schröder
og stjórn hans og hann horfist nú í
augu við að verða fyrsti þýski kansl-
arinn, sem situr aðeins í eitt kjör-
tímabil.
Tvær skoðanakannanir, sem gerð-
ar voru í síðustu viku, sýndu þá 35 og
36% fylgi við jafnaðarmenn og 41 og
42% við kristilega demókrata.
Schröder nýtur samt meiri vinsælda
sem stjórnmálamaður en Stoiber eða
48% á móti 41%.
Græningjar á mörkunum
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands og leiðtogi Græn-
ingja, hins stjórnarflokksins, hóf
kosningabaráttuna í gær með yfir-
lýsingum um, að helstu baráttumálin
væru atvinnu-, umhverfis- og orku-
mál, barnvænt Þýskaland, Evrópu-
málin og spurningin um stríð eða frið
í Írak. Fischer nýtur mikilla vin-
sælda meðal landa sinna en það virð-
ist ekki gagnast flokki hans hið
minnsta. Skoðanakannanir sýna, að
fylgi hans er nú um 6% en flokkur,
sem fær minna en 5%, fær engan
mann kjörinn á þing.
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hleypir kosningabaráttu jafnaðarmanna af stokkunum
Áhersla á utanríkismál
þykir sýna veika stöðu
Schröder óttast að verða fyrsti
þýski kanslarinn, sem situr aðeins
í eitt kjörtímabil
Hannover, Berlín. AFP.
AP
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er hann lýsti yfir, að kosninga-
baráttan vegna þingkosninganna 22. september væri formlega hafin.
Joschka
Fischer
Edmund
Stoiber
NÍU hindúar biðu bana og 27
særðust í sprengju- og skotárás á
tjaldbúðir pílagríma í indverska
hluta Kasmír í fyrrinótt. Hreyfing
íslamskra uppreisnarmanna lýsti
árásinni á hendur sér. Aðstoðar-
innanríkisráðherra Indlands sakaði
Pakistana um að hafa staðið fyrir
árásinni en pakistanska stjórnin
vísaði því á bug.
I.D. Swami, aðstoðarinnanríkis-
ráðherra Indlands, sagði engan
vafa leika á því að árásin væri
runnin undan rifjum pakistanskra
stjórnvalda sem vildu hindra fyr-
irhugaðar kosningar í indverska
hluta Kasmír.
„Stjórn Pakistans neitar ásökun
I.D. Swamis með fyrirlitningu,“
sagði í yfirlýsingu frá pakistanska
utanríkisráðuneytinu. „Stjórnin
fordæmir árás hryðjuverkamanna
á pílagríma úr röðum hindúa.“
Nýtt nafn á
bannaðri hreyfingu
Indverska stjórnin sagði að
hreyfingin al-Mansourian hefði lýst
árásinni á hendur sér. Al-Mansour-
ian mun vera nýtt nafn á íslömsku
hreyfingunni Lashkar-e-Taiba sem
hefur verið bönnuð í Pakistan og er
talin hafa tekið þátt í sprengjuárás
á indverska þinghúsið í Nýju Delhí
í desember á síðasta ári.
24 pílagrímar hafa fallið
í sjö árásum á árinu
Árásin í fyrrinótt átti sér stað í
tjaldbúðum hindúa sem eru á leið
að Amarnath-helli í Himalajafjöll-
um þar sem hindúaguðinn Shiva er
sagður birtast í dropasteini. Árás-
armennirnir köstuðu handsprengju
á pílagrímana og hófu skothríð.
Rúmlega 2.000 pílagrímar voru í
tjaldbúðunum.
Lögreglumenn urðu einum árás-
armannanna að bana. Þetta er
sjötta árásin á pílagríma í Kasmír
á árinu og hafa þær kostað 24 hind-
úa lífið. Ferðin að Amarnath tekur
mánuð og talið er að pílagrímarnir
séu að minnsta kosti nokkuð á ann-
að hundrað þúsunda.
Fimm uppreisnarmenn og þrír
indverskir hermenn féllu í átökum
á öðrum stöðum í Kasmír í gær. Að
minnsta kosti 60.000 manns hafa
beðið bana í Kasmír frá því ísl-
amskir uppreisnarmenn hófu bar-
áttu fyrir aðskilnaði þess frá Ind-
landi fyrir tólf árum en deilan um
landsvæðið hefur tvisvar sinnum
leitt til styrjaldar milli Indlands og
Pakistans.
Níu hindúar
falla í árás
á pílagríma í
Kasmír
Nunwan, Íslamabad. AP, AFP.
BYSSUTURNI bandaríska herskips-
ins Monitor, sem var fyrsta nútíma-
herskipið, var lyft af hafsbotni úti
fyrir strönd Norður-Karólínuríkis í
Bandaríkjunum á mánudagskvöldið
ásamt tveimur stórum Dahlgren-
byssum sem í turninum voru. Mon-
itor hefur legið á hafsbotni í 140 ár.
Sterkir neðansjávarstraumar og
slæmt veður komu í veg fyrir að
hægt væri að lyfta turninum á laug-
ardaginn, eins og staðið hafði til, en
á mánudag tókst köfurum að koma
þykkum köplum á átta-arma kló
sem þeir höfðu áður fest á turninn.
Síðan var hafist handa að lyfta hon-
um af um 80 metra dýpi. Turninn
vegur 150 tonn.
Monitor var brynvarið herskip
sem her Norðurríkjanna notaði í
borgarastyrjöldinni í Bandaríkj-
unum, og þótt áður hefðu verið
smíðuð herskip með brynvörn var
Monitor það fyrsta sem hafði byssu-
turn sem hægt var að snúa. Þetta
þótti gefa mikla möguleika í hern-
aði. Frægasta orrustan sem Monitor
tók þátt í var við skip Suðurríkja-
hersins, Virginiu, níunda mars 1862.
Monitor sökk í óveðri á gamlárs-
kvöld það sama ár, er það var í togi,
og fórust með því sextán sjómenn.
Flakið fannst 1973.
Það var ekki heiglum hent að ná
byssuturninum upp. Þegar skipið
sökk hvolfdi því og turninn lenti
undir flakinu. Hundrað og fimmtíu
kafarar unnu á vöktum, dag og nótt,
að verkinu, og tók það 41 dag.
„Þetta er stórkostlegt,“ sagði John
Broadwater, framkvæmdastjóri
Monitor-sjávarminjasafnsins, þegar
turninn var kominn upp á yfirborð-
ið. „Hann situr hérna á prammanum
og við höfum fyrir augunum dæld-
irnar sem Virginia gerði í hann 9.
mars 1862.“
Turninn verður nú meðhöndlaður
með efnum sem eyða saltinu sem
safnast hefur í hann. Ella myndi
saltið kristallast innan í málminum
og eyðileggja hann. Meðferðin getur
tekið allt að tíu ár, en að henni lok-
inni verður turninn settur á safn í
Newport ásamt vélinni úr Monitor,
sem búið er að bjarga upp, og 600
öðrum munum úr skipinu.
AP
Kafarar sem unnið hafa að björgun byssuturnsins fögnuðu þegar hann kom upp á yfirborðið.
Sögufrægum byssuturni lyft úr sjó
The Los Angeles Times.