Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 6

Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ HRAÐASKYNJARAR sem Vega- gerðin hefur sett upp í nágrenni höf- uðborgarinnar, meðal annars á Hafnarmelum og Hellisheiði, leiða í ljós að of margir ökumenn aka yfir leyfilegum hámarkshraða að sögn Óla H. Þórðarsonar, framkvæmda- stjóra Umferðarráðs. Á skynjurunum sem mæla um- ferðarhraða allan sólarhringinn kemur fram að á Hellisheiði og Hafnarmelum á mánudag ók um það bil fjórðungur ökumanna of hratt, eða á yfir 90 km á klukkustund. Af þeim sem óku of hratt voru flestir á hraðabilinu 100 til 110 km á klukku- stund, færri óku á bilinu 110–120 km hraða og þá var hópur ökumanna á yfir 120 km hraða á klukkustund. „Mælingarnar sýna að það eru ótrúlega margir sem virða ekki há- markshraðareglur. Um helgina náð- ist mjög góður árangur í umferðar- málum. Við vöruðum við því strax eftir helgina að menn yrðu að halda áfram vöku sinni. Það hefur hins vegar sýnt sig að um leið og umferð- in minnkar og er ekki jafnþétt og á köflum um helgina byrjar ákveðinn hópur ökumanna að spretta úr spori. Það sjáum við beinlínis á þessum töl- um. Því er hér um að ræða of mikið kæruleysi þessara ökumanna,“ segir Óli. Vegagerðin hefur sett upp hraða- mæla á sex stöðum um landið og sjá Vegagerðin og Umferðarráð um það í sameiningu að koma niðurstöðun- um á framfæri. Segir Óli að eftir að byrjað var formlega að nota mælana, í febrúar síðastliðnum, fáist miklu betri yfirsýn um hraða ökutækja á þjóðvegunum en áður. Morgunblaðið/Þorkell Hraðamælar Vegagerðarinnar sem stillt hefur verið upp á þjóðvegum í næsta nágrenni höfuðborgarinnar sýndu að á mánudag ók um fjórð- ungur ökumanna of hratt á þessum vegum. Hraðaskynjarar í nágrenni höfuðborgarsvæðisins Fjórðungur ökumanna er á of miklum hraða VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra segir enga þjóð hafa fundið upp þá reiknireglu sem geti með réttmætum hætti metið verð- mæti lands sem fer undir virkjanir. Hún telur hins vegar líklegt að þró- un næstu ára leiði til þess að slík reikniregla verði fundin upp og not- uð í framtíðinni. Valgerður var spurð að því hvort mat á verðmæti lands ætti að fara fram þegar arðsemi virkjanafram- kvæmda væri reiknuð út en í nýlegu viðtali við Morgunblaðið um Kára- hnjúkavirkjun sagði Friðrik Soph- usson, forstjóri Landsvirkjunar, að stjórnmálamenn yrðu að svara þess- ari spurningu, ásamt spurningu um auðlindagjald. Var haft eftir Frið- riki að verðmætamat hefði ekki far- ið fram vegna Kárahnjúkavirkjun- ar. Aðferðafræðin ekki á hreinu „Við höfum aðferðafræðina ekki á hreinu hvað þetta varðar. Ég met land mikils en það er hluti af auð- lindinni. Hvað Kárahnjúkavirkjun varðar erum við að tala um að nýta okkur þá auðlind sem þar er. Það hefur aldrei farið á milli mála að virkjunin hefði áhrif á landið en við erum ekki lengra komin en þetta í dag. Ég efast ekki um að þetta verði pólitískt umfjöllunarefni í framtíð- inni,“ segir Valgerður. Jákvæð áhrif á ferðaþjónustu Hún bendir á að vegna vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hafi farið fram sam- anburður á kostum sem landið gefur af sér. Metnir hafi verið kostir ferðaþjónustu af ósnortinni náttúru á móti virkjun á sama svæði og þar hafi kostir virkjunar haft vinning- inn. Valgerður segir þetta hins veg- ar ekki útiloka möguleika á ferða- þjónustu þar sem virkjað er. „Áhrif á ferðaþjónustu hafa alls staðar verið jákvæð á þeim svæðum þar sem virkjað hefur verið á Ís- landi. Þrátt fyrir Kárahnjúkavirkj- un erum við áfram með stærsta ósnortna landsvæðið í Evrópu,“ seg- ir Valgerður. Valgerður Sverrisdóttir um verð- mæti lands sem fer undir virkjanir Reikniregla gæti orðið til næstu árin VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra segist mjög ánægð með samkomulag Landsvirkjunar og Norðuráls um afhendingu orku vegna fyrri áfanga stækkunar ál- vers Norðuráls á Grundartanga, þ.e. stækkunar úr 90.000 tonnum í 180.000 tonn. Samkomulagið var undirritað á föstudag en það er m.a. háð þeim skilyrðum að Norðurál tryggi sér hráefni til stækkunar- innar og gangi frá fjármögnun hennar, að samningar takist um orkuverð og að leyfi fáist fyrir nauðsynlegum orkuframkvæmdum, þar á meðal Norðlingaölduveitu. Valgerður segir að samkomulagið sé viljayfirlýsing og kveðst ánægð með að málið skuli komið þó þetta langt. Hún segir að samkomulagið sé í samræmi við þær væntingar að álver Norðuráls á Grundartanga yrði stækkað áður en farið yrði út í álversframkvæmdir fyrir austan. „Hápunkturinn fyrir austan kem- ur því eftir að framkvæmdum er lokið á Grundartanga. Það er afar ánægjulegt,“ segir Valgerður. Hún játar því hins vegar að málið sé ekki í höfn. Það séu atriði í sam- komulaginu sem eigi eftir að ná saman um. Orkuöflunarþátturinn sé ekki í höfn. Hún ítrekar að það sem skipti máli sé að aðilar hafi náð þetta vel saman. Það sé jákvætt skref. Aðspurður um þýðingu sam- komulagsins við Norðurál í ljósi þeirra fyrirvara sem á því eru, m.a. um orkuverðið, segir Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, það mikilvægt að hafa raforkukaupanda áður en ráð- ist verði í umfangsmiklar virkjana- framkvæmdir. Hann segir viðræður um orkuverð vera það langt komn- ar að menn hafi talið óhætt að skrifa undir samkomulagið. Nú sé beðið eftir úrskurði Skipulagsstofn- unar um mat á umhverfisáhrifum vegna Norðlingaölduveitu. Sú virkj- un sé meginforsenda þess að hægt verði að útvega Norðuráli þá raf- orku sem þurfi vegna stækkunar- innar. Iðnaðarráðherra um samning Landsvirkjunar og Norðuráls Samkomulagið í sam- ræmi við væntingar Tölvuunnin mynd frá Norðuráli sem sýnir álverið í fullri stærð, þ.e. miðað við 240 þús. tonna ársframleiðslu. BRYNJÓLFUR Bjarnason, for- stjóri Landssíma Íslands hf., segir að Síminn sé ekki að fá það fjármagn út úr heimtauginni sem hann þurfi til að rekstur heimtaugarinnar geti staðið undir sér. Af þeim sökum ætli Síminn að hækka heimtaugargjaldið í heildsölu um 16% hinn 1. septem- ber nk., eins og fram kom í tilkynn- ingu Símans fyrir helgi, en þar með hækka afnotagjöld talsímans. Hann segir aðspurður að hækkanir undan- farin misseri hafi ekki dugað til að standa undir rekstri fastlínukerfis- ins. Samkvæmt fjarskiptalögum, sem tóku gildi árið 2000, var Símanum heimilað að „færa fastagjöld fyrir talsíma til samræmis við kostnað að viðbættri hæfilegri álagningu.“ Fyr- irtækinu var gert að leggja viðkom- andi kostnaðarreikninga fyrir Póst- og fjarskiptastofnun og stofnunin ákvarðaði fastagjald fyrir talsíma með hliðsjón af þeim. Gjaldið óbreytt frá 2001 „Síminn á að reka heimtaugakerf- ið skv. skilgreiningu á kostnaðar- gjaldsgreiningu að viðbættri hæfi- legri álagningu. Við teljum að í dag séum við ekki að hafa það út úr heim- tauginni sem við þurfum til að geta staðið undir þessari skilgreiningu,“ segir Brynjólfur. Hann bætir því við að árið 2000 hafi Póst- og fjarskipta- stofnun ákveðið heimtaugargjaldið, sem nú sé í gildi, og að það hafi geng- ið í gildi 1. janúar 2001. „Gjaldið hef- ur verið óbreytt síðan,“ segir hann. Á þeim tíma hafi hins vegar m.a. ver- ið lagður töluverður kostnaður í að dreifa ISDN um allt land en einnig hafi orðið um 13% hækkun á verð- lagi. „Við þurfum því að fá þarna hækkun til að þetta geti staðið undir sér eins og það er skilgreint.“ Brynjólfur bætir því ennfremur við að þegar Póst- og fjarskipta- stofnun hafi verið að ákveða umrætt gjald á sínum tíma hefði komið upp ágreiningur milli hennar og Símans um hve hátt gjaldið ætti að vera. Síminn hefði m.ö.o. talið að gjaldið ætti að vera hærra en það gjald sem Póst- og fjarskiptastofnun tók síðan ákvörðun um að ætti að gilda. Áform Símans um að hækka heim- taugargjaldið eru nú til umfjöllunar hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Forstjóri Símans segir heimtaugargjald hafa verið óbreytt frá ársbyrjun 2001 Rekstur heim- taugar þarf að standa undir sér ALEKSANDER Rannikh, sendi- herra Rússlands á Íslandi, segist gera sér vonir um að koma rúss- neska herskipsins Admiral Chab- amenko til Íslands muni tengja Rússland, Ísland og Bandaríkin enn traustari böndum en áður. Skipið kemur í opinbera heimsókn hingað til lands nk. laugardag ásamt birgðaskipinu Sergei Oc- ipov. Þetta er þriðja skiptið sem skip úr rússneska flotanum kemur í heimsókn til Íslands, en það gerðist áður árið 1969 og árið 1870. Skipin koma til Reykjavíkur síð- degis laugardaginn 10. ágúst og eiga hér viðdvöl í fjóra daga. Al- menningi gefst kost á að skoða Admiral Chabamenko á sunnudag, mánudag og þriðjudag. Eitt af nýjustu herskip- unum í flotanum Admiral Chabamenko er eitt af nýjustu herskipunum í flota Rúss- lands, en því var hleypt af stokk- unum fyrir rúmum tveimur árum. Fyrir rússnesku sendinefndinni fer Vladimir Dobroskochenko vara- aðmíráll. Rannikh sagði að meðan á dvöl skipsins stæði myndi hluti af áhöfninni fara í heimsókn til varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli, en þar munu rússneskir sjóliðar og bandarískir hermenn takast á í fótboltaleik. Áhöfnin myndi einnig skoða sig um á Íslandi og bjóða Ís- lendingum að skoða skipið. Auk þess munu forseti Íslands, utanrík- isráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík heimsækja skipið. Með um borð í skipinu eru rúss- neskir listamenn, tónlistarmenn og dansarar, en þeir verða með sýn- ingu á Ingólfstorgi á sunnudag. Rannikh sagði að heimsókninni væri því einnig ætlað að treysta menningartengsl landanna. Admiral Chabamenko heldur frá Íslandi á miðvikudagsmorgun og fer þá til Bretlands þar sem her- skipið verður til sýnis. Rússneskt herskip í opinberri heimsókn á Íslandi Spila fótbolta við hermenn á Keflavíkur- flugvelli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.