Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 14

Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 14
AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fasteignin Eikarlundur 18 er nú til sölu. Um er að ræða einbýlishús ásamt sambyggðum bílskúr. Stærð íbúðar er 189,6 fm og stærð bíl- skúrs er 45 fm. Fasteignamat eignarinnar er kr. 17.761.000. Brunabótamat eignarinnar er kr. 29.570.000. Óskað er eftir tilboðum í eignina og skal þeim skilað til Fasteignasöl- unnar BYGGÐAR fyrir kl. 12.00 föstudaginn 9. ágúst 2002. Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Allar frekari uppl. eru veittar á Fasteignasölunni BYGGÐ Sími 462 1744 og 462 1820, fax 462 7746 Opið virka daga kl. 9-12 og 13-17. Til sölu NÝTT útilistaverk hefur verið sett upp í göngugötunni á Ak- ureyri. Verkið er eftir Stefán Jónsson og segir hann verkið vera nú- tímalega þrívíddarútgáfu af Fjallamjólk – málverki eftir Jó- hannes Kjarval. Uppsetningu verksins, sem Stefán kallar Kjar- valinn, lauk fyrir helgi en nokkr- ar tafir hafa orðið á uppsetning- unni vegna framkvæmda í göngugötunni. Yngsta fólkið hefur mjög gam- an af því að klifra upp á verkið og hefur höfundurinn ekkert við það að athuga, enda verkið úr steinsteypu og þolir því ýmislegt. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stefán Jónsson, stendur í Kjarvalinum eins og hann nefnir það. Nýtt útilistaverk í göngugötunni FORVARSMENN Íþróttafélagsins Þórs skiluðu fyrir helgi áætlun til bæjaryfirvalda um hvernig unnið verður að því að ná tökum á fjár- málum félagsins, sem rekið var með tapi fyrstu fjóra mánuði ársins. Áður hafði Akureyrarbær tilkynnt for- svarsmönnum félagsins að rekstrar- styrkur til félagsins yrði ekki greidd- ur út nú um mánaðamótin vegna fjárhagsstöðunnar. Eins og fram hefur komið varð tap á rekstri handknattleiksdeildar og körfuknattleiksdeildar félagsins fyrstu fjóra mánuði ársins. Jón Heið- ar Árnason, formaður Þórs, sagði að rekstrarstyrkur til félagsins yrði ekki greiddur út fyrr en sex mánaða uppgjör félagins yrði lagt fram. Hann sagði stefnt að því að ljúka vinnu við uppgjörið í kringum 20. ágúst. Einnig þyrfti að skila inn áætlunum til ÍBA fyrir næsta ár og því væri í nógu að snúast á skrifstofu félagsins. Samkvæmt samningi sem tók gildi um síðustu áramót og er við fjögur íþróttafélög í bænum, skuldbinda þau sig til að reka starf sitt með hagnaði. Þá er þeim einnig skylt að ráðstafa hagnaði einstakra deilda til að mæta tapi annarra en verði það ekki gert er bænum heimilt að draga úr fjárframlögum sínum. Rekstrarstyrkur bæjarins til Þórs á ári er um 8,7 milljónir króna, eða rúmlega 700 þúsund krónur á mán- uði. Jón Heiðar sagði að rekstrar- styrkurinn væri að stærstum hluta notaður til reksturs skrifstofu og við bókhaldsvinnu og einnig til reksturs íþróttasvæðisins. Áætlun um fjármál Þórs Unnið að sex mánaða upp- gjöri félagsins GLOBE-Arctic-námskeið verður haldið á Akureyri dagana 7. til 12. ágúst, en um er að ræða alþjóðlegt skólaverkefni sem hefur þann til- gang að efla raunvísindalega hugsun meðal nemenda og kennara. Verkefnið nær til meira en 90 landa og byggist það á því að nem- endur skrá ákveðna umhverfisþætti í sameiginlegan gagnagrunn (www. globe.gov) sem er öllum opinn. Ell- efu íslenskir skólar taka þátt í verk- efninu. Fyrir ári var sett á laggirnar sér- stakt verkefni sem beinist að lönd- unum umhverfis norðurskautið og taka tveir íslenskir skólar þátt í þessu verkefni, Barnaskóli Vest- mannaeyja og Verkmenntaskólinn á Akureyri, en aðrir skólar eru í Alaska, Kanada, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Nemendur söfnuðu sýnum sem efnagreind voru í Noregi, en sjónum var beint að efnum sem innihalda bróm. Skýrsl- urnar má skoða á Netinu á slóðinni www. nilu.no/niluweb/services/arc- ticpops/. Jafnframt þessu verkefni hafa ís- lenskir vísindamenn gert verkefna- lýsingar til að afla upplýsinga um hvort hlýnun eigi sér stað á norð- urhveli. Tvö íslensk verkefni verða kynnt á námskeiðinu, annars vegar að nemendur fylgist með breyting- um á kynþroska þangi og hins vegar breytingum á komu farfugla. Stjórn þessa námskeiðs er í hönd- um Samlífs – samtaka líffræðikenn- ara á Íslandi. Globe-Arctic-námskeið á Akureyri Tilgangurinn að efla raunvís- indalega hugsun RAGNAR Jörundsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Hrísey en hann var valinn úr hópi 14 umsækjenda um stöðuna. Ragnar, sem kemur frá Reykjavík, tekur til starfa 1. sept- ember en hann tekur við stöðunni af Pétri Bolla Jóhannessyni. Ragnar, sem er 57 ára gamall, hef- ur m.a. starfað sem sveitarstjóri á Suðureyri, hann hefur verið spari- sjóðsstjóri bæði í Ólafsvík og á Súða- vík og þá var hann um tíma fram- kvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík. Kristinn Árnason oddviti Hríseyj- arhrepps, sagði að Ragnar hefði mikla reynslu og „það verður gott að hafa eldri mann með okkur strákun- um í hreppsnefndinni. Og þótt það hafi ekki ráðið úrslitum á Ragnar ættir sínar að rekja til Hákarla-Jör- undar.“ Kristinn sagði að Hríseyingar horfðu björtum augum til framtíðar. Atvinnuástand í eynni væri þokka- legt, allavega fyrir þá sem þar eru. Hins vegar mætti eiga von á fleiri íbúum ef atvinnuástandið væri betra. „Maður veit af því að margir sem hafa farið héðan eru ekki sáttir við að hafa þurft að gera það.“ Eyjafjörður verði eitt sveitarfélag Kristinn sagðist gera ráð fyrir því að umræða um sameiningarmál færi í gang á yfirstandandi kjörtímabili. „Við Hríseyingar höfum verið já- kvæðir fyrir því að sameina öll sveit- arfélögin í Eyjafirði, þótt einhverjir séu hræddir um að við verðum þá skilin útundan. En ég segi að Eyja- fjörður sé ekkert án Hríseyjar og eyjan er alla vega nafli Eyjafjarðar,“ sagði Kristinn. Hríseyjarhreppur Ragnar Jörundsson nýr sveit- arstjóri BLÓMABÚÐ Akureyrar stóð fyr- ir rósasýningu um helgina og var þetta í annað sinn sem verslunin stendur fyrir slíkri sýningu, í samvinnu við íslenska blóma- bændur. Sýningin var mjög vel sótt og í vali á fallegustu rósinni greiddu á tólfta hundrað manns atkvæði. Yfir 100 rósategundir eru framleiddar á Íslandi í dag en á sýningunni voru 38 teg- undir. Rainbow varð fyrir valinu sem fallegasta rósin þetta árið en hún er í bleikum og gulum past- ellitum og ákaflega rómantísk. Í öðru sæti varð rós sem heitir Dolcevita, sem er hvít og bleik og í þriðja sæti varð rós að nafni Inka, sem einnig er tvílit, appels- ínugul og gul. Fjórir þátttakendur í vali á fal- legustu rósunum voru dregnir út og fengu þeir 20 rósir af þeirri tegund sem þeir höfðu valið. Sem fyrr sagði vakti sýningin mikla athygli og þá ekki síst á meðal þeirra fjölmörgu erlendu gesta sem hana sóttu. Eigendur Blóma- búðar Akureyrar stefna að því að standa fyrir rósasýningu árlega um verslunarmannahelgina. Kristín Ólafsdóttir, eigandi Blómabúðar Akureyrar, til vinstri, ásamt þátttakendum í vali á fallegustu rósunum á sýningunni. Við hlið Krist- ínar stendur Franz Árnason, þá Fríður Gunnarsdóttir og Elsa Björns- dóttir. Á myndina vantar Unni Huld Sævarsdóttur. Vel sótt rósa- sýning KRISTÍN Eiríksína Ólafsdóttir lést á Dval- arheimilinu Hlíð á Ak- ureyri hinn þriðja ágúst sl. Kristín fædd- ist á Nefstöðum í Fljótum 6. júlí 1901 og var því rétt rúmlega 101 árs er hún lést. Kristín ólst upp í Flókadal til 12 ára ald- urs þegar hún fluttist með foreldrum sínum til Siglufjarðar. For- eldrar hennar voru hjónin Björg Halldórs- dóttir og Ólafur Eiríks- son. Kristín giftist Jóni Pálssyni, trésmiði frá Arnarnesi í Arnarnes- hreppi, árið 1922 og eignuðust þau tvö börn. Jón lést árið 1972. Þau hjónin keyptu húsið Að- alstræti 32 á Akureyri og þar bjó Kristín í nær 80 ár. Þar bjó einnig Jó- hanna Þóra Jónsdóttir, sem varð 102 ára í vet- ur, en hún býr nú á Dvalarheimilinu Hlíð. Andlát KRISTÍN EIRÍKSÍNA ÓLAFSDÓTTIR Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Viltu léttast um 1-4 kíló á viku Símar 557 5446 og 892 1739

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.