Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 41

Morgunblaðið - 07.08.2002, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 41 YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, sími 588 5711 Námskeið í HATHA-YOGA Kennsla byrjar fimmtudaginn 8. ágúst Kennt verður mánud., fimmtud., og laugard. Sértími fyrir barnshafandi konur JÓN Garðar Viðarsson náði loka- áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á Lost Boys-skákmótinu, sem lauk um helgina í Amsterdam. Til þess að verða útnefndur alþjóðlegur meist- ari þarf hann einungis að uppfylla eitt skilyrði í viðbót og það er að ná 2.400 skákstigum. Eftir árangurinn í Amsterdam er hann einungis örfá- um stigum frá því marki og gæti hæglega náð því á mótinu sem hann teflir nú á í Vlissingen í Hollandi. Lost Boys-mótið var afar sterkt eins og venjulega og meðal þátttak- enda voru stórmeistarar í fremstu röð. Jón Garðar mætti einum þeirra í lokaumferðinni, Mikhail Gurevich (2.649) og þurfti nauðsynlega að ná jafntefli til að fá titiláfanga. Menn voru eðlilega ekki bjartsýnir á að það mundi takast og þrátt fyrir að hafa svörtu mennina náði Gurevich undirtökunum. Hann þjarmaði síðan jafnt og þétt að Jóni, sem varðist þó vel og tókst að lokum að tryggja sér jafntefli og þar með áfangann. Hvítt: Jón Garðar Viðarsson Svart: Mikhail Gurevich Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Bd3 Bd6 5. Df3 – Öruggasta leið hvíts í stöðunni er að leika 5. Re2 ásamt 6. Bf4 o.s.frv. 5. ...Rc6 6. c3 Be6 7. Re2 Dd7 8. Bf4 Be7 9. h3 – Nýr leikur. Þekkt er 9. De3 h6 10. h4 Rf6 o.s.frv. 9. ...0-0-0 10. Bh2 -- Það gæti verið hættulegt fyrir hvít að hróka stutt, t.d. 10. 0-0 g5 11. Bg3 h5 12. He1 g4 13. hxg4 hxg4 14. De3 He8 15. Rf4 Bg5 16. De2 Hh6 17. Bf5 Bxf4 18. Bxf4 Hf6 19. Bxe6 Hfxe6 20. Be3 f5 21. g3 f4!? 22. gxf4 g3 23. Rd2 Hg6, með sterkri sókn fyrir svart. 10. ...g5 Sjá stöðumynd I. 11. Bb5 – Eðlilegra virðist að leika 11. Rd2 h5 12. 0-0-0, t.d. 12. ...f5 13. Be5 Rf6 14. Hhe1 Hde8 15. Rb3 Rxe5 16. dxe5 Re4 17. De3 b6 18. Red4 c6 19. Rxe6 Dxe6 20. Rd4 Bc5 21. f3 Bxd4 22. Dxd4 Rc5 23. h4 Rxd3+ 24. Hxd3 Hhg8 25. Hd2, með nokkuð jöfnu tafli. 11. ...a6 12. Ba4 h5 13. Dd3 Rf6 14. Rd2 Bf5 15. Bxc6 Bxd3 16. Bxd7+ Rxd7 17. Rc1 Bf5 18. Re2 Bd3 19. Rc1 Bc2 20. Rf1 g4 21. Bf4 Be4 22. hxg4 hxg4 23. Hxh8 Hxh8 24. Re3 Rf8 25. Ke2 Rg6 26. Bg3 Bg5 27. Rxg4 Bxg2 28. Re3 Be4 29. Rd3 f5 30. Be5 Hh5 31. Re1 – Sjá stöðumynd II. Jón er kominn í mjög óvirka og erfiða vörn. 31. ...Bxe3?! Betra virðist 31. ...f4, t.d. 32. Rg4 Hh3 33. f3 Bf5 34. Hd1 Kd7 35. Rf2 Hh2 36. Kf1 Bh4 37. Red3 Bg3 38. a4 b6 39. b4 Bxd3+ 40. Rxd3 Hc2 41.a5 Kc8 42. axb6 cxb6 43. Ha1Kb7 44. Hb1 Hxc3 45. Ke2 Hc2+ og svartur á peð yfir og unnið endatafl. 32. Kxe3 Hh3+ 33. Ke2 f4 34. Bf6 Kd7 35. f3 – Hvítur getur aldrei leikið Hd1 til að koma riddaranum til d3: 35. Hd1 a5 36. Rd3? (38. Hd2 a4 39. Rd3? Bf3+ 40. Ke1 Hh1+ mát) 38. ...Bf3+ og svartur vinnur skiptamun. 35. ...Hh2+ 36. Kf1 Bf5 37. b3 Hd2 Sjá stöðumynd III. 38. a4 Ke6 39. Bd8 Kd7 40. Bf6 c6 41. a5 Hb2 42. b4 Hd2 43. Hc1 Rf8 44. Kg1 Re6 45. Rg2 Ke8 46. Bh4 Kf7 47. Re1Kg6 48. Rg2 Bh3 49. Re1 Rg5?! Gurevich hefur líklega ekki reikn- að með því, að mikið hald væri í þessari óvirku stöðu hvíts, en hann á eftir að komast að raun um annað. Hann virðist eiga betri leik: 49. ...Rc7!? 50. Hc2 Hd1 51. Kf2 Rb5 52. Ke2 Ha1 53. Kf2 (53. Rd3 Bf1+ 54. Kd2 Ra3 55. Rxf4+ Kf5) 53. ...Bf5 54. Hd2 (54. He2 Rxc3 55. He7 Ha2+ 56. Kg1 Re2+ 57. Kf1 Bh3+ 58. Kf2 Rxd4+) 54. ...Rxc3 55. Rg2 Hb1 56. Rxf4+ Kf7 57. Rd3 Bxd3 58. Hxd3 Rb5 59. He3 Hxb4 60. He7+ Kg6 61. Hxb7 Hb3 62. Hb6 Rxd4 63. Hxa6 Hxf3+ o.s.frv. 50. Bxg5 Kxg5 51. Hc2 Hd1 52. Kf2 Bf5 53. He2 Hc1 54. He7 Hxc3 55. Hg7+ Kf6 56. Hxb7 Hc4 57. Hb6 Hxd4 58. Hxc6+ Ke5 59. Hxa6 Hxb4 60. Ha8 Hb2+ 61. Kg1 Hb1 62. Kf2 Hb2+ Nú er skákin jafntefli, t.d. 62. ...Ha1 63. a6 Ha2+ 64. Kg1 Kd4 65. Rg2 Bd7 66. Rxf4 Bc6 67. Hb8 Hxa6 68. Kf2 Ha2+ 69. Kg3 o.s.frv. 63. Kg1 Hb1 64. Kf2 Hb2+ og keppendur sömdu um jafntefli. Jón Garðar hafnaði í 15.–25. sæti á mótinu með 5½ vinning. Gylfi Þór Þórhallsson hlaut 2 vinninga og hafnaði í 94.–97. sæti. Loek Van Wely (2.645) sigraði með yfirburðum á mótinu og hlaut 8½ vinning. Lenka og Arnar Gunnarsson í Olomouc Þau Lenka Ptacnikova og Arnar Gunnarsson taka nú þátt í skákhá- tíðinni í Olomouc í Tékklandi. Eftir átta umferðir er Arnar með fjóra vinninga og eina frestaða skák, en Lenka er með fjóra vinninga. Tefld- ar verða 11 umferðir. Slök byrjun hjá Hörpu í Stokkhólmi Harpa Ingólfsdóttir teflir um þessar mundir á alþjóðlegu kvenna- móti í Stokkhólmi. Hún hefur tapað fyrstu þremur skákunum. Jón Garðar og Sævar með 2 af 3 í Vlissingen Þremur umferðum er lokið á al- þjóðlegu skákmóti í Vlissingen í Hol- landi. Þeir Sævar Bjarnason og Jón Garðar Viðarsson eru með tvo vinn- inga, en Gylfi Þór Þórhallsson hefur fengið 1½ vinning. Nær 200 þátttak- endur eru með á mótinu, sem haldið er í sjötta skipti, og hafa aldrei verið fleiri. Jón Garðar náði lokaáfanga að AM-titli SKÁK Amsterdam 10. LOST BOYS-SKÁKMÓTIÐ 26. júlí–4. ágúst 2002 Jón Garðar Viðarsson Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Stöðumynd I. Stöðumynd II. Stöðumynd III. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r Skólavörðustíg 21, sími 551 4050. Viskustykki Til í níu munstrum Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík INNLENT VOTTAR Jehóva halda árlegt lands- mót sitt í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi dagana 9. til 11. ágúst. Mótið nefnist „Kostgæfir boðberar Guðsríkis“ og er þáttur í alþjóðlegri mótaröð sem hófst í maí sl. og stend- ur fram í janúar á næsta ári. „Á mótinu er meðal annars lögð áhersla á gildi þess að sjá heims- atburðina í ljósi Biblíunnar. Vottar Jehóva telja Biblíuna mikilvæga kjölfestu í ólgusjó lífsins, enda varpi spádómar hennar ljósi á framvindu heimsmálanna og framtíð mann- kyns. Flutt verða rúmlega 30 erindi á mótinu ásamt umræðum, viðtölum, sýnidæmum og biblíuleikriti. Roger Paterson flytur aðalræðu mótsins á sunnudag kl. 13:45 og nefnist hún „Mynd þessa heims breytist.“ Búist er við 400 til 500 gestum hvaðanæva af landinu og er mótið opið öllum sem hafa áhuga á Biblí- unni og biblíufræðslu. Dagskráin hefst kl. 9:30 að morgni alla dagana og kl. 14:00 síðdegis á föstudag og laugardag en kl. 13:30 á sunnudag,“ segir í fréttatilkynningu. Vottar Jehóva halda þriggja daga landsmót MINJASAFN Austurlands stendur fyrir rútuferð um Hróarstungu með leiðsögn sunnudaginn 18. ágúst. Ferðaleiðin verður um Krakárlækj- arþing, Kirkjubæ, Galtarstaði fram, Geirsstaðakirkju og endað í Húsey. Leiðsögumaður er Páll Pálsson frá Aðalbóli. Lagt verður af stað frá Minjasafni Austurlands kl. 13. Boðið verður upp á miðdegiskaffi og kvöldmat í ferð- inni, en fólki bent á að hafa með sér drykkjarföng. Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir fullorðna og 1.500 kr. fyrir börn. Vegna mikillar aðsóknar er fólk beðið um að bóka sig fyrir 15. ágúst, en farið verður í 60 manna rútu. Ferðin er styrkt af Menningarráði Héraðssvæðis. Rútuferð um Hróarstungu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.