Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 07.08.2002, Síða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Dettifoss og Selfoss koma og fara í dag. Mánafoss kemur í dag. Bjarni Sæmundsson og Oceanus fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Lómur og Polar Prin- cess koma í dag. Ore- hovsk fór í gær, Bald- vin fór líklega í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Sum- arlokun frá 1. júlí til 1. september. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 13 spil- að, kl. 13.30 keila og frjáls spilamennska. Púttvöllurinn er opinn kl. 10–16 alla daga. Bingó verður næst spil- að 9. ágúst kl. 13.30. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 böðun, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10–10.30 banki, kl. 13–16.30 spil- að. Þriðjudaginn 20. ágúst kl. 8 verður farin skoðunarferð um Vík og nágrenni. Ekið upp í Heiðardal og um Reynishverfið. Súpa og brauð í Vík. Kvöldverð- ur í Drangshlíð austur undir Eyjafjöllum. Leiðsögumaður Hólm- fríður Gísladóttir. Skráning og greiðsla í síðasta lagi þriðjudag- inn 13. ágúst. Allir vel- komnir. Uppl. og skráning í síma 568 5052. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 14.30 banka- þjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hárgreiðslu- stofan opin kl. 9–17 alla daga nema mánudaga. Félag eldri borgara í Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Ferð á vegum FEBK verður farin fimmtudaginn 8. ágúst um uppsveitir Árnes- sýslu og Landsveit undir leiðsögn þjóð- sagnasafnarans Bjarna Harðarsonar. Skoðaður verður hellirinn að Hellum og fleiri staðir í Landsveit. Síðan verð- ur farið á Sprengi- sandsveg að Sultar- tangavirkjun þar sem lón og stíflumannvirki verða skoðuð ofan af Sandfelli. Næsti áfangastaður verður Hólaskógur, þar er ætlunin að borða nesti. Ef rútufært er verður ekið að Háafossi, síðan niður í Þjórsárdal þar sem Búrfellsvirkjun verður heimsótt – einn- ig þjóðveldisbærinn Stöng og Hjálparfoss. Kaffihlaðborð verður í Félagsheimilinu Árnesi. Heim verður haldið niður Skeiðaveg. Áætluð heimkoma kl 19. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10 og frá Gullsmára kl. 10.15. Þátttökulistar liggja frammi í Gjábakka – einnig í Gullsmára 7, 9 og 11. Ferðanefndin, Bogi Þór, s: 554 0233 og Þráinn, s: 554 0999. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Fótaaðgerð- arstofa, tímapantanir eftir samkomulagi, s. 899 4223 Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 9.45. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Fræðslu- og menningarferð í Skálholt 9. ágúst. Leið- sögumaður Pálína Jónsdóttir. Brottför frá Glæsibæ kl. 10. Fyrir- hugaðar eru ferðir til Portúgals 10. septem- ber í 3 vikur og til Tyrklands 1. október í 10 daga fyrir félags- menn FEB, skráning er hafin takmarkaður fjöldi. Skráning hafin á skrifstofunni. Silfur- línan er opin á mánu- og miðvikudögum frá kl. 10–12 f.h. í s. 588 2111. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama síma- númer og áður. Félags- starfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrif- stofu FEB. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, kl. 9–17 hárgreiðsla. Gerðuberg, félagsstarf. Lokað vegna sumar- leyfa, opnað aftur þriðjudaginn 13. ágúst. Á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs eru sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.30 mánudaga, miðviku- daga og föstudaga. Umsjón Brynjólfur Björnsson íþróttakenn- ari. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 13 félagsvist FEBK, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 17 bobb. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 11- 11.30 banki, kl. 13–14 pútt, kl. 13 brids. Vitatorg. Kl. 9 smiðj- an, kl. 9.30 bókband, kl. 10 morgunstund, kl. 12.30 verslunarferð Bónus. Bankaþjónusta 2 fyrstu miðvikudaga í mánuði. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerð. Hvassaleiti 58–60. . Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 13 banki, kl. 14. félagsvist. Fótaaðgerðarstofan op- in. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 13–14 spurt og spjall- að.Verslunarferð í Bón- us kl. 13.30. Háteigskirkja, eldri borgarar. Kl. 11 stutt fyrirbænamessa, kl. 12 súpa og brauð, kl. 13 brids. Níu holu pútt- völlur opinn alla virka daga þegar veður leyf- ir. Kaffi. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogs Apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgata 8–10, Keflavík: Apótek Kefla- víkur, Suðurgötu 2, Landsbankinn, Hafn- argötu 55–57. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Vest- urlandi: Akranes: Hagræði hf., Borg- arnes: Dalbrún, Brák- arbraut 3. Grundar- fjörður: Hrannarbúð sf., Hrannarstíg 5. Stykkishólmur: Hjá Sesselju Pálsd., Silfur- götu 36. Ísafjörður: Póstur og sími, Aðal- stræti 18. Stranda- sýsla: Ásdís Guð- mundsd. Laugarholti, Brú. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Aust- urlandi: Egilsstaðir: Gallery Ugla, Mið- vangur 5. Eskifjörður: Póstur og s., Strand- götu 55. Höfn: Vilborg Einarsdóttir, Hafnar- braut 37. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Norð- urlandi: Ólafsfjörður: Blóm og gjafavörur, Aðalgötu 7. Hvamms- tangi: Verslunin Hlín, Hvammstangabraut 28. Akureyri: Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Möppudýrin, Sunnuhlíð 12c. Mý- vatnssveit: Pósthúsið í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrið, Héðins- braut 1, Raufarhöfn: Hjá Jónu Ósk Péturs- dóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- tek Vestmannaeyja, Vestmannabraut 24. Selfoss: Selfoss Apó- tek, Kjarninn. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Í dag er miðvikudagur 7. ágúst, 219. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Ég bið ekki, að þú takir þá úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa. (Jóh. 17, 15.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 afar veikur, 8 sori, 9 fim, 10 dráttardýr, 11 veitir tign, 13 grassvarð- arlengja, 15 réttu, 18 frek, 21 bein, 22 stíf, 23 endurtekið, 24 skordýrið. LÓÐRÉTT: 2 hnekkir, 3 lætur af hendi, 4 ásýnd, 5 dysjar, 6 snagi, 7 æsa, 12 elska, 14 öskur, 15 sæti, 16 hafni, 17 örlagagyðja, 18 dögg, 19 kirtli, 20 þarmur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 tengi, 4 sýtir, 7 pilta, 8 lýsir, 9 nem, 11 iðin, 13 eira, 14 útlim, 15 hola, 17 mörk, 20 óra, 22 fæðum, 23 sælan, 24 asnar, 25 aftra. Lóðrétt: 1 teppi, 2 núlli, 3 iðan, 4 sálm, 5 tossi, 6 rýrna, 10 eflir, 12 núa, 13 emm, 15 hefja, 16 loðin, 18 örlát, 19 kenna, 20 ómur, 21 assa. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... ÁNÆGJULEGT er að umferðinvirðist hafa gengið vel um verslunarmannahelgina. Ekki komu fram í fréttum neinar sögur um um- ferðarslys en eflaust hefur eitthvað verið um óhöpp og smáatvik samt sem áður. Má velta fyrir sér hverju þetta batnandi ástand miðað við fyrri ár sé að þakka. Eflaust kemur þar margt til. Mik- ið var um leiðbeiningar, ráðlegging- ar, viðvaranir og áróður í fjölmiðlum frá lögreglu og öðrum sem umferð- armálin snerta síðustu daga fyrir helgina. Samkvæmt fréttum var lög- reglan víðast venju fremur sýnileg og virk í eftirliti sínu og eflaust á það sinn þátt í því að fæla menn frá asna- spörkum í umferðinni. Víkverji leyfir sér jafnframt að halda fram að ein helsta skýringin sé aukinn þroski okkar ökumanna og batnandi hegð- an. Við vitum auðvitað að hegðan okkar í umferðinni hefur ekki alltaf verið til fyrirmyndar. Við vitum líka að slíkt getur tekið sinn toll í slysum, eignatjóni og jafnvel manntjóni. Kannski hafa ökumenn helgarinnar haft þessi atriði ofarlega í huga þeg- ar þeir héldu út í þunga umferðina hvarvetna um landið og sýnt af sér meiri varkárni og tillitssemi en áður. Vonandi endist þetta hugarfar og þessi ákjósanlega hegðan nokkuð fram yfir helgina, vonandi út vikuna, mánuðinn og jafnvel lengur. En áróður, ábendingar og eftirlit þurfa eftir sem áður að vera fyrir hendi. Annars er líklega hætta á að við gleymum okkur. x x x ANNARS getur Víkverji ekkiþakkað sér neitt í þessum efn- um. Hann fór nefnilega ekki út fyrir borgarmörkin alla helgina. Nema líklega í Kópavoginn. Og til þess að komast í þann hluta Kópavogs þurfti hann að fara um Garðabæ. Víkverji hefur nefnilega lengi vel iðkað það að fara hvergi um verslunarmannahelg- ina. Þá er rólegt og gott í bænum og eins og hann hefur áður minnst á þykir honum letilíf mjög eftirsókn- arvert og er þessi helgi mjög upp- lögð til að stunda slíkt og hvar þá annars staðar en heimavið? Helstu afrekin eru á sviði hjólreiðatúrs (sem var mjög stuttur) og reyndar brá hann sér í golf og þurfti þá enn að fara í annað bæj- arfélag. Það var nefnilega golfkeppni á Nesvellinum og talar nú Víkverji eins og sá sem fer þar fremstur í flokki! Nei, það var nú öðru nær. Einmitt af því að það var keppni var hægt að læðast á æfingapallinn og æfa upphafshöggið. Aðrir á vellinum voru nefnilega svo uppteknir við mótið að Víkverji gat slegið öll sín mörgu vindhögg, hliðarhögg, ská- högg, eins metra högg og hvernig sem þessi högg nú enduðu án þess að verða að alltof miklu athlægi. Reyndar fóru sum höggin í 50 metr- ana og örfá jafnvel kringum 100 metrana. Víkverji hefur komist að því á byrjendaferli sínum í golfinu að þessi íþrótt krefst mikillar tæknikunnáttu. Það þarf að ná réttu sveiflunni því þá svífur kúlan 100 metra fyrirhafnar- laust. En það þarf líklega talsverða æfingu til að ná þeirri leikni. Og mik- ið var honum létt þegar lengra kom- inn golfari sagði að þetta væri nú ekki auðveldasta sportið. Af hverju er maður þá ekki bara í skokkinu? Nei, við skulum sjá hvað setur og segir ekki meira af golfi að sinni. Snarir hjá Snara MIG langar að þakka fyrir frábæra þjónustu hjá heildversluninni Snara í Tranavoginum. Ég hafði samband við heildversl- unina til að fá helíum- blöðrur og vildu starfs- mennirnir allt fyrir mig gera. Svona á þjónusta að vera og ég mun sko hafa aftur samband við þau. Takk fyrir frábæra þjón- ustu. Ánægður viðskiptavinur. Skjót viðbrögð Vegagerðarinnar ÉG VIL þakka Vegagerð- inni skjót viðbrögð. Ég hringdi þangað varðandi vegarkant sem gekk inn á veginn undir Breiðholts- brúnni og mér þótti slysa- gildra. Starfsmenn Vega- gerðarinnar brugðust skjótt við og settu þarna viðvörunarkeilur sem ættu að vera góð vörn þangað til kanturinn verður lagað- ur. Herdís. Garðakirkjugarður vel hirtur VIÐ viljum lýsa ánægju okkar með það hvað Garðakirkjugarður hefur verið einstaklega vel hirt- ur í sumar. Við komum þangað oft á virkum dög- um og höfum tekið eftir ungum stúlkum sem vinna þar við að slá og þrífa garðinn. Eru þær hörku- duglegar og vandvirkar. Einnig er búið að koma þar upp góðri aðstöðu til vökvunar. Hafið þökk fyrir. Hjón í Garðabæ. Íslenskir vinir óskast ÉG ER aðdáandi nor- rænnar menningar og hef í hyggju að ferðast til Ís- lands næsta ár. Þangað til langar mig að eignast ís- lenska vini og skiptast á tölvupósti til að kynnast betur. Seinna meir, þegar ég heimsæki Ísland, væri gaman að hittast og verja nokkrum dögum saman. Á móti býð ég heimili mitt og aðstoð ef einhver myndi vilja heimsækja mig. Ég bý í Madrid, er giftur, 53 ára og á þrjú börn. Þeir sem hafa áhuga vinsamlega skrifi, á ensku eða spænsku, á tölvupóst- fangið vicentefisac@ya- hoo.es. Vicente Fisac. Dýrahald Kisa fæst gefins ÞRIGGJA ára svört og hvít læða fæst gefins. Hún hefur fengið allar bólu- setningar og sprautur og með fylgja vottorð upp á það. Hún er sérlega góð, mjúk, hlý og kelin og í alla staði yndisleg kisa. Með henni fylgir sandkassi. Áhugasamir hafi síma í 821 7988. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is NÚ ER nokkuð liðið síðan lögræðisaldur var hækk- aður úr sextán árum í átján. Þrátt fyrir það hef- ur lítil breyting orðið á verðskrá ýmissa fyrir- tækja vegna þjónustu sem þau veita, s.s. hjá sund- laugum og tjaldsvæðum. Á allflestum stöðum eru sextán ára og eldri látnir greiða hærra gjald. Eina skýringin sem ég sé á því að fyrirtæki rukka lægri þjónustugjöld eða inn- göngumiða fyrir yngri en sextán ára er til að létta undir með foreldrum og stuðla að aukinni samveru foreldra og barna. Ætla mætti að oft og tíðum væri meiri kostnaður af börnum og unglingum, t.a.m. í sundlaugunum, þar sem hafa þarf meiri gætur á þeim, þau eru lík- legri til að bruðla með sápu og vatn, þurfa leik- tæki til að ærslast í og margt fleira. Áður fyrr, þegar ung- lingar urðu lögráða sex- tán ára, var réttlætanlegt að rukka hærra gjald. Þau borguðu sjálf af laun- unum sem þau unnu sér inn sjálf. Nú eiga ungling- ar erfitt með að fá vinnu fyrr en þeir eru orðnir átján ára. Unglingar fá því litla vinnu og lág laun. Mikið hefur verið um að foreldrar séu hvattir til að taka unglingana með, t.d. í ferðalög, en á öllum tjaldsvæðum er rukkað fyrir sextán ára og eldri sem fullorðna. Hvers vegna er það? Annað sem ekki hefur breyst í takt við ný lög er aðgangsaldur ýmissa af- þreyingarstöðva, en mið- að er við sextán ára aldur og yfir, t.d. í líkamsrækt- arstöðvum. Hver er ábyrgur ef sextán ára unglingur slasar sig í lík- amsræktarstöð? Hvers vegna er unglingum hleypt einum inn á útihá- tíðir? Ef unglingur fer á slíka skemmtun í trássi við foreldra og eitthvað kemur fyrir, hver ber ábyrgðina? Geta foreldrar lögsótt staðarhaldara? Ég vona að þetta grein- arkríli geti orðið til þess að fyrirtæki og stofnanir miði lágmarksaldur sinn við átján ár en ekki sextán framvegis. Guðrún Guðmundsdóttir. Misræmi í lágmarksaldri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.